Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óska eftir vitnum að hjólreiðaslysi í Breiðholti þar sem maður lést Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að slysi sem varð á göngustíg á móts við Hagasel 14-22 í Breiðholti laugardagsmorguninn 16. janúar. 27.1.2021 14:09
Segir gróf mannréttindabrot framin í skjóli bágborins eftirlits Formaður SEM samtakanna segir gróf mannréttindabrot framin daglega á Íslandi þegar hreyfihömluðum er meinaður greiður aðgangur að opinberum stöðum og íbúðarhúsnæði. Hann gagnrýnir byggingarfulltrúa og skipulagsyfirvöld harðlega og segir þau gefa afslátt af lögbundnum kröfum um aðgengi. 27.1.2021 14:00
Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda Vinna er hafin við lagningu nýs vegarkafla Vestfjarðavegar í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Kaflinn er 4,3 kílómetra langur fyrir Meðalnes, milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar. Suðurverk annast stóran hluta verksins sem undirverktaki Íslenskra aðalverktaka. 27.1.2021 13:45
Árekstur á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bíla á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs í Reykjavík um hádegisbil. 27.1.2021 13:30
Óttast að krapastífla sé á fleiri stöðum í Jökulsá Verkstjóri á Húsavík sem staddur er við Krapastífluna við Jökulsá á Fjöllum óttast að fleiri krapastíflur séu í ánni. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni með dróna til að ná betri yfirsýn. 27.1.2021 12:42
Árvekni drengs á Hofsósi varð til þess að sprungan uppgötvaðist Árvekni ungs drengs á Hofsósi varð til þess að stærðarinnar sprunga í snjóalögum fyrir ofan Vesturfarasetrið uppgötvaðist. Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við Veðurstofuna lokað hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. 27.1.2021 12:30
Dansleikurinn reyndist íþróttaviðburður með tilboði á næsta bar Hátt í 25 geta búist við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum eftir að lögregla leysti upp danssamkvæmi í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem áfengi var haft við hönd. Áfengið hafði verið borið út af nálægum veitingastað, sem er brot á áfengislögum. 27.1.2021 12:01
Opinberir aðilar áforma framkvæmdir upp á 139 milljarða í ár Framkvæmdir opinberra aðila voru mun minni í fyrra en þeir höfðu boðað á útboðsþingi í upphafi þess árs. Mestu munar um stórfelldan samdrátt í framkvæmdum hjá Ísavia. Reykjavíkurborg stóð hins vegar nokkurn vegin við áform sem gefin voru á útboðsþingi í byrjun síðasta árs. 27.1.2021 11:57
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um snjóflóðahættu sem nú er á Hofsósi en þar var það fyrir árvekni ungs bæjarbúa sem stærðarinnar sprunga í snjóalögum fyrir ofan Vesturfarasetrið uppgötvaðist. 27.1.2021 11:31
Tollurinn fái víðtækari heimildir til þess að leita í farangri Drög að frumvarpi til breytinga á tollalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Tollyfirvöldum eru þar veittar auknar heimildir til þess að leita í innrituðum farangri, án þess að eigandinn sé viðstaddur. 27.1.2021 11:25
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 27.1.2021 10:57
Leggja til að sveitarfélög hætti að gefa trúfélögum lóðir Lagt er til að lög um Kristnisjóð falli brott í frumvarpi sem Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur lagt fram. Aðrir þingmenn flokksins, sem og Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og Andrés Ingi Jónsson standa einnig að málinu. 27.1.2021 10:41
Verður hluti af leikskólanum Brákarborg Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 muni heyri undir leikskólann Brákarborg sem er til húsa í Brákarsundi. 27.1.2021 10:26
Þrýstingsfall í flugvél Bláfugls vegna leka við frakthurð Þrýstingsfall varð í einni af Boeing-fraktflugvélum flugfélagsins Bláfugls í gærmorgun þegar vélin var á leið frá Dublin til Keflavíkur. Þrýstingsfallið uppgötvaðist þegar vélin var skammt frá Færeyjum. 27.1.2021 10:23
442 milljónir til bænda vegna kal- og girðingatjóns Greiddar hafa verið 442 milljónir króna í styrki úr Bjargráðasjóði vegna mikils kal- og girðingatjóns veturinn 2019-20. 27.1.2021 08:26
Taldi hugmyndina fráleita en hitti svo Jón Ásgeir Einar Kárason rithöfundur hefur sent frá sér mikla bók, Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en þar er farið yfir einstakan feril athafnamannsins sem lenti í fordæmalausum málaferlum í tengslum við viðskipti sín og rekstur. 27.1.2021 08:01
Rafmagnslaust vegna bilunar í Garðabæ Rafmagnslaust er í Garðabæ vegna bilunar í háspennulínu. Unnið er að viðgerð, en bilunin kom upp klukkan 6:10 í morgun. 27.1.2021 07:35
Krapaflóðið lokar enn hringveginum Hringvegurinn milli Mývatns og Egilsstaða er enn lokaður þar sem krapastífla flæðir yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. 27.1.2021 07:26
Strekkingur, bjart með köflum og stöku él Það verður austlæg átt í dag, víða strekkingur, allhvöss eða hvöss syðst og á Vestfjörðum en mun hægari austanlands. Þá verður bjart með köflum en stöku él úti við sjávarsíðuna. 27.1.2021 07:10
Hafnarsvæðinu á Hofsósi lokað vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands ákveðið að loka hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. 27.1.2021 06:40
Fjöldi manns kærður fyrir brot á sóttvarnalögum vegna dansleiks í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi tilkynning um dansleik í húsnæði við hlið veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur. 27.1.2021 06:21
Mun fleiri „konur“ en „karlar“ breytt skráningu í kynsegin/annað Fjórtán hafa fengið kynskráningu sinni breytt hjá Þjóðskrá Íslands eftir að opnað var fyrir þann möguleika að velja „kynsegin/annað“ eftir áramót. 26.1.2021 22:07
Krapaflóðið tók sundur stofnstreng Krapaflóðið í Jökulsá á fjöllum í dag tók í sundur stofnstreng milli Reykjahlíðar og Hjarðarhaga. Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að gera við strenginn fyrr en á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. 26.1.2021 21:38
Metár í fjölda nýrra íbúða í Reykjavík Metfjöldi íbúða var í byggingu í Reykjavík á síðasta ári þegar bygging yfir ellefu hundruð íbúða hófst. Líkur eru á mikili grósku á þessu ári en deiliskipulag liggur fyrir varðandi fjögur þúsund og níu hundruð íbúðir, meðal annars á BYKO reitnum þar sem rísa munu rúmlega áttatíu íbúðir. 26.1.2021 21:01
„Áhugavert“ bóluefni sem lofar mjög góðu Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, sem Íslendingar gætu átt von á til landsins á fyrsta ársfjórðungi, áhugavert bóluefni, sem svipi mjög til bóluefnis AstraZeneca. Niðurstöður úr fyrsta og öðrum fasa rannsókna lofi mjög góðu. 26.1.2021 19:53
Útboðsgjald á innfluttar landbúnaðarvörur hækkar um allt að 2.840 prósent Dæmi eru um að útboðsgjald vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum innan tollakvóta Evrópusambandsins hafi tuttugu og níu faldast eftir að eldri álagning var tekin upp á ný um áramót. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir þessar hækkanir skila sér út í verðlagið bæði á innfluttum og innlendum landbúnaðarvörum. 26.1.2021 19:20
„Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt“ „Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt. En gott og vel, það er bara partur af veruleikanum hér í þingsal og eitthvað sem við verðum að reyna að hafa skilning á,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, þegar hún svaraði fyrirpurn Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, um bóluefni. 26.1.2021 18:18
Sex leikskólar opnir í allt sumar: Kostnaðurinn í fyrra 44 milljónir Sex leikskólar á vegum Reykjavíkurborgar verða opnir í allt sumar; einn í hverju hverfi. Um er að ræða framhald af tilraunaverkefni sem var sett af stað sumarið 2019 en í nýlegri viðhorfskönnun sögðust 97% foreldra mjög eða frekar ánægðir með fyrirkomulagið. 26.1.2021 18:04
Þriggja metra djúpur „krapahaugur“ lokar þjóðveginum Krapastífla flæðir nú yfir þjóðveg 1 við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Vegurinn milli Mývatns og Egillstaða er lokaður af þessum sökum. Lögregla segir „krapahauginn“ einna líkastan snjóflóði; hann sé um þriggja metra djúpur og nái yfir um 200 metra vegkafla. 26.1.2021 18:04
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Von er á bóluefni frá Janssen fyrr en áður var talið og segist heilbrigðisráðherra enn gera ráð fyrir að þorri þjóðarinnar verði bólusettur á fyrri hluta ársins. Málið var rætt á þingi í dag og verður fjallað um það í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þá verður rætt við yfirlækni ónæmisfræðideildar um hvað sé vitað um bóluefni Janssen. 26.1.2021 18:01
Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. 26.1.2021 17:48
Söguleg skipun forstöðumanns Fjölmenningarseturs Nicole Leigh Mosty hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til fimm ára. Hún tekur til starfa þann 1. mars. Greint er frá skipun Ásmundar Einar Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins. 26.1.2021 16:18
Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands Veitur segja að mistök hafi verið gerðar við framkvæmdir á vegum fyrirtækisins við Suðurgötu sem olli því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum sem viðurkenna mistök og segjast líta atvikið alvarlegum augum. 26.1.2021 14:55
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. 26.1.2021 14:54
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. 26.1.2021 13:30
Persónur og leikendur í málsvörn Jóns Ásgeirs Verulegur titringur er vegna óútkominnar bókar Einars Kárasonar: Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en þar gerir Jón Ásgeir fjárfestir og athafnamaður upp feril sinn hingað til, einkum í því sem snýr að viðamiklum dómsmálum sem honum var gert að eiga í. 26.1.2021 13:21
Sundhöllin er með skynjara sem sendir viðbragð ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni sundlaugar Sundhöll Reykjavíkur er með eftirlitskerfi í innilaug sem sendir frá sér viðvörun ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni laugarinnar. Fyrirtækið Swimeye sem selur búnaðinn segir búnaðinn bregðast fyrr við en sundlaugarverðir. Faðir manns sem lést eftir að hafa legið á botni sundlaugarinnar á fimmtudag veltir fyrir sér hvað fór úrskeiðis. 26.1.2021 13:18
Róbert liggur undir feldi Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, íhugar nú að bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta haust. 26.1.2021 12:18
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. 26.1.2021 12:10
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. 26.1.2021 11:54
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar er rætt við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um væntanlega afhendingu bóluefnis hingað til lands en hún gerir ráð fyrir að hægt verði að bólusetja um 33 þúsund manns í febrúarmánuði. 26.1.2021 11:35
Segist vanur brekkunum og hefur engar áhyggjur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segist engar áhyggjur hafa af því að Framsóknarflokkurinn mælist ekki með einn þingmann í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ef kosið yrði til Alþingis nú. Um er að ræða niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofuna sem fjalla var um í morgun. 26.1.2021 11:32
Heilbrigðisráðherra gefur þinginu skýrslu um bóluefni Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Síðast flutti ráðherra sambærilega skýrslu áður en þingfundum var frestað fyrir jólafrí. 26.1.2021 10:57
Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru í sóttkví við greiningu. 26.1.2021 10:56
Guðmundur Magnússon látinn Guðmundur Magnússon, kennari og leiðsögumaður, er látinn 84 ára að aldri. Útför Guðmundar fer fram frá Grensáskirkju klukkan 15 í dag en streymt verður frá athöfninni vegna samkomutakmarkana. 26.1.2021 10:55