Fleiri
Drengurinn sem lögreglan leitaði að fundinn Uppfært: Drengurinn fannst heill á húfi. 13.1.2021 21:20 Hitta alla sem koma smitaðir til landsins og fengu loks bólusetningu Fjögur hundruð manns voru bólusettir með bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut í dag. Bólusetningin gekk vel og var kærkomin framlínustarfsfólki úr röðum lögreglu og sjúkraflutningamanna, sem oft kemst í tæri við kórónuveiruna. 13.1.2021 20:01 Búist við nýjum reglum á landamærunum innan nokkurra daga Sóttvarnalæknir segir þann fjölda sem greinst hafi á landamærunum að undanförnu endurspegla útbreiðslu kórónuveirufaraldursins í öðrum löndum. Heilbrigðisráðherra mun væntanlega kynna nýjar sóttvarnareglur við landamærin á næstu dögum. 13.1.2021 19:21 Reyndist vera með gamalt kórónuveirusmit Betur fór en á horfðist þegar sjúklingur á hjartadeild Landspítalans greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í gær. Aðrir sjúklingar á deildinni og starfsmenn hennar reyndust allir neikvæðir. 13.1.2021 19:21 Dæmdur í fangelsi fyrir að kasta konu fram af svölum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 21 mánaðar fangelsi. Hann var dæmdur fyrir að kasta konu fram af svölum sínum á annarri hæð í Breiðholti árið 2019. Gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. september til 13. október árið 2019 verður dregið frá dómnum. 13.1.2021 19:14 „Við sáum strák labba blóðugan um gangana“ Nemendum og starfsfólki Borgarholtsskóla var mjög brugðið eftir hnífaárás í dag. 13.1.2021 19:14 Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi Maðurinn sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í dag fyrir að bana eiginkonu sinni í Sandgerði, hefur verið úrskurðaður í fimm mánaða gæsluvarðhald. Hann hefur verið frjáls ferða sinna frá því í október þegar Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald hans. Þá hafði hann verið í gæsluvarðhaldi frá apríl. 13.1.2021 18:46 Rýmingu ekki aflétt á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að aflétta ekki rýmingu Fossgötu á Seyðisfirði að svo stöddu. Er það vegna úrkomuspár og var ákvörðunin tekin á samráðsfundi lögreglunnar á Austurlandi, almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og Múlaþings í dag. 13.1.2021 18:07 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld verðum við með óhugnanlegar myndir af árásinni í Borgarholtsskóla í dag þegar unglingur var stunginn og aðrir barðir. Við tölum einnig við sóttvarnalæknir um aðgerðir á landamærunum. 13.1.2021 18:00 Leggur til að fólk þurfi að framvísa vottorði til að komast til landsins Sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra nýja tillögu um fyrirkomulag við landamærin í ljósi þess að ráðuneytið hefur tjáð honum að ekki sé lagastoð fyrir tillögum hans, hvorki tillöguna um að öllum verði gert skylt að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli né tillögu hans um tveggja vikna dvöl í farsóttarhúsi. Þórólfur greindi frá þessu í Reykjavík síðdegis. 13.1.2021 17:20 Fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Sandgerði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði í lok mars. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þinghald í málinu var lokað. 13.1.2021 16:50 Lögregla raðar saman púslunum í Borgarholtsskóla Að minnsta kosti sex manns hafa þurft að leita aðstoðar á slysadeild eftir að til átaka kom í Borgarholtsskóla í Grafarvogi í hádeginu í dag. Lögregla segir í tilkynningu að meiðsli þessara sex liggi ekki fyrir. Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við Vísi að engin þeirra slösuðu séu í lífshættu eða alvarlega slasaðir. 13.1.2021 16:44 Ásmundur á mölina Ásmundur Einar Daðason hefur ákveðið að leggja allt undir og færa sig yfir á mölina úr til þess að gera öruggu þingsæti fyrir næstu kosningar. 13.1.2021 16:17 Fresta breytingum á skimun eftir mikla gagnrýni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt. 13.1.2021 15:50 Skólastjórinn í Borgarholtsskóla: Árásin verði til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að árás í Borgarholtsskóla sé grafalvarlegt mál og muni verða til þess að breyta íslensku samfélagi. Sex voru fluttir á slysadeild eftir atburðina sem áttu sér stað upp úr klukkan eitt í dag. 13.1.2021 15:17 Elliði sakar Katrínu um hræsni og aumt yfirklór Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss er afar ósáttur með háðugleg orð Katrínar Oddsdóttur formanns Stjórnarskrárfélagsins í sinn garð og svarar í sömu mynt. Og vill bæta heldur í ef eitthvað er. 13.1.2021 14:56 „Þetta er ekki hugsað til að þú getir haldið partíið sem þig hefur langað til að halda“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að fólk verði að gera sér grein fyrir því að tilslakanir á sóttvarnareglum séu alls ekki hugsaðar til þess að fólk geti haldið veislur og partí. 13.1.2021 13:42 Sjá næstu 50 fréttir
Enginn starfsmannanna reyndist smitaður Enginn af starfsmönnum blóð- og krabbameinslækningadeildar, sem fóru í skimun fyrir kórónuveirunni í morgun vegna smitaðs sjúklings, reyndist smitaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 14.1.2021 15:44
Tilkynningar um andlát eftir bólusetningu orðnar sjö Lyfjastofnun hefur nú fengið sjö tilkynningar um andlát eftir fyrstu bólusetningu gegn kórónuveirunni fyrir áramót. Allir látnu eru aldraðir með undirliggjandi sjúkdóma á hjúkrunar- eða dvalarheimili. 14.1.2021 15:26
Yfir 300 þúsund króna munur á leikskólagjöldum Yfir 300 þúsund króna munur er á leikskólagjöldum á ári fyrir fjölskyldur með fleiri en eitt barn á leikskóla. Þetta kemur fram í úttekt verðlagseftirlits ASÍ á breytingum á leikskólagjöldum hjá fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins. Niðurstöður úttektarinnar má lesa um hér að neðan. 14.1.2021 15:20
Fimmtán sóttu um starf orkumálastjóra Alls bárust fimmtán umsóknir um starf orkumálastjóra sem nýverið var auglýst laust til umsóknar. 14.1.2021 15:01
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar sviptur réttindum í fjóra mánuði Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni, játaði sök þegar mál lögreglustjórans á Vestfjörðum gegn honum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í dag. 14.1.2021 14:08
„Fólk er bara að skipuleggja næstu daga á ferð og flugi“ Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að lögreglumenn á vellinum sjái oft merki þess að fólk ætli ekki að virða sóttkví. Það ætli sér beint í vinnu eða að ferðast um landið. Þeir sem hafni skimun við landamærin beri sumir fyrir sig „stjórnarskrárbundnum rétti“ eða hugnist ekki að láta úr sér lífsýni. Almennt gangi allt þó vel á landamærunum og nær allir velja að fara í tvöfalda skimun. 14.1.2021 14:01
Rýmdu frystihús og sigldu með fólk í bæinn í öryggisskyni Lögreglan á Austfjörðum ákvað að láta rýma hús á vinnusvæði nærri þeim stað þar sem stór skriða féll á Seyðisfirði í desember. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ábendingar hafi borist klukkan hálf tólf í morgun um að sprunga sem myndaðist í fyrrnefndri skriðu 18. desember hefði hugsanlega gliðnað. Vinnusvæði þar fyrir neðan hefði í kjölfarið verið rýmt og því lokað. 14.1.2021 12:56
Pfizer segist ekki kannast við frásögn Kára Lyfjaframleiðandinn Pfizer segist ekki kannast við frásögn Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar af fundi um mögulega bóluefnisrannsókn á Íslandi. Þetta kemur fram í skriflegu svari Pfizer við fyrirspurn fréttastofu. 14.1.2021 12:54
Gaf sig fram við lögreglu eftir árásina í Borgarholtsskóla Þrír hafa verið handteknir í tengslum við árásina í Borgarholtsskóla í gær. Piltarnir eru á aldrinum sextán til nítján ára. Eins þeirra var leitað í allan gærdag en hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu seint í gærkvöld, samkvæmt heimildum fréttastofu. Sá er vistaður í fangaklefa og verður yfirheyrður í dag en þeir sem eru undir lögaldri hafa verið vistaðir á viðeigandi stofnun og mál þeirra unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, að sögn lögreglu. 14.1.2021 11:52
Fyrirhuguð sala á Íslandsbanka ætlar að reynast umdeild Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra stefnir að því að hefja söluferli á einum fjórða hlutar Íslandsbanka fyrir lok mánaðar. Hann stefnir ótrauður á að útboð verði í sumar. 14.1.2021 11:48
Á annan tug smita í hópi sem ætlaði alls ekki í sýnatöku á flugvellinum Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn flugstöðvardeildar Lögreglustjórans á Suðurnesjum, segir óviðunandi að tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum nái endurtekið ekki fram að ganga. Þörf sé á skjótri lagasetningu sem gefi sóttvarnalækni heimild til að grípa til þeirra aðgerða sem þurfi. Dæmi er um fjörutíu manna hóp sem hafnaði sýnatöku en svo reyndust á annan tug smitaðir af Covid-19. 14.1.2021 11:35
Smithlutfall í sumum flugvélum allt að tíu prósent Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur lagt það til við Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að allir þeir sem hingað ferðast þurfi að framvísa neikvæðu prófi vegna kórónuveirunnar áður en þeir leggja af stað hingað til lands. 14.1.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um kórónuveirusmit sem uppgötvaðist á Landspítalanum í gær sem hefur einnig sett starfsemi sjúkrahússins á Ísafirði í nokkuð uppnám. 14.1.2021 11:35
„Við álítum þetta mögulega hættu og gætum fyllstu varúðar“ Sjúklingurinn sem greindist með kórónuveiruna á Landspítalanum í gær naut áður þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Af þeim sökum hefur sjúkrahúsið á Ísafirði verið fært á hættustig sem þýðir að þjónustan á sjúkrahúsinu verður í lágmarki þar til frekara ljósi verður varpað á stöðuna fyrir vestan. 14.1.2021 11:11
SÍF fundar með stjórnendum Borgarholtsskóla vegna árásarinnar Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, harmar vopnaða árás sem gerð var í Borgarholtsskóla í gær. 14.1.2021 10:59
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. Fjórir greindust sömuleiðis á landamærum. 14.1.2021 10:54
Segir smitin ekki dæmi um vanrækslu heldur árvekni starfsfólks Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður farsóttarnefndar, segir að það taki um sólarhring að átta sig nákvæmlega á stöðunni eftir að smit greindist á blóð- og krabbameinsdeild í gærkvöldi. Hann segir stöðuna býsna góða. 14.1.2021 10:39
Sjúkrahúsið á Ísafirði komið á hættustig vegna Covid-19 smits Sjúkrahúsið á Ísafirði er komið á hættustig eftir að sjúklingur sem nú liggur á Landspítala greindist með Covid-19 í gær. Sá hefur á síðustu dögum notið þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru í sóttkví og þrír til viðbótar í úrvinnslusóttkví. 14.1.2021 10:16
Svona var 153. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 14.1.2021 10:02
Enginn grunur um smit í sjúklingum eða starfsfólki Enginn grunur leikur á smiti í sjúklingum eða starfsfólki blóð- og krabbameinsdeildar Landspítalans þótt sjúklingur á deildinni hafi greinst með kórónuveiruna í gærkvöldi. 14.1.2021 08:32
Formaður BHM fær mótframboð Maríanna Hugrún Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, greindi formönnum aðildarfélaga BHM frá því í gær að hún gæfi kost á sér sem næsti formaður stéttarfélagsins. 14.1.2021 07:39
Ágúst Ólafur ekki einn af fimm efstu í könnun Samfylkingarinnar Aðeins einn karlmaður, Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður á Stundinni, er á meðal fimm efstu í skoðanakönnun sem haldin var meðal félaga í Samfylkingunni í Reykjavík í desember. 14.1.2021 07:16
Fljúgandi hálka á götum borgarinnar Fljúgandi hálka er á höfuðborgarsvæðinu og ættu ökumenn og aðrir vegfarendur því að fara mjög varlega nú í morgunsárið. 14.1.2021 06:48
„Umhleypingar næstu daga og lítið um vetrarstillur“ Það verða umhleypingar í veðrinu næstu daga og lítið um vetrarstillur að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 14.1.2021 06:38
Fimm manns í haldi lögreglu vegna líkamsárása Rétt fyrir klukkan hálfsex í gær handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mann og konu í íbúð í miðbæ Reykjavíkur. Þau eru grunuð um sölu fíkniefna, líkamsárás og brot á lyfja- og vopnalögum. Fólkið var vistað í fangageymslu lögreglu. 14.1.2021 06:19
Enginn handtekinn eftir hópslagsmál við Hólagarð Til átaka kom milli ungra karlmanna við verslunarkjarnann Hólagarð í Breiðholti á fimmta tímanum í dag. Stór rúða á útibúi flatbökukeðjunnar Pizzunnar brotnaði í átökunum. Þá mátti heyra ung börn öskra og gráta í bakgrunni þar sem þau fylgdust með átökunum. 14.1.2021 00:31
Greindist smitaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) greindist í kvöld smitaður af Covid-19. Innlagnir á deildina hafa því verið stöðvaðar og fara um þrjátíu sjúklingar og þrjátíu starfsmenn í skimun í fyrramálið. 13.1.2021 23:38
Þverun Þorskafjarðar boðin út en ósamið um Teigsskóg Vegagerðin auglýsti í dag eitt stærsta útboðsverk ársins, þverun Þorskafjarðar. Óvissa ríkir þó um næstu áfanga þar sem ekki hafa náðst samningar við landeigendur í Teigsskógi. Í Reykhólahreppi sjá menn fram á ný atvinnutækifæri með framkvæmdunum. 13.1.2021 21:51
Hitta alla sem koma smitaðir til landsins og fengu loks bólusetningu Fjögur hundruð manns voru bólusettir með bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut í dag. Bólusetningin gekk vel og var kærkomin framlínustarfsfólki úr röðum lögreglu og sjúkraflutningamanna, sem oft kemst í tæri við kórónuveiruna. 13.1.2021 20:01
Búist við nýjum reglum á landamærunum innan nokkurra daga Sóttvarnalæknir segir þann fjölda sem greinst hafi á landamærunum að undanförnu endurspegla útbreiðslu kórónuveirufaraldursins í öðrum löndum. Heilbrigðisráðherra mun væntanlega kynna nýjar sóttvarnareglur við landamærin á næstu dögum. 13.1.2021 19:21
Reyndist vera með gamalt kórónuveirusmit Betur fór en á horfðist þegar sjúklingur á hjartadeild Landspítalans greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í gær. Aðrir sjúklingar á deildinni og starfsmenn hennar reyndust allir neikvæðir. 13.1.2021 19:21
Dæmdur í fangelsi fyrir að kasta konu fram af svölum Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 21 mánaðar fangelsi. Hann var dæmdur fyrir að kasta konu fram af svölum sínum á annarri hæð í Breiðholti árið 2019. Gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. september til 13. október árið 2019 verður dregið frá dómnum. 13.1.2021 19:14
„Við sáum strák labba blóðugan um gangana“ Nemendum og starfsfólki Borgarholtsskóla var mjög brugðið eftir hnífaárás í dag. 13.1.2021 19:14
Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi Maðurinn sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi í dag fyrir að bana eiginkonu sinni í Sandgerði, hefur verið úrskurðaður í fimm mánaða gæsluvarðhald. Hann hefur verið frjáls ferða sinna frá því í október þegar Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald hans. Þá hafði hann verið í gæsluvarðhaldi frá apríl. 13.1.2021 18:46
Rýmingu ekki aflétt á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að aflétta ekki rýmingu Fossgötu á Seyðisfirði að svo stöddu. Er það vegna úrkomuspár og var ákvörðunin tekin á samráðsfundi lögreglunnar á Austurlandi, almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og Múlaþings í dag. 13.1.2021 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld verðum við með óhugnanlegar myndir af árásinni í Borgarholtsskóla í dag þegar unglingur var stunginn og aðrir barðir. Við tölum einnig við sóttvarnalæknir um aðgerðir á landamærunum. 13.1.2021 18:00
Leggur til að fólk þurfi að framvísa vottorði til að komast til landsins Sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra nýja tillögu um fyrirkomulag við landamærin í ljósi þess að ráðuneytið hefur tjáð honum að ekki sé lagastoð fyrir tillögum hans, hvorki tillöguna um að öllum verði gert skylt að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli né tillögu hans um tveggja vikna dvöl í farsóttarhúsi. Þórólfur greindi frá þessu í Reykjavík síðdegis. 13.1.2021 17:20
Fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Sandgerði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði í lok mars. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þinghald í málinu var lokað. 13.1.2021 16:50
Lögregla raðar saman púslunum í Borgarholtsskóla Að minnsta kosti sex manns hafa þurft að leita aðstoðar á slysadeild eftir að til átaka kom í Borgarholtsskóla í Grafarvogi í hádeginu í dag. Lögregla segir í tilkynningu að meiðsli þessara sex liggi ekki fyrir. Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við Vísi að engin þeirra slösuðu séu í lífshættu eða alvarlega slasaðir. 13.1.2021 16:44
Ásmundur á mölina Ásmundur Einar Daðason hefur ákveðið að leggja allt undir og færa sig yfir á mölina úr til þess að gera öruggu þingsæti fyrir næstu kosningar. 13.1.2021 16:17
Fresta breytingum á skimun eftir mikla gagnrýni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt. 13.1.2021 15:50
Skólastjórinn í Borgarholtsskóla: Árásin verði til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að árás í Borgarholtsskóla sé grafalvarlegt mál og muni verða til þess að breyta íslensku samfélagi. Sex voru fluttir á slysadeild eftir atburðina sem áttu sér stað upp úr klukkan eitt í dag. 13.1.2021 15:17
Elliði sakar Katrínu um hræsni og aumt yfirklór Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss er afar ósáttur með háðugleg orð Katrínar Oddsdóttur formanns Stjórnarskrárfélagsins í sinn garð og svarar í sömu mynt. Og vill bæta heldur í ef eitthvað er. 13.1.2021 14:56
„Þetta er ekki hugsað til að þú getir haldið partíið sem þig hefur langað til að halda“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að fólk verði að gera sér grein fyrir því að tilslakanir á sóttvarnareglum séu alls ekki hugsaðar til þess að fólk geti haldið veislur og partí. 13.1.2021 13:42