Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vatnshæð í Gígjukvísl hækkað um einn metra Vatnhæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra frá í síðustu viku og þá hefur íshellan í Grímsvötnum lækkað um heila tíu metra. Sérfræðingar Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskólans gera nú ráð yfir að Grímavatnahlaup nái hámarki um helgina. 1.12.2021 10:47
140 greindust innanlands 140 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 72 af þeim 140 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 51 prósent. 68 voru utan sóttkvíar, eða 49 prósent. 1.12.2021 10:30
Bólusetningabíllinn rúllar en aukin umræða skilar líka fleirum í Höllina „Við verðum að keyra bílinn á fimmtudögum og föstudögum þegar það er rólegra í Höllinni. Fyrirtækin hafa sýnt þessu mikinn áhuga og það er búið að bóka alveg helling. Vonandi skilar þetta okkur einhverjum óbólusettum.“ 1.12.2021 10:16
Fannst heil á húfi eftir heila nótt úti í kuldanum Umfangsmikil leit að konu á áttræðisaldri sem farið hafði að heiman frá sér á Akureyri í nótt bar árangur. Konan, sem er Alzheimer-sjúklingur, hafði þá verið úti í kuldanum í um sjö tíma. 1.12.2021 10:09
Fær engar bætur eftir að fimm lítrar af ólífuolíu skemmdu flugfarangurinn Samgöngustofa hefur hafnað kröfum manns um skaðabætur úr hendi flugfélagsins Wizz Air vegna tjóns sem varð á innrituðum farangri hans í flugi eftir að ílát, sem geymdi fimm lítra af ólífuolíu, sprakk og olli tjóni á fatnaði, raftækjum og fleiru í töskunni. 1.12.2021 07:57
Svona var djammið á öðru ári veirunnar Desember er genginn í garð og fréttastofan hefur að rifja upp árið með nýju sniði. Við byrjum á máli málanna: Raunum (aðallega) unga fólksins við að halda í djammvonina á tímum þar sem allt virtist blása á móti. 1.12.2021 07:22
Segja Vinnumálastofnun tvívegis hafa deilt netföngum skjólstæðinga í fjölpóstum Vinnumálastofnun virðist tvívegis á þessu ári hafa deilt tölvupóstföngum skjólstæðinga sinna í fjölpóstum. Fyrra atvikið átti sér stað í júní en þá var um að ræða póst sem varðaði endurupptöku umsókna um greiðslur í sóttkví. 1.12.2021 06:54
Vísuðu óvelkomnum manni út af heimili í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi til að vísa óvelkomnum manni út af heimili í póstnúmerinu 104 og nokkru síðar var maður handtekinn í sama hverfi vegna líkamsárásar. 1.12.2021 06:26
Heimatilbúin sprengja fannst í Mánatúni Torkennilegur hlutur sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík var heimatilbúin sprengja samkvæmt heimildum Vísis. Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu þar í nótt. 30.11.2021 23:00
Vilja ekki frétta það á Facebook hvort húsið þeirra verði fjarlægt Margir íbúar við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði óttast nú að hús þeirra verði rifin eða færð svo hægt sé að rýmka til fyrir borgarlínu. Þeir saka bæinn um algert samráðs- og tillitsleysi í málinu. 30.11.2021 20:30
Skólastjóri Fossvogsskóla hættir Skólastjóri Fossvogsskóla er hættur störfum. Það kom fram í pósti sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, sendi í dag. Starfsemi Fossvogsskóla hefur verið flutt annað vegna myglu- og rakaskemmda. 30.11.2021 20:27
Skortur á því sem skiptir venjulegt fólk raunverulegu máli Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir fagnaðarefni að ekki sé farið í „blóðugan niðurskurð“ í nýju fjárlagafrumvarpi. Hún segist hafa óttast það enda sé það iðulega gert á krepputímum þessum. Að öðru leyti sé „lítið að frétta“ úr fjárlögunum. 30.11.2021 19:47
Eltu smyglara á fund Íslendings og fundu verulegt magn af fíkniefnum Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrennt í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl í síðasta mánuði, eftir að tvær konur reyndu að smygla í gegnum Keflavíkurflugvöll töluverðu magni af metamfetamíni og meira en 6.000 töflum af hörðum ópíóðum. 30.11.2021 19:22
Hryssan fær að heita Lán eftir allt saman Hryssa Þebu Bjartar Karlsdóttur, símsmíðameistara og hestaeiganda á Austurlandi, fær að heita Lán eftir allt saman. Hestanafnanefnd samþykkti beiðni Þebu um skráningu á nafninu í dag eftir að hafa hafnað því. 30.11.2021 19:22
Allir leggist á eitt í baráttu við verðbólgu Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. 30.11.2021 19:20
Telur hljóð og mynd ekki fara saman Þingmaður Miðflokksins segir að á meðan uppbygging sé boðuð í samgöngumálum sé dregið úr fjárfestingu í málaflokknum. 30.11.2021 19:01
Heimsóknum á Kvíabryggju aflýst vegna smitaðs gests Öllum heimsóknum gesta í fangelsið á Kvíabryggju hefur verið aflýst næsta daga eftir að barn sem kom þangað í heimsókn á sunnudag greindist smitað af Covid-19. Einn fangi er í sóttkví og nokkrir aðrir í smitgát. 30.11.2021 18:37
Eitt fyrsta verk Svandísar að liðka fyrir veiðum á loðnu Svandís Svavarsdóttir, nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar veiðar á loðnu með flotvörpu tímabundið á afmörkuðum svæðum úti fyrir Norðurlandi. Líklegt má telja að þessi ákvörðun setji loðnuvertíðina af stað en loðnan hefur verið illveiðanleg með hefðbundinni loðnunót sökum þess hversu djúpt hún liggur í sjónum. 30.11.2021 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um ný fjárlög og rætt við fulltrúa vinnumarkaðarins og atvinnurekenda í beinni útsendingu. 30.11.2021 18:11
Níundi bekkur Hagaskóla verður í Háskólabíói fram að jólum Skólastjóri Hagaskóla segir stöðuna í skólanum sérstaka um þessar mundir. Aðeins einn árgangur er eftir í húsnæði skólans þar sem mygla hefur fundist í álmum áttunda og níunda bekkjar. Þá er einnig mögulegt að mygla leynist í álmu tíunda bekkjar. Unnið er að endurbótum en ómögulegt er að segja hversu langan tíma það muni taka. 30.11.2021 17:11
Stjórnvöld boði stöðnun í nýju fjárlagafrumvarpi BSRB gagnrýnir nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og segir það boða stöðnun í opinbera geiranum á sama tíma og blása þurfi til sóknar. 30.11.2021 16:14
Þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar í nótt Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. 30.11.2021 15:27
Smíði nýrra björgunarskipa hafin Smíði á fyrsta nýja björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar hófst fyrir helgi í skipasmíðastöð í Finnlandi. Búið er að ganga frá kaupum á þremur nýjum björgunarskipum og kostar hvert þeirra um 285 milljónir króna. 30.11.2021 15:27
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. 30.11.2021 15:15
Segir leikskólamálin í ólestri og þörf á nýjum áherslum Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að leikskólamálin í Reykjavík séu í miklum ólestri og að fullreynt sé með núverandi stjórn leikskólamála. 30.11.2021 15:09
Býr nýjan ráðherra undir að grípa þurfi til aðgerða á landamærum og innanlands Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að vera undir það búin að nýtt afbrigði kórónuveirunnar geti borist hingað til lands. Reynist veiran skeinuhættari en talið hefur verið þurfi að undirbúa að grípa til hertari aðgerða bæði á landamærum og jafnvel innanlands. Slíkar tillögur séu ekki á borðinu sem stendur en það kunni að breytast fljótt. 30.11.2021 14:29
Nöfnin sem hestanafnanefnd hefur hafnað Hestanafnanefnd hefur frá því að hún var stofnuð 2016 hafnað þónokkrum beiðnum um nöfn á íslenskum hestum. Á meðal nafnanna eru til dæmis Apótek, Leyndarmál, Euphoria og Avicii - það síðastnefnda að öllum líkindum í höfuðið á sænska plötusnúðnum heitnum. 30.11.2021 14:15
Áætla að áfengis- og tóbaksgjöld verði hærri en fjármagnstekjuskattur í ár Tekjur af áfengisgjaldi hafa aukist mikið milli ára og skýrist meðal annars af aukinni einkaneyslu og samdrætti í ferðalögum Íslendinga erlendis. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður fái hærri tekjur af áfengis- og tóbaksgjaldi í ár en af fjármagnstekjuskatti. 30.11.2021 14:12
Jóhann beið lægri hlut en sleppur við lögfræðikostnað í Saknaðarmáli Tónlistarmaðurinn Jóhann Helgason beið lægri hlut í höfundarréttarmáli sínu gegn norska tónlistarmanninum Rolf Løvland og bandarísku tónlistarrisunum Universal, Warner og Peer Music. Hann mun þó ekki þurfa að standa straum af lögfræðikostnaði stefnda vegna málsóknarinnar. 30.11.2021 14:06
Hundrað milljónir aukalega í skatteftirlit Áætlað er að hundrað milljónir króna verði sett aukalega til þess að efla skattrannsóknir og skatteftirlit samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. 30.11.2021 14:03
Sakar Bjarna Ben um lítilsvirðingu gagnvart landsbyggðinni Fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir formann flokksins harðlega hvernig staðið var að ráðherraskipun í nýrri ríkisstjórn. Hann segir sinnuleysi ítrekað gagnvart landsbyggðinni sem eigi eftir að skaða flokkinn enn frekar. 30.11.2021 13:43
Halldóra endurkjörin og Björn Leví valinn með hlutkesti Halldóra Mogensen var endurkjörin þingflokksformaður Pírata á þingflokksfundi í dag. Þá hlaut Björn Leví Gunnarsson jafnframt embætti formanns flokksins en hann var valinn með hlutkesti líkt og þingflokkurinn hefur gert við upphaf hvers löggjafarþings. 30.11.2021 13:19
Hættumerki, vannýtt tækifæri og öryrkjar sitji áfram eftir Stjórnarandstaðan gagnrýnir að ennþá vanti upp á leiðréttingar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega í nýju fjárlagafrumvarpi. Þá vanti mikið upp á að framlög til heilbrigðs-og loftslagsmála séu í takt við stjórnarsáttmálann. 30.11.2021 12:31
Framtíð sóttvarnaaðgerða: Hversu langt á að ganga? Sóttvarnaaðgerðir, bólusetningarskylda og bólusetningarpassar verða á meðal þess sem verður til umræðu í pallborðinu á Vísi í dag, sem hefst klukkan 14. 30.11.2021 12:05
Sérstök ástæða til að fara varlega vegna omíkron Sóttvarnalæknir segir tilefni til þess að fara áfram varlega þrátt fyrir að bylgjan sé á hægri niðurleið en núgildandi takmarkanir renna út í næstu viku. Sérstök ástæða sé til þess vegna óvissu um nýja omíkron afbrigðið. Hundrað og fimmtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 30.11.2021 12:04
Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. 30.11.2021 11:56
Guðmundur Ingi verður samstarfsráðherra Norðurlanda Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála, og vinnumarkaðsráðherra, verður samstarfsráðherra Norðurlanda í nýju ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. 30.11.2021 11:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður nýkynnt fjárlagafrumvarp fyrirferðarmikið. 30.11.2021 11:33
Hækka barnabætur á næsta ári fyrir tekjulægri Skerðingamörkum barnabóta verður breytt á næsta ári og hækka neðri skerðingamörk hjá einstæðum foreldrum úr 351.000 krónum á mánuði í 379.083 krónur. 30.11.2021 11:12
Helgi Pé: Fáir sem geti nýtt sér tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna Frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega verður hækkað í tvö hundruð þúsund krónur á mánuði um næstu áramót. Mun það þar með tvöfaldast. 30.11.2021 11:07
115 greindust innanlands í gær og innan við helmingur í sóttkví 115 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og fimm á landamærum. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 30.11.2021 10:59
Auka framlag til heilbrigðismála um sextán milljarða Gert er ráð fyrir að framlög til heilbrigðismála aukist um 16,3 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag. 30.11.2021 10:36
Gera ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. 30.11.2021 09:18
Bjarni kynnti fjárlagafrumvarp og nýja fjármálastefnu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár og fjámálastefnu fyrir árin 2022 til 2026 á fréttamannafundi klukkan 9. 30.11.2021 08:22
Zúistabróðir fer fram á endurupptöku á þungum fjársvikadómi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem héldu úti trúfélaginu Zuism, hefur óskað eftir því að þungur fangelsisdómur sem hann hlaut fyrir tugmilljóna króna fjárdrátt verði tekinn upp aftur. Þeir bræður eru ákærðir fyrir peningaþvætti og fjársvik vegna Zuism. 30.11.2021 08:00