Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmargir skjálftar yfir 3,0 að stærð fylgt eftir stóra skjálftanum Jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir skammt frá Grindavík klukkan 17:48 í dag. Skjálftinn er sá langstærsti í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Jörðin á Reykjanesskaga hefur haldið áfram að skjálfa allverulega síðan þá og hafa sextán skjálftar stærri en 3,0 riðið yfir. 31.7.2022 23:43
Grindvíkingar séu tilbúnir Frá miðnætti hafa meira en fjörutíu skjálftar af stærðinni þrír eða meira mælst á Reykjanesskaga. Stór hluti þeirra hefur mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus í mars á síðasta ári. Í aðdraganda gossins var jarðskjálftavirkni á svæðinu mikil, og Grindvíkingar ekki farið varhluta af því. 31.7.2022 22:56
Kaldavatnslaust í Grindavík eftir stóra skjálftann Aðveitulögn fyrir kalt vatn inn í Grindavík fór í sundur við Svartsengi eftir stóra skjálftann sem reið yfir rétt fyrir sex á Reykjanesskaga. Það er því kaldavatnslaust hjá íbúum bæjarins en unnið er að því að gera við lögnina. 31.7.2022 22:41
Stríðsárasafn nýtur starfskrafta eldri borgara og unglingspilts Eldri borgarar í Fjarðabyggð annast gæslu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði, samkvæmt sérstökum samningi við sveitarfélagið. Fjórtán ára piltur, klæddur ógnvekjandi hermannabúningi, fékk þó sumarstarf með gamla fólkinu. 31.7.2022 22:02
Kökuskreytingar slógu í gegn á Selfossi Á þriðja hundrað unglingar tóku þátt í kökuskreytingasamkeppni síðdegis á Unglingalandsmótinu á Selfossi þar sem þemað var eldgos og flugeldasýning. 31.7.2022 21:30
Tilkynningar um tjón í Grindavík Almannavarnir segja tilkynningar um tjón hafa borist frá Grindavík eftir að skjálfti að stærð 5,4 reið yfir um þrjá kílómetra austnorðaustur af bænum rétt fyrir sex í kvöld. Engar tilkynningar um slys af fólki hafi hins vegar borist. 31.7.2022 20:04
Pierwszy weekend kupców bez ograniczeń W najbliższy weekend, w wielu częściach kraju obchodzony będzie weekend kupców, znany jako Verslunarmannahelgin. Po raz pierwszy od dwóch lat obchody będą mogły odbywać się bez żadnych ograniczeń. 31.7.2022 19:50
Rośnie aktywność sejsmiczna w okręgu Fagradalsfjall Najsilniejsze trzęsienie ziemi, jakie wystąpiło w trwającej obecnie serii trzęsień w okręgu Fagradalsfjall, zarejestrowano dziś o godzinie 17:48 i miało ono siłę 4,7 stopnia. 31.7.2022 19:29
Stærsti skjálftinn í hrinunni til þessa Stærsti skjálftinn til þessa í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir tólf mínútur í sex í kvöld og var 5,4 að stærð. Skjálftarnir í dag hafa mælst á grynnra dýpi en í gær sem sérfræðingur segir benda til kvikuhlaups. 31.7.2022 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skjálfti af stærðinni 4,7 varð á Reykjanesskaga nú skömmu fyrir fréttir. Allar viðbragðsáætlanir eru tilbúnar hjá Grindavíkurbæ, ef eldgos hefst skammt frá bænum. Jarðskjálftahrina hefur verið á svæðinu, en skjálftar dagsins í dag mælast á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Grindvíkingar eru sumir orðnir þreyttir á hristingnum. 31.7.2022 18:28
Stór skjálfti að stærð 5,4 við Fagradalsfjall Stærsti skjálftinn í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir klukkan 17:48. Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var skjálftinn 5,4 að stærð. 31.7.2022 17:49
Skattsvikamál Shakiru fyrir dóm á Spáni Kólumbísku poppstjörnunni Shakiru hefur mistekist að ná dómsátt með spænskum saksóknurum og mun mál hennar vegna meintra skattsvika því fara fyrir dómstóla. Shakira mun þar halda fram sakleysi sínu. 31.7.2022 16:30
Jarðskjálftarnir færast nær yfirborðinu Jarðskjálftarnir sem riðið hafa yfir á Reykjanesi í dag mælast nú á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Sérfræðingur segir það merki um að kvika gæti verið að færast nær yfirborðinu. 31.7.2022 14:22
Unglingalandsmótinu lýkur í kvöld með flugeldasýningu Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hafi sannað sig, sem ein umfangsmesta og best sótta hátíðin um verslunarmannahelgina. 31.7.2022 14:03
Suðurlandið markaðssett á kostnað annarra landshluta Vörumerkið Ísland á ekki við um aðra hluta landsins en Suðurströndina og suð-vesturhornið. Þetta segja aðilar í ferðaþjónustu sem telja markaðssetningu opinberra aðila hafa farið illa með aðra hluta landsins. 31.7.2022 14:01
Nokkurra bíla árekstur við Esjurætur Nokkurra bíla árekstur varð í Kollafirði nærri Esjurótum skömmu fyrir klukkan hálf tvö í dag. Slökkvilið er með töluverðan viðbúnað á svæðinu og lokað var fyrir umferð. Þrír voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar með minniháttar meiðsl. 31.7.2022 13:56
Hótar að bregðast við á leifturhraða „Rússneski sjóherinn getur brugðist við á leifturhraða og mætir hverjum þeim sem reynir að ganga á fullveldi og frelsi Rússlands með hörku,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í ávarpi í Sankti Pétursborg fyrr í dag. 31.7.2022 13:34
Slagsmál og ofdrykkja slökkviliðinu til ama Mikill erill var hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en rekja má hluta álagsins til mikillar ölvunar í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og nótt. Lögreglan hafði þá í nógu að snúast víða um land. 31.7.2022 12:19
Fjórir skrifstofumenn fyrir hvern klínískan starfsmann Formaður nýrrar stjórnar Landspítalans, segir að fjórir til fimm skrifstofumenn hafi verið ráðnir á síðustu árum á móti einum klínískum starfsmanni. Hagræðingar á borð við fækkun starfsfólks á spítalanum komi mögulega til greina til að mæta erfiðri fjárhagsstöðu spítalans. 31.7.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Jarðskjálftarnir sem riðið hafa yfir á Reykjanesi í dag mælast nú á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Sérfræðingur segir það merki um að kvika gæti verið að færast nær yfirborðinu. Við ræðum við náttúruvársérfræðing í fréttatímanum. 31.7.2022 11:45
Sprengisandur: Efnahagsmál, Bandaríkin, Landspítalinn og ferðamannaiðnaðurinn Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, verður fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar í þjóðmálaþættinum Sprengisandi sem hefst klukkan 10 á Bylgjunni. Ásgeir mun fara yfir efnahagshorfur í heiminum, meðal annars með tilliti til innrásarinnar í Úkraínu og kórónuveirufaraldursins. 31.7.2022 09:31
Sérsveitin á Akureyri kölluð út vegna vopnaðs manns Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá embættinu. 31.7.2022 09:21
Allt að þrjátíu metrar á sekúndu Gul viðvörun er enn í gildi á Norðurlandi eystra og vindhviður geta náð allt að þrjátíu metrum á sekúndu austan Húsavíkur. Mikilvægt er að tryggja lausa hluti utandyra og veðrið getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 31.7.2022 09:01
Leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega Slökkviliðið segir leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega en farið var í fjölmarga sjúkraflutninga í nótt. Flest útköllin voru tengd skemmtanalífi í miðborginni. 31.7.2022 08:32
Skotinn til bana í Örebro Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana í sænsku borginni Örebro í gærkvöldi. Fjölmennt lögreglulið vinnur að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn. 31.7.2022 08:21
Vopnað rán í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn. 31.7.2022 07:43
Stór skjálfti í nótt Jarðskjálfti 4,2 að stærð mældist laust eftir klukkan fjögur í nótt austnorður af Fagradalsfjalli. Um 2.500 skjálftar hafa mælst síðan í gær og þar af 700 síðan um miðnætti. 31.7.2022 07:18
Rauða krossinum meinaður aðgangur að særðum stríðsföngum Stríðsfangelsi í bænum Olenivka í Donetsk-héraði sem er á valdi Rússa varð fyrir loftárás á föstudag með þeim afleiðingum að 53 úkraínskir stríðsfangar létust og 75 særðust. Rauði krossinn segir yfirvöld ekki enn hafa orðið við beiðni samtakanna um að heimsækja fangelsið. 31.7.2022 00:03
Harmoníkkuhátíð á Borg í Grímsnesi alla helgina Mikið stuð og stemming er á Borg í Grímsnesi um helgina þar sem harmonikkusnillingar landsins eru komnir saman til að skemmta sér og öðrum. Harmonikkuböll eru haldin á kvöldin í félagsheimilinu og þess á milli er spilað saman á tjaldsvæðinu. Einnig er spilað á sög á svæðinu og á saxófóna. 30.7.2022 23:02
Viðbúið að jarðskjálftar verði áfram næstu daga Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu. Náttúruvársérfræðingur segir viðbúið að skjálftarnir verði áfram næstu daga og útilokar ekki eldgos. 30.7.2022 22:00
Indiana leggur nær algjört bann við þungunarrofi Lagafrumvarp sem leggur nær algjört bann við þungunarrofi í Indiana-ríki í Bandaríkjunum var samþykkt af þingmönnum ríkisins í dag með lægsta atkvæðafjölda sem þurfti til að hleypa því í gegn. Einungis verði hægt að rjúfa þungun í tilfelli nauðgana eða sifjaspells. 30.7.2022 21:39
Biden aftur með Covid Joe Biden, Bandaríkjaforseti, mældist aftur jákvæður fyrir Covid-19 í dag. Hann þarf því að fara í fimm daga einangrun að nýju, aðeins þremur dögum eftir að hann fékk neikvætt próf og yfirgaf einangrun. 30.7.2022 20:27
Djammið enn með Covid-einkenni Skemmtanahald um verslunarmannahelgina hefur víða farið vel fram og engar stórar uppákomur komið til kasta lögreglu á helstu útihátíðum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir næturlífið ekki enn hafa tekið á sig sömu mynd og fyrir Covid-faraldurinn. 30.7.2022 20:01
Æ fleiri grunnir skjálftar geti bent til kvikuhlaups Jarðfræðingurinn Ari Trausti Guðmundsson segir æ fleiri grunna skjálfta við Fagradalsfjalla benda til þess að um kvikuhlaup geti verið að ræða. Slíkt hlaup geti lognast út af eða kvikan brotið sér leið upp á yfirborðið en það sé erfitt að meta slíkt núna af dýptartölum. 30.7.2022 19:35
„Skaflarnir upp að hnjám“ Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og hefur Sæsavatnaleið í Öskju verið lokuð í nokkurn tíma vegna snjóskafla. Gular viðvaranir eru í gildi á miðhálendi og austurlandi um helgina og varað við slæmu skyggni og hálku á fjallvegum. 30.7.2022 19:00
Kröftugasti skjálftinn 4,4 að stærð og átján skjálftar stærri en 3,0 Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall sem hófst um hádegisbilið stendur enn yfir. Kröftugasti skjálftinn reið yfir rétt fyrir klukkan fimm og mældist 4,4 að stærð en þar að auki hefur verið stöðug hrina smærri skjálfta. 30.7.2022 18:45
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu. Náttúruvársérfræðingur segir viðbúið að skjálftarnir verði áfram næstu daga. Við ræðum við náttúruvársérfræðing í kvölsfréttatímanum en hann útilokar ekki eldgos. 30.7.2022 18:11
Vann rúman milljarð Bandaríkjadala í lottói Stakur lottómiði fékk allan vinninginn, 1,337 milljarð Bandaríkjadala, í lottóinu Mega Millions í Bandaríkjunum á föstudag. Miðinn var keyptur á bensínstöð í úthverfi Chicago og fær eigandi hans stóra vinninginn sem er sá þriðji stærsti í sögu Bandaríkjanna. 30.7.2022 18:00
Handtekinn grunaður um að hafa stungið stúlkuna til bana Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stungið níu ára stúlku til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í vikunni. 30.7.2022 16:47
Rússar vilja hengja hermennina Rússar vilja hengja hermenn úr Azov-herdeildinni. Þeir segja hermennina eiga skilið niðurlægjandi dauðdaga en Úkraínumenn segja ummælin viðurstyggileg. 30.7.2022 16:11
Óvissustigi lýst yfir vegna hrinunnar Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrina hófst uppúr hádegi í dag 30. júlí og er enn í gangi. Veðurstofa Íslands hefur sett Krýsuvík á gult vegna flugumferðar en mesta virknin er NA við Fagradalsfjall. 30.7.2022 15:16
Sakfelldur fyrir að bana unglingi sem hann hitti aldrei Rúmlega sextugur karl hefur verið sakfelldur í Katalóníu á Spáni fyrir að hafa banað 17 ára unglingi. Maðurinn hitti unglinginn aldrei og þeir höfðu einungis átt í samskiptum í einn sólarhring. 30.7.2022 14:31
Skjálfti að stærð 4,4 reið yfir við Fagradalsfjall rétt fyrir fimm Jarðskjálftahrina stendur nú yfir við Fagradalsfjall. Hún hófst um hádegisbil en stærsti skjálftinn í hrinunni var 4,4 að stærð og mældist rétt fyrir klukkan fimm. Flugveðurkóði hefur verið settur á gult og Almannavarnir fylgjast með stöðunni. Náttúruvársérfræðingur telur að atburðurinn muni vara í nokkra daga. 30.7.2022 14:15
Guðni forseti lét foreldra heyra það Forseti Íslands vakti athygli á ósæmilegri hegðun foreldra, sem koma ekki nógu vel fram á hliðarlínunni þegar börn þeirra eru að keppa í íþróttum, þegar hann flutti ávarp við setningu Unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands á Selfossi í gærkvöldi. 30.7.2022 14:02
„Fórum að sofa og vöknum um vetur“ Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og gular viðvaranir eru á svæðinu yfir helgina. Þegar skálaverðir í Drekagili vöknuðu hafði vetur skollið á um hásumar. 30.7.2022 13:44