Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast alvarleg atvik vegna stöðunnar á bráðamóttökunni Yfirlæknir óttast alvarleg atvik þar sem fólk verði fyrir varanlegum skaða vegna stöðunnar á bráðamóttöku Landspítalans. Fyrir hádegi í dag dvöldu tíu sjúklingar á göngum bráðamóttökunnar. 7.6.2021 19:30
Yfirlýsing Auðs: Fór yfir mörk konu en blæs á „flökkusögur“ á Twitter Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana á hendur honum um kynferðisofbeldi sem gengið hafa um samfélagsmiðla að undanförnu. Í yfirlýsingunni gengst hann við því að hafa „farið yfir mörk konu“ án þess að átta sig á því. 7.6.2021 19:04
Tæpur fjórðungur á þunglyndis-og eða róandi lyfjum, kostnaður tvöfaldast Tæplega fjórðungur fullorðinna Íslendinga fékk þunglyndis- og eða kvíðalyf á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall en í nágrannalöndum okkar. Konur eru tvöfalt líklegri en karlar til að fá slík lyf og eldri borgarar eru hlutfallslega fjölmennasti aldurshópurinn. 7.6.2021 19:01
Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, oft nefndar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld. Umræðurnar hefjast klukkan 19:30 í kvöld og er áætlað að þær standi yfir til klukkan 22. Alls eru 23 þingmenn á mælendaskrá – þrír úr hverjum flokki að frátöldum Flokki fólksins, þar sem báðir þingmenn þess flokks munu taka til máls. 7.6.2021 19:01
Níu hópnauðgunarmál í ár: „Það er sláandi“ Níu hópnauðgunarmál hafa komið á borð Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis það sem af er ári, með allt að fimm gerendum. Verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar segir stöðuna sláandi. 7.6.2021 19:01
Leggur til sjálfsmyndabann við ferðamannastaði Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem geti skapast við sjálfsmyndatökur ferðamanna. Hann segir að annað hvort þurfi að koma upp öruggum útsýnispöllum eða banna sjálfsmyndatökur. 7.6.2021 18:38
Býst við að farið verði að tillögum þingnefnda um skorður á hámarkshlut fjárfesta Tvö erlend fjármálafyrirtæki og tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins eru kjölfestufjárfestar í Íslandsbanka - og hafa skuldbundið sig til að kaupa 10% hlutafjár. Hlutafjárútboð bankans hófst í morgun og bankastjóri segir stjórnvalda að ákveða hver hámarkshlutur hvers og eins megi verða. 7.6.2021 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Níu hópnauðgunarmál hafa komiðá borð Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis það sem af er ári - með allt að fimm gerendum. Verkefnastjóri Neyðarmóttökunnar segir stöðuna sláandi. 7.6.2021 18:05
Stjörnu-Sævar dúsir í bólusetningu í miðjum sólmyrkva Sævar Helgi Bragason var í dag boðaður í bólusetningu á fimmtudaginn, sem kann að reynast óheppilegur dagur fyrir stjörnufræðing til að fara í bólusetningu. 7.6.2021 16:55
UN Women fjarlægir allt markaðsefni með Auði UN Women á Íslandi hafa tekið út allt markaðsefni sem tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, kemur fram í. Það er gert vegna ásakana um kynferðisofbeldi á hendur Auði. Þetta staðfestir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, í samtali við fréttastofu. 7.6.2021 16:34
Hafþór Logi fékk leyfi hjá Hæstarétti Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Hafþórs Loga Hlynssonar sem sakfelldur var fyrir peningaþvætti í Landsrétti í janúar. Ríkissaksóknari var samþykkur áfrýjunarbeiðninni og taldi Hæstiréttur að úrlausn um beitingu tiltölulega nýrra lag gæti haft verulega almenna þýðingu. 7.6.2021 16:24
„Uppáhaldstölvupósturinn til mín í dag kom frá Disney+“ Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fagnar því að Disney hafi brugðist við beiðni ráðuneytisins um að bjóða upp á íslenska talsetningu og texta á streymisveitu sinni, Disney+. Disney segir að 600 þættir og kvikmyndir séu á leiðinni og ættu langflestir að vera aðgengilegir fyrir júnílok. 7.6.2021 15:40
Stelpur rokka, Röskva og Samtökin '78 telja ummæli Þórólfs ala á ótta og fordómum Tuttugu félagasamtök úr ólíkum áttum telja að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi alið á ótta og fordómum í garð flóttafólks og hælisleitenda í svörum sínum við spurningum blaðamanns um sjö smitaða einstaklinga fyrir helgi utan sóttkvíar. Allir voru hælisleitendur á höfuðborgarsvæðinu. 7.6.2021 14:07
Guðlaugur í sigurvímu á kosningavöku: „Þeir töpuðu!“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra var kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á laugardagskvöld. Hann fagnaði árangrinum ásamt stuðningsmönnum fram á rauða nótt og í sigurræðu sinni sem horfa má á hér á Vísi lét hann stór orð falla um ástand mála í Sjálfstæðisflokknum. 7.6.2021 13:33
Lögregla lýsir eftir Sebastian Kozlowski Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sebastian Kozlowski, 38 ára. 7.6.2021 13:26
Átján árgangar bólusettir í vikunni og útlitið gott fyrir sumarið Karlar og konur úr átján árgöngum fá bólusetningu gegn kórónuveirunni á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá embætti landlæknis segir útlitið ágætt fyrir sumarið. 7.6.2021 12:17
Efast um getu landlæknis Geðhjálp gerir alvarlegar athugasemdir við getu landlæknisembættisins til að sinna eftirliti með réttindum sjúklinga. Samtökin kalla eftir óháðri úttekt á starfsemi allra deilda á geðsviði Landspítala. 7.6.2021 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka en útboð hófst í morgun. Markaðsvirði bankans er talið um 150 milljarðar króna. 7.6.2021 11:37
„Ekki bara einhver djöfulskapur hjá ungmennum að vaka fram eftir“ Nýtt tilraunaverkefni mun fara af stað hjá Reykjavíkurborg í haust þar sem nokkrum grunnskólar munu seinka skóladeginum. Vonir eru um að verkefnið mun skila sér í bættri líðan, bættum námsárangri og aukinni einbeitingu hjá börnum og ungmennum. 7.6.2021 11:11
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 7.6.2021 10:55
Framkvæmdum í Kömbunum frestað til morguns Búið er að fresta vegaframkvæmdum í Kömbunum sem voru á dagskrá í dag vegna veðurs. Þess í stað er stefnt á að ráðast í framkvæmdirnar í fyrramálið. 7.6.2021 08:59
Kona dæmd vegna banaslyss á Þingvallavegi árið 2018 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu á fertugsaldri í þriggja mánaða fangelsi vegna banaslyss sem varð á Þingvallavegi í Mosfellsbæ, nálægt Æsustöðum, í júlí 2018. Fullnusta refsingarinnar skal frestað í tvö ár, haldi dæmda almennt skilorð. 7.6.2021 08:18
Guðmundur og Bjarney efst á lista Viðreisnar Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara 25. september næstkomandi. Listi flokksins í kjördæminu hefur nú verið birtur í heild sinni. 7.6.2021 07:53
Lögregla kölluð til vegna þjófnaðar á skiptimynt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til um kl. 2 í nótt vegna þjófnaðar á skiptimynt. Íbúðareigandi hafði kynnst meintum þjófum skömmu áður og boðið þeim heim en þeir hlaupið á brott með myntina. 7.6.2021 07:17
Neysla kókaíns jókst um helming fyrir Covid-19 en dróst aftur saman í fyrstu bylgju Neysla kókaíns í höfuðborginni jókst um meira en helming frá því í febrúar 2017 til apríl 2019. Hún dróst hins vegar saman um 60 prósent í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins. 7.6.2021 06:40
Segir missi að Brynjari og vill að hann endurskoði ákvörðun sína Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gær, vonast til að þingmaðurinn Brynjar Níelsson endurhugsi stöðu sína og taki þriðja sæti á öðrum lista flokksins í Reykjavík. Brynjar sóttist eftir öðru sæti í prófkjörinu en hafnaði í því fimmta. 6.6.2021 23:27
Vél Harris snúið við vegna tæknilegs vandamáls Flugvél varaforseta Bandaríkjanna, Kamölu Harris, var snúið við skömmu eftir flugtak í dag vegna tæknilegra vandamála. Harris var á leið í sína fyrstu opinberu embættisferð út fyrir landsteinana en vélin átti að fljúga til Gvatemala. 6.6.2021 21:34
Enginn þingstubbur verði stjórnarskrárfrumvarp ekki afgreitt Svo gæti farið að þing verði rofið í næstu eða þar næstu viku og ekkert verði af þingstubbi í ágúst ef stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra verður ekki afgreitt úr nefnd. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ráðherra verða að sætta sig við að mörg mál nái ekki fram að ganga fyrir kosningar. 6.6.2021 20:52
Vill rannsókn á andláti eiginkonu sinnar sem lést degi eftir bólusetningu Fjölskylda konu sem lést sólarhring eftir að hún var bólusett með AstraZeneca vill að rannsókn fari fram á því hvort andlátið hafi verið bóluefninu að kenna. 6.6.2021 20:51
„Erfið mál“ á kjörtímabilinu skýringin á slæmu gengi Sigríðar Prófessor í stjórnmálafræði telur „erfið mál“ á kjörtímabilinu skýringu á slæmu gengi Sigríðar Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 6.6.2021 19:30
Lúxussnekkjur rússneskra auðjöfra í Reykjavíkurhöfn Tvær lúxussnekkjur rússneskra auðjöfra eru nú í Reykjavíkurhöfn. Þar er annars vegar komin snekkjan Sailing Yacht A, sem komið hefur víða við á landinu síðustu vikur, og hins vegar glæsifleyið Le Grand Bleu. 6.6.2021 18:42
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö er rætt við forstætisráðherra sem segir að mögulega muni þingið ljúka störfum sínum í næstu eða þarnæstu viku. Ekkert verði af þingstubb í ágúst ef stjórnarskrárfrumvarp hennar verður ekki afgreitt úr nefnd. 6.6.2021 18:01
Logi fordæmir danska jafnaðarmenn Þeir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, voru gestir í Sprengisandi í morgun. Þar tókust þeir á um nýja stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum. 6.6.2021 17:08
Síðustu dagar kjörtímabilsins að renna upp á Alþingi Síðustu dagar þingstarfa á yfirstandandi kjörtímabili eru framundan í vikunni og setja svip sinn á Víglínuna á Stöð 2 í dag. Eldhúsdagsumræður fara fram á morgun og samkvæmt starfsáæltun á þingstörfum á vorþingi að ljúka næst komandi fimmtudag hinn 10. júní. 6.6.2021 16:21
Á þriðja tug ófaglærðra lögreglumanna á Suðurlandi í sumar Lögreglan á Suðurlandi fer ekki varhluta af mannaráðningum vegna styttingu vinnuvikunnar og nýs vaktaskiplags vegna þess. Í vor var auglýst eftir mannskap vegna styttingar vinnuviku og vegna sumarafleysinga. 6.6.2021 14:08
Möguleg hræðsla við að lenda á jaðrinum í stærri byggð Ekkert verður af sameiningu Skagabyggðar, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og sveitarfélagsins Skagastrandar eftir að íbúar Skagabyggðar höfnuðu henni í atkvæðagreiðslu í gær. Sjötíu voru á kjörskrá og greiddu 29 atkvæði gegn sameiningu en 24 með. 6.6.2021 13:38
Baráttan bara rétt að byrja Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem sigraði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík, er gríðaránægður með niðurstöðuna. Hann segir kosningu Diljár Mistar Einarsdóttur aðstoðarmanns síns eftirtektarverða - og þá sé spenna milli framboðs hans og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að baki. 6.6.2021 13:30
Hættu lífi sínu fyrir sjálfsmynd við Dettifoss Tvær gulklæddar verur hættu lífi sínu við brún Dettifoss í þeim tilgangi að taka sjálfsmyndir. Myndband af atvikinu vekur óhug. 6.6.2021 12:37
Sigurður Ingi lofar nýrri Ölfusárbrú í lok árs 2023 eða 2024 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana. 6.6.2021 12:18
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf verður farið yfir niðurstöður úr prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík þar sem utanríkisráðherra hafði betur gegn dómsmálaráðherra um fyrsta sætið. 6.6.2021 11:48
„Geri enga kröfu um sæti á framboðslista flokksins“ Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, ætlar að tjá kjörnefnd að hún geri ekki kröfu um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar. Hún ætlar þó ekki að hætta stjórnmálaþátttöku. 6.6.2021 11:32
Brynjar náði ekki oddvitasæti og kveður stjórnmálin Úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar í gær voru Brynjari Níelssyni vonbrigði. Hann sóttist eftir öðru oddvitasætinu en hafnaði í fimmta sæti. Hann segist kveðja stjórnmálin sáttur. 6.6.2021 11:02
Einn greindist smitaður í sóttkví Aðeins einn greindist smitaður af kórónuveirunni í gær og var hann í sóttkví. Þrír greindust smitaðir á landamærunum af af þeim bíða tveir niðurstaðna mótefnamælingar. 6.6.2021 10:53
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um land Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víðs vegar um land í dag, þótt samkomutakmarkanir setji vissulega sinn svip á daginn. Ýmislegt verður um að vera í Hafnarfirði, Þorlákshöfn, Vestmannaeyjum, á Ólafsfirði, Neskaupstað og Bolungarvík. 6.6.2021 10:44
Telur úrslitin ákall um nýliðun í bland við reynslu Sjálfstæðismenn völdu sér reynslu í bland við nýliðun í prófkjöri sínu í Reykjavík í gær, að mati Diljár Mistar Einarsdóttur sem hafnaði í þriðja sæti. Hún segir árangurinn hafa fari fram úr sínum björtustu væntingum. 6.6.2021 10:11