Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 06:26 Selenskí ræðir við ráðstefnugesti í gegnum fjarfundarbúnað á öryggisráðstefnu í Varsjá í Póllandi í gær. Vísir/AP Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gert árásir á sex orkumannvirki í landinu örfáum klukkustundum eftir að Donald Trump tilkynnti um orkuvopnahlé ríkjanna á milli.
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að Úkraínumenn hafi ekki látið til skarar skríða líkt og Rússar. „Ég held að þetta hafi verið svar Pútín til Trump,“ segir Selenskí. Samkvæmt úkraínsku fréttastofunni Ukrinform varð meðal annars rafmagnslaust í borginni Isjúm eftir að rússnesk árás eyðilagði raforkukerfi. Orku- og járnbrautarinnviðir í vesturhluta landsins urðu einnig fyrir árásum í nótt. Þá segir í tilkynningu Ukrenergo, ríkisreknu flutningsfyrirtæki raforku í Úkraínu, að rafmagnslaust hafi orðið í Kharkív, Donetks og Saporisjía vegna skemmda á búnaði og hefur rafmagni verið skammtað í hluta landsins til að koma í veg fyrir skemmdir vegna álags á búnað. Tilkynnti um vopnahlé án vitundar Selenskíj Þegar Trump tilkynnti um vopnahléið á sunnudag sagði Selenskí að það væru nýjar fréttir fyrir sér. Hann kvaðst þó styðja hugmyndina og kallaði hana mikilvægt skref í átt að stríðslokum ef Bandaríkjamenn myndu tryggja að Rússar virði hana. Trump sagði í gær að ríkin hefðu fallist á vopnahléið því „ég sagði þeim að gera það“ og að stríðið yrði að leysast. Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa sagði hins vegar að Úkraína ætti ekki skilið vopnahlé. Eldsneytisverð í Bandaríkjunum hefur hækkað í kjölfar átakanna í Mið-Austurlöndum en þingkosningar fara fram vestanhafs í byrjun nóvember. Trump tilkynnti á föstudag um áform um að flytja rússneska dísilolíu til Bandaríkjanna en samkomulagið felur í sér tímabundna undanþágu frá refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn orkuinnflutningi. Selenskí kallaði samkomulagið gjöf til Rússlands.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Bandaríkin Bensín og olía Rafmagn Donald Trump Tengdar fréttir Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið. 11. október 2026 15:22 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Sjá meira
Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið. 11. október 2026 15:22