Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sækist ekki lengur eftir starfi umboðsmanns Alþingis Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og fyrrverandi héraðsdómari, hefur dregið umsókn sína um starf umboðsmanns Alþingis til baka. Segir hún í Facebook-færslu að loknu vel ígrunduðu máli hafi störf hennar, bakgrunnur og hæfni ekki verið að sem leitast var eftir fyrir starfið. 11.4.2021 18:01
Maður minnisblaðanna, Covid og pólitík í Víglínunni Fárra minnisblaða er beðið með annarri eins eftirvæntingu og minnisblaða Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Heimir Már Pétursson fréttamaður ræðir við hann og formanna og varaformann velferðarnefndar í Víglínunni á Stöð 2 í dag. 11.4.2021 16:31
Þúsundir skammta af bóluefni til landsins í vikunni Á þriðja þúsund skammta af bóluefni Janssen eru væntanlegir hingað til lands á miðvikudaginn. Eru þetta fyrstu skammtar bóluefnisins sem sendir eru hingað til lands en um er að ræða eina bóluefnið við kórónuveirunni sem tekið hefur verið í notkun og er gefið í einni sprautu. 11.4.2021 16:26
Baron nýtist ekki sem sóttkvíarhótel Hótel Baron við Barónsstíg mun ekki nýtast sem sóttkvíarhótel eftir að hótelið við Þórunnartún fyllist. Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins, í samtali við Vísi. 11.4.2021 15:13
Gekk á nýju hrauni rétt fyrir sprengingu Ljósmyndari sem var á ferð við hraun úr gossprungunni á Reykjanesi sem opnaðist á öðrum degi páska varð vitni að því að maður fór upp á nýtt hraunið til að komast nær rennandi hrauntaumunum Nokkrum mínútum síðar varð sprenging neðanjarðar sem skók alla nærstadda. 11.4.2021 14:37
Dæmi um að fólk fari inn á þröng svæði milli hrauntungna Borið hefur á því að almenningur hafi farið langt inn á skilgreint hættusvæði við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavörnum. Í sumum tilfellum má lítið út af bregða til þess að fólk lokist inni, umlukið heitum hrauntungum. 11.4.2021 14:33
Barnasprengja í Mýrdalshreppi – nýr leikskóli byggður Það er engin lágdeyða í Vík í Mýrdal þó að þar liggi niðri meira og minna öll ferðaþjónusta vegna heimsfaraldursins, því nú á að fara að byggja þar nýjan leikskóla fyrir sextíu börn. Þá þarf sveitarfélagið meira af starfsfólki í grunnskólann og leikskólann því börnum í Mýrdalshreppi fjölgar svo hratt 11.4.2021 13:04
Fimmtíu orðið fyrir ofbeldi af hendi fyrrverandi maka Hundrað og tíu manns leituðu til Bjarmahlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri, í fyrra samkvæmt ársskýrslu Bjarmahlíðar. Fimmtíu þolendur tilgreindu ofbeldi af hálfu fyrrverandi maka. 11.4.2021 12:59
Hafa samband við eigendur brunnhúss þar sem kona féll Fulltrúar Mosfellsbæjar ætla að hafa samband við eigendur brunnhúss eftir að kona féll þar niður og lenti í sjálfheldu í gærkvöldi. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir að brunnhúsið hafi verið lokað en einhver hafi opnað það. 11.4.2021 12:32
Bindur vonir við að hægt verði að slaka á aðgerðum um miðjan apríl Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að hugsa þurfi út í aðrar leiðir, ráði kerfið ekki við fyrirkomulag sóttkvíarhótela. Dýrt sé að hafa eftirlit með fólki og þarfnast skipulagið mikils mannafla. 11.4.2021 12:09
Segir fólk eiga það til að vera kærulaust við hraunið Opið verður fyrir umferð að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli til klukkan níu í kvöld, líkt og síðustu daga. Yfirlögregluþjónn segir útlit fyrir nokkuð gott veður en ítrekar að staðan á svæðinu sé háð sífelldu endurmati, vegna hættu á gasmengun. Fólki er þá ráðlagt að vera ekki of nálægt hrauninu. 11.4.2021 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, bindur vonir við að hægt verði að slaka á aðgerðum um miðjan apríl. Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru báðir utan sóttkvíar. Við heyrum í Þórólfi í hádegisfréttum. 11.4.2021 11:28
Eitt sóttkvíarhótel fullt og annað tekið í gagnið Sóttkvíarhótelið við Þórunnartún er orðið fullt og er nú unnið að því að taka Hótel Baron við Barónsstíg í Reykjavík í notkun sem sóttkvíarhótel. 11.4.2021 10:51
Tveir greindust utan sóttkvíar í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru báðir utan sóttkvíar. 11.4.2021 10:39
Sóttvarnalæknir og pólitík sóttvarna í Sprengisandi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ræðir um afnám takmarkana og dómsniðurstöðu um sóttkvíarhótel í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Einnig ætla þrír þingmenn að ræða pólitík í sóttvörnum. 11.4.2021 09:32
Hífðu konu upp úr brunni við Lágafellskirkju Kona sem féll um tvo metra niður í brunn nærri Lágafellskirkju í Mosfellsbæ var orðin köld og þrekuð þegar slökkviliðsmenn náðu að bjarga henni upp. Samferðarfólk konunnar náði að halda henni upp úr vatni þar til slökkvilið kom á staðinn. 11.4.2021 09:18
Mildir suðlægir vindar leika um landið Spáð er rigningu eða slyddu í flestum landshlutum í dag fyrir tilstilli lægðar vestur af landinu sem beinir mildum suðlægum vindum yfir landið. Búist er við því að gasmengun leggi yfir norðanverðan Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðið í dag. 11.4.2021 07:32
Ógnaði fólki í verslunum Karlmaður sem ógnaði starfsmönnum og viðskiptavinum í verslun í vesturhluta Reykjavíkur í gær gisti fangageymslur lögreglu í nótt. Hann er sagður hafa komið við sögu í fleiri slíkum málum fyrr um daginn. 11.4.2021 07:16
Þyrla Gæslunnar sótti veikan mann að gosstöðvum Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti fyrr í kvöld miðaldra karlmann sem missti meðvitund eftir að hafa gengið að eldgosinu í Fagradalsfjalli. Hann var kominn niður frá gosstöðvunum og var á bílastæðinu á svæðinu þegar hann féll niður. 10.4.2021 23:05
„Við erum aldrei á byrjunarreit en þetta myndi lengja aðeins líf veirunnar“ Misskipting bóluefnis gegn kórónuveirunni í heiminum gæti haft alvarlegar afleiðingar, að mati erfðafræðings. Sum bóluefni er auðvelt að uppfæra gegn nýjum afbrigðum en önnur gæti þurft að þróa frá grunni. 10.4.2021 21:39
Sækja vélsleðamann sem féll sex metra fram af brún í Súgandafirði Björgunarsveitir á Vestfjörðum vinna nú að því að koma vélsleðamanni sem varð undir sleða sínum í botni Súgandafjarðar af slysstað. Björgunarsveitir hafa verið við vinnu í rúma tvo tíma en hjálparbeiðni barst um klukkan hálf sjö. 10.4.2021 20:56
Hrafnslaupur upp í byggingakrana á Selfossi Krummapar á Selfossi hefur heldur betur komið á óvart með varpstað því þau hafa búið til laup hátt upp í byggingakrana í bænum. Fuglafræðingur segir hrafninn einn gáfaðasta fugl, sem fyrirfinnst. 10.4.2021 20:07
Segir viðbúnað á gossvæðinu „eitthvað sem gengur ekki til lengri tíma“ Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt og mælist gasmengun á Höfuðborgarsvæðinu í dag. Unnið er að breytingu á skipulögðum viðbúnaði á svæðinu. 10.4.2021 20:01
Tólf tilkynningar um meint ofbeldi eða harðræði starfsfólks leik- og grunnskóla í fyrra Tólf tilkynningar um meint ofbeldi eða harðræði af hálfu starfsfólks í leik og grunnskólum borgarinnar bárust barnavernd Reykjavíkur í fyrra. Flest málin snúast um harðræði en einnig eru dæmi um óeðileg samskipti af kynferðislegum toga. 10.4.2021 19:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýjar reglur um útivist gesta á sóttkvíarhótelum eru þegar komnar í gildi. Áhyggjuraddir hafa heyrst undanfarið um skerta útivist gesta sem þurfa að vera í sóttkví í fimm daga. Áður máttu gestir hótelsins ekki fara út vegna sóttvarnaástæðna. 10.4.2021 18:03
Gestir sóttkvíarhótela eiga nú kost á útivist Nýjar reglur um útivist gesta á sóttkvíarhótelum eru þegar komnar í gildi en enn er margt í útfærslu. Áhyggjuraddir hafa heyrst undanfarið um skerta útivist gesta sem þurfa að vera í sóttkví í fimm daga. Áður máttu gestir hótelsins ekki fara út vegna sóttvarnaástæðna. 10.4.2021 17:48
Gasmengun frá gosinu berst til höfuðborgarinnar Gasmengun frá eldgosinu í Fagradalsfjalli blæs nú yfir höfuðborgarsvæðið og flokkast loftgæði, samkvæmt mælingum Umhverfisstofnunar, miðlungsgóð til slæm. Loftgæðin eru hvað verst á suðausturhluta höfuðborgarsvæðisins og mælast rúm 200 míkrógrömm af brennisteinsgasi í Norðlingaholti. 10.4.2021 17:17
Hættustigi lýst yfir þegar vél með skakkt hjól þurfti að lenda Hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli á fjórða tímanum í dag þegar í ljós kom að nefhjól einkaþotu sem tekið hafði á loft frá flugvellinum hafði skekkst. Mikill viðbúnaður var á vellinum þegar vélin lenti, en engan sakaði. 10.4.2021 16:34
Segir misskilnings gæta um björgunarsveitartjaldið Otti Rafn Sigmarsson, liðsmaður í björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík, segir ekki rétt að björgunarsveitartjald við eldstöðvarnar á Reykjanesi hafi staðið þar sem nú hefur myndast ný sprunga. 10.4.2021 16:08
Gagnrýna „órökstuddar og jafnvel óvísindalegar“ aðgerðir Hópur fólks var saman kominn Austurvelli fyrr í dag til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. 10.4.2021 15:20
Njála dómsgagn í nágrannadeilu Landeigendur á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum unnu mál fyrir Landsrétti á dögunum, þar sem nágrannar þeirra á bænum Káragerði höfðu stefnt þeim vegna þess að þeir töldu sig eiga tilkall til hlunninda á sameiginlegu landi jarðanna tveggja. Þeir eiga það ekki, var niðurstaðan á tveimur dómstigum. 10.4.2021 14:00
Upplýsingar um landbúnað og matvælaframleiðslu aðgengilegar á einum stað Mælaborð landbúnaðarins var opnað fyrir helgi. Um er að ræða rafrænan vettvang þar sem upplýsingar um landbúnað og matvælaframleiðslu á Íslandi eru gerðar aðgengilegar á einum stað. 10.4.2021 13:00
Níu hundruð manns bólusettir á Selfossi í gær og í dag Um fimm hundruð manns úr Hveragerði, Þorlákshöfn, uppsveitum Árnessýslu og frá Selfossi fá bólusetningu í dag og fjögur hundruð manns af þessum svæðum fengu bólusetningu í gær. 10.4.2021 12:23
Heilbrigðisráðherra heimsækir sóttkvíarhótel Svandís Svarsdóttir, heilbrigðisráðherra, ætlar að heimsækja sóttkvíarhótelið við Þórunnartún í dag. Þar kynnir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður sóttvarnahúsa Rauða krossins, starfsemina fyrir ráðherranum. 10.4.2021 11:58
Vill opna sundlaug fyrir bólusetta og segir „uppgjafartón“ í sóttvarnalækni Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst eftir helgi leggja fram formlega tillögu í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg leiti leiða til að opna minnst eina sundlaug fyrir bólusettum eldri borgurum. Hún er ósammála sóttvarnalækni um að opnun gæti reynst erfið í framkvæmd. 10.4.2021 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni og virðist það renna í Geldingadali. Að óbreyttu verður opið fyrir umferð að gossvæðinu til klukkan 21 í kvöld. Rætt er við náttúruvársérfræðing á Veðurstofu Íslands í hádegisfréttum. 10.4.2021 11:40
Í gæsluvarðhald grunaður um umfangsmikla kannabisræktun Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla kom upp um umfangsmikla þurrkun kannabisefna í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á fimmtudag. 10.4.2021 11:22
Stefnir í fullt sóttkvíarhótel í dag eða á morgun Hótel Baron við Barónstíg í Reykjavík verður að öllum líkindum tekið í notkun sem sóttkvíarhótel í dag eða á morgun. Þar er allt klárt að sögn forstjóra Sjúkratryggina Íslands. Gert er ráð fyrir að sóttkvíarhótelið við Þórunnartún fyllist í dag. 10.4.2021 10:59
Einn greindist í gær og var í sóttkví Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví. 10.4.2021 10:43
Hraun frá fjórðu sprungunni virðist renna í Geldingadali Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni og virðist það renna í Geldingadali. 10.4.2021 10:10
Eldur í bílum barst næstum því í nærliggjandi hús Tveir slökkvibílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fóru í útkall í nótt þar sem logaði í fjórum bifreiðum utandyra í iðnaðarhverfi á Esjumelum. 10.4.2021 09:25
Fólk á eigin ábyrgð á gossvæðinu fyrir hádegi Lögregla og björgunarsveitir verða með vakt á gossvæðinu á Reykjanesi frá hádegi til miðnættis í dag en því verður lokað klukkan níu í kvöld. Ný gossprunga opnaðist á svæðinu í nótt en talið er að fleiri gætu opnast fyrirvaralaust. Svæðið er opið í dag en þeir sem ætla sér inn á gossvæðið fyrir hádegi er sagðir gera það á eigin ábyrgð. 10.4.2021 08:57
Þórólfur sýnir fordæmi og þiggur ekki bólusetningu sem læknir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ákvað að þiggja ekki boð í bólusetningu sem hann fékk sem heilbrigðisstarfsmaður á dögunum. „Ég er ekki að vinna með sjúklinga, þannig að ég bíð,“ segir Þórólfur. 10.4.2021 08:00
Enn ein sprungan opnaðist í nótt Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja líklegt að enn ein gossprungan hafi opnast á Reykjanesi í nótt. Talið er að nýjasta sprungan liggi miðja vegu milli gosstöðvanna sem opnuðust á hádegi á öðrum degi páska og sprungu sem opnaðist aðfaranótt miðvikudags. 10.4.2021 07:13
Rannsaka árás á hótelstarfsmann í Reykjavik Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú árás á hótelstarfsmann í Reykjavík í gærkvöldi. Meintur árásarmaður var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði en hún er sögð hafa upplýsingar um hann. 10.4.2021 07:06