Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allir starfsmenn Íslensks sjávarfangs í skimun eftir að tveir starfsmenn smituðust Allir starfsmenn Íslensks sjávarfangs í Kópavogi, um hundrað manns, verða skimaðir fyrir kórónuveirunni eftir að tveir starfsmenn greindust smitaðir í fyrradag. 18.4.2021 10:45
Bandaríkin og Kina vinna saman í loftslagsmálum Ráðamenn í Kína og Bandaríkjunum segjast hafa komið að samkomulagi um að takast á við veðurfarsbreytingar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ríkin eru efst á lista ríkja sem losa hvað mestan koltvísýring út í andrúmsloftið. 18.4.2021 09:45
Tilkynning um eld sem reyndist vera rómantísk kvöldstund Slökkvilið á vakt á öllum fjórum stöðvum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang þegar tilkynnt var um eld í fjölbýlishúsi í nótt. Nágranni hafði orðið var við eldbjarma í íbúð og ekki þótti duga minna til en að senda allt tiltækt slökkvilið á staðinn. 18.4.2021 09:42
Sprengisandur: Pólitíkin, öldrunarþjónusta, ríksreksturinn og störf úti á landi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjá Kristjáns Kristjánssonar verður á sínum stað á Bylgjunni að loknum fréttalestri klukkan tíu. Þátturinn í dag verður fjölbreyttur að vanda og fær Kristján til sín góða gesti. 18.4.2021 09:30
Inntaka í ritlist að verða sama eldraun og í læknisfræði Þær eru árvissar átakanlegar sögurnar sem heyrast af þeim sem ítrekað sækja um sama háskólanám hér á landi en hafa ekki erindi sem erfiði. 18.4.2021 09:01
193 km hraða og nýkominn með bílpróf Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl í Reykjavík sem mældist á 193 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 80 kílómetrar. Ökumaður bílsins var ekki orðinn átján ára gamall og því var foreldrum hans og barnavernd gert viðvart um ofsaaksturinnn. 18.4.2021 07:05
Ingibjörg Ólöf í fyrsta sæti og Líneik Anna í öðru Ingibjörg Ólöf Isaksen, framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar, hlaut flest atkvæði í forvali Framsóknarmanna í Norðausturkjödæmi og mun leiða lista flokksins í næstu kosningum. Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður hafnaði í öðru sæti, en hún sóttist eftir oddvitasæti. 17.4.2021 23:44
Smitum fjölgar á leikskólanum Jörfa: Starfsfólk, börn og foreldrar í sóttkví fram á föstudag Fleiri starfsmenn á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafa greinst með kórónuveiruna í dag eftir starfsmaður þar greindist með veiruna í gær. Starfsmaðurinn fór veikur heim á fimmtudag og voru rúmlega tuttugu börn og allt starfsfólk á einni deild sett í sóttkví. 17.4.2021 21:17
Nemandi í Sæmundarskóla greindist með veiruna Nemandi í 2. bekk í Sæmundarskóla í Grafarholti greindist með kórónuveiruna. Allir nemendur árgangsins eru nú í sóttkví. 17.4.2021 21:10
Segir aumingjaskap að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara Alþjóðastjórnmálafræðingur segir það aumingjaskap af hálfu kínverskra stjórnvalda að beina þvingunaraðgerðum gegn almennum borgara hér á landi. Um sé að ræða ágreining sem eigi að ræða á vettvangi stjórnmála. 17.4.2021 20:31
Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni. 17.4.2021 20:04
Guðmundur Ingi leiðir VG í Kraganum Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mun leiða lista Vinstri grænna í Suðurvesturkjördæmi. Rafrænu forvali flokksins lauk nú síðdegis og varð Guðmundur Ingi þar hlutskarpastur með 483 atkvæði, en hann hefur verið utanþingsráðherra frá stjórnarmyndun. 17.4.2021 18:38
Hundrað í skimun eftir að smitin voru rakin til matvælafyrirtækis Verið er að skima hundrað starfsmenn matvælafyrirtækis eftir að tvö kórónuveirusmit sem greindust í gær voru rakin til þess. Smitin greindust utan sóttkvíar og eru tugir nú í sóttkví, sem gætu orðið fleiri ef fleiri reynast smitaðir. 17.4.2021 18:29
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýtt gosop opnaðist við Fagradalsfjall í dag, sem gæti breytt hraunflæði. Sérfræðingar urðu í fyrsta sinn varir við opið áður en það myndaðist. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.4.2021 18:22
„Ef ég vissi hver hálfvitinn væri þá myndi ég kæra“ „Skömmin var aldrei hjá mér. Skömmin er aldrei hjá þeim sem treystir. Skömmin er hjá þeim sem brýtur trúnaðinn og traustið,“ segir söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson í samtali við Vísi. 17.4.2021 17:33
Nýtt gosop opnaðist í gígjaðrinum Nýtt gosop opnaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á þriðja tímanum í dag. Opið er lítið og opnaðist á milli gíganna sem fyrir eru, á skilgreindu hættusvæði. 17.4.2021 15:52
Dagar bílastæðaklukkunnar á Akureyri senn taldir: Gjaldskylda hefst í lok sumars Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi í lok sumars. Þannig mun tími bílastæðaklukkunnar á Akureyri, sem ökumenn hafa jafnan haft sýnilega í bílrúðum á Akureyri, renna sitt skeið. 17.4.2021 14:46
Segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir aðgerðir Kínverja í samræmi við skilningsleysi þeirra á réttarríkinu og öllum þeim grundvallarréttinum sem undir það heyra. Nefndin mun ræða mál Kínverja á næstunni. 17.4.2021 14:00
Tugir þurfa í sóttkví vegna smitanna í gær Tugir þurfa að fara í sóttkví í tengslum við þau tvö smit covid-19 sem greindust innanlands í gær. Víðir Reynisson minnir á mikilvægi þess að fólk fari í sýnatöku finni það fyrir minnstu einkennum og hvetur atvinnurekendur til að vera duglega til að miðla upplýsingum til erlends starfsfólks um hve auðvelt sé að komast að í sýnatöku. 17.4.2021 13:29
Ólafur Laufdal byggir tíu lúxus svítur í Grímsborgum Ólafur Laufdal, veitingamaður í Grímsborgum í Grímsnesi lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir heimsfaraldur og nánast enga erlenda ferðamenn því hann er að fara að byggja tíu lúxusvítur fyrir 400 milljónir króna. 17.4.2021 13:04
Úrskurður siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan endanlegur og verður ekki áfrýjað Siðanefnd Ríkisútvarpsins hefur svarað bón Helga Seljan fréttamanns, sem krafðist þess að úrskurður nefndarinnar í máli hans verði endurupptekinn, á þá leið að það sé ekki hægt. Nefndin kveðst ekki hafa neinar forsendur til að endurupptaka úrskurðinn, hann sé því endanlegur og verði ekki áfrýjað. 17.4.2021 12:08
22 börn auk starfsfólks leikskólans Jörfa í sóttkví 22 börn og allri starfsmenn á einni deild leikskólans Jörfa í Reykjavík eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp hjá starfsmanni á leikskólanum. Smitið greindist í gær og er óvíst hvort leikskólinn getur verið opinn að sögn Bergljótar Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Jörfa. 17.4.2021 11:36
Veðjað á að hugsanlegur fundur Putíns og Bidens verði í Tékklandi eða á Íslandi Efnt hefur verið til veðmáls þar sem talið er líklegast að fundur leiðtoga hinna fornu stórvelda verði haldinn í Tékkalandi en Ísland kemur þar fast á hæla. 17.4.2021 11:32
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag heyrum við í formanni utanríkismálanefndar um yfirlýsingu kínverska sendiráðsins í gær. 17.4.2021 11:30
Tveir greindust innanlands og hvorugur í sóttkví Tveir greindust með Covid-19 innanlands í gær og var hvorugur í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Einn greindist á landamærum. 17.4.2021 10:58
Mengun mun berast yfir Vatnsleysuströnd Gasmengun frá gosstöðvunum á Reykjanesi mun berast til norðurs í dag, miðað við spár, og þá einkum yfir Vatnsleysuströnd. Þeir sem leggja leið sína að gosstöðvunum eru hvattir til að fylgjast með loftgæðamælingum og leiðbeiningum frá almannavörnum. 17.4.2021 09:22
Golffár á Fróni og nú þegar slegist um rástímana Áhugi á golfinu hefur ekki verið eins mikill í annan tíma á Íslandi. Þó tímabilið sé ekki hafið og nú sé svokallað vetrargolf stundað, sem áður var bara meðal þeirra hörðustu, eru allir rástímar sem í boði eru upp bókaðir og biðlistar í að komast í klúbbana. 17.4.2021 08:00
Grunaður um sölu áfengis úr bílnum Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl í Árbænum vegna gruns um að ökumaður hans væri að selja áfengi úr bílnum. Töluvert magn af áfengi var tekið úr bílnum og haldlagt. 17.4.2021 07:26
Afar sértæk beiðni kom á óvart Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður ákvað að gefa ekki áfram kost á sér sem umboðsmaður Alþingis í liðinni viku eftir að henni barst tölvupóstur frá ráðgjafarnefnd forsætisnefndar um ráðninguna, þar sem hún var beðin um mjög tiltekin gögn í tengslum við umsókn sína. 17.4.2021 07:00
Vonar að hann verði á svörtum lista kínverskra stjórnvalda til frambúðar Lögmaðurinn Jónas Haraldsson segir líklegustu skýringuna á því að hann sé kominn á svartan lista í Kína vera skrif sín í Morgunblaðið. Hann hafi skrifað um ýmis málefni tengd Kína undanfarin sex ár en segist aðallega hissa á því að þeir hafi nennt að standa í þessu, eins og hann orðar það sjálfur. 16.4.2021 22:44
„Metnaðarleysi og til skammar fyrir fyrirtæki í eigu almennings“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, gagnrýnir að Strætó bs. hafi ekki enn gert umbætur á merkingum í strætisvögnum sínum, þar sem víða eru enn aðeins leiðbeiningar á ensku. 16.4.2021 21:48
„Stjarnfræðilega meiri ávinningur í að nota AstraZeneca en hætta því“ Yfirlæknir í blóðmeinafræði mælir með notkun AstraZeneca bóluefnisins fyrir alla nema fólk í áhættuhópum. Ávinningurinn sé stjarnfræðilega meiri en að hætta að nota efnið líkt og Danir. 16.4.2021 20:31
Pétur Markan skráður í Viðreisn og aðstoðar við uppstillingu Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, er nú skráður í Viðreisn og er hluti af teymi sem stillir upp á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir næstu kosningar. Hann er þó sjálfur ekki í framboði og kveðst ekki hafa leitast eftir því. 16.4.2021 20:01
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur Tveggja bíla árekstur varð í kvöld á Bústaðavegi í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturinn. 16.4.2021 19:07
Sterkar vísbendingar um að eldfjallagasið muni hafa áhrif á heilsu fólks Sterklega má gera ráð fyrir að eldfjallagasið úr Geldingadölum muni leiða til aukinna öndunarfærasjúkdóma, sérstaklega hjá fólki í nálægri byggð. Börn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru sérstaklega útsett fyrir menguninni. 16.4.2021 19:00
Laga bílaplanið og gönguleiðina inn í Geldingadali Gönguleiðin inn í Geldingadali liggur undir miklum skemmdum sökum ágangs. Jarðvegsvinna á svæðinu er hafin en gönguleiðin er orðin að drullusvaði á löngum kafla. Þá er einnig unnið að úrbótum á bílastæðinu. 16.4.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá hörðum viðbrögðum kínverskra stjórnvalda vegna þátttöku Íslands í refsiaðgerðum Evrópuríkja gegn tilteknum einstaklingum í Kína vegna meðferðar á minnihluta Úíúra þar í landi. 16.4.2021 18:03
Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af innanríkismálum Kína Viðskiptaþvinganir Kína gegn íslenskum lögmanni byggja á ákvörðun yfirvalda hér á landi að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Kína vegna mannréttindabrota á Úígúrum þar í landi. Í stóryrtri yfirlýsingu frá sendiráði Kína hér á landi segir að ákvörðun stjórnvalda byggi á engu nema lygum og upplýsingafölsun. 16.4.2021 16:27
Hafnar því að Þórunn hafi ýtt sér í annað sætið Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar segir það ekki svo að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi ýtt honum niður í annað sæti á lista flokksins í Kraganum. 16.4.2021 15:55
Hraun rennur úr Geldingadölum í Meradali Hraun rennur nú úr Geldingadölum, þar sem eldgosið á Fagradalsfjalli hófst þann 19. mars, til austurs inn í Meradali. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands. 16.4.2021 15:47
Veiktist alvarlega á Grundartanga og dæmdar bætur níu árum síðar Fyrrverandi starfsmanni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga hafa verið dæmdar bætur vegna sjúkdóms sem hann þróaði með sér í starfi í óviðunandi starfsumhverfi. Starfsmaðurinn veiktist alvarlega árið 2012 og hefur síðan þá barist fyrir réttlæti. Sjóvá þarf að greiða honum 22 milljónir króna og 1,5 milljón króna í miskabætur. 16.4.2021 15:00
Bóluefnið sem er aðeins gefið fólki utan áhættuhópa Fimm af hverjum milljón Bretum sem bólusettir hafa verið með bóluefni AstraZeneca eiga á hættu að fá alvarlega blóðtappa. Hlutfallið er einn af hverjum fjörutíu þúsund í Danmörku og Noregi. Sóttvarnalæknir segir aðeins einstaklingum utan áhættuhópa boðið bóluefnið sem veiti góða vörn gegn Covid-19. 16.4.2021 14:02
244 þúsund Pfizer-skammtar til landsins í maí, júní og júlí Von er á samtals 244 þúsund bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst. 16.4.2021 13:44
Mannleg og kerfisleg mistök í máli konunnar Embætti landlæknis hefur komist að þeirri niðurstöðu að bæði mannleg og kerfisleg mistök hafi verið gerð í máli konu sem greindist með ólæknandi leghálskrabbamein eftir skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. 16.4.2021 12:29
Árás á Freyju árás á alla fatlaða foreldra Úrskurður Barnaverndarstofu um að Freyja Haraldsdóttir sé hæf til að taka að sér fósturbarn, hefur vakið umræðu sem er í mörgum tilvikum fordómafull, að mati Ingu Bjarkar fötlunaraktívista. Hún segir nauðsynlegt að fólk hætti að ákveða fyrir fólk með fötlun hvað það er fært um og hvað ekki. 16.4.2021 12:28