Fleiri fréttir

Alec Baldwin biður Charlie Sheen um að fara í sturtu

„Leggðu þig, farðu í sturtu og grátbiddu um starfið. Aðdáendur þínir krefjast þess,“ segir leikarinn Alec Baldwin, úr sjónvarpsþættinum 30 Rock, um Charlie Sheen sem fyrr í mánuðinum var rekinn var úr sjónvarpsþáttaröðinni Two And A Half Men.

Beckham hjónin flytja til Bretlands

Heimildir herma að David og Victoria Beckham hafi fengið nóg í bili af lífinu í Los Angeles og vilji komast til Bretlands á nýjan leik. Hjónin fluttu ásamt börnunum sínum til borgarinnar eftir að David gerði samning við knattspyrnuliðið Los Angeles Galaxy fyrir nokkrum árum.

Arabababandalagið biðlar til SÞ um flugbann

Arabababandalagið hefur nú biðlað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að koma á flugbanni yfir Libýu til að koma í veg fyrir frekari loftárásir á saklausa borgara í landinu. Fulltrúar allra aðildarríkja bandalagsins samþykktu flugbannsbeiðnina á fundi í gær, en höfnuðu hernaðarinngripum erlendra ríkja að öðru leyti.

Óttast að 10 þúsund hafi farist

Óttast er að tala látinna á hamfarasvæðunum í Japan geti farið yfir 10 þúsund en nú þegar verið staðfest að tæplega 700 séu látnir og rúmlega 1500 slasaðir. Yfir 10 þúsund manns er saknað í bænum Kesennuma í Miyagí-héraði en ekkert hefur spurst til fólksins frá því að skjálftinn og flóðbylgjan reið þar yfir á föstudag. Yfirvöld óttast að fólkið hafi farist í hamförunum en Miyagí-hérað varð hvað verst úti.

Innbrot í dýraspítala og fjölmörg rúðubrot

Nóttin var heldur erilsöm hjá lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Nokkuð var um pústra í miðbænum en þeir voru minniháttar og þá var brotist inn í Dýraspítalann í Víðidal í kringum miðnætti. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu liggur ekki fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en enginn hefur verið handtekinn.

Össur fundaði með utanríkisráðherrum ESB

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins og umsóknarríkja sem haldinn var í Gödöllö í Ungverjalandi. Ráðherrarnir ræddu ástandið í Norður-Afríku og Arabaheiminum, stækkunarmál sambandsins og hamfarirnar í Japan.

Fréttaskýring: Land þrýstist upp en ekki til hliðar

Risajarðskjálftinn sem varð í gær undan ströndum Japans er allt annars eðlis en skjálftar sem þekkjast hér á landi. Orkan sem leystist úr læðingi í stærsta skjálftanum er um 900 sinnum meiri en þekkist í stærstu skjálftum hér.

Ástandið alvarlegt á meðan kælibúnaður er í ólagi

Eðlisfræðingur hjá Geislavörnum Ríkisins segir ástandið í kjarnorkuverinu í Japan vera mjög alvarlegt á meðan ekki hefur verið náð tökum á kælingarbúnaði versins. Almennt er þó talin lítil hætta á því að kjarnakljúfurinn springi.

Ótrúlegar loftmyndir frá Japan

Ótrúlegar myndir berast frá Japan eftir að jarðskjálfti upp á 8,9 stig reið þar yfir í gærmorgun. Talið er að yfir 1300 manns séu látnir og fjölmargra er saknað. Eignatjónið á svæðinu er gríðarlegt og hafa heilu bæirnir þurrkast út.

Grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið

Yfirvöld á Vesturlöndum hafa gefið í skyn að það komi til greina að grípa til aðgerða til að stöðva blóðbaðið í Líbýu. Enn berjast uppreisnarmenn og herlið ríkisstjórnarinnar um yfirráð yfir lykilborgum í Líbýu.

Eiturgufur leka frá kjarnorkuverinu

Sprengingin í kjarnorkuverinu í borginni Fukushima í morgun var gríðarlega öflug en fjórir starfsmenn kjarnorkuversins slösuðust þegar þeir unnu að viðgerð á kælikerfi sem hafði laskast í skjálftanum í gær. Mikinn reyk leggur nú frá kjarnorkuverinu og hafa japönsk yfirvöld staðfest að leiki hafi komið komið þar upp.

Þór óskemmdur eftir flóðbylgjur í nótt

Varðskipið Þór, sem hefur legið við bryggju í bænum Conceptíón í Chile, er óskemmt eftir að þrjár flóðbylgjur gengu yfir svæðið í nótt. Sú hæsta mældist 2,4 metrar á hæð. Óttast var skipið gæti orði fyrir skemmdum og var það því dregið út í flóann sem liggur að bænum.

Skíðasvæði landsins opin í dag

Öll helstu skíðasvæði landsins eru opin í dag. Í Bláfjöllum er ellefu stiga frost og heiðskýrt. Skíðasvæði Tindastóls verður opið frá klukkan tíu til fjögur. Þar er logn og fimmtán stiga frost. Í Hlíðarfjalli er sjö stiga frost og nánast logn.

Íslensku björgunarsveitamennirnir fara ekki til Japans

Ljóst er að íslenska alþjóðabjörgunarsveitin kemur ekki til með að fara til Japans að sinna rústaleit vegna jarðskjálftans. Þetta staðfestir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, í samtali við fréttastofu.

Sex ölvaðir undir stýri í Reykjavík - einn á Akureyri

Nokkrir gistu fangageymslur sökum ölvunar á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Sjötíu verkefni komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, flest smáverkefni en sex ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur.

Fullur á stolinni bifreið

Lögreglan á Selfossi tók einn ökumann grunaðan um ölvunarakstur klukkan hálf þrjú í nótt. Auk þess að vera ölvaður reyndist maðurinn vera á stolinni bifreið.

Öflug sprenging í japönsku kjarnorkuveri

Öflug sprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Fukushima í Japan í morgun sem talin er ógna öryggi landsins. Mikinn reyk leggur nú frá kjarnorkuverinu og hafa japönsk yfirvöld staðfest að leki hafi komið þar upp.

Þurfa ekki samþykki félagsins

„Gjaldeyrishöftin setja okkur í þessa stöðu. Okkur fannst ekki hægt að gera annað. Þetta var það eina sem við gátum gert í því umhverfi sem við búum við,“ segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.

Thor Vilhjálmsson jarðsunginn

Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Thor lést þann 2. mars síðastliðinn, 85 ára að aldri. Thor var með merkari rithöfundum sinnar kynslóðar, en hann gaf út sína fyrstu bók, Maðurinn er alltaf einn, árið 1950.

Jóhanna vill sömu lækkun og forsetinn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur óskað formlega eftir því við Fjársýslu ríkisins að laun hennar sem handhafa forsetavalds verði lækkuð sem nemur þeirri launalækkun sem forseti Íslands tók á sig í ársbyrjun 2009. Gunnar H. Hall fjársýslustjóri staðfestir að einn af þremur handhöfum forsetavalds hafi óskað eftir slíkri launalækkun.

Gunnar í Krossinum verður yfirheyrður

Mál kvennanna sjö sem saka Gunnar Þorsteinsson, forstöðumann Krossins, um kynferðisbrot hefur nú verið lagt fram sem lögformleg kæra. Skýrslutökum hjá lögreglu er nær lokið, en búið er að tala við fimm konur. Gunnar verður kallaður í skýrslutöku í kjölfarið, en hann neitar öllum sökum.

Breytingin er Íslandi í hag

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að nýleg reglugerðarbreyting á sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins (ESB) þar sem aðildarríkjum er gert að stýra staðbundnum stofnum innan eigin lögsögu, styrki röksemdir Íslands í aðildarviðræðunum við sambandið.

Hamfarir skekja Japan

Óttast að á annað þúsund manns hafi farist í einum öflugasta jarðskjálfta sögunnar og flóðbylgjunni sem reið yfir Japan í gær. Hættuástand í kjarnorkuveri. Tuga þúsunda saknað. Íslendingar í landinu óhultir.

Háhýsin sveifluðust sem væru úr gúmmíi

Íslendingur í miðbæ Tókýó var í um tvær og hálfa klukkustund að ganga heim til sín eftir risaskjálftann í gær. Fólki var brugðið. Skemmdir eru mismiklar eftir hverfum. Heyra mátti skilti berja hús utan þegar eftirskjálftarnir gengu yfir.

Fór á brúarstólpa og svo á bíl

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut á móts við Kaldárselsveg um klukkan tuttugu mínútur í tíu. Slysið varð með þeim hætti að bifreið var ekið á brúarstólpa og síðan á annan bíl. Ökumennirnir voru báðir einir í bílunum. Þeir voru báðir fluttir á slysadeild til skoðunar en meiðsli þeirra munu ekki hafa verið alvarleg.

Íslendingar eru fésbókaróð þjóð

Um áttatíu prósent Íslendinga nota samskiptasíðuna Facebook. Markaðsstjóri Facebook segir fyrirtæki nýta sér síðuna í auknum mæli til að nálgast neytendur á nýjan hátt.

"Hér drýpur blóð banka"

Halldór Gunnarsson missti húsið sitt sem hann hafði sjálfur byggt við Austurgötu í Hafnarfirði í haust. Hann er ósáttur við niðurstöðuna og að hann þurfi að líða fyrir þann forsendubrest sem varð við bankahrunið. Bankinn tók húsið og Halldór flutti út um áramótin. Hann ákvað að fara að húsinu í dag með smá skilaboð til stjórnvalda og bankanna. "Hér drýpur blóð banka - Takk Árni Páll" skrifaði Halldór á húsið.

Íslenskir björgunarsveitamenn gera sig klára fyrir Japan

Íslenska alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur verið tekin af vöktunarstigi og færð upp á viðbúnaðarstig. Í því felst að búnaður sveitarinnar er tekinn saman og gerður klár til flutnings á skaðasvæði komi til þess að sveitin fari til Japans.

Framtíð Ragnars hjá Framtakssjóðnum óráðin

Engin ákvörðun hefur verið tekin um framhald á störfum Ragnars Önundarsonar, fyrir Framtakssjóð Íslands. Ragnar er varaformaður í stjórn Framtakssjóðsins og situr þar fyrir hönd stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Ragnar hefur einnig gegnt stöðu varaformanns Lífeyrissjóðs verslunarmanna en tilkynnti í dag að hann myndi láta af því embætti.

Þór dreginn út á flóa vegna flóðbylgju

Varðskipið Þór verður síðar í dag dregið út í flóann sem liggur að bænum Conception, þar sem skipasmíðastöð sjóhersins í Chile er staðsett. Búist er við að flóðbylgja gangi yfir svæðið um klukkan átta í kvöld vegna jarðskjálftans sem reið yfir Japan í morgun.

Sakaður um morð

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu manns sem stefndi ríkinu fyrir ólögmæta frelsissviptingu og gæsluvarðhald sem hann sætti vegna morðs sem hann var á tímabili grunaður um að hafa framið.

Skorið niður hjá Vinnuskólanum

Nokkrar breytingar verða gerðar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur vegna hagræðingar. Búist er við að rúmlega tvö þúsund ungmenni skrái sig í Vinnuskólann í sumar en skráning hefst snemma í aprílmánuði. Skólinn þarf að forgangsraða upp á nýtt fyrir sumarið og felur það meðal annars í sér að svokölluð Græn heimaþjónusta fellur niður. Græn heimaþjónusta fólst í því að eldri borgarar og öryrkjar gátu sótt um þá þjónustu hjá Reykjavíkurborg að láta nemendur Vinnuskólans hreinsa garða sína.

Um helmingur þjóðarinnar hefur verið bólusettur

Alls hafa tæplega 156 þúsund manns verið bólusettir gegn svínainflúensu frá því að bólusetningar hófust haustið 2009. Í farsóttarfréttum Sóttvarnarlæknis kemur fram að í flestum aldurshópum hafi um og yfir 50% látið bólusetja sig, nema í aldurshópunum 20-40 ára en þar er hlutfallið öllu lægra. Það var jafnframt í þessum aldurshópum sem inflúensunnar hefur orðið vart nú í vetur.

Segja allt stefna í að íslensk hafsvæði verði óvarin

Sjómannafélag Íslands segir allt stefna í að íslensk hafsvæði verði óvarin og eftirlitslaus í sumar þar sem bæði varðskipin Ægir og Týr verði á fjarlægum hafsvæðum. Sjómannafélagið segir að Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar hafi upplýst að búið sé að gera samkomulag við Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, hafi samið um að senda skip og flugvélar til fjarlægra hafsvæða í sumar.

Ná ekki að opna Landeyjahöfn um helgina

Ekki næst að opna Landeyjahöfn um helgina að sögn rekstrarstjóra Herjólfs. Í tilkynningu frá honum segir að það magn sands sem þurfi að fjarlægja sé það mikið að helgin dugi ekki til þess. Auk þess komi veður og ölduhæð til með að tefja framkvæmdirnar enn frekar. „Veður- og ölduspá fyrir sunnudaginn og dagana þar á eftir er slæm þannig að opnun tefst um einhverja daga,“ segir í tilkynningunni.

Klúr fúkyrði um kvenkyns eftirmann ekki lögbrot

Ríkissaksóknari telur að meint ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, varasaksóknara í Landsdómi, um Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, setts saksóknara efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, varði ekki við lög. Því beri hvorki Ríkissaksóknara né lögreglustjóra höfuðborgarsvæðinu að aðhafast í máli hennar. Þetta kemur fram í úrskurði Ríkissaksóknara frá því í gær.

Jón Gnarr tekur vandræðum Wire-leikara með ró

Leikkona úr þáttunum The Wire hefur verið handtekin fyrir eiturlyfjamisferli. Leikkonan var meðal þeirra sem handteknir voru í tilraun lögreglunnar í Baltimore til að uppræta eitt stærsta eiturlyfjagengið í fylkinu.

Um 300 lík við strandlengjuna - farþegalestar er saknað

Japanskar fréttastofur greina nú frá því að 2 til 300 lík hafi fundist við norðausturströnd landsins þar sem tíu metra há flóðbylgja skall á í kjölfar risaskjálftans í morgun. Gríðarleg sprenging varð einnig í efnaverksmiðju í borginni Sendai sem verst varð úti í flóðinu og ekkert hefur spurst til farþegalestar sem var á ferð þegar bylgjan skall á strandlengjunni. Þá er óttast um afdrif hundrað farþega ferju sem varð fyrir flóðbylgjunni.

Landabrugg og kannabisræktun á Akranesi

Lögreglan á Akranesi fékk í gær ábendingu um landabruggun í heimahúsi í bænum. Húsleit var gerð í kjölfarið og lagt hald á bæði landa og eimingartæki. Húsráðandinn gekkst við brugguninni. Síðar um daginn stöðvuðu lögreglumenn á Akranesi bifreið vegna gruns um að ökumaður væri undir áhrifum. Bráðabirgðaprófanir bentu til þess að hann væri undir áhrifum áfengis, amfetamíns og kannabis. Við leit í bifreiðinni fundust um 60 grömm af amfetamíni sem þar höfðu verið falin. Í framhaldi af því var gerð húsleit hjá manninum. Þar kom í ljós að maðurinn var með kannabisræktun í gangi, á lokastigi, auk þess sem 25 grömm af tilbúnum maríjúnana fundust. Maðurinn játaði við yfirheyrslur í nótt að vera eigandi efnanna og ræktunarinnar og viðurkenndi að hluti efnanna væri ætlaður til sölu og rest til eigin neyslu. Fram kom hjá manninum að amfetamínið væri mjög sterkt sem segir að hann hefur trúlega ætlað að drýgja efnið með íblöndunarefnum.

Sjá næstu 50 fréttir