Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Modestas Antanavicius er fundinn Modestas er fundinn heill á húfi og þakkar lögreglan þeim sem tóku þátt í leitinni og veittu ábendingar. 18.7.2022 00:03
Allir að verða tilbúnir fyrir sögulega Þjóðhátíð: „Þetta er svo töfrandi staður“ Mikil eftirvænting er í Eyjamönnum fyrir Þjóðhátíð þetta árið eftir vonbrigði síðustu tvö ár. Í annað sinn í sögunni er Þjóðhátíðarlagið samið og flutt af konu og í fyrsta sinn verða aðeins konur á sviðinu þar sem Kvennakór Vestmannaeyja verður með Klöru Elias að flytja lagið Eyjanótt. Fyrsta æfingin fór fram á dögunum og er óhætt að segja að einhverjir verði með gæsahúð eftir tvær vikur. 17.7.2022 22:58
Taka við búskap á síðasta bóndabænum í Reyðarfirði Síðasti bóndinn í hinum forna Reyðarfjarðarhreppi, sem er að hætta eftir hálfrar aldar búskap, spáir því að sauðfjárrækt leggist af sem atvinnugrein á Íslandi á næstu tuttugu til þrjátíu árum. Dóttir hans og tengdasonur ætla þó að taka við. 17.7.2022 22:11
Vill sjá borgarstjórn bregðast við: „Þeir losna ekkert við mig“ Ekkert aðgengi er fyrir fólk í hjólastól að Viðey þrátt fyrir ítrekuð áköll um úrbætur. Formaður MND félagsins segir það svíða að geta ekki komist allt eins og aðrir og krefst viðbragða frá borginni. 17.7.2022 21:32
Matarvagn Silla valinn besti götubitinn í þriðja sinn Silli kokkur var ótvíræður sigurvegari hinnar árlegu Götubitahátíðar sem haldin var í Hljómskálagarðinum nú um helgina. 17.7.2022 19:51
Staðan vissulega flókin og ýmislegt sem starfshópurinn þarf að vinna úr Áform heilbrigðisráðherra um afnám refsingar fyrir veikasta hópinn hefur vakið hörð viðbrögð en heilbrigðisráðherra segir ekkert ákveðið í þeim málum. Mikil vinna sé fram undan hjá starfshópi við framkvæmdina, meðal annars með tilliti til laga. Of snemmt sé að ræða hvort refsing verði afnumin fyrir vörslu neysluskammta fyrir alla. 17.7.2022 18:34
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sérfræðingar vara við mannfalli í sögulegri hitabylgju sem gengur yfir Bretland á morgun og gróðureldar í Evrópu valda áfram gríðarlegri eyðileggingu. Íslendingur í Lundúnum segir borgarbúa uggandi, þeir búi sig undir það versta. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 17.7.2022 18:11
Tókust hart á um arðinn af sjávarútveginum Á Sprengisandi í dag tókust Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á um söluna á sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi og um sjávarútvegsmál almennt. 17.7.2022 16:46
Tomasz Þór þvertekur fyrir að hafa beitt heimilisofbeldi Tomasz Þór Veruson fjallagarpur segist aldrei hafa beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Í upphafi árs var hann borinn þungum ásökunum tveggja fyrrverandi kærasta hans, þar á meðal Vilborgar Örnu Gissurardóttur. 17.7.2022 14:12
Rangt að ákveða að hljómsveitir séu ekki starfandi án þess að heyra í þeim Elíza Geirsdóttir Newman segir rangt af skipuleggjanda tónleikanna Rokks í Reykjavík að ákveða að Kolrassa krókríðandi væri ekki starfandi án þess að tékka á því. Hún segir tónlistarmannaúrvalið á tónleikunum tímaskekkju og til að breyta karlastemmingu í rokki þurfi að gefa konum pláss. 17.7.2022 12:47
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Viðvaranir hafa þegar tekið gildi í Bretlandi vegna ofsahita. Veðurfræðingur segir mikla hættu á ferð og að hitabylgjur verði tíðari á næstu árum. Norðurlandabúar gætu þurft að undirbúa sig sérstaklega. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 17.7.2022 11:49
Húsnæðismál, afnám refsingar og salan á Vísi Ólafur Margeirsson hagfræðingur ætlar að ræða húsnæðismál, sveiflur á verði og framboði og leggja fram hugmyndir um hvernig megi gera betur í Sprengisandi dagsins. 17.7.2022 10:04
Út að borða vopnaður sveðju og klæddur stunguvesti Nokkur erill var hjá lögreglunni í gærkvöldi samkvæmt dagbók lögreglunnar. Meðal annars þurfti að hafa afskipti af tveimur vopnuðum mönnum, nokkrir voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og nokkrir voru handteknir vegna líkamsárása. 17.7.2022 08:32
Ánægðir íbúar á Djúpavogi - Algjör perla „Staðurinn er algjör perla, hér er æðislegt að ala upp börn, það er allt gott við staðinn og samfélagið er einstakt.“ Hér er verið að vitna í ummæli nokkurra íbúa á Djúpavogi, sem Magnús Hlynur heimsótti. 17.7.2022 08:03
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti farþega af skemmtiferðaskipi Farþegi á skemmtiferðaskipi var sóttur af þyrlu Landhelgisgæslunnar grunnt undan Vestfjörðum í kvöld. Mun farþeginn hafa verið slasaður. 16.7.2022 22:23
Bakslag í baráttunni og framkvæmdin ómöguleg: „Þetta er bara stórkostlega galin hugmynd“ Þingflokksformaður Pírata segir hugmyndir um að afnema refsingu aðeins fyrir ákveðinn hóp stórgallaðar og spyr hvort halda eigi fíklaskrá ríkisins. Sérfræðingur í skaðaminnkun segir tillöguna bakslag í baráttunni og telur hana á skjön við lög. 16.7.2022 21:58
Með nóg á prjónunum en einbeitir sér að sjóböðunum í bili Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði voru formlega opnuð í dag en böðin eru byggð í kringum gömlu náttúrulaugina í fjöruborðinu í Hvammsvík og samanstanda af átta misheitum laugum. 16.7.2022 20:42
Sárt að vera skilinn eftir á bryggjunni Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, kallar eftir því að Reykjavíkurborg ráðist í úrbætur á aðgengi að Viðey fyrir fólk sem notast við hjólastól. Metnaðarleysið og sýndarmennskan sé alger. 16.7.2022 18:55
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingflokksformaður Pírata segir hugmyndir um að afnema refsingu aðeins fyrir ákveðinn hóp stórgallaðar og spyr hvort halda eigi fíklaskrá ríkisins. Sérfræðingur í skaðaminnkun segir tillöguna bakslag í baráttunni og telur hana á skjön við lög. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 16.7.2022 18:00
Keppandi í Laugavegshlaupinu slappur og sóttur með þyrlu Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti keppanda í Laugavegshlaupinu í dag eftir keppandinn hafði komið að drykkjarstöðinni í Emstrum. Þar var tekin ákvörðun að hann gæti ekki haldið áfram. 16.7.2022 17:29
Leggja loksins ljósleiðara í Vestmannaeyjum Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa hafist handa við að leggja ljósleiðara í þéttbýli en fyrstu áfangarnir hófust í sumar. Bæjarstjóri segir þetta löngu tímabært, enda nútímasamgöngur að búa við gott netsamband. 16.7.2022 16:32
Tillaga heilbrigðisráðherra sé fráleit: „Þetta er bara ekki framkvæmanlegt og örugglega ekki löglegt“ Tillaga heilbrigðisráðherra um afnám refsingar fyrir veikasta hóp fíkla hefur vakið hörð viðbrögð en formaður Snarrótarinnar efast að tillagan sé í samræmi við lög. Ákvörðun ráðherrans sé til þess fallin að slá ryki í augun á fólki þar sem ljóst sé að afglæpavæðing neysluskammta verði tekin af dagskrá. 16.7.2022 15:00
Ekki rétt að engar konur spili á umdeildum tónleikum Tónleikarnir Rokk í Reykjavík hafa vakið athygli vegna algjörs skorts á konum í hópi fjörutíu tónlistarmanna á auglýsingaplakati tónleikanna. Einn skipuleggjenda segir umræðuna bjagaða, það sé ekki rétt að engar konur komi fram á tónleikunum og að skipuleggjendur séu að vinna í því að bæta hljómsveitum með konum við. 16.7.2022 12:38
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tillaga heilbrigðisráðherra um afnám refsingar fyrir veikasta hóp fíkla hefur vakið hörð viðbrögð en formaður Snarrótarinnar efast um að tillagan sé í samræmi við lög. Ákvörðun ráðherrans sé til þess fallin að slá ryki í augun á fólki þar sem ljóst er að afglæpavæðing neysluskammta verði tekin af dagskrá. 16.7.2022 11:40
Sveitarstjórastöður séu eyrnamerktar „flokksgæðingum“ og „fjóskörlum allra saurbæja landsins“ Glúmur Baldvinsson segist hafa verið að gera að gamni sínu að stuða Framsóknarmenn þegar hann sótti um í hinar ellefu lausu sveitarstjórastöður landsins. Hann hafi ekki átt von á að vera virtur viðlits en segir umhugsunarvert að fólk sem sæki um sé ekki einu sinni boðað í viðtal. 16.7.2022 08:27
Lúsmýið úlfaldi úr mýflugu Meindýraeyðir telur að lúsmýið sé komið til að vera. Það virki að eitra fyrir flugunum en með því að eitra sé verið að drepa fleiri skordýrategundir í leiðinni. 15.7.2022 23:52
Icelandair færst of mikið í fang og þurfi samkeppni Kári Jónasson, leiðsögumaður og fyrrverandi fréttamaður, segir að Icelandair þurfi samkeppni á innanlandsflugsmarkaði þar sem félagið hafi færst of mikið í fang. Samkeppni sé öllum til góðs. 15.7.2022 22:26
Fiskur fyrir 16 milljónir á dag hjá G.RUN í Grundarfirði Eitt glæsilegasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, G.RUN í Grundarfirði framleiðir fiskafurðir fyrir 16 milljónir króna á dag. Um 85 starfsmenn vinna hjá fyrirtækinu, sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá 1947. 15.7.2022 22:19
Allt fullt við höfnina og þurftu að kasta akkeri á Pollinum Þrjú skemmtiferðaskip höfðu boðað komu sína á Akureyri í dag en aðeins var pláss fyrir tvö þeirra við bryggjuna. Því þurfti eitt skipið að kasta akkeri á Pollinum. 15.7.2022 20:47
Orðalag dómsins „eitt það svívirðilegasta í seinni tíð“ Ráðgjafi hjá Stígamótum segir umdeilt orðalag í nýbirtum dómi í sifjaspellsmáli eitt það svívirðilegasta í seinni tíð. Varahéraðssaksóknari skilur að orðalagið þyki stuðandi en ekki megi taka orð dómarans úr samhengi. 15.7.2022 20:00
Ókunnugt fólk skrái sig ítrekað til heimilis hjá honum Íbúi í Vík í Mýrdal hefur lent í því þrisvar upp á síðkastið að ókunnugt fólk skrái sig til heimilis í þinglýstri eign hans, án hans samþykkis. Hann gagnrýnir Þjóðskrá fyrir að leyfa hverjum sem er að skrá heimilisfangið sitt hvar sem er, án leyfis eiganda eignarinnar. 15.7.2022 18:33
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segir Úkraínuforseti frá því að öll úkraínska þjóðin syrgi hina fjögurra ára gömlu Lísu sem féll ásamt tuttugu og tveimur öðrum í eldflaugaárás Rússa á borgina Vinnytsia í gær. Hún var með downs og var nýkominn af talnámskeiði með móður sinni þegar eldflaug Rússa sprakk. Móðir hennar er mikið særð ásamt um hundrað öðrum. 15.7.2022 18:25
Sigríður ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar Sigríður Ingvarsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjallabyggðar. 15.7.2022 16:43
Vill afnema refsingu fyrir veikasta hópinn Heilbrigðisráðuneytið hefur sett tillögu að lagasetningu í samráðsgátt sem lýtur að afnámi refsingar fyrir veikasta hóp fíkla í tilteknum tilvikum með tiltekið magn og efni ávana- og fíkniefna. 15.7.2022 16:13
Ákváðu að hafa sjúklinga frekar á barnadeild en á gangi Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir gagnrýni hjúkrunarfræðinga á barnadeild sjúkrahússins réttmæta en að stjórnendur hafi einfaldlega ákveðið að betra væri að fullorðnir sjúklingar hlytu þjónustu á barnadeild frekar en á gangi spítalans. Þá sé mannekla í heilbrigðiskerfinu orðin vítahringur. 15.7.2022 14:53
Stjörnu-Sævar leysir ráðgátuna Röntgensjónaukinn XI Calibur frá NASA sást á himni víðs vegar um land á miðvikudagskvöld og vakti mikla athygli hjá þeim sem hann sáu. 15.7.2022 12:13
Krefjast þess að hvalveiðar verði bannaðar með mótmælum á Austurvelli Fern íslensk og erlend dýraverndarsamtök krefjast þess að hvalveiðar verði með öllu bannaðar á Íslandi á mótmælum sem boðað hefur verið til á Austurvelli í dag. Formaður einna samtakanna er ekki bjartsýnn á að boðaðar reglugerðarbreytingar matvælaráðherra í dýraverndarátt muni breyta nokkru. 15.7.2022 12:10
„Við lokum á nýnasista og rasista“ Vefhýsingarfyrirtækið 1984 hefur það að stefnu sinni að greiða fyrir mál- og fjölmiðlafrelsi í hvívetna, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. Það muni ekki láta undan „alvarlegum netárásum“ og „hótunum“ aðila sem ítrekað reyni að fá fyrirtækið til að loka vefsíðum sem það hýsi. 15.7.2022 11:56
Rannsóknarvinna fyrir fyrstu lotu Borgarlínu hafin Vegagerðin vinnur nú að jarðvegsrannsóknum og burðarþolsmælingum á höfuðborgarsvæðinu á þeim stöðum þar sem sérrými fyrstu lotu Borgarlínunnar kemur til með að liggja. 15.7.2022 11:36
Ríkið hefur greitt þremur bætur vegna bólusetningar gegn Covid-19 Íslenska ríkið hefur greitt þremur skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum bólusetningar gegn Covid-19. Tugir bótakrafna eru í vinnslu hjá Sjúkratryggingum Íslands. 15.7.2022 11:05
Hjúkrunarfræðingar barnadeildar segja öryggi sjúklinga ógnað Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri sendu frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem þau lýsa yfir óánægju sinni vegna notkunar spítalans á rúmum deildarinnar fyrir fullorðið fólk. Hjúkrunarfræðingarnir telja öryggi sjúklinga ógnað hvort sem um börn eða fullorðna sé að ræða. 15.7.2022 10:32
Rúmar tvær milljónir króna á mánuði fyrir að stýra Mosfellsbæ Bæjarráð Mosfellsbæjar gerði ráðningarsamning við Regínu Ásvaldsdóttur, nýjan bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í gær. Samkvæmt ráðningarsamningi fær Regína rúmlega tvær milljónir króna í mánaðarlaun, ökutækjastyrk að andvirði 150 þúsund króna auk greidds síma og nets. 15.7.2022 10:01
Vilja breyta aðalskipulagi til að fjölga lóðum í Hvammsvík um 25 Til stendur að fjölga lóðum í Hvammsvík í Kjósarhreppi um 25 en framkvæmdirnar kalla á breytingar á aðalskipulagi á svæðinu. Landeigendur eru Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW air og móðir hans Anna Skúladóttir, í gegnum félagið Flúðir ehf. 15.7.2022 07:28
Hætt við fund því boðun kom einni mínútu of seint Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar sleit fundi sínum í gær eftir að bókun barst frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins þess efnis að fundarboð hafi borist of seint og fundurinn því ólögmætur. Allt sem hefði verið samþykkt á fundinum hefði því ekki verið gilt. 15.7.2022 07:01
Sjö ára drengur bitinn af hundi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í póstnúmerinu 113 í gærkvöldi eftir að sjö ára drengur var bitinn af hundi. Drengurinn var með bitsár á öðru lærinu og var roði í kringum sárið. 15.7.2022 06:53