Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn magnast flóðin í Queensland Flóðin í Queensland í Ástralíu virðast alls ekki í rénum. Allt að 20 þúsund heimili eru nú í hættu í Brisbane, þriðju stærstu borg Ástralíu og gætu orðið flóðunum að bráð, segir ríkisstjórinn í Queensland. 12.1.2011 08:05
Ný rannsókn kann að gefa sköllóttum von um lækningu Ný rannsókn á eðli skallamyndunar hjá körlum ýtir undir vonir um að hægt verði að lækna skalla. 12.1.2011 08:00
Lét lífið stuttu eftir svæfingu Conrad Murray, læknir söngvarans Michaels Jackson, sagðist hafa nuddað fætur söngvarans, borið krem á bak hans og gefið honum svefnlyf án árangurs nóttina örlagaríku í júní síðastliðnum, þegar Jackson lést. 12.1.2011 08:00
Sinubruninn: Rannsaka hvort eldurinn hafi kviknað á nokkrum stöðum í einu Fjöldi slökkviliðs- og lögreglumanna barðist fram á nótt við gríðar mikinn sinueld, sem kviknaði í Vatnsmýrinni, skammt frá húsi Íslenskrar erfðagreiningar rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. 12.1.2011 07:59
Veðurstofan varar við snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands beinir þeim tilmælum til skíðamanna, vélsleðafólks og annarra að vera ekki á ferð á snjóflóðasvæðum, halda sig frá snjóflóðabrekkum og vera ekki á ferð þar sem snjóflóð geta fallið. 12.1.2011 07:12
Leki kom að færeysku flutningaskipi Færeyskt flutningaskip tók þrisvar niðri á grynningum, þegar það var á leið út frá Þórshöfn á Langanesi um tíu leitið í gærkvöldi. Við það rifnuðu göt á jafnvægistanka skipsins og leki kom að því. 12.1.2011 07:09
Ráðuneytið vísar á stjórnvöld erlendis Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir gögnum frá Indlandi sem varða Jóel Færseth Einarsson, sem fékk íslenskan ríkisborgararétt í lok síðasta árs. Þrátt fyrir það hefur drengurinn enn ekki fengið vegabréf til að snúa heim til Íslands. Fulltrúar ráðuneytisins vildu ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið, en yfirlýsing var birt á vef þeirra í gær. 12.1.2011 07:00
Mismunun ef blindir fengju leigubíl „Við erum að taka yfir þennan málaflokk frá ríkinu og ætlum okkur að skara fram úr í þjónustu við fatlaða til lengri tíma,“ segir Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. 12.1.2011 06:00
ESB-viðræðunum kann að verða slitið þyki ástæða til Ekki er fullvíst að viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði lokið með samningi sem borinn verður undir þjóðina. Áður en af því getur orðið kann sú staða að koma upp að Alþingi endurmeti aðildarumsóknina. Þetta er mat Árna Þórs Sigurðssonar, starfandi formanns þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. 12.1.2011 06:00
Íbúar í Brisbane búa sig undir stórflóð Það var engu líkara en að tsunami-flóðbylgja hefði skollið á bænum Toowoomba í Ástralíu á mánudag. Gluggarúður sprungu í húsum og bílar þeyttust upp í tré og skoppuðu í flóðinu eins og korktappar. 12.1.2011 06:00
Hlutverk mannréttindaráðs óljóst Fulltrúar sjálfstæðismanna í borgarráði munu leggja fram fyrirspurn á borgarráðsfundi á morgun um lagalega endurskoðun á hlutverki mannréttindaráðs Reykjavíkur. 12.1.2011 06:00
Skógræktarfélagið hvetur til mótmæla „Gangi frumvarpið óbreytt í gegn mun það skaða skógrækt á Íslandi stórlega til frambúðar.“ 12.1.2011 06:00
Aðsókn of lítil til áframhalds Menntaskólinn í Reykjavík mun ekki hafa sérbekk fyrir þá nemendur sem ljúka grunnskóla fyrr á komandi skólaári. Slíkt hefur tíðkast á síðustu tveimur árum og segir Yngvi Pétursson rektor að verkefnið hafi gefist vel. Í ár hefur aðsóknin hins vegar verið svo lítil að ákveðið var að blása verkefnið af. 12.1.2011 06:00
Vill að stjórnvöld lækki skattana Eldsneytisverð náði nýjum hæðum í gær þar sem verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu fór allt upp í 213,6 krónur og lítraverð á dísilolíu fór upp í 213,9 krónur. Sáralítill verðmunur er milli útsölustaða þar sem innan við krónu munar á hvorri tegund. 12.1.2011 05:00
Kjöt merkt með fituinnihaldi Í byrjun næsta árs taka gildi í Bandaríkjunum nýjar reglur Matvælaeftirlits Bandaríkjanna (FSIS) sem gera framleiðendum skylt að upplýsa um næringargildi á umbúðum 40 algengustu kjöt- og fuglakjötstegunda í verslunum. 12.1.2011 04:00
Ástum steinbítanna lauk með harmleik „Steinbítshrygnan hrygndi um hálfáttaleytið [í fyrrakvöld]. Hængurinn hefði átt að taka við hrognaklasanum af henni en í staðinn át hann hrognin. Það voru mikil vonbrigði,“ segir Margrét Lilja Magnúsdóttir, safnstjóri Sæheima í Vestmannaeyjum. 12.1.2011 04:00
Enn sannfærður um sakleysi F. Lee Bailey, einn af lögmönnum O.J. Simpson, segir að mikilvæg sönnunargögn, sem ekki voru notuð við réttarhöldin yfir Simpson árið 1995, hefðu sýnt að hann væri saklaus af morðinu á fyrrverandi eiginkonu sinni og elskhuga hennar. 12.1.2011 03:15
Segja árásina refsingu Guðs Þingmenn á ríkisþinginu í Arizona veltu því fyrir sér í gær að setja neyðarlög sem banna mótmæli við jarðarfarir. 12.1.2011 03:15
Búið að slökkva eldinn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og á flugvellinum í Reykjavík hafa slökkt eldinn að mestu sem logaði í Vatnsmýri í kvöld. Enn logar í glæðum á svæðinu. Mikill sinubruni kviknaði um hálf tólf í kvöld skammt frá Öskju og barst með vindi í átt að Eggertsgötu. 11.1.2011 23:57
Félagsmönnum í VR gert auðveldara að kjósa forystu Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar á framhaldsaðalfundi í VR sem lauk á tólfta tímanum í kvöld. Þar á meðal var tillaga frá Rannveigu Sigurðardóttur sem mun meðal annars gera almennum félagsmönnum í félaginu auðveldara að kjósa forystu. 11.1.2011 23:57
„Íbúðin fylltist bara af reyk“ „Ég rétt náði að færa bílinn minn, hann stóð þarna einn í eldinum," segir íbúi á stúdentagörðunum við Eggertsgötu. Hann segist hafa fyrst orðið var við eldinn í Vatnsmýrinni þegar nágranni sinn dinglaði á bjölluna hjá sér og tilkynnti að það væri kviknað í túninu fyrir framan húsið. 11.1.2011 23:49
Elsta bruggverksmiðja í heimi fannst í Armeníu Elsta bruggverksmiðja í heimi fannst á dögunum í Armeníu. Hún er talin vera meira en 6100 ára gömul. Í helli í Armeníu, þar sem bruggverksmiðjan er talin hafa verið, fundust áhöld til að brugga og drekka vínið. Daily Mail segir að þessi fornleifafundur gefi vísbendingar um að það hafi verið Armenar sem fyrstir hafi byrjað að brugga vín. 11.1.2011 23:05
Foreldrar eiga að fylgjast með börnum á netinu Alls kyns nýjar samskipta- og spjallsíður hafa skotið upp kollinum á internetinu og sjaldan hefur verið mikilvægara að foreldrar viti hvaða sýndarheimum börn og ungmenni hrærast í og hvaða síður þau sækja. 11.1.2011 22:30
Sármóðgaðir Bretar - Obama segist vera meiri vinur Sarkozy Gula pressan í Bretlandi er sármóðguð eftir að forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sagði á fundi í Hvíta húsinu ásamt forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy, að hann væri besti bandamaðurinn. 11.1.2011 22:00
Verkfall gæti ógnað loðnuvertíðinni „Það er mikil samstaða í þessum hópi og mikill einhugur,“ segir Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls, starfsgreinafélags á Austurlandi. Á tiltölulega fjölmennum fundi á Egilsstöðum í kvöld var samþykkt að efna til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun í sex fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi. 11.1.2011 21:21
Von á fleiri skjölum frá Wikileaks Julian Assange kom fyrir dómara í Lundúnum í dag þar sem tekin var fyrir framsalsbeiðni Svíþjóðar á hendur honum. Sú fyrirtaka tók aðeins 10 mínútur og verður ekki fram haldið fyrr en sjöunda febrúar. Assange sagði fréttamönnum að WikiLeaks muni á næstunni herða mjög birtingu sína á leyndarskjölum. 11.1.2011 22:12
ÍAV þarf að segja upp 170 manns ÍAV sem er verktakahluti Íslenskra aðalverktaka þarf að segja upp 170 starfsmönnum í sparnaðarskyni, en það er tæplega helmingur allra starfsmanna fyrirtækisins. 11.1.2011 18:34
Vatnsmýrin logar Mjög mikill sinubruni er nú í Vatnsmýrinni í Reykjavík, nálægt Norræna húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru „fjölmargir" slökkvibílar á vettvangi. 11.1.2011 23:38
Icesave hafi ekki áhrif á lánshæfismat Indefence hópurinn vill að Icesavesamningurinn verði borinn undir lánsmatshæfisfyrirtækin áður en hann verður afgreiddur á Alþingi til að full vissa fáist um það fyrirfram að lánshæfismat Íslands muni ekki falla verði samningsdrögin staðfest. 11.1.2011 20:35
„Þetta er eins og í amerískri bíómynd“ Um eitt hundrað þúsund heimili í áströlsku borginni Brisbane gætu farið undir vatn á næsta sólarhringum. Íslendingur sem þar býr segir íbúa byrjaða að hamstra nauðsynjavörur enda flóðin þar þau verstu í meira hundrað ár. 11.1.2011 20:26
Húsbóndi í guðanna bænum borgaðu Bæjarstjórnin í litlu sveitaþorpi í Sviss var orðinn svo þreytt á slugsi íbúanna við að borga hundaskattinn sinn að hún endurvakti lög frá árinu 1904. Samkvæmt þeim er yfirvöldum heimilt að drepa hunda þeirra sem ekki borga leyfisgjaldið. 11.1.2011 20:15
Blekkja erlendar konur Oft hefur það komið upp að konur af erlendum uppruna hafa verið fengnar til að skrifa upp á skuldaviðurkenningar fyrir eiginmenn sína og vitað er um dæmi þess að þær hafi jafnvel verið blekktar til að afsala sér forsjá barna sinna. Þetta segir lögmaður sem annast hefur mál erlendra kvenna. 11.1.2011 20:12
Bannað að sletta í barnatíma Ríkissjónvarpið hefur ákveðið að hætta að sýna barnaefni þar sem enskum orðum og setningum er skotið inn í íslenskt tal, í kennsluskyni. Engin umræða hefur farið fram í fræðasamfélaginu um gildi svona tungumálakennslu hér á landi. 11.1.2011 20:02
Bílarnir skemmdust í óveðrinu Milljóna tjón varð á bílum sem stóðu við Landeyjahöfn síðustu helgi en þá gekk mikið óveður yfir. Bíleigandi segir ólíklegt að tryggingar bæti nokkuð og varar fólk við að geyma bíla sína við höfnina ef hvasst er. 11.1.2011 19:34
Fjölmargar ábendingar borist Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Matthíasi Þórarinssyni, 21 árs, en ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa fjölmargar ábendingar borist vegna Matthíasar og bílsins sem hann ekur um á, en ekkert af þeim hefur skilað niðurstöðu. 11.1.2011 19:00
Ekkert óeðlilegt við fjölda öryrkja á Litla-Hrauni Fangi á Litla-Hrauni telur ekki óeðlilegt að öryrkjar séu mun fleiri í hópi fanga en úti í þjóðfélaginu. Margir fangar komi inn á Hraunið úr mikilli neyslu, glími við margskonar fíkn eða geðsjúkdóma. Þá búi fangar við aðstæður sem skapi þunglyndi. 11.1.2011 18:39
Landsvirkjun bíður með boranir í Gjástykki Iðnaðarráðherra segir ríkisstjórnina einhuga um að friðlýsa Gjástykki. Heimamenn benda á að fyrir liggi staðfest skipulag um að svæðið verði tekið undir orkuvinnslu. Landsvirkjun hugðist hefja boranir þar í sumar, í samræmi við rannsóknarleyfi sem Orkustofnun veitti í gær, en hefur nú ákveðið að halda að sér höndum. 11.1.2011 18:36
Ráðuneytið bíður eftir upplýsingum frá Indlandi Innanríkisráðuneytið bíður eftir viðbrögðum indverskra stjórnvalda við fyrirspurn ráðuneytisins um forsjá Jóels Færseth Einarssonar, sem hefur verið fastur ásamt foreldrum sínum á Indlandi síðan í nóvember. Vonast er til að Jóel geti fengið íslenskt vegabréf þegar upplýsingar frá indverskum stjórnvöldum hefur borist. 11.1.2011 17:34
Veldu bestu mynd Halldórs Baldurs á Vísi Lesendum Vísis gefst kostur á að velja bestu mynd Halldórs frá síðasta ári úr hópi þeirra tuttugu vinsælustu. Fimmtíu heppnir þátttakendur fá kaffikönnu með myndum frá Halldóri. 11.1.2011 17:04
Íslandshreyfingin mótmælir harðlega tilraunaborunum Stjórn Íslandshreyfingarinnar mótmælir harðlega áformum um að fara með bora og stórvirk tæki inn í Gjástykki og eyða mörg hundruðum milljóna króna í tilraunaboranir þar með tilheyrandi óafturkræfum umhverfisspjöllum í ályktun sem þeim sendu á fjölmiðla í nafni Íslandshreyfingarinnar. 11.1.2011 16:11
Ólafur Þórðarson kominn á Grensásdeild Þorvarður Davíð Ólafsson, sem réðst á föður sinn, Ólaf Þórðarson tónlistarmann í Ríó tríó, verður að öllum líkindum ákærður fyrir tilraun til manndráps. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árásinni er lokið. 11.1.2011 16:03
Umboðsmaður barna kallar Audda og Sveppa á teppið „Við hörmum málið,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrásviðs 365 miðla, en Umboðsmaður barna hefur sent honum bréf vegna athugasemda sem embættið gerir á þáttum Audda og Sveppa. 11.1.2011 15:21
Ákvörðun Orkustofnunar stóralvarleg Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að það sé stóralvarlegt mál að Orkustofnun ákveði að hundsa andmæli sín og tveggja virtra stofnana á sviði náttúruverndar. Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun leyfi til rannsóknarborana í Gjástykki í Þingeyjarsýslum, í andstöðu við vilja umhverfisráðherra, Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar. Hins vegar nýtur ákvörðunin stuðnings sveitarfélaga og landeigenda. 11.1.2011 15:19
Hart tekið á stúdentum eftir óeirðir Átján ára gamall breskur námsmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi fyrir framgöngu sína í stúdentaóeirðum í Lundúnum í desember síðastliðnum. 11.1.2011 14:38
Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. 11.1.2011 14:38