Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kom ekki til greina að hætta við uppsagnirnar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að ekki hafi komið til umræðu að hætta við uppsagnir alls starfsfólks á skrifstofu Eflingar, þegar unnið var að samkomulagi við trúnaðarmenn starfsfólks. Fráleitt sé að halda því fram að réttindi starfsfólksins verði ekki virt. 13.4.2022 12:08
Mögulegt að kvika sé að safnast fyrir undir yfirborðinu Dregið hefur úr virkninni á Reykjanestá eftir að jarðskjálftahrina hófst þar í gærkvöldi. Rúmlega 600 skjálftar hafa mælst í hrinunni, sá stærsti 3,9 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir að kvika sé mögulega að safnast fyrir undir jarðskorpunni en ekkert bendir til að hún sé á leið upp á yfirborðið að svo stöddu. 13.4.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður áfram fjallað um útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. 13.4.2022 11:43
Saka hvort annað um lygar og ofbeldi Lögmenn Johnny Depp sögðu Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, vera lygara sem væri heltekin af ímynd sinni. Það gerðu þeir við upphaf réttarhalda í máli þar sem hann hefur sakað hana um að ljúga upp á sig ofbeldi. 13.4.2022 11:19
Stríðsvél Pútín verði ekki stöðvuð nema með því að beita fullu afli „Við höfum lært þrennt það sem af er stríðsins. Í fyrsta lagi að samningaviðræður við Pútín skila engu; hvorki viðræður fyrir né eftir innrásina hafa skilað nokkru. Friðarviðræðurnar eru komnar í öngstræti.“ 13.4.2022 10:47
Starfsmaður Eflingar og frænka Sólveigar sakar stjórnina um hræsni „Ef einhver vinnustaður annar hefði tilkynnt um hópuppsagnir til að svo endurráða starfsfólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra réttindi. Ef einhver annar vinnustaður hefði ráðist á trúnaðarmenn sína og starfsmenn í fjölmiðlum þá værum við fyrst til að fordæma það og taka upp hanskann fyrir það starfsfólk.“ 13.4.2022 10:25
Starfsmenn megi fara í atvinnuviðtöl á vinnutíma Meirihluti stjórnar Eflingar, B-listinn, segir að samkomulag hafi náðst við trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar um framkvæmd á skipulagsbreytingum á vinnustaðnum. 13.4.2022 09:55
Opinber framlög til þróunarsamvinnu í sögulegu hámarki Annað árið í röð náðu opinber framlög til þróunarsamvinnu í heiminum sögulegu hámarki. Þau námu 179 milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári og hækkuðu um 4,4 prósent á milli ára. 13.4.2022 09:02
Árásarmannsins í Brooklyn enn leitað Lögreglan í New York leitar enn manns sem skaut á fólk í neðanjarðarlestarstöð í Brooklyn í gær. 13.4.2022 08:35
Tala látinna hækkar á Filippseyjum Tala látinna á Filippseyjum eftir hitabeltisstorminn Megi heldur áfram að hækka. 13.4.2022 08:30
Rigning með köflum sunnanlands en bjart fyrir norðan Hæglætis veður verður víðast hvar á landinu í dag. Reikna má með dálítilli rigningu suðaustanlands og lítilsháttar éljum fyrir austan, en annars bjartviðri 13.4.2022 07:21
Myndband: Nýr smart #1 Rafbíllinn smart #1 var frumsýndur í Berlín síðustu viku. Bíllinn verður fáanlegur bæði fjórhjóladrifinn og afturdrifinn. Uppgefin drægni er 420-440 km. 13.4.2022 07:00
Minnst tíu skotnir og 29 fluttir á sjúkrahús Minnst 29 voru fluttir á sjúkrahús í dag eftir að maður með gasgrímu henti reyksprengju inn í neðanjarðarlest á háannatíma í Brooklyn í New York og hóf skothríð. 13.4.2022 00:00
Arna Dögg nýr yfirlæknir líknarlækninga Arna Dögg Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr yfirlæknir líknarlækninga á Landspítala og tekur við stöðunni þann 1. maí 2022. Hún hefur starfað við líknarlækningar frá árinu 2010 við líknardeild spítalans, í sérhæfðri líknarheimaþjónustu og líknarráðgjafateymi. 12.4.2022 23:19
Heyrði ekki í móður sinni í 37 daga Úkraínsk kona sem er fædd og uppalin í Mariupol en býr nú á Íslandi segir hræðilegt að fylgjast með framgöngu Rússa í borginni. Öldruð móðir hennar, systir og systurdóttir eru fastar í borginni en þar til fyrir helgi hafði hún ekki heyrt frá þeim í meira en fimm vikur. 12.4.2022 23:00
Ráðgjöf við ráðningar hjá Eflingu fyrir meira en 15 milljónir Allt logar í illdeilum innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að stjórn Eflingar ákvað að segja öllum starfsmönnum félagsins upp. Umfangsmikið ferli er fram undan hjá Eflingu við að endurráða í hátt í fjörutíu stöður. 12.4.2022 22:00
Mikil skjálftavirkni mælist á Reykjanesskaga Nokkur skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í kvöld og hafa mælst minnst þrír skjálftar um og yfir þremur að stærð. Að sögn náttúruvársérfræðings er um að ræða jarðskjálftahrinu sem hófst um klukkan 21:21 með skjálfta að stærð 3,9 um sjö kílómetrum norðaustur af Reykjanestá. Í kjölfarið komu allavega tveir aðrir skjálftar yfir þremur að stærð og töluverð smáskjálftavirkni. 12.4.2022 21:51
Vann 40 milljónir króna Einn heppinn miðaeigandi vann 40 milljónir króna í Happdrætti Háskólans þegar dregið var í kvöld. Potturinn í Milljónaveltunni svokölluðu var fjórfaldur að þessu sinni og fékk eigandinn því 40 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut. 12.4.2022 20:43
Píratar kynna lista: Dóra Björt leiðir Pírata í borginni Píratar í Reykjavík kynntu í dag framboðslista sinn til borgarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 14.maí 2022. Í samræmi við úrslit prófkjörs Pírata eru það sitjandi borgarfulltrúar flokksins, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Alexandra Briem, sem skipa efstu tvö sætin. 12.4.2022 20:34
Nýjar upplýsingar um bankasöluna staðfesti það sem óttast var Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýjar upplýsingar benda til að stór hluti fjárfesta hafi tekið þátt í útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka í þeim eina tilgangi að tryggja sér skjótfenginn gróða. Hún telur eðlilegt að fjármálaráðherra segi af sér vegna málsins og komið verði á fót óháðri rannsóknarnefnd. 12.4.2022 20:16
„Bið um að vera dæmdur út frá gjörðum mínum en ekki því sem er ósatt“ Það er í grunninn munur á að trúa orðrómum og trúa þolendum. Ég get ekki tekið ábyrgð á því sem er ósatt, segir tónlistarmaðurinn Auður. Hann segist axla ábyrgð á ásökunum kvenna sem hafa sakað hann um að hafa brotið á sér, verið ógnandi og að hafa farið yfir mörk en hafnar algjörlega orðrómum um þöggunarsamninga og brot gegn ólögráða stúlkum. 12.4.2022 19:14
Fylgi hrynur af stjórnarflokkum eftir bankasölu og Búnaðarþing Fylgi hefur hrunið af stjórnarflokkunum eftir að umræða um Búnaðarþingsmálið og söluna á Íslandsbanka komst í hámæli. Stjórnarflokkarnir hafa samanlagt tapað um átta prósentustiga fylgi á örfáum dögum. Á sama tíma hefur fylgi Pírata og Samfylkingar stóraukist. 12.4.2022 18:31
Fjölmargir farnir með feng sinn eftir „vel heppnuð“ kaup í Íslandsbanka Af þeim 207 fjárfestum sem fengu úthlutað til kaups hlutum í Íslandsbanka í umdeildu útboði sem fram fór fyrir þremur vikum, hafa 132 þeirra þegar selt sitt að verulegu eða öllu leyti. 12.4.2022 18:20
Telja að bensínsprengja hafi verið notuð til að kveikja í húsnæði velferðarsviðs Eldur kviknaði í húsakynnum velferðarsviðs Kópavogsbæjar í nótt og er sterkur grunur um íkveikju. Skrifstofa sviðsins var lokuð í dag vegna þessa og telur lögregla að bensínsprengja, eða svokallaður molotov-kokteill, hafi verið notaður til að kveikja eldinn. 12.4.2022 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikill kostnaður fylgir hópuppsögn allra starfsmanna Eflingar. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar á Stöð 2 og Bylgjunni klukkan hálf sjö. Forseti ASÍ hvetur félagið til að draga ákvörðunina til baka. 12.4.2022 18:00
Rośnie poparcie dla sprzedaży alkoholi w supermarketach Około połowa Islandczyków chce aby władze dały pozwolenie na sprzedaż wina i piwa w supermarketach. 12.4.2022 17:23
Miklar tafir á umferð: Tveggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi Tveggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ rétt fyrir klukkan fimm í dag. Búast má við töfum á umferð. 12.4.2022 17:12
Stefnir í úrkomumet í Reykjavík Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að nú stefni í áhugaverða keppni um úrkomumet í Reykjavík en metið féll 1921. 12.4.2022 16:57
Vaktin: Segir sönnunargögn um þjóðarmorð Pútíns hrannast upp Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagðist í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi óttast að Rússar myndu beita efnavopnum en fullyrti ekki að þau hefðu verið notuð. Fyrr í gær var því haldið fram að efnavopnasprengja hefði verið látin falla á Maríupól. 12.4.2022 16:50
Minnst fimm særðust í skotárás í Brooklyn Minnst fimm særðust í skotárás í neðanjarðarlest í Brooklyn í New York í morgun. Lögreglan leitar enn árásarmannsins, sem talinn er klæddur í appelsínugult endurskinsvesti. 12.4.2022 15:50
Gagnrýni Drífu „í takt við þá stéttahollustu“ sem hún vilji sýna Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að sér þyki ekki óeðlilegt að ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins með hópuppsögnum. Hún fordæmir þá gagnrýni sem aðrir verkalýðsforingjar hafa sett fram. 12.4.2022 15:18
Blaða- og fréttamenn ræða sameiningu Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á ríkisútvarpinu eiga í óformlegum viðræðum um mögulega sameiningu. Stjórn BÍ segir að sameining muni efna samstöðu innan stéttarinnar og faglegt starf félagsins. 12.4.2022 15:16
Fagnar því að Lilja standi með sannfæringu sinni Ásthildur Lóa Þórsdóttir, varaformaður þingflokks Flokks fólksins fagnar því að Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra standi með sannfæringu sinni og segi hug sinn opinberlega varðandi Íslandsbankamálið. Ásthildur kallar eftir afsögn fjármálaráðherra. 12.4.2022 14:39
Orkan í Fellsmúla hættir að selja bensín Orkan hyggst breyta bensínstöðinni í Fellsmúla í hleðslustöð fyrir rafknúin ökutæki. Bensínstöð hefur verið á þessum stað í Fellsmúla frá árinu 1971 en stefnt er að því að ný hleðslustöð hefji þar starfsemi fyrir lok árs 2023. 12.4.2022 14:18
Þau sóttu um skrifstofustjórastöður í innviðaráðuneytinu Alls sótti 21 um stöðu skrifstofustjóra sveitarfélaga- og byggðamála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Þá sóttu þrettán um stöðu skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála í sama ráðuneyti. 12.4.2022 14:06
„Við eigum að bera virðingu fyrir listrænu frelsi fólks“ Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, og Sunna Ástþórsdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, ræddu í morgun saman um listaverkið fyrir utan Nýlistasafnið þar sem í er að finna bronsstyttu af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af Laugarbrekku á Snæfellsnesi í síðustu viku. Kristinn segist ekki skilja málflutning listakvennanna um að styttan sé „rasísk“ og segir hann að fólk eigi að bera virðingu fyrir listrænu frelsi annarra. 12.4.2022 14:00
Nowy zarząd zwolnił wszystkich pracowników związków Efling Sólveig Anna Jónsdóttir, która została ponownie wybrana na prezesa związków zawodowych Efling, na swoim pierwszym posiedzeniu zarządu zaproponowała zwolnienie wszystkich pracowników Efling. 12.4.2022 13:51
Skotárás í lestarstöð í New York Lögreglan í New York leitar manns sem sagður er hafa skotið fjölda fólks í lestarstöð í borginni á háannatíma í dag. Fregnir hafa einnig borist af sprengingu og að því að ósprungnar sprengjur hafi fundist á vettvangi. 12.4.2022 13:37
Johnson og Sunak verða sektaðir vegna veisluhaldanna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, verða sektaðir vegna veisluhalda í Downingstræti á meðan Covid faraldrinum stóð en þetta staðfestir talsmaður ríkisstjórnarinnar við breska fjölmiðla. Stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar þeirra. 12.4.2022 13:18
Leggja til að ölvun á rafhlaupahjólum verði refsiverð Starfshópur á vegum innviðaráðuneytisins leggur til að ölvun á smáfarartækjum verði gerð refsiverð. 12.4.2022 13:14
Sólveig Anna sakar Drífu um að ráðast á láglaunafólk Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem orðum Drífu Snædal forseta ASÍ er mótmælt hástöfum. Svo virðist sem brotist hafi út stríð innan verkalýðshreyfingarinnar. 12.4.2022 13:11
Friðrik segir uppsagnir hjá Eflingu vekja óhug Eftir að stjórn Eflingar greip til hópuppsagna á skrifstofum sínum leikur allt á reiðiskjálfi innan verkalýðshreyfingarinnar en þar hefur reyndar verið mikil ólga að undanförnu. 12.4.2022 12:21
Aldrei fleiri sótt um hæli Ríflega ellefu hundruð manns hafa sótt um hæli Íslandi það sem af er ári en aldrei hafa fleiri sótt um hæli hér á landi. Af þeim sem sótt hafa um eru sjö hundruð þrjátíu og fimm frá Úkraínu. 12.4.2022 12:03
„Ekki leyfilegt að vera með hópuppsagnir af því bara“ Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir það hafa komið sér verulega á óvart að stjórn Eflingar hafi ákveðið á fundi í gær að öllu starfsfólki stéttafélagsins yrði sagt upp störfum. Tillaga Sólveigar Önnu Jónsdóttur, nýkjörins formanns Eflingar, þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi í gær. 12.4.2022 11:48
Gamli turninn á Lækjartorgi fær nýtt hlutverk Gamli söluturninn á Lækjartorgi, sem hefur lengi vel verið eitt helsta kennileiti miðbæjarins, fær nýtt hlutverk á næstunni þegar honum verður breytt í hljómturn en til stendur að gera turninn að miðpunkt tónlistar í miðbænum. 12.4.2022 11:42