„Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Árni Sæberg skrifar 20. október 2026 15:58 Þorbjörg Sigríður segir sitthvað til í gagnrýni Jóns á forystu Viðreisnar. Vísir/Anton Brink/Einar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist döpur að hafa misst Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og vonar að hann snúi til baka. Hún segir þingflokkinn og forystu flokksins taka gagnrýni hans til greina.
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar á fimmtudag í síðustu viku og vísaði meðal annars til pólitísks ágreinings innan þingflokksins og að hann hefði ekki hlotið stuðnings innan flokksins. Þá gagnrýndi hann stjórnleysi í þingflokknum og sagði köldu anda milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Þorbjörg Sigríður tók fyrstu skóflustunguna að nýju fangelsi að Stóra-Hrauni í dag og Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður tók hana tali að lokinni skóflustungu. Hvað varðar þingflokk Viðreisnar og stöðu hans sagði Þorbjörg Sigríður að hún og Jón væru miklir mátar og þau hefðu unnið vel saman. Hún sagðist vera döpur yfir því að hann væri að yfirgefa þingflokkinn, enda hefði hann verið verið frábær samstarfsfélagi og vinur. Vonar að hann snúi heim Hún sagði að hún vonaði að Jón myndi á endanum snúa aftur heim í þingflokk Viðreisnar. Hann hefur sagst ekki eiga samleið með neinum öðrum þingflokki á Alþingi og því þýði ekkert að bjóða honum að ganga til liðs við annan þingflokk. „Hann hefur lýst sínum ástæðum fyrir því að svona fór og það er það er sitthvað til í því sem hann er að segja og ég tek eftir því að forysta flokksins tekur undir það líka að hún ætli að bregðast við og gera betur en verið hefur. Við vitum það auðvitað að það er meiriháttar stór ákvörðun fyrir þingmann að ákveða að yfirgefa þingflokk. Það gerist heldur ekki alveg í tómarúmi og verkefni þingflokksins núna er auðvitað að vega og meta þessa gagnrýni , hlusta á hana og mæta henni.“ Tjáir sig ekki um sögusagnir Hvað varðar fullyrðingar Jóns um að köldu andi á milli þeirra Þorgerðar Katrínar sagði Þorbjörg Sigríður að þær hefðu verið settar fram sem svar við sögusögnum sem hefðu verið bornar undir hann. Henni þætti ekki mikil ástæða til að tjá sig um sögusagnir. „Mér finnst ráðherrahópur Viðreisnar hafa verið samhentur og hafa unnið vel saman. Auðvitað tökumst við á, það er í eðli stjórnmála. En samstarfið hefur verið gott og ég held að það birtist ekki síst í því að við erum að ná mjög fínum árangri.“ Hún hefði til að mynda afgreitt fjórtán frumvörp og mál á síðasta þingi og afgreitt flest mál hvað varðar breytingar á útlendingalögum í áratug. „Við stöndum hér í dag og erum að taka til hendinni í fangelsismálum. Ég held að árangurinn tali sínu máli. En ég geri ekki lítið úr því að þegar svona alvarleg gagnrýni kemur fram að þá þarf að hlusta á hana og það þarf að bregðast við henni og mér finnst ég skynja það á forystu flokksins að hún ætlar að gera það.“ Er þá von á jafnvel einhverjum breytingum á forystu flokksins eða hvað meinar þú með því að það verði brugðist við? „Ekki annað en það sem formaðurinn hefur sagt, að hún taki orðum Jóns alvarlega, hlusti á þau. Ég er auðvitað ekki best til þess fallin að lýsa því hver gagnrýni Jóns er nákvæmlega en mér finnst það heilbrigt og gott að heyra það hjá formanninum að hún er að hlusta á þessa gagnrýni og það þarf auðvitað þingflokkurinn allur að gera. Það er verkefnið okkar allra.
Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Alþingi Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira