Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
E-listinn vann sigur í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi E-listinn bar sigur úr bítum í sveitarstjórnarkosningum í sameinuðu sveitarfélagi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps. Alls greiddu 819 atkvæði í sveitarfélaginu en 1.033 eru á kjörskrá í sveitarfélaginu. 17.5.2022 10:12
Næststærsti sigur lista á landinu var í Bláskógabyggð T-listinn vann sigur í kosningum til sveitarstjórnar í Bláskógabyggð á laugardaginn og tryggði sér fimm fulltrúa af sjö í sveitarstjórn. Þ-listinn náði inn tveimur mönnum. 17.5.2022 10:07
Sautján prósent aukning í tilkynningum um nauðganir Fleiri tilkynningar um nauðganir annars vegar, og heimilisofbeldis og ágreiningsmál hins vegar, bárust Embætti ríkislögreglustjóra á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en á sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu sem embættið hefur birt um heimilisofbeldi og kynferðisbrot. 17.5.2022 10:03
Gísli Gunnar hlaut flest atkvæði í Grýtubakkahreppi Gísli Gunnar Oddgeirsson hlaut flest atkvæði til sveitarstjórnar í Grýtubakkahreppi í kosningum laugardagsins. Kosningin var óhlutbundin þar sem engir framboðslistar bárust. 17.5.2022 08:50
Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd: Fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma Allsherjar- og menntamálanefnd verður með opinn fund sem hefst klukkan 9:10 í dag. Efni fundarins er fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma. 17.5.2022 08:40
Ráðherra birtist óvænt í miðju viðtali og reyndist sammála viðmælandanum Svo heppilega vildi til þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur var til viðtals í Íslandi í dag, að Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra gekk framhjá. Hannes bauð honum að setjast með sér og spyrli. Í ljós kom, ef til vill fáum til undrunar, að hann tók heils hugar undir með Hannesi, að það yrði erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að réttlæta myndun nýs meirihluta í Reykjavík með nýföllnum meirihluta. 17.5.2022 07:31
Andlát vegna Covid-19 nokkuð fleiri hér á landi en áður var talið Yfirferð dánarvottorða hjá embætti landlæknis hefur leitt í ljós að samtals hafi orðið 153 andlát á Íslandi vegna Covid-19 frá upphafi faraldurs árið 2020 til 1. apríl síðastliðinn. Dauðsföll vegna Covid-19 eru því nokkuð fleiri en opinberar tölur höfðu áður sagt til um, en á síðunni covid.is sagði í síðustu viku að 120 manns hafi látist á Íslandi vegna sjúkdómsins. 17.5.2022 07:26
Meirihlutarnir fimm sem eru í boði Eftir yfirlýsingar Vinstri grænna um að taka ekki þátt í myndun nýs meirihluta í borgarstjórn og útilokanir Pírata og Sósíalista á samstarfi við suma flokka koma aðeins fimm meirihlutamyndanir til greina í Reykjavík. 17.5.2022 07:00
Þórólfur hafi ekki bara vísað veginn í faraldrinum Forsætisráðherra segir Þórólf Guðnason, fráfarandi sóttvarnalækni, líklega vera þann mann sem hún hefur átt flest símtöl við undanfarin tvö ár. Hún rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar Þórólfur vísaði henni og fjölskyldu hennar veginn til Borgarfjarðar eystri. 16.5.2022 23:26
Óþol í garð átakastjórnmála hafi greitt veg Framsóknar Prófessor í stjórnmálafræði segir óþol í garð þeirra átakastjórnmála sem einkennt hafa íslenska pólitík síðan eftir hrun hafa greitt veg Framsóknarflokksins. 16.5.2022 21:58
Vill láta reisa styttu af Bobby Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarði Fimmtíu ár eru í sumar var skákeinvígi aldarinnar á milli Bobby Fischers og Boris Spasskís í Laugardalshöllinni. Verðlaunaféð á núvirði var um tvö hundruð milljónir króna. Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra vill láta reisa styttu af Fischer við gröf hans í Laugardælakirkjugarð við Selfoss. 16.5.2022 21:05
Allt opið í Hafnarfirði Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði útilokar ekki samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en telur kjósendur kalla eftir að Samfylking og Framsókn vinni saman. Fráfarandi meirihlutaflokkarnir ræða fyrst saman. 16.5.2022 20:26
Kominn með styttuna í skottið eftir að Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms Bronsstytta af Guðríði Þorbjarnardóttur sem hvarf af stöpli á Laugarbrekku á sunnanverðu Snæfellsnesi í apríl er nú komin í hendur bæjaryfirvalda í Snæfellsbæ. 16.5.2022 19:50
Útilokar að undirgangast stefnu Samfylkingarinnar í borginni Oddviti Framsóknarflokksins segir það ekki koma til greina að taka þátt í meirihlutasamstarfi undir stefnu Samfylkingarinnar. Viðræður við flokka í dag hafi verið óformlegar og að ekki hafi verið farið út í nein málefni. 16.5.2022 18:56
Kosningavaktin: Ágreiningur um fjölda mála hafa valdið viðræðuslitum á Akureyri Línur eru farnar að skýrast víða um land hvaða flokkar muni reyna að ná saman og mynda meirihluta, í þeim sveitarfélögum þar sem einn flokkur náði ekki meirihluta. 16.5.2022 18:00
Vill ekki að fólk oftúlki orð sín – stefnan sé sett á samflot Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að ekki megi oftúlka orð hennar um að útiloka ekki neinn. Oddvitar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata hafi talað sig saman um að vera í samfloti í gegnum meirihlutaviðræður. 16.5.2022 17:53
Skúli Tómas kominn í leyfi frá Landspítala Læknirinn sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020 er kominn í leyfi frá Landspítalanum. 16.5.2022 17:43
Margrét og Friðjón oftast útstrikuð í Reykjanesbæ Af þeim sjö flokkum sem voru í framboði í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ á laugardaginn var oftast strikað yfir nöfn frambjóðenda Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. 39 sinnum var strikað yfir nöfn frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og 36 sinnum hjá Samfylkingunni. 16.5.2022 16:20
Fjörutíu og einn greiddi atkvæði í Skorradalshreppi Fjörutíu og einn greiddi atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í Skorradalshreppi á laugardag. Þó það virðist vera lítið var kjörsókn 87,2% en 47 voru á kjörskrá. 16.5.2022 15:52
Meirihluti í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður Meirihluti íbúa í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður. Flestir þeirra vilja sameinast Sameinuðu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólms og næst flestir Húnaþingi vestra. 16.5.2022 15:46
Útilokar ekki samstarf með Sjálfstæðisflokki Halla Karen Kristjánsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ, segir flokkinn ekki útiloka meirihlutasamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Hún hefur ekki náð að ræða við alla flokka og því geti hún hvorki útilokað einn né neinn. 16.5.2022 15:41
Andrea Ýr fékk flest atkvæði í Hvalfjarðarsveit Andrea Ýr Arnarsdóttir fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í Hvalfjarðarsveit en þar voru listar ekki boðnir fram heldur var um persónukjör að ræða. 16.5.2022 15:37
F-listinn með meirihluta í Eyjafjarðarsveit F-listinn fékk meirihluta atkvæða í Eyjafjarðarsveit á laugardag. Alls var 821 á kjörskrá í sveitarfélaginu og greiddu 587 atkvæði, eða 71,5%. 16.5.2022 15:30
Einar Örn 63 ára hjólaði í vinnuna úr Reykjavík á Selfoss Einar Örn Thorlacius fer alla leið í átakinu „Hjólað í vinnuna“ því hann hjólaði í morgun frá Þingholtunum í Reykjavík þar sem hann býr á Selfoss, en þar vinnur hann hjá Matvælastofnun. 16.5.2022 15:26
Litlu munaði hjá Sjálfstæðisflokki og E-lista í Vogum D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra í Vogum fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum á laugardag. D-listinn og E-listinn náðu báðir þremur mönnum inn í bæjarstjórn. 16.5.2022 15:19
J-listi Grósku með meirihluta í Hörgársveit J-listi Grósku hlaut flest atkvæði og tryggði sér meirihluta fulltrúa í sveitarstjórn Hörgársveitar í kosningunum á laugardaginn. H-listi Hörgársveitar fékk tvo fulltrúa kjörna. 16.5.2022 14:54
Leggja til að sameinað sveitarfélag fái nafnið Húnabyggð D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum nýsameinaðs sveitafélags Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. 16.5.2022 14:52
Þetta eru nýju borgarfulltrúarnir í Reykjavík Af þeim 23 borgarfulltrúum sem náðu kjöri í kosningunum um helgina koma tíu nýir inn. Sumir hafa áður setið í borgarstjórn og einn tók sæti sem borgarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili. 16.5.2022 14:45
Ö-listi með fjóra fulltrúa af fimm í Skaftárhreppi Ö-listi Öflugs samfélags tryggði sér fjóra fulltrúa af fimm í sveitarstjórn Skaftárhrepps í kosningunum á laugardag. Sjálfstæðismenn náðu inn einum manni. 16.5.2022 14:42
Ýtt niður listann með útstrikunum og missir af sæti í sveitarstjórn Elín Höskuldsdóttir mun ekki taka sæti í sveitarstjórn Flóahrepps þrátt fyrir að hafa skipað annað sætið á lista sem hlýtur tvo fulltrúa. Útstrikanir ýttu henni niður listann og Harpa Magnúsdóttir fær sætið. 16.5.2022 14:24
Sjálfstæðismenn í viðræður við N-lista um nýjan meirihluta í Rangárþingi eystra Sjálfstæðismenn í Rangárþingi eystra ætla að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf við N-lista Nýja óháða listans. 16.5.2022 14:14
Á-listinn fékk meirihluta í Rangárþingi ytra með ellefu atkvæðum Litlu munaði að Sjálfstæðisflokkurinn bæri sigur úr bítum í sveitarstjórnarkosningum í Rangárþingi ytra á laugardag. Ellefu atkvæðum munaði, að sögn oddvita flokksins, að hann hefði fengið meirihluta. 16.5.2022 13:55
Munaði tveimur atkvæðum á Framsókn og Nýju afli í Húnaþingi vestra Listi Framsóknarflokksins og annarra framfarasinna hlaut flesta fulltrúa kjörna, eða þrjá, í kosningum til sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra, í kosningunum á laugardag. Listar Nýs afls (N) og Sjálfstæðisflokksins (D) hlutu báðir tvo fulltrúa kjörna. 16.5.2022 13:48
Flestir strikuðu yfir Þórhall Jónsson Á Akureyri voru það aðallega kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem strikuðu yfir nöfn frambjóðenda í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Strikað var yfir nöfn þeirra alls 120 sinnum. Af frambjóðendunum var það Þórhallur Jónsson í þriðja sæti listans sem fékk flestar útstrikanir, 81 talsins. 16.5.2022 13:48
Hlutkesti skilaði Jóni Inga í sveitarstjórn í Tálknafirði Óbundnar kosningar til sveitarstjórnar í Tálknafjarðarhreppi fóru fram á laugardaginn sem þýðir að allir íbúar voru í framboði. Jóhann Örn Hreiðarsson hlaut flest atkvæði, en hlutkesti réði ríkjum hver tók fimmta sætið í nýrri sveitarstjórn. 16.5.2022 13:09
Ný sýn hélt meirihluta sínum í Vesturbyggð N-listi Nýrrar sýnar hélt meirihluta sínum í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru á laugardag. Listinn fékk fjóra menn kjörna líkt og í kosningunum 2018, og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra þrjá kjörna. 16.5.2022 12:53
Einar segir stöðuna galopna og hefur áhuga á borgarstjórastólnum Oddviti Framsóknarflokksins vill ræða við oddvita allra flokka í Reykjavík í dag. Hann segist hafa áhuga á stóli borgarstjóra og telur stöðuna galopna. Þrátt fyrir það virðast fáir valkostir í myndun meirihluta á borðinu eins og staðan er núna. 16.5.2022 11:54
Jón Páll áfram bæjarstjóri þrátt fyrir valdaskiptin Jón Páll Hreinsson verður endurráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík þrátt fyrir að Sjálfstæðismenn hafi misst meirihlutann í bæjarstjórn. K-listi Máttar meyja og manna bættu við sig manni og náðu inn fjórum mönnum af sjö í bæjarstjórn í kosningunum um helgina. 16.5.2022 11:52
Segir barlóm blóðmerabónda ekki standast og ásakanir fráleitar Arnþór Guðlaugsson framkvæmdastjóri Ísteka furðar sig á alvarlegum ásökunum sem Sigríður Jónsdóttir blóðmerabóndi í Arnarholti setti fram í Bændablaðinu; hann segir þær algerlega úr lausu lofti gripnar. 16.5.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verða nýafstaðnar sveitarstjórnakosningar fyrirferðamiklar. 16.5.2022 11:37
Þorgeir sneri aftur til Strandabyggðar og vann sigur T-listi Strandabandalagsins vann sigur í sveitarstjórnarkosningum í Strandabyggð á laugardaginn. Oddviti listans er Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri Standabyggðar, sem var sagt upp í apríl 2020. 16.5.2022 11:24
Sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins er í Ölfusi Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, fagnar niðurstöðunum í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Elliði hefur lagst yfir tölurnar og fundið út úr því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aldrei mælst hærra í sveitarfélaginu. 16.5.2022 11:18
Garðyrkjumaður að norðan stýrir Kirkjugarðasambandinu Smári Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar, er nýr formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ). Smári var kosinn einróma á 26. aðalfundi sambandsins sem haldinn var á laugardag. 16.5.2022 11:06
Segir ljóst að ekkert breytist verði Framsókn varahjól undir bíl fallins meirihluta Óformlegar viðræður eiga sér nú stað í Reykjavík. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að lítið verði um breytingar ákveði Framsókn að vera „varahjól“ undir föllnum meirihluta. Hildur mun eiga fundi með nokkrum oddvitum í dag en vill lítið gefa upp um hverja hún hittir. 16.5.2022 10:27
Ræðir íslensku við Apple, Amazon og Microsoft Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hélt í gærkvöldi til Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem hann leiðir íslenska sendinefnd á fund bandarískra stórfyrirtækja í tækniiðnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. 16.5.2022 10:10