Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fríverslunarsamningur við Bretland í höfn Ísland hefur lokið við gerð nýs fríverslunarsamnings við Bretland. Utanríkisráðherra segir um tímamótasamning að ræða sem marki þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Ráðgert er að hann verði undirritaður á næstu vikum. 4.6.2021 11:17
Hraun komið yfir gönguleiðina upp á útsýnishólinn Hraun er komið yfir gönguleiðina upp á hól sem nýst hefur sem útsýnisstaður við gosstöðvarnar í Geldingadölum. 4.6.2021 11:12
Verktökum Veitna umbunað fyrir námssamninga Veitur, Samtök iðnaðarins og Skólameistarafélag Íslands hafa tekið höndum saman um útfærslu á því hvernig umbuna megi verktökum í útboðum Veitna fyrir að vera með iðnnema á námssamningi. 4.6.2021 11:10
Sjö greindust með Covid-19 í gær og allir utan sóttkvíar Sjö greindust með Covid-19 í gær. Allir voru utan sóttkvíar við greiningu. 4.6.2021 10:57
Umdeildur Guðni opnar Norðurá með að setja í vænan hæng Ekki eru allir stangveiðimenn jafn ánægðir með að Guðna Ágústssyni fyrrverandi landbúnaðarráðherra hafi hlotnast sá heiður að hefja laxveiðitímabilið. 4.6.2021 10:44
Nafn mannsins sem lést á Patreksfirði Maðurinn sem lést í slysi síðastliðinn sunnudag í botni Patreksfjarðar hét Sveinn Eyjólfur Tryggvason og var fæddur árið 1972. 4.6.2021 10:01
Athugasemdirnar hafi átt rétt á sér og verið staðfestar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og frambjóðandi í fyrsta sæti prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir að athugasemdir framboðs hans, vegna gruns um að bróðir Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem einnig sækist eftir fyrsta sætinu hafi nýtt sér beinan aðgang að félagaskrá flokksins í prófkjörsbaráttunni, hafi átt rétt á sér. Enda hafi komið fram í skoðun yfirkjörstjórnar að ekki hafi verið lokað fyrir aðgang Magnúsar fyrr en þriðjudaginn 1. júní. 4.6.2021 09:52
Svona raðast árgangarnir í bólusetningu næstu þrjár vikur Dregið var í handahófskennda bólusetningarröð árganga 1976 til 2005 klukkan tíu í morgun. Vísir var í beinu streymi frá drættinum. 4.6.2021 09:31
Ekki lengur jarðsett á eftirsóttasta tímanum vegna styttingar vinnuvikunnar Ekki verður lengur jarðsett í Reykjavík síðdegis á föstudögum, sem hefur verið eftirsóttasti tími vikunnar til útfara, vegna styttingar vinnuvikunnar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur. 4.6.2021 07:37
Ásgeir Þór hættir sem framkvæmdastjóri eftir áratuga starf Ásgeir Þór Árnason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Hjartaheilla, Landssamtaka hjartasjúklinga eftir áratuga starf hjá félaginu. Hann hætti um nýliðin mánaðamót. 4.6.2021 06:59
Domus Medica hættir rekstri í árslok Framkvæmdastjóri Domus Medica hf. segir að rekstri heilbrigðismiðstöðvarinnar við Egilsgötu verði hætt um áramót og segir „íslenskt ráðherraræði“ vera að fara illa með lýðræðið. 4.6.2021 06:47
Skammbyssa reyndist Stjörnustríðs geislabyssa Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um einstakling með skammbyssu í Hafnarfirði. Þegar betur var að gáð kom hins vegar í ljós að um var að ræða eftirlíkingu af Star Wars geislabyssu. 4.6.2021 06:26
Guðmundur Ingi og Una leiða lista VG í Kraganum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun leiða lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Una Hildardóttir, varaþingmaður of forseti LUF, situr í öðru sæti á listanum. 3.6.2021 22:58
Borholan gaus eftir að bóndinn dældi upp úr henni Goshverinn sem opnaðist á Reykjavöllum í Biskupstungum er í raun borhola frá 1947, sem áður var notuð til að hita upp gróðurhús á svæðinu. Jarðfræðingur segir að ekki sé um að ræða eitthvað sem gerist af náttúrunnar hendi, heldur hafi holan farið að gjósa heitu vatni þegar hreinsað var upp úr henni. 3.6.2021 20:01
Sigmundur Davíð vill feta flóttamannaleið Dana Formaður Miðflokksins hvetur íslensk stjórnvöld að fara sömu leið og Danir, sem samþykktu lög í dag sem heimila að hælisleitendur verði vistaðir í öðru landi á meðan þeir bíða niðurstöðu vegna umsókna sinna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandið hafa áhyggjur af stefnu Dana. 3.6.2021 19:46
Segir gögnunum hafa verið lekið í nóvember Gögnum, sem varða heimildir lögreglu til hlerana og að skoða persónulega bankareikninga, var lekið til sakborninga í nóvember síðastliðnum að sögn verjanda. Sakborningarnir voru handteknir í mars á þessu ári. Hann setur spurningarmerki við verklag lögreglu í málinu. Það sé í hæsta máta undarlegt að lögregla rannsaki mögulegan leka hjá sjálfri sér. 3.6.2021 19:01
Segja athugasemdir gegn bróður Áslaugar ekki eiga við rök að styðjast Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins segir Magnús Sigurbjörnsson, bróður Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, ekki hafa nýtt sér aðgang að flokksskrá flokksins fyrir prófkjör sem stendur nú yfir. Reglur hafi ekki verið brotnar. 3.6.2021 18:35
„Hann hoppaði upp á þennan stall með glóandi hraunið undir sér“ Hermann Helguson, leiðsögumaður og ljósmyndari, var staddur við gosstöðvarnar í Geldingadal rétt fyrir klukkan hálf tvö í nótt þegar hann varð vitni að því að karlmaður steig upp á hraunið sem vall úr eldfjallinu. Undir storknuðum pallinum, sem maðurinn stóð á, má sjá glóandi hraun vella fram. 3.6.2021 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Marek Moszczynski var í Héraðsdómi í dag metinn ósakhæfur vegna brunans á Bræðraborgarstíg. Honum er gert að sæta öryggisvistun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 3.6.2021 18:05
Gul viðvörun á Suðurlandi Gul viðvörun tekur gildi klukkan sex á Suðurlandi vegna hvassviðris. Austan þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eru frá Markarfljóti austur að Vík í Mýrdal og einnig á Hellisheiði. Vindhviður gætu náð 30 metum á sekúndu sem gæti valdið ökutækjum, sem taka á sig mikinn vind, vandkvæðum. 3.6.2021 17:18
Disney+ byrjuð að setja inn myndir á íslensku Streymisveitan Disney+ hefur orðið við beiðni Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra um að bjóða upp á efni með íslenskri talsetningu. Nú eru myndir á borð við Aladdin, Ísöld og Herkúles í boði með íslensku tali. 3.6.2021 16:54
Kvartað undan bróður Áslaugar til yfirkjörstjórnar Kvartað hefur verið til yfirkjörstjórnar Sjálfstæðisflokksins vegna prófkjörs flokksins í Reykjavík vegna gruns um að bróðir dómsmálaráðherra hafi nýtt sér beinan aðgang að félagaskrá flokksins í prófkjörsbaráttunni sem nú stendur yfir í Reykjavík. 3.6.2021 16:45
Furðuleg froða í læk við Vog Mikil froða gaus upp við frárennsli í læk við Vog, sjúkrahús SÁÁ við Stórhöfða í Reykjavík, í dag. 3.6.2021 15:11
Marek dæmdur til að sæta öryggisvistun vegna brunans á Bræðraborgarstíg Marek Moszczynski, pólskur karlmaður á sjötugsaldri, var sýknaður af kröfu um refsingu fyrir að hafa orðið þremur að bana í bruna á Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. Marek var metinn ósakhæfur og verður gert að sæta öryggisvistun. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. 3.6.2021 15:04
Borgarbúar skyldugir til þess að flokka eldhúsúrgang á næstu árum Sérstök söfnun á lífrænum eldhúsúrgangi mun hefjast í Reykjavík í september. Byrjað verður í fjórum hverfum borgarinnar en stefnt er á að geta boðið öllum íbúum þjónustuna fyrir mitt ár 2022. Stefnt er að því að brúna tunnan verði orðin að skyldu innan nokkurra ára. 3.6.2021 14:46
Ábyrgð á eftirliti með vottorðum færð yfir á flugfélög Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. 3.6.2021 14:26
Draga alla hópana á morgun og raða niður í bólusetningarröð Á morgun verður dregið um hvernig hópar í handahófskenndri bólusetningarboðun á höfuðborgarsvæðinu raðast niður. Fyrirkomulagið verður því ekki með þeim hætti að hópar verði dregnir og boðaðir samstundis, heldur mun röð hópanna liggja fyrir. 3.6.2021 14:09
Bein útsending: Ekkert ofbeldi án gerenda Hvernig náum við til gerenda í ofbeldisbrotum? Öll vitum við að til þess að koma í veg fyrir ofbeldisbrot þurfa gerendur að hætta að beita ofbeldi. Hingað til hafa úrræði fyrir gerendur verið afar takmörkuð. 3.6.2021 13:31
Sérfræðingar hafa helst áhyggjur af súrnun sjávar Horfur á ástandi sjávar í kringum Ísland eru almennt góðar næstu áratugina samkvæmt nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Súrnun sjávar er þó áhyggjuefni sem sérfræðingar segja að auka þurfi þekkinguna á. 3.6.2021 13:28
Nýr goshver í Biskupstungum „Goshver opnaðist í bakgarðinum hér á Reykjavöllum í hádeginu. Án gríns, og gýs á 17 mínútna fresti.“ 3.6.2021 13:23
Hyggjast kveikja neistann í Vestmannaeyjum Háskóli Íslands og Samtök atvinnulífsins undirrituðu nýverið samning um stofnun Rannsóknarseturs um menntun og hugarfar sem hefur aðsetur við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og við starfsstöð Stofnunar rannsóknarsetra Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum. 3.6.2021 13:18
Íslendingur á gjörgæslu eftir Covid-smit á Everest Íslensk-kúbverski fjallgöngumaðurinn Yandy Nunez Martinez, sem reyndi að klífa að toppi Everest í síðasta mánuði, er nú á gjörgæslu í Katmandú í Nepal eftir að hafa fengið blóðtappa í lungu ofan í Covid-19 smit. Eiginkona hans segir hann heppinn að vera á lífi en hann er nú á batavegi. 3.6.2021 12:33
Dómur í Bræðraborgarstígsmálinu kveðinn upp í dag og húsið rifið fyrir 17. júní Stefnt er að því að niðurrifi og hreinsun á brunarústunum við Bræðraborgarstíg 1 verði lokið fyrir 17. júní næstkomandi. Dómur yfir Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir manndráp og manndrápstilraun með því að kveikja í húsinu, verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 3.6.2021 12:08
Gefast upp á dónalegum og óhlýðnum ferðamönnum Björgunarsveitarfólk við gosstöðvarnar á Reykjanesi mætir nokkrum dónaskap þegar það reynir að leiðbeina fólki um hvar sé óhætt að vera á gosstöðvunum. 3.6.2021 11:43
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um brunareitinn á Bræðraborgarstíg en eigendur bíða nú eftir grænu ljósi til að fá að rífa húsið og hefja uppbyggingu á reitnum. 3.6.2021 11:33
Tímafrekt að senda sýnin utan og svartíminn of langur Of mikill tími fór í merkingar og pökkun sýna, sendingartíminn var oft langur og þá voru íslensku sýnin ekki í neinum forgangi og svartíminn í heild of langur. Þetta segir Auður Eiríksdóttir, lífeindafræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands, um reynsluna af því að láta rannsóknarstofu í Svíþjóð sjá um HPV-rannsóknir á leghálssýnum. 3.6.2021 11:08
Einn greindist innanlands Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví við greiningu. 3.6.2021 10:57
Bein útsending: Staða umhverfis og vistkerfa í hafinu við Ísland Í dag fer fram kynning á nýrri skýrslu Hafrannsóknarstofnunar sem kallast „Staða umhverfis og vistkerfa í hafinu við Ísland og horfur næstu áratuga.“ Fundurinn hefst klukkan 10 og verður streymt beint á Vísi og YouTube. 3.6.2021 10:01
Sýknuð af því að hafa sigað Dobermann-hundi á aðra konu Landsréttur sýknaði á dögunum konu af því að hafa sigað Dobermann-hundi á aðra konu og sparkað í andlit hennar, en héraðsdómur hafði áður sakfellt hana fyrir þessi atriði. 3.6.2021 09:33
„Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt. 3.6.2021 08:54
Sakfelldir fyrir fjársvik gagnvart Bauhaus Tveir menn voru í síðasta mánuði dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik sem beindust að byggingavöruversluninni Bauhaus frá nóvember 2017 til febrúar 2019. Þá voru þeir dæmdir til að greiða Bauhaus ríflega 2,2 milljónir króna auk vaxta. 3.6.2021 08:01
Íbúum fjölgar í Reykjavík og Kópavogi en fækkar í Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 721 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júní sl. og í Kópavogi fjölgaði um 439 á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá um fjölda íbúa eftir sveitarfélögum. 3.6.2021 07:10
Enginn upplýsingafundur vegna Covid-19 í dag Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa tekið þá ákvörðun að sleppa í dag vikulegum upplýsingafundi vegna stöðu kórónuveirufaraldursins, sem jafnan hefur verið haldinn á fimmtudögum. 3.6.2021 06:31
Verkalýðshreyfingin óttast gullgrafaraæði innan ferðaþjónustunnar Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar er ekki sérlega spennt fyrir því að ferðaþjónustan fari aftur á fullt. Þau eru viss um að brotum á vinnumarkaði taki aftur að fjölga mjög á næstu mánuðum. 3.6.2021 06:01
Þurfa að handvinna gögn úr leghálssýnatökum Tæknilegir erfiðleikar við úrvinnslu leghálssýna hafa orðið til þess að biðtími eftir niðurstöðum úr leghálssýnatöku hefur lengst talsvert frá því að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tók við verkefninu. Forstjóri heilsugæslunnar segir að ekki verði hægt að laga þetta fyrr en á síðari hluta þessa árs. 2.6.2021 23:14
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent