Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rýma gossvæðið vegna gasmengunar Lögreglan á Suðurnesjum rýmir nú gossvæðið í Geldingadölum og nágrenni vegna mikillar gasmengunar. Allir þeir sem eru á svæðinu eru beðnir um að yfirgefa það sem fyrst. 7.4.2021 20:01
Innan við tíu prósent farþega ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið Aðeins fjórtán af 170 farþegum sem komu með flugi til landsins í dag ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni. Sumir farþeganna vissu ekki hvar þeir ætluðu að vera í sóttkví á meðan aðrir voru bólusettir og hér í þeim tilgangi að sjá eldgosið. 7.4.2021 20:00
Segja áhættuna af AstraZeneca mjög litla Fólk er í mun meiri hættu að fá blóðtappa veikist það af Covid 19 en ef það er bólusett með AstraZeneca bóluefninu samkvæmt ítarlegum rannsóknum bæði evrópsku og bresku lyfjastofnanna sem kynntar voru í dag. Ábatinn af notkun efnisins sé til mikilla muna meiri en áhættan sem fylgi því að veikjast af Covid. 7.4.2021 19:21
Sérreglur fyrir ákveðna hópa erfiðar í framkvæmd Ekki hefur verið skoðað sérstaklega að slaka á sóttvarnareglum fyrir fólk sem hefur verið bólusett gegn kórónuveirunni, að sögn sóttvarnalæknis. Hann telur að sérreglur fyrir bólusetta eða þá sem hafa fengið Covid-19 erfiðar í framkvæmd og eftirliti. 7.4.2021 19:16
Kári vill skikka alla farþega í sóttkví Hópsmit kom upp í vinnuhóp á Suðurlandi í gær og talið er að það megi rekja til einstaklings með mótefni sem smitaðist aftur af veirunni. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að allir sem koma hingað til lands eigi að fara í sóttkví. 7.4.2021 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landsréttur vísaði síðdegis frá kæru sóttvarnarlæknis vegna skyldudvalar farþega á sóttkvíahótelum. Skyldudvölin er því áfram ólögmæt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 7.4.2021 18:11
Kæru sóttvarnalæknis vísað frá Landsrétti Landsréttur vísaði frá kæru sóttvarnalæknis á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um lögmæti skyldudvalar í sóttkvíarhóteli. Sóttvarnalækni var talinn skorta lögvarða hagsmuni í málinu og tók Landsréttur ekki efnislega afstöðu til lögmætis skyldudvalarinnar. 7.4.2021 18:02
Engar breytingar á notkun bóluefnis AstraZeneca hér á landi Ekki verða gerðar breytingar á notkun AstraZeneca bóluefnisins hérlendis í kjölfar þess að Evrópska lyfjastofnunin (EMA) gaf út að möguleg tengsl væru milli sjaldgæfra tilfella blóðtappa og bólusetningar með efninu. 7.4.2021 16:46
Hinir smituðu starfsmenn í ferðaþjónustu Fimm starfsmenn á vinnustað tengdum ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi smituðust af Covid-19 eftir að smitaður einstaklingur kom í heimsókn til þeirra í vikunni. Að sögn Þorbjargar Gísladóttur, sveitarstjóra í Mýrdalshreppi, er ekki talið að smitin hafi nálgast þéttbýli í Vík í Mýrdal. 7.4.2021 16:44
Ítrekaðar hnífstungur á Sushi Social Árásarmaðurinn á Sushi Social við Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur í gær gerði alvarlega atlögu að fórnarlambi sínu, eins og sjá má á myndbandinu að neðan. Þar sést að maðurinn rekur eggvopn ítrekað í hinn og hæfir upphandlegg hans að minnsta kosti einu sinni. 7.4.2021 15:44
Einhverjir mættu fyrr í von um að fá Pfizer en ekki AstraZeneca Spurst hafði að í dag sé verið að bólusetja með Pfizer og vildu því einhverjir skjóta sér fram fyrir röðina í bólusetninguna. 7.4.2021 15:05
Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum. 7.4.2021 14:41
Opna Píeta hús á Akureyri í sumar Píeta samtökin munu opna sitt fyrsta útibú á landsbyggðinni í sumar þegar þau opna starfsstöð á Akureyri. Birgir Örn Steinarsson, sálfræðingur hjá Píeta samtökunum og listamaður, mun sinna stöðu forstöðumanns á Akureyri. 7.4.2021 14:03
Fullbólusettur Ingvi Hrafn vill komast í sund núna Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara segir það góða hugmynd að hleypa gráa hernum í sund en á því er þó einn hængur. 7.4.2021 13:49
Slæmt ef pólitískur ágreiningur ríkir um nauðsynlegar aðgerðir Mál sóttvarnarhótela er nú meðferðar í Landsrétti og von er á niðurstöðu í fyrsta lagi síðdegis í dag. Óeining er um næstu skref innan þingsins en þingmaður Viðreisnar segir skorta upplýsingar um nauðsyn aðgerðanna. 7.4.2021 12:24
Stunginn í upphandlegg og einn í haldi Karlmaður á fertugsaldri var stunginn í upphandlegginn inni á veitingastaðnum Sushi Social við Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur um níuleytið í gærkvöldi. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 7.4.2021 12:24
Ekki ólíklegt að gjósi á fleiri stöðum Hópstjóri náttúruvár á Veðurstofunni segir ekki ólíklegt að fleiri gossprungur eigi eftir að myndasta á Reykjanesi en þriðja spurngan hóf að gjósa þar um miðnætti. Ekki viðri vel fyrir almenning að fara að gosstöðvunum í dag. 7.4.2021 12:04
Gætu tengst ferðalang sem mögulega smitaðist aftur á Íslandi Hópur á Suðurlandi greindist með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. Smitin tengjast hugsanlega landamærasmiti, þar sem mögulegt er að einstaklingur með mótefni hafi smitast aftur af veirunni eftir komuna hingað til lands. 7.4.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni en ellefu greindust smitaðir innanlands í gær. 7.4.2021 11:34
„Það er þessi lína sem liggur til norðausturs sem er hættuleg“ Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir nýjan kafla að hefjast í eldgosinu í Geldingadölum, nú þegar nýjar sprungur hafa opnast. Hún telur ekki ólíklegt að sprunga opnist áfram í norðaustur og nær Keili. Fólk eigi ekki að vera á ferli á tiltekinni „línu“ til norðausturs sem kvikugangurinn teiknar upp. 7.4.2021 11:19
„Við þurfum að sýna ríkisstjórninni að við erum komin með nóg“ Rapparinn Herra Hnetusmjör hefur undanfarið gengið fram fyrir skjöldu á Instagram sem talsmaður þess að loka landinu til þess að varna kórónuveirunni vegar inn í landið. Hann var harðorður í garð stjórnvalda í gær. 7.4.2021 11:07
Ellefu greindust innanlands og sex utan sóttkvíar Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. 7.4.2021 10:58
Vilja nýja lagasetningu strax Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Alþingi komi saman án tafar til þess að ráðast í lagasetningu sem rennir stoðum undir nauðsynlegar sóttvarnir á landamærunum. Það felur í sér að kalla þarf þingmenn heim úr páskafríi. 7.4.2021 10:00
Bílastæðin opin en viðbragðsaðilar funda um þróun mála kl. 9 Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar á opnun á gossvæðinu í og umhverfis Geldingadali þrátt fyrir þróun mála í nótt. Samkvæmt stöðufærslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum frá því í gærkvöldi stóð til að opna kl. 6 í morgun. 7.4.2021 06:38
Slegist á veitingastöðum og kaffihúsi Nokkuð annríki var hjá lögreglu í gærkvöldi og nótt en samkvæmt dagbók sinnti lögregla tveimur útköllum vegna slagsmála á veitingastöðum í miðborginni og einu vegna líkamsárásar á kaffihúsi. 7.4.2021 06:17
„Þetta er þar sem fólk stóð fyrir viku síðan“ Kári Rafn Þorbergsson björgunarsveitarmaður frá Hellu er einn fjögurra sem stóð til að stæðu næturvaktina á gosstöðvunum í nótt. Fjölgað hefur í þeim hópi eftir að ný sprunga opnaðist á miðnætti. 7.4.2021 01:06
Ný sprunga hefur opnast og hraun rennur inn í Geldingadali Hraun streymir nú úr nýrri sprungu sem sérfræðingar á Veðurstofu Íslands tóku eftir um miðnætti. Erfitt er að greina á þessu stigi hve stór sprungan er. 7.4.2021 00:43
Búast við að súrálsskipið sigli um eða eftir helgi Átján skipverjar sem eru enn um borð í súrálsskipi á Reyðafirði þar sem kórónuveirusmit komu upp fóru í sýnatöku í dag og er niðurstaðna sagt að vænta í kvöld eða í fyrramálið. Búist er við því að skipið geti látið úr höfn um eða eftir helgi komi ekkert upp á. 6.4.2021 23:23
Slagsmál og læti á Sushi Social Upp úr sauð á veitingastaðnum Sushi Social við Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur um níuleytið í kvöld þegar slagsmál brutust út meðal gesta á staðnum. Þetta staðfestir Daníel Kavanagh veitingastjóri á Sushi Social í samtali við Vísi. 6.4.2021 22:56
Ekki á því að loka landamærunum Forsætisráðherra segist ekki hafa sannfæringu fyrir því að loka landamærunum þar til tekist hefur að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar. Breyta þurfi reglugerð um sóttkvíarhótel svo að hún standist lög. 6.4.2021 22:49
Hraunrennslið að komast í fyrra horf Dregið hefur úr hraunflæði úr eldgosinu á Reykjanesi og er það nú svipað og dagana áður en ný gossprunga opnaðist í gær. Hraunrennslið er sagt lítið í samanburði við flest önnur gos en ákaflega stöðugt. 6.4.2021 22:19
Símtal við vinkonu meðan á nauðgun stóð lykilatriði í málinu Ali Conteh, tæplega fertugur karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun í september 2018. 6.4.2021 21:00
Horfði á sprunguna opnast í Geldingadölum Hinn níu ára gamli Hugi Þór Snorrason var á göngu með afa sínum, Kristjáni Kristjánssyni, á gossvæðinu í gær þegar þeir heyrðu drunur og sáu skyndilega mikinn reyk koma upp úr jörðinni. 6.4.2021 20:01
Framleiðni eldgossins tvöfaldast með nýju sprungunni Nýja gossprungan sem opnaðist í Meradölum í gær er í raun viðbót við gosið í Geldingadölum sem hefur þannig tvöfaldað framleiðslu sína. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir vel hugsanlegt að önnur gossprunga gæti opnast. 6.4.2021 20:00
Eldur í Svartsengi á ekki að skerða orkuframleiðslu Engan sakaði þegar eldur kviknaði í vél í orkuveri HS Orku í Svartsengi í dag. Ekki er búist við því að tjón af völdum eldsins hafi áhrif á framleiðslu á raforku eða heitu eða köldu vatni. 6.4.2021 19:29
Afnám harðra sóttvarnaaðgerða gæti dregist á langinn Sóttvarnalæknir segir að harðar sóttvarnaaðgerðir innanlands gætu varað lengur ef ekki verði hægt að skylda alla til að dvelja á sóttvarnahóteli milli tveggja skimana eftir komuna til landsins. 6.4.2021 19:20
Á annað hundrað manns yfirgefa sóttkvíarhótelið Um 120 manns sem hafa fengið niðurstöður úr seinni sýnatöku yfirgefa sóttkvíarhótelið í Reykjavík í dag og í kvöld. Manneskja sem fór í skimun vegna einkenna sem komu fram á hótelinu greindist með kórónuveirusmit en fékk að fara heim til sín í einangrun. 6.4.2021 19:04
Meintir gerendur í tveimur andlátsmálum tengjast Tengsl eru á milli mannsins sem játað hefur að hafa orðið manni að bana í Rauðagerði og manns sem nú sætir gæsluvarðhaldi vegna dauða manns í Kópavogi á föstudag. Lögregla telur málin þó ekki tengjast. Farbann verður ekki framlengt yfir tveimur mönnum sem hafa stöðu sakbornings í rauðagerðismálinu. 6.4.2021 18:41
Þurfum að ná sömu markmiðum með öðrum hætti ef niðurstaðan verður staðfest Heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði en næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Þingmaður Pírata í velferðarnefnd segir málið risa stórt klúður og ætlar ekki að samþykkja lagabreytingar sem gætu skotið stoðum undir fyrirkomulagið. 6.4.2021 18:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu héraðsdóms um sóttkvíarhótel vera vonbrigði. Næstu skref verða ákveðin eftir úrskurð Landsréttar. Við ræðum við Svandísi í fréttatímanum klukkan 18:30. 6.4.2021 18:19
Tugir þúsunda bóluefnaskammta væntanlegir Von er á tæplega 65.300 bóluefnaskömmtum frá fjórum framleiðendum til landsins í þessum mánuði. Mánaðarleg afhending á bóluefni eykst um 160% í þessum mánuði borið saman við fyrstu þrjá mánuði ársins. 6.4.2021 17:25
Málið harmleikur og ömurlegt í alla staði Verjandi manns sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að andláti manns í Kópavogi um helgina á síður von á því að gæsluvarðhaldsúrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar. Hann segir skjólstæðing sinn enn halda því fram að um slys hafi verið að ræða og lýsir málinu sem harmleik. 6.4.2021 17:00
Vegslóði kominn undir hraun Segja má að fyrsta mannvirkið á Reykjanesi sé komið undir nýlegt hraun en vegslóði sem liggur að gosstöðvunum er nú þakinn fersku hrauni eftir að ný sprunga opnaðist með látum í gær. 6.4.2021 16:36
„Vandinn snýr að sundurlyndi ríkisstjórnarinnar í þessu“ Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, telur að það sé einna helst sundurlyndi ríkisstjórnarflokkanna um að kenna hvernig fór um reglugerð um skyldudvöl í sóttvarnarhúsi. 6.4.2021 15:36
Gosstöðvarnar verða opnaðar að nýju í fyrramálið Bogi Adolfsson hjá björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík segir útlitið á gosstöðvunum ágætt ef frá er talin gasmengun á svæðinu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aftur fyrir umferð fólks um svæðið í fyrramálið. 6.4.2021 15:12