Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár. Megi árið 2022 færa okkur öllum frið og hamingju í hjarta. 31.12.2021 23:00
„Ég held að við séum á leiðinni út úr þessu helvítis Covid“ Fulltrúar flokkanna á þingi voru gestir Kryddsíldarinnar á Stöð 2. Í lok þáttar voru þeir beðnir að fara stuttlega yfir árið sem er að líða og vonir sínar fyrir árið 2022, bæði í einkalífinu og stjórnmálunum. Allir voru sammála um að árið 2022 yrði vonandi árið þar sem kórónuveirufaraldurinn yrði kvaddur fyrir fullt og allt. 31.12.2021 16:37
Ragnheiður Ósk valin maður ársins 2021 Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2021 er gert upp. 31.12.2021 14:50
Inga ekki í Kryddsíldinni með nýútskrifaðri Þórdísi Kolbrúnu Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, tilkynnti í dag að hún yrði ekki með í Kryddsíldinni, árlegum áramótaþætti Stöðvar 2, í ljósi mikillar útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Yfir 1.500 manns greindust með Covid hér á landi í gær. 31.12.2021 14:08
Þyrlan sótti ferðamann á gosstöðvarnar: „Hún bara treysti sér ekki til að labba lengra“ Björgunarsveitin fékk upplýsingar um að konan væri á gosstöðvunum sem treysti sér ekki til að labba niður og hafði samband við lögregluna í kjölfarið. Yfirlag á gosstöðvunum er mjög óstöðugt og mælt er gegn því að fólk hætti sér inn á hraunið. 31.12.2021 13:59
Söguleg undirritun kjarasamnings grunnskólakennara Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður hjá embætti ríkissáttasemjara í gær. Þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem ritað er undir kjarasamning grunnskólakennara áður en gildandi samningur rennur út. 31.12.2021 13:35
„Skjóta fjandans veiruna á braut“ Flugeldasala Landsbjargar hefur gengið vel í ár. Viðskiptavinur segir að í kvöld verði kórónuveiran skotin burt fyrir fullt og allt. 31.12.2021 13:00
Fresta vinnusóttkví vegna mistaka Áætluð útvíkkun um vinnusóttkví, sem átti að taka gildi á hádegi í dag, hefur verið frestað. Til stendur að funda nánar með öllum hlutaðeigandi hagsmunaaðilum í dag. 31.12.2021 12:53
Jafnlöng röð í sýnatöku og áður Röðin í sýnatöku hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu á Suðurlandsbraut hefur verið löng í morgun en sjónarvottar segja hana ná alla leið upp í Ármúla. Margir hafi þurft að bíða í tæpa tvo klukkutíma. Tryggvi Rafn, sem er með hreyfihömlun, segist hafa verið sendur aftast í röðina en forgangur er almennt veittur þeim, sem á því þurfa að halda. 31.12.2021 12:36
Stytting á einangrun áhættulítil en þó ekki áhættulaus Aldrei hafa fleiri tilfelli kórónuveirunnar greinst en í gær þegar 1. 601 greindist smitaður. Yfirlæknir á Landspítalanum segir að faraldurinn sé í veldisvexti og telur að fara þurfi varlega i að stytta einangrun frá sjö dögum í fimm þó það kunni að vera skynsamlegt. 31.12.2021 12:12
Væntingar til Willums dvínuðu eftir fyrstu aðgerðir hans Landsmenn höfðu mestar væntingar til nýs heilbrigðisráðherra af öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar áður en hann greip til fyrstu sóttvarnaaðgerða sinna. Væntingarnar minnkuðu mikið eftir það. 31.12.2021 12:01
Tryggðu þér áskrift fyrir Kryddsíldina Hin árlega Kryddsíld verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Bylgjunni að venju. Þátturinn hefst klukkan 14 en Edda Andrésdóttir, Erla Björg Gunnarsdóttir og Snorri Másson leiða Kryddsíldina eftir þetta viðburðaríka ár. 31.12.2021 11:45
Guðmundur Felix maður ársins hjá hlustendum og lesendum Guðmundur Felix Grétarsson er maður ársins að mati hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og lesenda Vísis. Guðmundur Felix fékk ágræddar hendur á árinu eftir langa bið í Frakklandi. Hann hefur með óbilandi trú og kjarki verið fyrirmynd fólks og sýnt mikla þrautseigju og bjartsýni. 31.12.2021 11:32
Stefnir í tæplega þrjátíu daga sóttkví: „Ég vona allavega að ég losni á nýju ári“ Bjarni Már Magnússon, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur verið í sóttkví í rúma tuttugu daga samfleytt. Sóttkvíin hófst þann 10. desember, þegar dóttir hans smitaðist af kórónuveirunni, en börnin hans hafa svo smitast koll af kolli. Sóttkvíin lengist því með hverju smiti en Bjarni hefur sjálfur ekki smitast af veirunni. 31.12.2021 11:13
Nýtt met: 1.557 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Í gær greindist 1.601 smitaður af Covid-19 og þar af greindust 44 á landamærunum. Þetta er enn eitt metið og nánast tvöföldun frá því í fyrradag þegar 839 greindust smitaðir. 31.12.2021 09:40
Varað við hættu á gróðureldum: Vonskuveður á nýársdag Vonskuveður verður nánast á landinu öllu á morgun, nýársdag, en gular viðvaranir taka gildi í öllum landshlutum fyrir hádegi á morgun. Þá hefur slökkviliðið varað við gróðureldum en Brunavarnir Árnessýslu sendu meðal annars frá sér tilkynningu þess efnis fyrr í dag. 31.12.2021 09:15
Annálar 2021: Kosningaklúður, ástir og örlög Hollywood-stjarnanna og það besta frá Magnúsi Hlyni Ólíkt fyrri árum ákvað fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar að brjóta aðeins upp á hinn árlega annál. Þetta árið birtist stuttur annáll á hverjum virkum degi í desembermánuði, þar sem farið var yfir það helsta á árinu. 31.12.2021 08:01
Nautin í Hvammi svolgra í sig bjór alla daga Nautin á bænum Hvammi í Ölfusi njóta lífsins á hverjum degi því þau eru alin upp á bjór og hrati af bjór, sem þau eru sólgin í. Eftir að þeim er slátrað verður til kjöt með bjórkeim, sem margir kunna vel að meta. 31.12.2021 07:35
Slökkviliðið biður fólk um að hætta að kveikja í ruslagámum Höfuðborgarbúar virðast hafa vakið lengi fram eftir í gærnótt ef marka má dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðal verkefna lögreglunnar voru gróðureldar á Seltjarnarnesi, sem tilkynnt var um rétt eftir miðnætti í nótt. Eldurinn var minniháttar og tókst lögreglu fljótlega að ná tökum á eldinum. Slökkviliðið telur að flugeldar hafi komið við sögu. 31.12.2021 07:31
Gamlársdagur: Hvar er opið og hversu lengi? Hátíðarnar eru annasamur tími fyrir flesta landsmenn og gamlársdagur er þar engin undantekning. Flugeldakaupin eru mörgum mikilvæg og aðrir telja ómissandi að drekka bjór með Skaupinu. Eins og gengur og gerist geta hlutir gleymst þrátt fyrir góðan undirbúning og þá er gott að vita hvar opið er á gamlársdag. 31.12.2021 07:27
Kári vill fimm daga einangrun Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur skynsamlegast að stytta einangrun Covid-smitaðra niður í fimm daga. Kórónuveiran hafi dreifst hratt um samfélagið og óráðlegt sé að halda fólki í einangrun í lengri tíma. Reglunum var breytt í dag en nú þurfa Covid-smitaðir aðeins að vera í sjö daga einangrun. 31.12.2021 00:01
Krummi og Hermann biðja Sölva líka um að birta ekki viðtölin Hermann Hreiðarsson knattspyrnukappi og Krummi í Mínus hafa óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við þá fyrr á árinu verði ekki birt. Fréttastofa greindi frá því fyrr í kvöld að Bogi Ágústsson sjónvarpsmaður hefði óskað eftir því sama. 30.12.2021 23:05
Reglur um vinnusóttkví rýmkaðar á morgun Nýjar reglur um vinnusóttkví taka gildi á hádegi á morgun, gamlársdag. Sóttvarnalæknir og almannavarnir hafa gefið út uppfærðar leiðbeiningar um hvenær er heimilt að beita vinnusóttkví. 30.12.2021 22:34
Borgin tekur tvær sneiðar til viðbótar af flugvellinum Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir að tvær sneiðar verði skornar af Reykjavíkurflugvelli á næstu þremur árum og að vellinum verði svo endanlega lokað eftir áratug, árið 2032. 30.12.2021 22:22
„Æi, þetta er nú alltaf pínu gaman sko“ Veturkonungur kom með hvelli á Eyjafjarðarsvæðið í vikunni. Eftir rólegan vetur snjóaði um sjötíu sentimetrum á 48 klukkutímum á Akureyri. 30.12.2021 21:54
Bað um að viðtal Sölva við sig yrði ekki birt Bogi Ágústsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu, hefur óskað eftir því að viðtal sem Sölvi Tryggvason tók við hann fyrr á árinu verði ekki birt. Sölvi hyggst fara með hlaðvarp sitt af stað að nýju innan skamms, en hann dró sig úr sviðsljósinu fyrr á þessu ári þegar fram komu ásakanir á hendur Sölva um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur konum. 30.12.2021 21:33
Færði smituðum farþega mat og jólaskraut í einangrun: „Það er ýmislegt sem gerist þegar fólk er á ferðalögum“ Ragnhildur Eiríksdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, sem fjallað var um í dag að hefði hjálpað hinni bandarísku Marisu Fotieo, sem fékk jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi um borð í vél Icelandair hingað til lands, segist aðeins hafa verið að gera það sem hún hefði viljað að yrði gert fyrir sig ef hún hefði verið í sömu stöðu. 30.12.2021 20:18
Kvikan á uppleið en á enn 1.600 metra eftir Sérfræðingar Veðurstofunnar segja nýja gervitunglamynd, sem barst í dag, benda til að kvikan undir Fagradalsfjalli sé enn á leið til yfirborðs og að hún sé núna á um sextánhundruð metra dýpi. 30.12.2021 19:59
Sundlauginni lokað og gestir sendir heim Loka þurfti Árbæjarlaug síðdegis í dag vegna manneklu og sundlaugagestir voru reknir upp úr. Fjölmargir starfsmenn sundlauga á höfuðborgarsvæðinu eru í sóttkví eða einangrun og ekki tókst að manna seinni vaktina í lauginni af þeim ástæðum. 30.12.2021 18:54
Tímaspursmál hvenær starfsemi fyrirtækja lamast Forstjórar tveggja stórra fyrirtækja í Reykjavík segjast þakka fyrir hvern dag þar sem starfsemin helst gangandi, en það sé bara tímaspursmál hvenær það taki enda. Nærri fimm prósent allra íbúa höfuðborgarsvæðisins eru nú annað hvort í sóttkví eða einangrun. 30.12.2021 18:30
Gengið gegn sóttvarnaráðstöfunum Nokkur hundruð manns sem leggjast gegn bólusetningum fyrir Covid-19 fóru í dag í göngu frá stjórnarráðshúsinu í Reykjavík og annar hópur frá Akureyrarkirkju. 30.12.2021 18:04
Einangrun stytt í sjö daga Einangrunartími fyrir fólk með Covid-19 hér á landi hefur verið styttur í sjö daga úr tíu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins. 30.12.2021 18:01
Lokað í grunn- og leikskólum á mánudaginn Lokað verður í grunn- og leikskólum í Reykjavík á mánudaginn, þann 3. janúar, vegna „skipulagsdags“. Almannavarnir gera einnig ráð fyrir að loka þurfi deildum á leikskólum eða fella niður kennslu í einstökum árgöngum grunnskóla um skemmri eða lengri tíma á næsta ári vegna hraðrar útbreiðslu kórónuveirunnar. 30.12.2021 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum frá nýrri reglugerð sem styttir þann tíma sem fólk þarf að vera í einangrun eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. 30.12.2021 18:01
Lögreglan varar við rafrettum: Tveir unglingar misst meðvitund Lögreglan á Suðurnesjum hefur farið í tvö útköll vegna meðvitundarleysis ungmenna í vikunni sem talið er að rekja megi til notkunar rafretta. Grunur leikur á um að ólögleg vímuefni hafi verið í rafrettunum. 30.12.2021 17:14
Starfsfólk Landspítala biðlar til óbólusettra Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn Landspítala kveðst nú hafa miklar áhyggjur af þeim hópi fólks sem ekki hefur látið bólusetja sig og starfsfólk Landspítala biðlar til óbólusettra að endurskoða ákvörðun sína. Ef ekki tekst að ná fjölda smitaðra niður má gera ráð fyrir að 60 manns verði inniliggjandi á spítala, þar af fimmtán á gjörgæslu, þann 10. janúar. 30.12.2021 16:18
Fagnar 41,1 milljón króna með sonum sínum þremur um áramótin Kona á sjötugsaldri vann 41,1 milljón króna þegar hún var ein með allar tölur réttar í Lottó á jóladag. Þá var dreginn út hæsti þrefaldi potturinn hingað til. 30.12.2021 15:23
Nýja árið hefst með gulum viðvörunum Nýja árið hefst á krafti á laugardaginn en gular viðvaranir verða í gildi yfir daginn alls staðar nema á höfuðborgarsvæðinu. 30.12.2021 14:31
Ánægður með að teljast flugeldaóvinur númer eitt Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari, sem stundum er kallaður Stjörnu-Sævar, segir það vonbrigði að flugeldar seljist nú sem aldrei fyrr. Hann veltir fyrir sér því hvort vert sé að setja kvóta við flugeldakaupum. 30.12.2021 14:03
„Gott væri að fækka ferðum á bílum“ Styrkur svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs var nokkuð hár í borginni í morgun samkvæmt mælingum á þremur mælistöðvum Reykjavíkur. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir með því að notkun bílsins verði lágmörkuð í dag. 30.12.2021 13:56
Egill Einarsson segir tóma dellu að hann sé sóttvarnadólgur Egill Einarsson, fjölmiðlamaður og líkamsræktarþjálfari, er staddur úti á Tenerife í góðu yfirlæti. Umdeild frásögn hans á Instagram í gær rataði víða og hún höfð til marks um að Egill væri að hæðast að sóttvörnum. Hann segir ekkert fjær sanni. 30.12.2021 13:04
240 milljónir fóru í ráðherrabílana Ríkissjóður greiddi tæplega 240 milljónir í rekstur bifreiða og laun bílstjóra fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar á líðandi ári. Stjórnvöld fjárfestu í þremur nýjum rafmagnsjeppum, þar sem hver bíll kostaði níu milljónir króna. 30.12.2021 13:01
Þórólfur hringdi í Kára: Íslensk erfðagreining tekur sýnin innanlands að sér Íslensk erfðagreining hefur á nýjan leik tekið að sér greiningu á sýnum innanlands. Gríðarlegt álag hefur verið í greiningu sýna á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og biðtími verið allt að 72 klukkustundir eftir niðurstöðu. 30.12.2021 12:08
Fyrrverandi þingmenn vilja stöðu framkvæmdastjóra landskjörstjórnar Alls sóttu 22 um embætti framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem auglýst var laust til umsóknar 3. desember 2021. Í hópi umsækjenda eru meðal annarra tveir fyrrverandi þingmenn. 30.12.2021 12:01
Allt að 72 tíma bið eftir niðurstöðu úr PCR Óvenjumörg PCR-einkennasýni hafa verið tekin síðustu daga og fjöldinn farið fram úr afkastagetu sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans sem sér um greiningu sýnanna. Getur fólk nú átt von á því að bið eftir niðurstöðu sé allt að þrír sólarhringar eða 72 tímar. 30.12.2021 11:52
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent