Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óboðlegt að dýr fái ekki hjálp Formaður Dýralæknafélags Íslands segir það ekki boðlegt að dýraeigendur sem reyni að ná í lækni vegna veiks dýrs fái ekki hjálp. Fjármagn skorti til þess að halda úti aukinni neyðarþjónustu dýralækna. 29.11.2021 22:07
Samstarf í þingnefndum hafi gengið illa á síðasta kjörtímabili Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Sigurður Ingi Jóhannsson segir það rökrétt framhald af slæmri samvinnu meðal stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar í nefndum. Skiptar skoðanir eru meðal stjórnarandstöðunnar um málið. 29.11.2021 21:31
Furðar sig á að VG afhendi „íhaldinu“ umhverfis- og loftlagsmálin Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, furðar sig á að Vinstri græn skuli afhenda „íhaldinu“ umhverfis- og loftslagsmálin í nýrri ríkisstjórn. Þá gagnrýnir hún að flokkarnir fjölgi ráðuneytum, þvert á tillögu í rannsóknarskýrslu Alþingis um hrunið. 29.11.2021 20:04
„Ábyrgðinni er einhvern veginn alltaf skellt á þau sem ekki stjórna tækjunum“ Reykvíkingur, sem fer flestra sinna ferða gangandi eða hjólandi, telur lögreglu skella skuldinni á gangandi vegfarendur frekar en ökumenn með tali um endurskinsmerki og slæm birtuskilyrði eftir fjölda umferðarslysa síðustu daga. 29.11.2021 20:00
Íshellan sigið um fimm metra Íshellan í Grímsvötnum hefur nú sigið um fimm metra síðan á miðvikudag síðustu viku. Hlaupórói mælist á skjálftamælum, sem gefur til kynna að vatn er farið að streyma undir jöklinum. 29.11.2021 19:41
Fær engar bætur eftir sauðburðarslys á bæ frænku sinnar Kona, sem slasaðist er kind rakst utan í hana með þeim afleiðingum að hún datt aftur fyrir sig og slasaðist á öxl, fær hvorki bætur úr hönd frænku sinnar né VÍS. 29.11.2021 19:03
Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. 29.11.2021 19:02
Viðurkenndi að hafa stungið sambýlismann móður sinnar ítrekað Guðmundur Freyr Magnússon viðurkenndi að hann hefði orðið íslenskum sambýlismanni móður sinnar að bana með því að stinga hann ítrekað í Torrevieja á Spáni þegar mál hans var tekið fyrir dóm í Elche í síðustu viku. Bar hann við fíknivanda og geðrænum vandamálum. 29.11.2021 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lyklar og aðgangskort voru afhent níu ráðherrum sem tóku við nýjum ráðuneytum í morgun. Þeir voru allir sáttir með ný hlutverk og ætla sér stóra hluti á komandi kjörtímabili. Í kvöldfréttum fylgjumst við með lyklaskiptunum í morgun og ræðum við þingmenn stjórnarandstöðunnar í beinni útsendingu – sem missa formennsku í þingnefndum á kjörtímabilinu. 29.11.2021 18:10
Rúmlega sjö þúsund mættu í örvun í dag: „Þetta er allt að hafast hjá okkur“ Þriðja vika örvunarbólusetningarátaksis fór vel af stað í morgun en rúmlega sjö þúsund manns fengu þar þriðja skammtinn í dag. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir daginn hafa gengið vel og að það hafi verið gaman að fá sjálfan sóttvarnalækni í sprautu. 29.11.2021 18:01
Laugardalslaug uppiskroppa með gul armbönd og biðlar til foreldra Laugardalslaug er að verða uppiskroppa með gul armbönd sem sundlaugargestir nota til að læsa skápum sínum í búningsklefunum. Forstöðumaður laugarinnar segir ljóst að gríðarlegur fjöldi armbanda skili sér ekki aftur og að vandamálið sé að stórum hluta tengt börnum sem koma í laugina til að fara í skólasund. 29.11.2021 17:17
Bíll við bíl í snjókomunni í Reykjavík og árekstur tefur umferð Árekstur tveggja bíla varð á Hafnarfjarðarvegi nærri Arnarnesbrúnni síðdegis. Vinna stendur yfir á vettvangi og gengur umferð afar hægt frá Reykjavík til Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar af þessum sökum. Árekstur.is segist hafa sinnt á annan tug árekstra síðdegis og hafi komið á óvart hve margir séu á sumardekkjum. 29.11.2021 16:54
Orri Páll formaður þingflokks VG Orri Páll Jóhannsson er nýr formaður þingflokks Vinstri grænna. Þetta var ákveðið á fundi þingflokksins síðdegis. Hann tekur við stöðunni af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur sem verður varaformaður þingflokksins. 29.11.2021 16:34
Lýsir lokadögum móður sinnar á HSS: „Hún fékk drep í annað eyrað, hluti af því datt af“ „Móðir mín lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja seinni hluta árs 2019. Ellefu vikum fyrir dauða hennar lagðist hún inn á spítalann í hvíldarinnlögn. Samdægurs var hún sett á lífslokameðferð sem fyrirskipuð var af Skúla Gunnlaugssyni. Ég vil að það komi skýrt fram að hún var ekki haldin neinum sjúkdómum eða kvillum sem ógnuðu lífi hennar.“ 29.11.2021 15:37
Haft uppi rangfærslur um sýnatöku barna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það rangt að foreldrum barna standi til boða að tekin verði munnvatnssýni til greiningar Covid-19 í stað nefkokssýnis. 29.11.2021 15:31
Kafli milli Hveragerðis og Ölfusborga boðinn út Vegagerðin hefur boðið út næsta áfanga í breikkun Suðurlandsvegar um Ölfus, milli Hveragerðis og Selfoss. Útboðið sem núna er auglýst er tæplega áttahundruð metra langur tengivegur við austurjaðar Hveragerðis, ásamt smíði nýrrar brúar yfir Varmá norðan Suðurlandsvegar. 29.11.2021 15:30
Sekta hvorki LSH né ÍE fyrir brot á persónuvernd í tengslum við Covid-rannsókn Vinnsla Landspítalans (LSH) og Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) á persónuupplýsingum í tengslum við rannsókn þeirra á Covid-19 samrýmdist ekki persónuverndarlögum. 29.11.2021 14:02
Fjöldi sjálfsvíga fyrri hluta árs svipaður og síðustu ár Fjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði ársins 2021 var sautján, eða 4,6 á hverja 100.000 íbúa. Er fjöldinn svipaður og verið hefur síðustu ár, en meðalfjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði áranna 2016 til 2020 var átján, eða 5,1 á hverja 100.000 íbúa. 29.11.2021 12:47
Þórólfur kominn með örvunarskammt: „Ég er Astra maður þannig að ég er að svíkja lit“ Þriðja vika örvunarbólusetningarátaks yfirvalda hófst í dag í Laugardalshöll. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir bólusetningarnar ganga vel en sóttvarnalæknir var meðal þeirra sem fengu sinn þriðja skammt í dag. 29.11.2021 12:31
Uggandi yfir nýju fyrirkomulagi og kalla eftir skýrum aðgerðum Stjórn Landverndar fagnar markmiðum nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum en kallar eftir skýrari aðgerðum til að ná þeim. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila varðandi rammaáætlun þrjú sé stríðsyfirlýsing. Þá óttast Landvernd að sama ráðuneytið haldi utan um orkumál og náttúruvernd. 29.11.2021 12:11
Hvað á stjórnin að heita? Ný vika, ný ríkisstjórn, en hvað á barnið að heita? Það er of snemmt að segja en gárungarnir eru að vonum farnir af stað með nafngiftirnar. 29.11.2021 12:07
Ætlar að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstólinn Magnús D. Norðdahl, lögmaður og frambjóðandi Pírata í Alþingiskosningunum í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. 29.11.2021 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fylgjumst við með lyklaskiptum í ráðuneytunum sem að þessu sinni eru í flóknara lagi, enda mikið um breytingar frá fyrri ríkisstjórn. 29.11.2021 11:34
95 greindust innanlands 95 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 53 af þeim 95 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 56 prósent. 42 voru utan sóttkvíar, eða 44 prósent. 29.11.2021 11:03
Byssumaðurinn meðal annars ákærður fyrir tilraun til manndráps Ákæra á hendur manninum, sem var skotinn af lögreglunni á Egilsstöðum í ágúst eftir að hann skaut af byssu á íbúðarhús í Dalseli, hefur verið birt. Maðurinn er meðal annars ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignaspjöll, vopnalagabrot og brot í nánu sambandi. 29.11.2021 11:02
Gleymdi að afhenda Þórdísi Kolbrúnu lyklaspjaldið Lyklavöldin að utanríkisráðuneytinu verða áfram hjá Sjálfstæðisflokknum þó ákveðið hafi verið að skipta um ráðherra í brúnni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við af Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem færir sig yfir í umhverfis- og loftslagsmálaráðuneytið. 29.11.2021 10:57
Skora á Katrínu að segja af sér og boða mál fyrir Mannréttindadómstólnum Stjórnarskrárfélagið hefur skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra til að segja af sér vegna framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu. Formaður félagsins segir Alþingi hafa höggið varanlegt skarð í traust kjósenda gagnvart löggjafarvaldinu. 29.11.2021 10:37
Segist treysta engum betur í málið en Willum Svandís Svavarsdóttir fráfarandi heilbrigðisráðherra segist engum treysta betur til að taka við heilbrigðisráðuneytinu en Willum Þór Þórssyni, þingmanni Framsóknar. Willum segir gott að geta leitað í reynslubanka Svandísar. 29.11.2021 10:06
Yrði „algjört reiðarslag fyrir heilbrigðiskerfið og okkur öll“ að leyfa veirunni að ganga óáreittri „Þetta er að mjakast niður sýnist mér. Helgin var svo sem ágæt. Það voru þarna 130 sem greindust innanlands á föstudaginn en svo er þetta búið að vera undir hundrað á laugardaginn og í gær.“ 29.11.2021 08:47
Nýir ráðherrar fengu ekki bara lykla Ný ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær. Í morgun fóru svo fram formleg lyklaskipti í hinum ýmsu ráðuneytum en mikil hreyfing er á ráðherrastólum. 29.11.2021 08:35
Íshellan nú lækkað 4,2 metra en ekkert bólar á hlaupi Íshellan í Grímsvötnum hefur nú lækkað um 4,2 metra síðan á miðvikudag, en ekkert bólar þó enn á hlaupi í Gígjukvísl. 29.11.2021 07:40
Óli Björn og Ingibjörg nýir þingflokksformenn Óli Björn Kárason þingmaður var í gær gerður að þingflokksformanni Sjálfstæðisflokknum og Ingibjörg Ólöf Isaksen var gerð að formanni þingflokks Framsóknarflokksins. 29.11.2021 07:26
Ók á umferðarskilti og hafði í hótunum við lögreglumenn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning rétt fyrir miðnætti í nótt um að bifreið hefði verið ekið á umferðarskilti í Hlíðahverfi. Í tilkynningunni kom fram að ökumaðurinn hefði farið gangandi frá vettvangi. 29.11.2021 06:14
Ballið byrjaði með blæstri á Bessastöðum Nýr stjórnarsáttmáli var kynntur, undirritaður og handsalaður á Kjarvalsstöðum í dag rúmum níu vikum eftir kosningar. Frá Kjarvalsstöðum lá leið á Bessastaði á fund forsetans þar sem sjö ráðherrar skiptu um ráðherrastóla. 29.11.2021 00:28
Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. 28.11.2021 23:11
„Ég hef alltaf látið umhverfismál mig varða“ Guðlaugur Þór Þórðarson, fráfarandi utanríkisráðherra og nýr ráðherra umhverfis- og loftslagsmála, segist spenntur fyrir því að takast á við umhverfismál í sínu nýja ráðuneyti. Hann hafi reynslu af málaflokknum eftir utanríkisráðherratíð sína. 28.11.2021 22:47
Drungalegt yfir Skálholtskirkju og kirkjuklukkurnar þagnaðar Það er hálf drungalegt í Skálholti þessa dagana í skammdeginu því kirkjan er ómáluð og kirkjuklukkur kirkjunnar eru þagnaðar. Það horfir þó til bjartari tíma næsta vor þegar kirkjan verður máluð og nýjar kirkjuklukkur verða settar upp, auk nýs þaks á kirkjuna. 28.11.2021 21:48
„Það er skelfilegt að vera með slasað dýr í höndunum og geta ekkert gert“ Kona sem reyndi ítrekað að ná í neyðarnúmer dýralækna um síðustu helgi þegar hundur hennar slasaðist alvarlega kallar eftir svörum frá Matvælastofnun. Hún segir óásættanlegt að fólk þurfi að horfa upp á dýr sitt þjást. Varaleið þurfi að standa til boða ef neyðarvakt svarar ekki. 28.11.2021 21:04
Svandís er spennt fyrir nýju ráðuneyti en mun sakna þess gamla Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra og nýr ráðherra matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar, kveðst spennt fyrir nýju ráðuneyti og sér mörg tækifæri á borði. 28.11.2021 20:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjö ráðherrar höfðu stólaskipti á Bessastöðum í dag. Við fjöllum ítarlega um nýja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, stjórnarsáttmálann og nýja ráðherra í kvöldfréttum stöðvar 2 klukkan hálf sjö. 28.11.2021 18:31
Gengið sé fram hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi Formenn félaga ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi segjast verulega ósáttir með að ítrekað sé gengið fram hjá oddvitum flokksins í Suðurkjördæmi við val á ráðherrum. Stjórnir fulltrúaráða flokksins í kjördæminu eru á sama máli. 28.11.2021 17:49
Muni skýrast á næstu vikum hvort herða þurfi aðgerðir vegna Ómíkron Sóttvarnalæknir segir að það muni skýrast á næstu vikum hvort grípa þurfi til frekari aðgerða vegna útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. Það eigi enn eftir að koma í ljós hvernig afbrigðið hagar sér en svo virðist sem það sé meira smitandi. 28.11.2021 17:35
Segir mikil og stór verkefni bíða sín í innanríkisráðuneytinu Jón Gunnarsson segir það leggjast „mjög vel“ í sig að taka að sér innanríkisráðuneytið í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. 28.11.2021 16:40
„Við viljum bara nýta alla þekkingu í kerfinu“ Willum Þór Þórsson, nýr heilbrigðismálaráðherra, segir nýja starfið leggjast vel í sig. Eftirvæntingin væri mikil og segist hann finna fyrir fiðringi í heilbrigðisráðuneytinu séu mörg verkefni sem þurfi að fara í. 28.11.2021 16:23
Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs kom saman á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar fjölgar um einn frá síðustu ríkisstjórn og eru tólf. 28.11.2021 16:20