Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundu 46 lík í yfirgefnum flutningabíl í Texas Að minnsta kosti 46 lík fundust í yfirgefnum flutningabíl fyrir utan borgina San Antonio í Texas í gær. Svo virðist sem um hælisleitendur sé að ræða en sextán voru enn á lífi þegar lögreglumenn opnuðu bifreiðina. 28.6.2022 07:11
Þremenningarnir sagðir hafa kært Vítalíu og Arnar fyrir tilraun til fjárkúgunar Fréttablaðið segir Ara Edwald, Hreggvið Jónsson og Þórð Má Jóhannesson hafa kært Vítalíu Lazarevu og Arnar Grant til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins. 28.6.2022 06:51
Tveir skjálftar norðvestur af Gjögurtá Tveir skjálftar urðu um sautján kílómetra norðvestur af Gjögurtá. Fyrri skjálftinn mældist 2,7 stig en sá seinni 3,2 stig. 28.6.2022 00:04
Tilraun til að taka Krímskaga leiði til þriðju heimsstyrjaldarinnar Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og náinn bandamaður Vladímír Pútín, segir að ef ríki sem er í Atlantshafsbandalaginu sæki í átt að Krímskaga leiði það til þriðju heimsstyrjaldarinnar. 27.6.2022 23:34
Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. 27.6.2022 23:22
Þrír létu lífið er lest klessti á vörubíl í Missouri Þrír eru látnir og að minnsta kosti fimmtíu slasaðir eftir að járnbrautarlest fór af teinunum í Missouri-ríki í Bandaríkjunum. Lestin skall á vörubíl við gatnamót nærri bænum Mendon. 27.6.2022 22:44
Sjötti hvalur vertíðarinnar kominn á land í Hvalfirði Sex langreyðar eru komnar á land í Hvalfirði það sem af er hvalvertíðinni og segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, það ágætis veiði miðað við að bræla hafi verið á miðunum fyrstu dagana. 27.6.2022 22:00
Yngsta fórnarlambið þrettán ára Yngsta fórnarlambið í hópi þeirra sem fundust látin á veitingastað í Austur-London í Suður-Afríku um helgina var þrettán ára. Alls fannst 21 maður látinn á Enyobeni Tavern aðfaranótt sunnudagsins, en hin látnu lágu ýmist á borðum eða á gólfi staðarins. 27.6.2022 22:00
Þrettán manns létu lífið í gasleka Þrettán manns hafa látið lífið og eru rúmlega 250 einstaklingar slasaðir eftir gasleka í borginni Aqaba í Jórdaníu. Íbúar borgarinnar hafa verið beðnir um að loka öllum gluggum og halda sig innandyra. 27.6.2022 20:57
Álfar á sveimi í Eyjafirði í kringum Álfasetrið í Arnarnesi Álfar eiga allan hug Eyglóar Jóhannesdóttur í Arnarnesi í Eyjafirði, sem hefur málað myndir af þeim og hittir þá reglulega í sveitinni sinni enda er hún með álfasetur á bænum. 27.6.2022 20:05
Hækka afurðaverð um 31 prósent Sláturfélag Vopnafjarðar hefur hækkað afurðaverð sláturleyfishafa um 31 prósent. Þetta kemur fram í nýbirtri verðskrá félagins. 27.6.2022 19:24
Þróun mála í Bandaríkjunum „sérstök og ömurleg“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir þróun mála í Bandaríkjunum í kjölfar niðurfellingu fordæmis Roe v Wade vera ömurlega. Þungunarrof sé sjálfsagður réttur kvenna. 27.6.2022 19:00
Tugir jarðvísindamanna mættir í Mývatnssveit að rannsaka Kröflu Á fjórða tug vísindamanna vinna þessa dagana í Mývatnssveit að miklu mælingaverkefni í Kröflu, sem Jarðvísindastofnun Háskólans leiðir hérlendis í samvinnu við Landsvirkjun, erlendar rannsóknastofnanir og háskóla. Kanna á ítarlegar en áður hefur verið gert ýmis atriði í byggingu Kröflueldstöðvarinnar og varpa þannig frekara ljósi á samband jarðhita og kviku. 27.6.2022 18:09
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rússar eru sakaðir um stríðsglæpi eftir árás á verslunarmiðstöð í Úkraínu. Hið minnsta tíu eru látnir og fjörutíu slasaðir en óttast er að talan verði mun hærri. 27.6.2022 17:58
Drógu tvo vélarvana báta að landi og björguðu örmagna göngumönnum Tvisvar þurfti að kalla út björgunarskip Landsbjargar í dag, Gísli Jóns var kallaður út frá Ísafirði vegna vélarvana strandveiðibáts og Sjöfn í Reykjavík var kölluð út vegna vélarvana skemmtibáts við Viðey. Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að bjarga örmagna göngumönnum á Sprengisandsleið og aðstoða mann sem hrasaði við Hengifoss. 27.6.2022 17:42
Einn lést í hvirfilbyl í Hollandi Einn einstaklingur lést í hvirfilbyl sem gekk yfir suðurhluta Hollands í dag. Að minnsta kosti tíu aðrir eru slasaðir. 27.6.2022 17:31
Sex sjúkrabílar biðu í röð fyrir utan Landspítala Á dögunum kom upp sú leiðinlega staða að sjúkraflutningamenn gátu ekki skilað af sér sjúklingum þar sem ekki var pláss fyrir þá inni á Landspítala. Því þurftu þeir einfaldlega að bíða í röð fyrir utan. 27.6.2022 16:57
Bjóða unglingum frítt í Strætó út júlí Ungmennum á aldrinum tólf til sautján ára stendur til boða svokallað „Sumarkort Strætó“ sem er frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu út júlímánuð 2022. 27.6.2022 16:55
Fundur G7 ríkjanna: Selenskí vill stöðva átökin fyrir veturinn Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti biðlar til leiðtoga G7 ríkjanna að stöðva átökin í Úkraínu áður en vetur skellur á. 27.6.2022 16:22
Rúmlega þúsund manns í verslunarmiðstöðinni sem varð fyrir loftárás Rússa Rúmlega eitt þúsund manns voru inni í verslunarmiðstöð í Kremenchuk þegar loftskeyti hæfði miðstöðina, að sögn Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta. Tíu dauðsföll eru staðfest en fjörutíu eru alvarlega særðir og þar af níu í lífshættu. Óttast er að tala fallinna muni hækka brátt. 27.6.2022 15:27
Árásarmaðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Zaniar Matapour, árásarmaðurinn sem skaut tvo til bana í skotárás í miðborg Oslóar aðfaranótt laugardags, var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag. Matapour er hvorki leyft að eiga samskipti við fjölmiðla né aðra og er gert að sæta einangrun í tvær vikur. 27.6.2022 15:26
Fjöldi sjálfsvíga 2021 svipaður og síðustu ár Alls sviptu 38 manns sig lífi á Íslandi á árinu 2021, eða 10,2 á hverja 100 þúsund íbúa. Fjöldinn er áþekkum þeim á síðustu árum, en að meðaltali voru 38 sjálfsvíg á ári síðustu fimm árin, 2017 til 2021, eða 10,7 á hverja 100 þúsund íbúa. 27.6.2022 15:04
Stelpurnar komast á heimsmeistaramótið í tæka tíð Búið er að tryggja öllum dansstelpunum frá danskólanum JSB flugfar frá Íslandi í dag eða á morgun. Að sögn aðstoðarskólastjóra skólans komast þær á áfangastað í tæka tíð til að keppa á heimsmeistaramóti í dansi, þótt litlu hafi mátt muna. 27.6.2022 14:25
Körfuboltastjarna fór fyrir dómara í Rússlandi í dag Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner fór fyrir dómara í undirbúningsyfirheyrslu í Rússlandi í dag. Griner var handtekinn fyrir rúmlega fjórum mánuðum á Sheremetyevo-flugvelli í Moskvu fyrir vörslu á kannabis þegar það fannst hassolía í rafrettu hennar. 27.6.2022 14:17
Lögregla leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að ná tali af manni sem birtist á myndum sem fylgja fréttinni og má sjá að ofan. 27.6.2022 14:12
Skapari grænlenska fánans fallinn frá Grænlenski listamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Thue Christiansen, er látinn, 82 ára að aldri. Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var árið 1985. 27.6.2022 14:07
Trzęsienie ziemi koło Bárðarbunga Wcześnie rano, w kalderze wulkanu Bárðarbunga, wystąpił wstrząs o sile 3,3 stopnia. 27.6.2022 13:46
Grupa taneczna z Reykjanesbær zdobyła tytuł mistrza świata Grupa młodych tancerzy ze szkoły tańca Danskompaní w Reykjanesbær, zdobyła złoty medal na odbywających się obecnie w Hiszpanii mistrzostwach świata w tańcu. 27.6.2022 13:43
Slegnir yfir fyrirhugaðri lækkun aflamarks þorsks Sjómönnum og útgerðarmönnum líst illa á fyrirhugaða lækkun aflamarks þorks. Uppbygging þorksstofnsins hefur staðnað síðustu ár og afrakstur minni en áætlað var. Margir telja að tími sé kominn til að endurskoða nálgun Hafrannsóknarstofnunar. 27.6.2022 13:29
Um tuttugu prósent fleiri sóttu um leikskólakennaranám Um tuttugu prósent aukning er í umsóknum í nám leikskólakennarafræði milli ára en sjötíu leikskólakennarar tóku við brautskráningarskírteinum sínum þann 25. júní síðastliðinn, sem er veruleg aukning frá síðustu árum. 27.6.2022 13:07
Leika sér ekki að því að aflýsa flugi Vél flugfélagsins Play er komin í gagnið á ný eftir að ekið var á hana fyrir helgi. Tafir urðu á viðgerð sem varð til þess að aflýsa þurfti flugferðum til og frá Madrid, flugfarþegum til mikils ama. Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, segir flugfélagið ekki leika sér að því að aflýsa flugi - allt sé reynt áður en gripið sé til þess ráðs. 27.6.2022 12:54
Greiddu atkvæði gegn ráðningu Elliða og vildu að kjör hans yrðu skert Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir umræðu um há laun sveitarstjóra réttmæta, en að hún verði að fara fram á skynsamlegum forsendum. Minnihlutinn í Ölfusi greiddi atkvæði gegn ráðningu Elliða og hvatti til launalækkunar. 27.6.2022 11:58
Kona fannst látin í rústum hússins sem sprakk Slökkviliðið í Vestur-Miðlöndum á Englandi hefur tilkynnt að kona hafi fundist látin í rústum íbúðarhúss sem sprakk í loft upp í Birmingham í gærkvöldi. 27.6.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um mikilvægi þess að fólk velji sér raforkusala en um 700 manna hópur er í hættu á að lokað verði fyrir rafmagnið hjá þeim innan tíðar. 27.6.2022 11:39
Sakaður um að deila ríkisleyndarmálum með fjölskyldunni Lars Findsen, fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar, er sakaður um að hafa deilt ríkisleyndarmálum með nánum ættingjum hans, þar á meðal móður, bróður og kærustu. Sérfræðingur telur málið byggt á veikum grunni 27.6.2022 11:22
Baldwin ræðir við Allen í beinni á Instagram Leikarinn Alec Baldwin hefur greint frá því að hann muni taka viðtal við leikstjórann Woody Allen á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Instagram. 27.6.2022 11:17
Nafngreina mennina sem létust í árásinni í Osló Lögregla í norsku höfuðborginni Osló hefur birt nöfn mannanna tveggja sem létust í skotárásinni aðfararnótt laugardagsins. Mennirnir sem létust hétu Kaare Arvid Hesvik, sextíu ára að aldri, og Jon Erik Isachsen, 54 ára. 27.6.2022 08:52
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ 27.6.2022 08:31
Nýtt bóluefni gefur vonir um útrýmingu malaríu fyrir árið 2040 Miklar vonir eru bundnar við nýtt bóluefni gegn malaríu en sjúkdómurinn er algengasta dánarorsök fimm ára og yngri í Afríku. 600 þúsund manns létust úr malaríu í Afríku árið 2020 en nýtt bóluefni er talið geta lækkað dánartíðnina um allt að 75 prósent. 27.6.2022 08:06
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. 27.6.2022 07:36
Íbúar í Tókýó hvattir til að draga úr orkunotkun vegna hitabylgju Yfirvöld í Japan hvetja íbúa stórborgarinnar Tókýó til að draga úr rafmagnsnotkun í dag en mikil hitabylgja gengur nú yfir svæðið sem hefur orsakað mikinn orkuskort. 27.6.2022 07:25
Mörg stórfyrirtæki hyggjast aðstoða starfsmenn Mörg stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst því yfir að þau muni greiða fyrir ferðalög starfsmanna sinna sem neyðast til að leita til annara ríkja til að gangast undir þungunarrof, eftir að hæstiréttur landsins snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. 27.6.2022 07:10
Fremur svalt og rigning með köflum víða um land Veðurstofan spáir norðaustan kalda og fremur svölu veðri í dag. Rigning með köflum um norðan- og austanvert landið, en skúrir suðvestanlands, einkum síðdegis. 27.6.2022 07:06
ON hefur betur gegn Ísorku í hleðslustöðvamáli Landsréttur staðfesti á fimmtudag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember um ógildingu á úrskurði kærunefndar útboðsmála um lögmæti útboðs á uppsetningu og rekstri hleðslustöðva fyrir rafbíla í hverfum í Reykjavík. 27.6.2022 07:01
Jörð skalf í Bárðarbungu í morgun Jarðskjálfti sem mældist 3,3 stig reið yfir í Bárðarbungu í morgun. 27.6.2022 06:39