Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tvennt flutt á slysadeild eftir árekstur Harður árekstur varð á gatnamótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrabrautar á sjötta tímanum í dag. Tvennt var flutt á slysadeild til skoðunar með minni háttar áverka eftir áreksturinn. 24.1.2021 18:11
Rýmingu vegna snjóflóðahættu aflétt á Siglufirði Rýmingu vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á Siglufirði. Vegfarendur eru engu að síður beðnir um að hafa varan á, einkum á svæðum þar sem snjóflóð geta fallið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þar sem segir að ákveðið hafi verið að aflétta rýmingu húsa á sunnanverðum Siglufirði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi er þó enn í gildi. 24.1.2021 17:28
Andlát í Sundhöll Reykjavíkur Maður sem fannst á botni sundlaugar í Sundhöll Reykjavíkur á fimmtudaginn var úrskurðaður látinn. 24.1.2021 16:19
Íbúar húsanna þriggja á Flateyri mega snúa heim Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á Flateyri en íbúum þriggja íbúðarhúsa var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Þeir mega því snúa heim. Sömuleiðis er talið óhætt að dvelja á hafnarsvæðinu og viðvörunarljósið þar verður slökkt. 24.1.2021 14:51
Hamborgarinn „innan þeirra marka sem við erum sjálf að predika“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að málsverður hans á Hamborgarafabrikkunni hafi verið innan þeirra marka sem sóttvarnayfirvöld hafa boðað. Kráareigandi lýsti yfir óánægju með uppátækið og sóttvarnareglur í gær. 24.1.2021 14:27
Var á þriggja metra dýpi þegar hann heyrði drunurnar í bátunum og þyrlunni Mikael Dubik var á um þriggja metra dýpi í Kleifarvatni í dag þegar hann heyrði einhverjar drunur og velti vöngum yfir því hvort einhver væri kominn með bát á vatnið. Hann hafði oft áður kafað í Kleifarvatni og var yfirleitt einn á ferð. Þá skapaði bátur tiltekna hættu fyrir hann. 24.1.2021 13:58
Einungis tvö til þrjú afbrigði af fimm hundruð komist inn í landið Af þeim fimm hundruð afbrigðum veirunnar sem greinst hafa á landamærunum hafa einungis tvö til þrjú komist inn í landið. Sóttvarnalæknir ítrekar mikilvægi landamæraskimunar. 24.1.2021 13:53
Jóna Þórey vill á þing fyrir Samfylkinguna Jóna Þórey Pétursdóttir ætlar að gefa kost á sér á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. 24.1.2021 13:42
Aðgerðum lokið við Kleifarvatn Mikill viðbúnaður var við Kleifarvatn eftir að tilkynning barst um slys upp úr klukkan 12. Talið var að manneskja hefði farið í vatnið en síðar kom í ljós að ekki væri hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 24.1.2021 12:50
Íslendingar sofa allt of lítið „Allt of stór hluti Íslendinga sefur of lítið en þriðjungur þjóðarinnar er að sofa sex tíma á nóttu, sem er allt of lítill svefn,“ segir Erla Björnsdóttir, svefnráðgjafi. Þá sofi börn og unglingar líka allt of lítið. 24.1.2021 12:25
Vonaði að partíin fengju að bíða aðeins Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, segir að þegar lögregla þurfi að hafa afskipti af mörgum samkvæmum sé það vísbending um að fólk sé farið að slaka á í sóttvörnum. 24.1.2021 12:19
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt og stöðvaðist skammt utan við veginn að íbúðarhúsinu Sólbakka. Unnið er að könnun á ummerkjum flóðsins. 24.1.2021 11:54
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag tökum við stöðuna á snjóflóðum sem fallið hafa á Vestfjörðum og norðanverðu landinu síðasta sólarhringinn. Óveður hefur geisað fyrir norðan undanfarna daga og vegum lokað. 24.1.2021 11:46
Vonast eftir aðkomu lífeyrissjóða að Sundabraut Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mun kynna skýrslu um gerð Sundabrautar og hvernig hægt verði að fara í þær framkvæmdir. Þetta sagði Sigurður í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þegar hann var spurður um mögulega aðkomu lífeyrissjóða að stórum samgönguframkvæmdum hér á landi. 24.1.2021 11:40
Tveir greindust innanlands en átta á landamærum Tveir greindust með kórónuveiruna í gær og var annar þeirra í sóttkví. Átta greindust á landamærum í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni hjá almannavörnum. 24.1.2021 11:00
Snjóflóð féll í Skagafirði Snjóflóð féll ofan við bæinn Smiðsgerði í Skagafirði. Flóðið tók skúr sem stóð um 250 metrum ofan við bæinn. Ekki er vitað með vissu hvenær flóðið féll en talið er líklegt að það hafi fallið snemma í gær. 24.1.2021 10:09
Sprengisandur á Bylgjunni: Ríkisstjórnin, veiran, Íslandsbanki og krabbamein Það verður margt rætt í þjóðmælaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, um málefnagreining í ríkisstjórn og hvort hægt sé að flýta framkvæmdum í innviðum með þátttöku lífeyrissjóða. 24.1.2021 09:32
Týr flutti sjúkling frá Siglufirði Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð til í gær vegna sjúkraflutnings frá Siglufirði. Hvorki var hægt að flytja sjúkling landleiðina né í sjúkraflugi vegna slæms veðurs og ófærðar. 24.1.2021 09:31
Steinunn Ýr segir kvenfyrirlitningu grassera innan Samfylkingarinnar Mikil ólga er innan Samfylkingarinnar vegna uppstillingar lista. Logi Einarsson formaður hefur sigið inn í heitar umræður og reynt að lægja öldur. 24.1.2021 09:01
Éljagangur fyrir norðan og óvissa fyrir sunnan Áfram verður éljagangur um landið norðanvert, þó dragi úr vindi í dag, sem á að vera norðaustan 8 til 15 m/s. Bjart verður með köflum á sunnanverðu landinu og frost víða 0 til 6 stig, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. 24.1.2021 07:51
Tóku höndum saman og komu sjúkrabíl í gegnum mikla ófærð Björgunarsveitarmenn frá Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavík auk snjómokstursmanna allt frá Þórshöfn til Akureyrar tóku á honum stóra sínum í gær þegar þeir komu sjúklingi frá Þórshöfn til Akureyri í mjög vondu veðri og mikilli ófærð. 24.1.2021 07:34
Töluvert um hávaðatilkynningar vegna samkvæma Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst mikill fjöldi tilkynninga um læti frá partíum í nótt. Þær tilkynningar virðast hafa borist frá öllum hverfum borgarinnar og allt til korter í fimm í nótt, samkvæmt dagbók lögreglu. 24.1.2021 07:17
Varðskipið Þór heldur vestur á firði Varðskipið Þór verður til taks í samvinnu við lögregluna á Vestfjörðum og almannavarnir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Varðskipið verður þar á meðan þurfa þykir. 23.1.2021 22:01
Segir löngu tímabært að afnema refsistefnuna Heilbrigðisráðherra boðar frumvarp um lögleiðingu neysluskammta fíkniefna og vill að litið verði á fíkniefnaneytendur sem sjúklinga fremur en afbrotamenn. Verkefnastýra Frú Ragnheiðar segir þetta skref í rétta átt enda sé löngu tímabært að afnema þá refsistefnu sem hafi ekki skilað árangri 23.1.2021 21:30
Hrossin troða snjó upp að kvið „Ég kemst ekki með dráttarvélina í gegnum hliðið, við getum bara hent rúllunni yfir hliðið, og þá fórum við af gjafasvæðinu sem þau eru búin að traðka niður. Þá er snjórinn bara eins og hann kemur fyrir.“ 23.1.2021 21:03
Selfossveitur fengu stóran lottóvinning Brosið af starfsmönnum Selfossveitna fer ekki af þeim þessa dagana því mikið af heitu vatni var að finnast eftir borun í Ósabotnum skammt frá Selfossi. Um er að ræða tuttugu lítra á sekúndu af níutíu og fimm gráðu heitu vatni. 23.1.2021 21:01
Heyrir af því að fólk með einkenni fari ekki í sýnatöku vegna fárra smita í samfélaginu Víðir Reynisson óttast að „svikalogn“ ríki nú í kórónuveirufaraldrinum. Hann segir að vísbendingar séu um að fólk telji ekki ástæðu til að fara í sýnatöku vegna fárra smita sem greinast. 23.1.2021 20:30
Biður Kópavogsbæ um að lagfæra verkferla Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, hefur sent erindi til Kópavogsbæjar eftir fregnir af því að notandi svokallaðrar NPA-þjónustu hafi ekki fengið boð í bólusetningu líkt og til stóð. Hún segist vita að Kópavogsbær vilji tryggja fötluðu fólki jafnræði og vonast til að farið verði yfir verkferla. 23.1.2021 19:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Hættustigi hefur verið lýst yfir á Flateyri vegna snjóflóðahættu og þrjú íbúðarhús verða rýmd. Kona sem var stödd á Öxnadalsheiði þegar snjóflóð féll á svæðið í gærkvöldi segist hissa á því að Vegagerðin skuli hafa sagt veginn færan. Við ræðum við hana og viðbragðsaðila í kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.1.2021 18:01
„Þeir standa bara þarna úti með snjó í eyrunum og snjó upp að mitti“ Dóttir Margrétar Örnu Arnardóttur sat með heilmikinn snjó í fanginu í aftursæti bíls þeirra sem varð fyrir snjóflóði á Öxnadalsheiði í gærkvöldi. Aðrir vegfarendur sem höfðu hafist handa við að moka snjóskafl á veginum stóðu í snjó upp að mitti og með snjó í eyrunum. Margrét Arna hrósar happi að ekki hafi farið verr en kveðst undrandi á því hversu margir Íslendingar hafi lagt af stað yfir heiðina á illa útbúnum bílum með engan búnað í bílnum. „Það var nú engum meint af sem betur fer,“ segir Margrét í samtali við Vísi. 23.1.2021 17:25
Óttast að fleiri hafi gleymst við boðun í bólusetningu Salóme Mist Kristjánsdóttir óttast að fleiri í hennar stöðu hafi lent í því að gleymast í kerfinu við boðun í bólusetningu gegn covid-19. Í gær fékk hópur fólks sem nýtir svokallaða NPA-þjónustu fyrstu sprautuna af bóluefni gegn covid-19. Salóme aftur á móti, sem þarf aðstoð við allar daglegar athafnir og er notandi sambærilegrar þjónustu hjá Kópavogsbæ, fékk aftur á móti ekkert boð í bólusetningu. 23.1.2021 16:30
John Snorri leggur af stað á toppinn Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er að leggja af stað á K2 í dag og er stefnan sett á toppinn. John Snorri greinir frá því á Facebook í dag að hann stefni á að leggja af stað klukkan níu að kvöldi að staðartíma í Pakistan, eða núna klukkan fjögur að íslenskum tíma. 23.1.2021 16:15
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Flateyri Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu og verða þrjú íbúðarhús rýmd á Flateyri. 23.1.2021 15:32
RARIK byggir fyrir 750 milljónir króna á Selfossi Umfangsmiklar framkvæmdir eru að fara af stað hjá RARIK á Suðurlandi því ákveðið hefur verið að byggja tvö ný hús undir starfsemin á Selfossi, sem munu kostar um sjö hundruð og fimmtíu milljónir króna. RARIK er með mikil umsvif á Suðurlandi en um 40% allra heimtaugaumsókna hjá fyrirtækinu á síðasta ári voru í Árnessýslu. 23.1.2021 14:30
Telur enga ástæðu til að hræðast kynningu Borisar Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur ekki ástæðu til að hræðast niðurstöður rannsókna á hinu svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar, sem forsætisráðherra Bretlands kynnti í gær. Niðurstöðurnar bendi vissulega til þess að afbrigðið gæti verið banvænna en önnur – en það sé þó alls ekki sannað. Þá eigi Íslendingar að halda áfram á sömu braut, sem hingað til hefur haldið afbrigðinu í skefjum. 23.1.2021 14:02
Bráðaofnæmi algengara í tilviki bólusetningar Pfizer en annarra bólusetninga 137 tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun vegna gruns um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Sóttvarnalæknir segir rannsóknir sýna að bráðaofnæmi sé algengara í tilviki bóluenis Pfizer en annarra bólusetninga. 23.1.2021 13:24
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast á slaginu klukkan 12:00. 23.1.2021 12:03
Milljarðs halli á vetrarþjónustunni samhliða ákalli eftir aukinni þjónustu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þótt alltaf sé tekið mark á ábendingum frá vegfarendum um færð á vegum, þá þurfi Vegagerðin einnig að byggja ákvörðun um lokun vega á eigin upplýsingum. Þá sé um eins milljarðs halli á rekstri vetrarþjónustu á sama tíma og ákall séum aukna þjónustu. 23.1.2021 11:46
Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var sá í sóttkví. Þrír greindust á landamærum í gær en ekki liggur fyrir hvort um virk smit var að ræða. Þetta staðfestir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. 23.1.2021 11:20
„Þegar ég lendi í flóðinu þá er ég upp að hnjám þegar það stoppar“ Hannes Rúnarsson atvinnubílstjóri, sem lenti í snjóflóði á Öxnadalsheiði í gærkvöldi, kveðst undrandi yfir vinnubrögðum Vegagerðarinnar, sem hafi að hans mati allt of seint tekið ákvörðun um að loka heiðinni þrátt fyrir að hafa fengið upplýsingar um að heiðin væri ófær. Til allrar lukku hafi farið betur en á horfðist en snjóflóðið náði Hannesi upp að hnjám, en hann var í óða önn ásamt þremur öðrum við að moka upp fjölskyldubíl sem sat fastur í skafli þegar flóðið féll. 23.1.2021 11:07
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um reit níu sé að ræða og á honum sé atvinnuhúsnæði sem tryggt hafi verið að væru mannlaus í gærkvöldi. 23.1.2021 09:52
Ekkert ferðaveður fyrir norðan Akstursskilyrði á norðanverðu landinu eru víða slæm og ekki ferðaveður. Fjallvegir eru ófærir eða lokaðir víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi og var Öxnadalsheiðinni til að mynda lokað í gærkvöldi vegna snjóflóða. 23.1.2021 09:31
Þjóðþekktir á meðal hinna hugrökku á slysstað í Skötufirði Lögreglan á Vestfjörðum segir að fjórir vegfarendur sem fyrstir komu á vettvang umferðarslyssins í Skötufirði þann 16. janúar hafi sýnt mikið hugrekki og unnið vel á vettvangi. Fjórmenningarnir eru sumir hverjir þjóðþekktir og segir lögregla að þeir hafi veitt fyrstu hjálp í slysinu. Á endanum kostaði slysið unga móður og barn hennar, sem búsett voru á Flateyri, lífið. 23.1.2021 08:00
Tekinn í fimmta sinn án gildra réttinda Þrjár tilkynningar bárust lögreglu um þjófnað í verslun á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldið og í nótt. Þá var mikið um ökumenn sem stöðvaðir voru vegna gruns um að þeir væru að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 23.1.2021 07:20
Harma að myndlistamenn tortyggi eigin fulltrúa Samband íslenskra myndlistarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um úthlutunarnefnd starfslauna myndlistarmanna. Yfirlýsingin kemur í kjölfar gagnrýni Snorra Ásmundarsonar myndlistarmanns, sem telur vinagreiða ráða för við úthlutunina. 22.1.2021 22:35