Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Birgir Olgeirsson skrifar 19. október 2026 13:05 Jón Gnarr fær áfram aðstoð þingflokks Viðreisnar og heitir stuðningi við fjárlög og stefnumótandi frumvörp ríkisstjórnarinnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, situr fyrir aftan hann. Vísir/Anton Brink Rúmlega 1,3 milljónir króna á ári færast frá þingflokki Viðreisnar til Jóns Gnarr eftir úrsögn hans úr þingflokknum. Starfsheimild Viðreisnar helst óbreytt og Jón fær áfram aðgang að sérfræðiaðstoð þingflokksins samkvæmt samstarfssamningi þeirra.
Jón heitir í samningnum stuðningi við fjárlög, fjáraukalög og stefnumótandi frumvörp ríkisstjórnarinnar sem byggjast á stjórnarsáttmálanum. Þar gæti meðal annars verið átt við frumvörp um kosningalög, auðlindagjöld, orkumál og húsnæðismál. Samningurinn er dagsettur 15. október og undirritaður af Jóni og Pawel Bartoszek, formanni þingflokks Viðreisnar. Sama dag var tilkynnt um úrsögn Jóns úr þingflokknum. Framlagið fylgir Jóni Framlög til þingflokks Viðreisnar lækka um eina framlagseiningu við úrsögn Jóns, eða 1.329.630 krónur á ári. Sú fjárhæð rennur þess í stað til þingstarfa hans sem þingmanns utan þingflokka. Sama fyrirkomulag gildir um framlagið sem færðist frá þingflokki Flokks fólksins við úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar fyrr á þessu ári. Starfsheimild Viðreisnar hefur hins vegar ekki minnkað. Úrsögn Jóns leiðir því ekki til þess að þingflokkurinn þurfi að fækka starfsfólki á kostnað Alþingis. Jón Gnarr mun styðja fjárlög, fjáraukalög og stefnumótandi frumvörp stjórnarinnar sem fram koma í stjórnarsáttmála. Vísir/Anton Brink Þegar Guðmundur Ingi hætti í Flokki fólksins þurfti þingflokkurinn aftur á móti að fækka starfsfólki um einn. Framsókn fékk þess í stað heimild til að bæta við starfsmanni, eins og Heimildin greindi frá í apríl. Alls eru 25 stöðugildi til úthlutunar milli þingflokka. Hver þingflokkur fær að lágmarki einn starfsmann. Störfunum sem eftir standa er skipt með D’Hondt-reglunni eftir stærð þingflokka, að frádregnum þeim þingmönnum sem hafa eigin aðstoðarmenn samkvæmt öðrum reglum. Þar er um að ræða ráðherra og formenn flokka í stjórnarandstöðu. Úrsögn Jóns breytti ekki niðurstöðu þeirrar úthlutunar. Stuðningur við stór stefnumál Í fyrsta kafla samningsins lýsir Jón yfir stuðningi við framgang stjórnarmála og megináherslur þeirra á kjörtímabilinu. Þar segir jafnframt: „Hann mun taka þátt í atkvæðagreiðslum þar sem hann mun styðja fjárlög, fjáraukalög og stefnumótandi frumvörp stjórnarinnar sem fram koma í stjórnarsáttmála.“ Undir stuðningsyfirlýsinguna gæti meðal annars fallið frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu, sem er nú til meðferðar í velferðarnefnd Alþingis. Í greinargerð þess er sérstaklega vísað til áherslna stjórnarsáttmálans um húsnæðisöryggi og sterkari stöðu leigjenda. Jón Gnarr og Pawel Bartoszek skrifa undir þennan samstarfssamning og geta báðir sagt honum upp skriflega. Vísir/Vilhelm Þá gæti ákvæðið náð til fyrirhugaðra breytinga á kosningalögum til að jafna atkvæðavægi og þingsætadreifingu. Starfshópur hefur skilað tillögum og frumvarpsdrögum til Alþingis, meðal annars um að fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þær breytingar hafa ekki verið samþykktar. Heldur aðstoð og nefndarsætum Viðreisn mun samkvæmt samningnum veita Jóni aðgang að sérfræðiaðstoð og annarri stoðþjónustu eftir nánara samkomulagi. Jón heldur jafnframt sæti sínu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, þar sem samningurinn kveður á um að hann sitji sem almennur nefndarmaður. Hann á áfram sæti í Þingvallanefnd og gegnir áfram formennsku í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Þingflokkur Viðreisnar getur kallað inn varamann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í fjarveru Jóns. Þá getur þingflokkurinn kallað inn varaþingmann í lögbundnum fjarverum hans frá þingstörfum, í samræmi við reglur Alþingis. Samningurinn tók gildi við undirritun og gildir til loka kjörtímabilsins. Hvor aðili getur sagt honum upp með skriflegri tilkynningu. Tengd skjöl Samstarfssamningur_Jóns_Gnarr_og_ViðreisnarPDF417KBSækja skjal
Alþingi Viðreisn Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira