Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimatilbúin sprengja fannst í Mánatúni Torkennilegur hlutur sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík var heimatilbúin sprengja samkvæmt heimildum Vísis. Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu þar í nótt. 30.11.2021 23:00
Vilja ekki frétta það á Facebook hvort húsið þeirra verði fjarlægt Margir íbúar við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði óttast nú að hús þeirra verði rifin eða færð svo hægt sé að rýmka til fyrir borgarlínu. Þeir saka bæinn um algert samráðs- og tillitsleysi í málinu. 30.11.2021 20:30
Skólastjóri Fossvogsskóla hættir Skólastjóri Fossvogsskóla er hættur störfum. Það kom fram í pósti sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, sendi í dag. Starfsemi Fossvogsskóla hefur verið flutt annað vegna myglu- og rakaskemmda. 30.11.2021 20:27
Skortur á því sem skiptir venjulegt fólk raunverulegu máli Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir fagnaðarefni að ekki sé farið í „blóðugan niðurskurð“ í nýju fjárlagafrumvarpi. Hún segist hafa óttast það enda sé það iðulega gert á krepputímum þessum. Að öðru leyti sé „lítið að frétta“ úr fjárlögunum. 30.11.2021 19:47
Eltu smyglara á fund Íslendings og fundu verulegt magn af fíkniefnum Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrennt í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl í síðasta mánuði, eftir að tvær konur reyndu að smygla í gegnum Keflavíkurflugvöll töluverðu magni af metamfetamíni og meira en 6.000 töflum af hörðum ópíóðum. 30.11.2021 19:22
Hryssan fær að heita Lán eftir allt saman Hryssa Þebu Bjartar Karlsdóttur, símsmíðameistara og hestaeiganda á Austurlandi, fær að heita Lán eftir allt saman. Hestanafnanefnd samþykkti beiðni Þebu um skráningu á nafninu í dag eftir að hafa hafnað því. 30.11.2021 19:22
Allir leggist á eitt í baráttu við verðbólgu Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. 30.11.2021 19:20
Telur hljóð og mynd ekki fara saman Þingmaður Miðflokksins segir að á meðan uppbygging sé boðuð í samgöngumálum sé dregið úr fjárfestingu í málaflokknum. 30.11.2021 19:01
Heimsóknum á Kvíabryggju aflýst vegna smitaðs gests Öllum heimsóknum gesta í fangelsið á Kvíabryggju hefur verið aflýst næsta daga eftir að barn sem kom þangað í heimsókn á sunnudag greindist smitað af Covid-19. Einn fangi er í sóttkví og nokkrir aðrir í smitgát. 30.11.2021 18:37
Eitt fyrsta verk Svandísar að liðka fyrir veiðum á loðnu Svandís Svavarsdóttir, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar veiðar á loðnu með flotvörpu tímabundið á afmörkuðum svæðum úti fyrir Norðurlandi. Líklegt má telja að þessi ákvörðun setji loðnuvertíðina af stað en loðnan hefur verið illveiðanleg með hefðbundinni loðnunót sökum þess hversu djúpt hún liggur í sjónum. 30.11.2021 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um ný fjárlög og rætt við fulltrúa vinnumarkaðarins og atvinnurekenda í beinni útsendingu. 30.11.2021 18:11
Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka. 30.11.2021 17:11
Stjórnvöld boði stöðnun í nýju fjárlagafrumvarpi BSRB gagnrýnir nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og segir það boða stöðnun í opinbera geiranum á sama tíma og blása þurfi til sóknar. 30.11.2021 16:14
Þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar í nótt Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. 30.11.2021 15:27
Smíði nýrra björgunarskipa hafin Smíði á fyrsta nýja björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar hófst fyrir helgi í skipasmíðastöð í Finnlandi. Búið er að ganga frá kaupum á þremur nýjum björgunarskipum og kostar hvert þeirra um 285 milljónir króna. 30.11.2021 15:27
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. 30.11.2021 15:15
Segir leikskólamálin í ólestri og þörf á nýjum áherslum Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að leikskólamálin í Reykjavík séu í miklum ólestri og að fullreynt sé með núverandi stjórn leikskólamála. 30.11.2021 15:09
Býr nýjan ráðherra undir að grípa þurfi til aðgerða á landamærum og innanlands Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að vera undir það búin að nýtt afbrigði kórónuveirunnar geti borist hingað til lands. Reynist veiran skeinuhættari en talið hefur verið þurfi að undirbúa að grípa til hertari aðgerða bæði á landamærum og jafnvel innanlands. Slíkar tillögur séu ekki á borðinu sem stendur en það kunni að breytast fljótt. 30.11.2021 14:29
Nöfnin sem hestanafnanefnd hefur hafnað Hestanafnanefnd hefur frá því að hún var stofnuð 2016 hafnað þónokkrum beiðnum um nöfn á íslenskum hestum. Á meðal nafnanna eru til dæmis Apótek, Leyndarmál, Euphoria og Avicii - það síðastnefnda að öllum líkindum í höfuðið á sænska plötusnúðnum heitnum. 30.11.2021 14:15
Áætla að áfengis- og tóbaksgjöld verði hærri en fjármagnstekjuskattur í ár Tekjur af áfengisgjaldi hafa aukist mikið milli ára og skýrist meðal annars af aukinni einkaneyslu og samdrætti í ferðalögum Íslendinga erlendis. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður fái hærri tekjur af áfengis- og tóbaksgjaldi í ár en af fjármagnstekjuskatti. 30.11.2021 14:12
Jóhann beið lægri hlut en sleppur við lögfræðikostnað í Saknaðarmáli Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason beið lægri hlut í höfundarréttarmáli sínu gegn norska tónlistarmanninum Rolf Løvland og bandarísku tónlistarrisunum Universal, Warner og Peer Music. Hann mun þó ekki þurfa að standa straum af lögfræðikostnaði stefnda vegna málsóknarinnar. 30.11.2021 14:06
Hundrað milljónir aukalega í skatteftirlit Áætlað er að hundrað milljónir króna verði sett aukalega til þess að efla skattrannsóknir og skatteftirlit samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. 30.11.2021 14:03
Sakar Bjarna Ben um lítilsvirðingu gagnvart landsbyggðinni Fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir formann flokksins harðlega hvernig staðið var að ráðherraskipun í nýrri ríkisstjórn. Hann segir sinnuleysi ítrekað gagnvart landsbyggðinni sem eigi eftir að skaða flokkinn enn frekar. 30.11.2021 13:43
Halldóra endurkjörin og Björn Leví valinn með hlutkesti Halldóra Mogensen var endurkjörin þingflokksformaður Pírata á þingflokksfundi í dag. Þá hlaut Björn Leví Gunnarsson jafnframt embætti formanns flokksins en hann var valinn með hlutkesti líkt og þingflokkurinn hefur gert við upphaf hvers löggjafarþings. 30.11.2021 13:19
Hættumerki, vannýtt tækifæri og öryrkjar sitji áfram eftir Stjórnarandstaðan gagnrýnir að ennþá vanti upp á leiðréttingar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega í nýju fjárlagafrumvarpi. Þá vanti mikið upp á að framlög til heilbrigðs-og loftslagsmála séu í takt við stjórnarsáttmálann. 30.11.2021 12:31
Framtíð sóttvarnaaðgerða: Hversu langt á að ganga? Sóttvarnaaðgerðir, bólusetningarskylda og bólusetningarpassar verða á meðal þess sem verður til umræðu í pallborðinu á Vísi í dag, sem hefst klukkan 14. 30.11.2021 12:05
Sérstök ástæða til að fara varlega vegna omíkron Sóttvarnalæknir segir tilefni til þess að fara áfram varlega þrátt fyrir að bylgjan sé á hægri niðurleið en núgildandi takmarkanir renna út í næstu viku. Sérstök ástæða sé til þess vegna óvissu um nýja omíkron afbrigðið. Hundrað og fimmtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 30.11.2021 12:04
Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. 30.11.2021 11:56
Guðmundur Ingi verður samstarfsráðherra Norðurlanda Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála, og vinnumarkaðsráðherra, verður samstarfsráðherra Norðurlanda í nýju ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. 30.11.2021 11:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður nýkynnt fjárlagafrumvarp fyrirferðarmikið. 30.11.2021 11:33
Hækka barnabætur á næsta ári fyrir tekjulægri Skerðingamörkum barnabóta verður breytt á næsta ári og hækka neðri skerðingamörk hjá einstæðum foreldrum úr 351.000 krónum á mánuði í 379.083 krónur. 30.11.2021 11:12
Helgi Pé: Fáir sem geti nýtt sér tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna Frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega verður hækkað í tvö hundruð þúsund krónur á mánuði um næstu áramót. Mun það þar með tvöfaldast. 30.11.2021 11:07
115 greindust innanlands í gær og innan við helmingur í sóttkví 115 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og fimm á landamærum. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 30.11.2021 10:59
Auka framlag til heilbrigðismála um sextán milljarða Gert er ráð fyrir að framlög til heilbrigðismála aukist um 16,3 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag. 30.11.2021 10:36
Gera ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. 30.11.2021 09:18
Bjarni kynnti fjárlagafrumvarp og nýja fjármálastefnu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár og fjámálastefnu fyrir árin 2022 til 2026 á fréttamannafundi klukkan 9. 30.11.2021 08:22
Zúistabróðir fer fram á endurupptöku á þungum fjársvikadómi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem héldu úti trúfélaginu Zuism, hefur óskað eftir því að þungur fangelsisdómur sem hann hlaut fyrir tugmilljóna króna fjárdrátt verði tekinn upp aftur. Þeir bræður eru ákærðir fyrir peningaþvætti og fjársvik vegna Zuism. 30.11.2021 08:00
Engin kennsla í 9. bekk í Hagaskóla eftir myglufund Allir nemendur í 9. bekk í Hagaskóla verða heima í dag vegna þess að mygla hefur fundist í kennslurými hjá árganginum. Eftir að mygla fannst í álmu 8. bekkjar var ákveðið að færa kennslu þess árgangs yfir í tímabundið húsnæði á Hótel Sögu. 30.11.2021 07:01
Jólin verða blótuð undir berum himni Jólin verða blótuð undir berum himni af Ásatrúarmönnum í ár í glænýju hofi trúfélagsins. Þó hofið sé ekki alveg tilbúið enn verður það loksins tekið í notkun fyrir hátíðirnar eftir framkvæmdir sem hafa tafist um nokkur ár. 30.11.2021 07:00
Ökumaður stöðvaður með snjóþotu í eftirdragi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann um klukkan 1 í nótt sem var staðinn að því að draga snjóþotu sem ungmenni sat á. Var málið tilkynnt foreldrum og barnavernd. 30.11.2021 06:31
Franskur graffari djúpt snortinn af viðbrögðum við ólöglegu veggjakroti hans í Laugardal Íbúar húsaraðar við Laugalæk eru hæstánægðir með nýtt veggjakrot sem birtist á húsnæði þeirra í vikunni. Það sem einn segir að sé eins og sérpantað listaverk á nýuppgerðum bílskúr er í grunninn ekkert annað en venjulegt graff. Listamaðurinn á bakvið það er glaður að þau séu glöð. 29.11.2021 23:34
Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út. 29.11.2021 22:20
Óboðlegt að dýr fái ekki hjálp Formaður Dýralæknafélags Íslands segir það ekki boðlegt að dýraeigendur sem reyni að ná í lækni vegna veiks dýrs fái ekki hjálp. Fjármagn skorti til þess að halda úti aukinni neyðarþjónustu dýralækna. 29.11.2021 22:07
Samstarf í þingnefndum hafi gengið illa á síðasta kjörtímabili Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Sigurður Ingi Jóhannsson segir það rökrétt framhald af slæmri samvinnu meðal stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar í nefndum. Skiptar skoðanir eru meðal stjórnarandstöðunnar um málið. 29.11.2021 21:31
Furðar sig á að VG afhendi „íhaldinu“ umhverfis- og loftlagsmálin Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, furðar sig á að Vinstri græn skuli afhenda „íhaldinu“ umhverfis- og loftslagsmálin í nýrri ríkisstjórn. Þá gagnrýnir hún að flokkarnir fjölgi ráðuneytum, þvert á tillögu í rannsóknarskýrslu Alþingis um hrunið. 29.11.2021 20:04