Lífeyrissjóðir farnir að horfa til Alvotech eftir 1,6 milljarða kaup á víkjandi bréfum
![Við skráningu Alvotech á markað fyrr á árinu var stærsti hluthafinn fjárfestingafélagið Aztiq, sem er að stórum hluta í eigu Róberts, með um 40 prósenta hlut.](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_713x0.jpg)
Að minnsta kosti þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu að fjármögnun á líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech í liðinni viku með kaupum á skuldabréfum fyrir tæplega tvo milljarða sem eru breytanleg í almenn hlutabréf að rúmlega einu ári liðnu. Áður hafði Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, sem var jafnframt í hópi þeirra sjóða sem tóku þátt í nýafstöðnu skuldabréfaútboði, fram að því verið eini lífeyrissjóðurinn hér á landi sem hafði fjárfest í eigin nafni í Alvotech.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/721E607821B202E5B2955E285B139D6EFE1EE39E408A7493B6CE6A5076BF0B29_308x200.jpg)
DNB mælir með kaupum í Alvotech og verðmetur félagið á 700 milljarða
Hlutafé íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins Alvotech, sem var skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi í liðnum mánuði, er metið á rúmlega 5,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi, samkvæmt nýju verðmati.