Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir stjórnvöld hafa gert mistök í að elta Evrópusambandið í bóluefnamálum Prófessor í ónæmisfræði furðar sig á því að Ísland skuli hafa hengt sig á Evrópusambandið við kaup á bóluefni, þegar það sé yfirlýst stefna hérlendra stjórnvalda að vera utan þess. Íslenska þjóðin hefði getað tekið forystu í bólusetningum og þannig klárað að bólusetja alla þjóðina á skömmum tíma. 10.1.2021 17:50
Bóluefnaskammtar fyrir 660 þúsund manns hafa verið tryggðir Búist er við að í næstu viku verði ljóst hvenær bóluefni AstraZeneca fær markaðsleyfi í Evrópu, að sögn forstjóra Lyfjastofnunar. 10.1.2021 17:33
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út að Kerhólakambi vegna slasaðrar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna göngukonu sem slasaðist á fæti við Kerhólakamb. Björgunarstarf fer nú fram úr lofti þar sem erfitt er að komast landleiðina vegna mikillar hálku. 10.1.2021 17:18
Gagnrýni á bóluefnakaup Íslendinga í Víglínunni Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans, telur að íslensk stjórnvöld eigi að leita til fleiri lyfjafyrirtækja en Pfizer og skoða möguleikann á samstarfi til að hægt verði að ljúka bólusetningum fyrr hér á landi. 10.1.2021 17:01
Tveir fluttir með þyrlu á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt tvo göngumenn, sem slösuðust á Móskarðshnúkum á þriðja tímanum í dag, á Landspítalann í Fossvoginn og lenti þar fyrir skömmu. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. 10.1.2021 15:46
Telur það gott skref ef hluti Íslandsbanka yrði gefinn þjóðinni Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að það yrði gott skref ef hluti eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka yrði afhentur almenningi landsins. 10.1.2021 15:06
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í Móskarðshnúkum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú á þriðja tímanum eftir að tilkynning barst um að slys hefði orðið í Móskarðshnúkum. 10.1.2021 14:56
Reynt að koma í veg fyrir að tíu þúsund lítrar af díselolíu leki í sjóinn Mikið tjón varð hjá fiskeldisstöðinni Löxum þegar fóðurprammi sem sér um fóðrun 16 fiskeldiskvía sökk í nótt í aftakaveðri. Í prammanum eru tíu þúsund lítrar af díselolíu. Framkvæmdastjóri Laxa segir að viðbragðsteymi sé á svæðinu með búnað ef olían fer að leka frá prammanum. 10.1.2021 13:30
Féll niður vök á Hafravatni Upp úr hádegi í dag var manneskju bjargað sem hafði fallið niður vök á Hafravatni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 10.1.2021 13:04
Segist uggandi að konur fari nú í fyrstu skimun við brjóstakrabbameini um fimmtugt Konum verður ekki lengur boðið í skimun fyrir brjóstakrabbameini við fertugt heldur verður boðið í fyrstu skimun við fimmtugt. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður viðreisnar segir það skjóta skökku við, en tilmæli Landlæknis og Fagráðs um brjóstakrabbamein eru að skimun hefjist við 45 ára aldur. 10.1.2021 12:30
Formaðurinn vill sjá frekari sameiningu sveitarfélaga Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir nauðsynlegt að sveitarfélög á Íslandi sameinist enn frekar og mögulega verði kosið um sameiningu einhverja sveitarfélaga á árinu. Aldís vill líka sjá öll sveitarfélög í Árnessýslu sameinast í eitt sveitarfélag. 10.1.2021 12:20
„Langstærsti fíkniefnabaróninn á Íslandi“ einnig upplýsingagjafi um árabil Rúmlega fertugur karlmaður sem rannsóknarlögreglumenn grunar að hafi verið stórtækur í fíkniefnaheiminum í vel á annan áratug, var einn helsti upplýsingagjafi lögreglu um árabil. Þetta kemur fram í rannsóknargögnum lögreglu sem lekið var á netið og til fjölmiðla á föstudag. Einn lögreglumaður segir upplýsingagjafann „langstærsta fíkniefnabaróninn á Íslandi“. 10.1.2021 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Búist er við að í næstu viku komi fram tímasetningar um hvenær bóluefni Astra Zeneca fær markaðsleyfi í Evrópu að sögn forstjóra Lyfjastofnunar. Þá er von á þúsund skömmtum af fyrsta skammti bóluefnis Moderna til landsins á næstu dögum. 10.1.2021 11:56
Þrír greindust innanlands í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. 10.1.2021 10:48
Sprengisandur: Íslandsbanki til almennings og ástandið í Bandaríkjunum Það verður gestagangur á Sprengisandi í dag þar sem farið verður yfir víðan völl. Þátturinn er á dagskrá frá klukkan 10 til 12. 10.1.2021 09:30
Dómur í tólf ára nauðgunarmáli ekki birtur að ósk brotaþola Héraðsdómur Reykjavíkur mun ekki birta niðurstöðu í nauðugnarmáli á vef sínum. Dómari í málinu vísar til reglna um birtingu dóma á vef dómstólasýslunnar og beiðni brotaþola í málinu. 10.1.2021 09:01
Ógnaði manni með skærum í Kópavogi Alls voru níutíu mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í nótt. Sex voru jafnframt vistaðir í fangaklefum samkvæmt dagbók lögreglu. 10.1.2021 07:46
Jörð skalf við Grindavík í nótt Jarðskjálfti 4,1 að stærð var sex kílómetra norður af Grindavík klukkan 03:15 í nótt. 10.1.2021 07:32
Varðskipið Þór kallað út þegar fóðurprammi sökk í vonskuveðri Áhöfnin á varðskipinu Þór var kölluð út á níunda tímanum í kvöld þegar mikill leki kom að stórum fóðurpramma sem þjónar fiskeldiskvíum í Reyðarfirði. Þegar skipið var komið á staðinn var pramminn orðinn fullur af sjó og marar hann nú í kafi, að sögn Landhelgisgæslunnar. 9.1.2021 23:49
Gætu þurft að opna fleiri farsóttarhús vegna mikillar fjölgunar Mikil fjölgun hefur verið í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg síðustu daga. Forstöðumaður segir ekki ólíklegt að það þurfi að opna fleiri slík hús ef fram heldur sem horfir. Ríflega þúsund manns hafa þurft að dvelja í sóttvarnahúsum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. 9.1.2021 22:49
Bjartsýnn á að bólusetningu verði lokið hér á landi í sumar Vonir glæðast um að það styttist í hjarðónæmi á Íslandi og reikna má með því að bólusetningu við Covid-19 verði lokið um mitt sumar. Þetta segir Richard Bergström, sem hefur yfirumsjón með bóluefnamálum í Svíþjóð og á sæti í samninganefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um bóluefni. 9.1.2021 21:34
Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. 9.1.2021 18:33
Önnur lönd tilkynna um andlát aldraðra eftir bólusetningar Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Þetta er sjötta alvarlega tilkynningin sem stofnunin fær vegna bólusetningarinnar. Forstjóri stofnunarinnar segir að sambærilegar tilkynningar hafi komið upp í nágrannalöndum okkar. 9.1.2021 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Um er að ræða sjöttu alvarlegu tilkynninguna sem stofnunin fær í kjölfar bólusetninga. Við ræðum við forstjóra Lyfjastofnunar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, sem segir sambærilegar tilkynningar hafa komið upp í nágrannalöndum. 9.1.2021 18:11
Réðust á og rændu skutlara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja aðila sem grunaðir eru um að hafa ráðist á og rænt svokallaðan skutlara í Hafnarfirði í nótt. 9.1.2021 16:48
Vestanverðum Neskaupstað lokað fyrir umferð vegna aftakaveðurs Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Búist er við því að veðrið taki að lægja eftir miðnætti en þangað til verður ekkert ferðaveður. 9.1.2021 16:22
Áhyggjuefni hve mikið smituðum hefur fjölgað Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það kveikja á viðvörunarbjöllum að greindum kórónuveirusmitum hafi fjölgað núna eftir áramót. Tíu greindust með veiruna innanlands í gær en tveir daginn þar áður. Níu af þessum tíu voru í sóttkví. 9.1.2021 16:15
Var ekki í síbrotagæslu þrátt fyrir langan sakaferil og mörg nýleg brot Verjandi manns sem var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í gær segir að skjólstæðingur sinn hafi tekið ákvörðun um næstu skref en vilji ekki gefa upp hver hún sé á þessari stundu. Þá hefur ekki komið fram hvort ríkissaksóknari hyggst áfrýja málinu til Landsréttar eður ei. 9.1.2021 14:00
Tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út mars Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert nýjan samning við Icelandair sem tryggir lágmarkssamgöngur milli Bandaríkjanna og Íslands til og með 31. mars. Verður því flogið minnst tvisvar í viku til Boston á því tímabili. 9.1.2021 13:35
Tilkynnt um annað tilvik alvarlegra aukaverkana í kjölfar bólusetningar Ein tilkynning hefur borist til Lyfjastofnunar um andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19 til viðbótar við þær fjórar tilkynningar sem greint var frá fyrr í vikunni. Um er að ræða aldraða manneskju sem var bólusett í lok desember en lést fyrir skömmu. 9.1.2021 12:56
„Hér er snarvitlaust veður“ Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Bátar hafa losnað frá bryggju, rúður sprungið og þakklæðningar losnað. 9.1.2021 12:55
Óttast að fuglaflensa berist til Íslands Dýralæknir hjá Matvælastofnun óttast mikla útbreiðslu fuglaflensu í Evrópu og að flensan gæti borist til Íslands um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins. Fuglaeigendur eru því beðnir um að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa góðum smitvörnum og forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla. 9.1.2021 12:46
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við meðal annars um vont veður á stórum hluta landsins og farþegaflugvél frá Indónesíu sem horfinn er af radarmælum. 9.1.2021 11:56
Tíu greindust innanlands í gær Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru níu í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á covid.is. 9.1.2021 10:46
Ekkert ferðaveður á Austurlandi í dag Mjög slæmt veður er á austurhelmingi landsins og hríð á norðausturfjórðungnum. Appelsínugular viðvaranir eru í gildi á meðan ofsaveðrið gengur yfir, en búist er við að það taki að lægja eftir miðnætti. 9.1.2021 10:05
Jón Þór sækist ekki eftir endurkjöri Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, mun ekki gefa kost á sér í næstu alþingiskosningum. Þetta tilkynnti hann í dag samhliða því að opnað var fyrir skráningar í prófkjör Pírata. 9.1.2021 09:02
Lögðu hald á plöntur og búnað til fíkniefnaframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi vegna framleiðslu fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var lagt hald á plöntur og búnað til framleiðslunnar. 9.1.2021 07:32
„Við viljum ekki að þessar reglur séu of íþyngjandi“ Takmarkanir á samkomum verða rýmkaðar þann 13. janúar. Samkvæmt reglunum verður krám og skemmtistöðum áfram gert að hafa lokað. Heilbrigðisráðherra segist skilja gremju fólks yfir misræmi í sóttvarnaraðgerðum. 8.1.2021 22:37
Appelsínugular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi að stórum hluta landsins í nótt. Appelsínugular viðvaranir eru á miðhálendi og austurhluta landsins og ekkert ferðaveður. 8.1.2021 21:39
Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum: „Ómögulegt að fjölga þátttakendum“ Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum í dag. Upplýsingafulltrúi ÍBR segir leitt að færri komust að en vildu. 8.1.2021 20:58
Eigandi Sporthússins segir reksturinn ekki standa undir sér: „Þetta hjálpar við að lágmarka tjónið eða minnka það“ Eigandi Sporthússins segir rýmkun á sóttvarnareglum hjálpa við að lágmarka tjónið sem líkamsræktarstöðvar hafa orðið fyrir. Reksturinn standi þó ekki undir sér. 8.1.2021 20:26
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. 8.1.2021 19:01
Breyttar ferðatakmarkanir í Bretlandi og Danmörku Breyttar ferðatakmarkanir eru í Bretlandi og Danmörku vegna faraldurs kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. 8.1.2021 18:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldatakmarkanir miða við 20 manns, heimilt verður að bjóða upp á hópatíma á líkamsræktarstöðvum og fleiri mega sækja menningarviðburði. Þetta er meginefni breyttra reglna um samkomutakmarkanir sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið. Reglurnar taka gildi í næstu viku með fyrirvara um breytingar á faraldrinum hér á landi. 8.1.2021 18:00
Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú Lögmaður þeirra, sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni vegna brunans á Bræðraborgarstíg í sumar og aðstandanda þeirra sem létust, hefur farið fram á kyrrsetningu á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú. Hann segir það gert til að tryggja skaðabótakröfur umbjóðenda sinna gagnvart húseigandanum, sem er fyrirtækið HD verk. 8.1.2021 17:59