Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. 23.9.2022 07:09
Ný Toyota skorar Tesla Model 3 á hólm Toyota kynnti nýlega rafbíl sem líklega mun bera nafnið bZ3 og er ætlað að koma á markað í Evrópu eftir að verða fyrst settur á markað í Kína. Bíllinn er einn af þeim fyrstu í einni umfangsmestu rafvæðingu sögunar hjá einum og sama framleiðandanum. 23.9.2022 07:00
Eru sagðir hafa sýnt árshátíð lögreglumanna sérstakan áhuga Árásir sem lögregla telur sig hafa komið í veg fyrir þegar fjórir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum á þriðjudag, voru taldar yfirvofandi á næstu dögum. 23.9.2022 06:45
Fjölga þurfi dómurum Skrifstofustjóri Landsréttar segir að fjölga þurfi dómurum til að stytta bið fólks í að mál þeirra komi á dagskrá. Biðtíminn er rúmt ár. Dómsmálaráðherra er með málið til skoðunar. 23.9.2022 06:33
Norðurvígi segist ekki tengjast handtökunum Nýnasistasamtökin Norðurvígi sem einnig eru þekkt sem Norræna mótstöðuhreyfingin hefur neitað því að tengjast öfgahópum og það sé ekki fólk innan samtakanna sem ætli sér að fremja hryðjuverk. 22.9.2022 23:44
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. 22.9.2022 22:30
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22.9.2022 22:22
„Við höfum meira og minna verið laus við þessar hreyfingar“ Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur segist brugðið eftir fréttir af því að lögreglan hafi lagt hald á mikið magn vopna og byssuskota í gær og mögulega komið í veg fyrir hryðjuverkaárás. Enn sé þó tiltölulega lítið vitað um málið og best sé að halda ró sinni. 22.9.2022 22:01
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. 22.9.2022 21:14
Rölt um „ómanneskjulega hönnun“ nýja Orkuhússins „Hönnunarslys“, jafnvel „ómanneskjuleg hönnun“ segja bíllausir um nýja Orkuhúsið í Urðarhvarfi. Þeir kvarta yfir hörmulegu aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. 22.9.2022 21:00
Íslenskar konur mæta einna verst allra á Norðurlöndum í brjóstakrabbameinsskimun Konur hér á landi standa sig einna verst allra kvenna á Norðurlöndunum í að mæta í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Yfirlæknir segir mikilvægt að skoða hvort traust kvenna sé horfið eftir að alvarleg mistök urðu við greiningu leghálssýna. 22.9.2022 20:00
Krefst þess ekki að „allir hafi upplifað allt sem þeir segja á sviðinu“ Sviðshöfundur með fötlun telur að sleppa hefði átt umdeildri persónu í nýjasta stórsöngleik Þjóðleikhússins. Þá sé leikaravalið ekki stóra málið, heldur hvernig fatlað fólk sé ítrekað smættað niður í staðalímyndir. 22.9.2022 20:00
„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“ Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan. 22.9.2022 19:34
Lögreglumenn slegnir: „Við viljum öll komast lifandi heim úr vinnunni“ Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að lögreglumenn væru slegnir yfir fregnum síðustu daga. Þeir væru slegnir yfir því að þurfa að óttast um líf sín í vinnunni. 22.9.2022 19:32
Ætla ekki að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að ekki standi til að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar í tengslum við handtökurnar í gær. Aðgerðir sérsveitar ríkislögreglustjóra hafi verið vel heppnaðar og að gripið hafi verið inn í, áður en eitthvað gerðist. 22.9.2022 19:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö verður nánar sagt frá því að fjórir menn á þrítugsaldri eru nú grunaðir um að hafa verið að undirbúa hryðjuverk hér á landi gagnvart almennum borgurum, Alþingi og fleiri stofnunum. Tveir þeirra hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. 22.9.2022 18:08
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. 22.9.2022 18:01
Á þriðja ár í fangelsi fyrir fíkniefna-, valdstjórnar- og sóttvarnalagabrot Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi Reyni Örn Guðrúnarson í tveggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir ýmis fíkniefna- og umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Hann var einnig sakfelldur fyrir að brjóta sóttvarnalög með því að hunsa fyrirmæli um einangrun þegar hann var smitaður af Covid-19. 22.9.2022 17:30
Mögulegt að árásin hefði beinst gegn Alþingi eða lögreglu Mennirnir fjórir sem grunaðir eru um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi voru allir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri en refsing fyrir hryðjuverk er allt að lífstíðarfangelsi. Að sögn lögreglu má ætla að möguleg árás hefði beinst gegn Alþingi eða jafnvel lögreglu. Tengsl við erlend öfgasamtök eru til skoðunar. 22.9.2022 16:51
Halla hættir sem framkvæmdastjóri ASÍ: „Síðustu ár hafa einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi“ Halla Gunnarsdóttir hefur tilkynnt að hún muni ekki snúa til baka til starfa sem framkvæmdastjóri ASÍ eftir afsögn Drífu Snædal. Hún segir að um skemmtilegt og lærdómsríkt ferli hafi verið að ræða en síðustu ár hafi einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi og vinnuskilyrðin hafi oft verið óbærileg. Vonandi takist að leysa einhverja hnúta og komast að samkomulagi fyrir veturinn. 22.9.2022 15:34
Grunaðir um að undirbúa hryðjuverk Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglu grunar að mennirnir hafi haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi sem áttu að beinast gegn borgurum og stofnunum ríkisins. 22.9.2022 15:15
Poczta zamyka swoje oddziały w Grindavíku, Skagaströnd i Kópasker W połowie stycznia przyszłego roku, Poczta planuje zamknąć swoje urzędy pocztowe w Grindavíku, Skagaströnd i Kópaskeri. W odpowiedziach z Urzędu Pocztowego mówi się, że nie planuje się zwolnień w związku z zamknięciami. 22.9.2022 15:03
„Þessi umræða er miklu stærri og mikilvægari en einstaka leiksýning“ Leikstjóri verksins Sem á himni segir umræðuna sem hefur skapast um túlkun á fatlaðri persónu í verkinu vera særandi en gagnrýnendur segja persónuna barngerða og niðurlægða. Hún hafi viljað varpa ljósi á stöðu fatlaðra og ekki milda það eða fara með mjúkum höndum en fatlaðir eigi tilverurétt í leikhúsinu. Samfélagið þurfi að taka umræðuna þrátt fyrir að það sé sárt eða erfitt að horfa upp á. 22.9.2022 14:51
Turyści unikają kąpieli przed wejściem na basen Wielu turystów, którzy odwiedzają islandzkie baseny stara się unikać kąpieli pod prysznicem przed wejściem na basen. Pracownicy basenów mówią, że problemem jest strach przed byciem obserwowanym. 22.9.2022 14:44
Ekki á dagskrá að sjá hjól- og fellihýsaeigendum fyrir geymsluplássi á sumrin Ekki er á dagskrá Reykjavíkurborgar að útvega eigendum hjól- og fellihýsa sérstakt geymslupláss fyrir farartækin yfir sumartímann. 22.9.2022 14:25
Skammaði þingmenn en ruglaðist sjálfur Birgir Ármansson, forseti Alþingis, var með örlítið málfarshorn á Alþingi í morgun. Þar skammaði hann þingmenn fyrir að ávarpa ekki aðra þingmenn í þriðju persónu. Honum urðu þó reyndar sjálfum á mistök sem hann þurfti síðar að leiðrétta. 22.9.2022 14:19
Eiríkur Björn og Rannveig nýir sviðsstjórar hjá borginni Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar, hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra nýs sameinaðs sviðs menningar, íþrótta- og tómstunda. 22.9.2022 13:41
Rúmlega 90 prósent þolenda vændis hafi orðið fyrir öðru kynferðisofbeldi Rúmlega 60 prósent þolenda vændis sem hafa leitað til Stígamóta frá árinu 2013 hafa reynt að fremja sjálfsvíg og um 92 prósent þeirra höfðu orðið fyrir öðru kynferðisofbeldi á lífsleiðinni, 80 prósent fyrir átján ára aldur. Þetta er meðal niðurstaða rannsóknar sem kynnt verða á málþingi um vændi í dag. Talskona Stígamóta segir mikilvægt að fólk átti sig á skaðlegum áhrifum vændis og varpi ljósi á gerendur. 22.9.2022 13:31
Aðventistar takast á um námugröft innan sinna vébanda Í kvöld hefst kjörfundur kirkju Sjöundadags aðventista en þar má búast við því að tekist verði á um óbeina aðkomu Aðventkirkjunnar að risavöxnu verkefni HeidelbergCement í Þorlákshöfn. Vel gæti komið til hallarbyltingar innan safnaðarins. 22.9.2022 13:31
Fornleifafræðingar funda með ráðherra vegna skipunar þjóðminjavarðar Stjórn Félags fornleifafræðinga fundar með safnamálaráðherra næstkomandi mánudag um ráðningu þjóðminjavarðar. Formaður félagsins segir réttast að draga ráðninguna til baka og byrja upp á nýtt. Staða Þjóðminjavarðar sé ein sú bitastæðasta innan safnastarfs á Íslandi. 22.9.2022 13:23
Slayer-dómur til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni K2 Agency Limited, umboðsfyrirtækis bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer, um að taka fyrir dóm Landsréttar þar sem aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice voru sýknaðir af hluta af kröfu um greiðslu skuldar við sveitina. 22.9.2022 13:18
Lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinist að fjölmiðlum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinast að frjálsum fjölmiðlum sem fjalla um viðkvæm samfélagsmál. Hún minnir á að hún hafi látið verkin tala þegar kemur að lagasetningu um vernd heimildarmanna fjölmiðla. 22.9.2022 13:16
Mikilvægt að skoða hvort konur treysti heilbrigðiskerfinu fyrir krabbameinsskimunum Yfirlæknir brjóstamiðstöðvar segir mikilvægt að skoða hvort konur treysti heilbrigðiskerfinu þegar kemur að krabbameinsskimunum í ljósi fyrri mistaka við greiningu leghálskrabbameina. Ný brjóstamiðstöð opnaði í morgun með það að markmiði að gera þjónustu við konur aðgengilegri. Heilbrigðisráðherra segir framtakið framfaraskref í heilsusögu kvenna. 22.9.2022 13:00
Fara fram á hámarksfangelsisdóm í saltdreifaramálinu Ákæruvaldið fer fram á hámarksfangelsisdóm yfir þeim sem ákærðir eru fyrir innflutning á fíkniefnum í saltdreifara og umfangsmikla kannabisræktum. Farið er fram á tveggja ára fangelsi á einn mann sem sá um fræðilega hlið ræktunarinnar. 22.9.2022 12:56
Telur forseta geta aflétt leynd með huganum einum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, réttlætti vörslu sína á aragrúa leyniskjala með því að forseti gæti aflétt leynd af gögnum með því einu að hugsa um það í sjónvarpsviðtali í gær. Þá kallaði hann málaferli gegn honum í New York pólitískar nornaveiðar. 22.9.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Baráttan við glæpahópa, skipun þjóðminjavarðar, persónunjósnir og traust kvenna til heilbrigðiskerfisins verða meðað umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 22.9.2022 11:36
„Þurfum að fara að stíga fast til jarðar“ Fjórir voru handteknir í gær vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og viðamikil vopnalagabrot. Sérsveit tók þátt í aðgerðum, sem eru taldar hafa orðið til þess að afstýra hættuástandi á staðnum. Dómsmálaráðherra segir komið að því að stíga fast til jarðar í baráttunni við glæpahópa. Lögregla reiknar með að boða til blaðamannafundar í dag vegna aðgerðanna í gær. 22.9.2022 11:32
Opnað á umfjöllun um tjón Eyvindartungubænda Landsréttur hefur úrskurðað að mál bænda að Eyvindartungi í Bláskógabyggð gegn Vegagerðinni, sem höfðað var vegna aurskriðu sem féll á lóð þeirra við veginn um Lyngdalsheiði, skuli tekið til efnislegrar meðferðar í héraði. Héraðsdómur Suðurlands hafði áður vísað málinu frá dómi. 22.9.2022 11:30
Spurði hvort hann ætti að lána ríkisstjórninni hækjurnar eftir að þær duttu með látum Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, nýtti tækifærið er hækjur hans duttu í gólfið með látum í miðri ræðu hans á Alþingi, hvort hann ætti ekki að lána ríkisstjórninni hækjurnar til að halda uppi almannatryggingakerfinu. 22.9.2022 11:11
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. 22.9.2022 10:52
Ríkisstjórnin gekk út vegna samsæriskenninga umdeilds þingmanns Samsæriskenningar þar sem ýjað var að því að fjármálaráðherra Hollands væri njósnari á vegum vestrænna ríkja sem viðraðar voru í þingræðu í Hollandi í gær varð til þess að öll hollenska ríkisstjórnin gekk af þingfundi í mótmælaskyni. 22.9.2022 10:44
Sigríður Th. Erlendsdóttir er látin Sigríður Theodóra Erlendsdóttir sagnfræðingur er látin, 92 ára að aldri. Sigríður var brautryðjandi í rannsóknum á sögu kvenna og lagði með kennslu sinni og rannsóknum grunn að kvennasögu sem fræðigrein hér á landi. 22.9.2022 10:41
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. 22.9.2022 10:35
Erla hafi logið upp á þá án aðstoðar lögreglu Magnús Leópoldsson, einn þeirra sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga eftir að hafa verið bendlaður við hvarf Geirfinns Einarssonar árið 1976, segir niðurstöðu Endurupptökudóms vera hárrétta. Hann segir Erlu hafa logið um aðild hans að málinu án þess að vera undir pressu frá lögreglunni. 22.9.2022 10:31
Loka pósthúsunum í Grindavík, á Skagaströnd og Kópaskeri Pósturinn hyggst loka pósthúsum sínum í Grindavík, á Skagaströnd og á Kópaskeri um miðjan janúar á næsta ári. Í svörum frá Póstinum segir að engar uppsagnir séu þó fyrirhugaðar í tengslum við lokanirnar. 22.9.2022 10:23