Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stórt bjarg hrunið úr Gálgaklettum norður af Grindavík Stórt bjarg hefur hrunið úr Gálgaklettum í Sundhnúk, norðan við Grindavík og skammt austan við fjallið Þorbjörn. Bjargið hefur mögulega hrunið vegna stóra skjálftans sem reið yfir í gærkvöldi og Grindvíkingar segja að sé sá stærsti á undanförnum árum. 1.8.2022 22:54
Boðnar mörg hundruð þúsund krónur fyrir lengsta skegg á Íslandi Við höldum að hann eigi lengsta skegg á Íslandi, húsasmiðurinn fyrrverandi sem býr í Gaulverjabænum við ósa Þjórsár. Kristján Már Unnarsson tók sig til og mældi skeggið en það er svo langt að það er búið að bjóða eigandanum mörg hundruð þúsund krónur fyrir það. 1.8.2022 22:20
Íbúar Grindavíkur undirbúnir fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra Almannavarnir funduðu í hádeginu vegna jarðskjálftahrinu sem hófst á Reykjanesi um helgina. Skjálftahrinan hefur valdið nokkru tjóni á munum í Grindavík og segir íbúi að fólk sé undirbúið fyrir sömu atburðarrás og fyrir eldgosið í fyrra. 1.8.2022 21:04
Þyrluflugstjóri kominn aftur til vinnu þótt rannsókn lögreglu standi enn yfir Þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni sem var sendur í leyfi vegna gruns um kynferðisbrot sneri aftur til starfa í dag þrátt fyrir að málið sé enn til rannsóknar hjá lögreglu. Að sögn Landhelgisgæslunnar er mannekla ástæðan fyrir endurkomu mannsins. 1.8.2022 20:41
Gunnar Axel nýr bæjarstjóri Voga Gunnar Axel Axelsson, viðskipta- og stjórnsýslufræðingur og deildarstjóri á efnahagssviði Hagstofu Íslands hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga og tekur við af Ásgeiri Eiríkssyni sem var bæjarstjóri Voga í rúm tíu ár. Alls sóttu fjörutíu umsækjendur um starfið. 1.8.2022 20:05
Falleg saga frá bráðamóttökunni á Selfossi Hjón í Hveragerði tóku að sér sjö og tíu ára bræður frá Bretlandi og leyfðu þeim að gista hjá sér í nótt. Ástæðan er sú að eiginmaðurinn er yfirlæknir á Selfossi og hafði verið að sinna bráðveikri mömmu drengjanna, sem þurfti að fara í bráðaaðgerð í Reykjavík. Bræðurnir höfðu ekki í nein hús að venda og tóku hjónin drengina að sér með leyfi barnaverndaryfirvalda. 1.8.2022 20:05
„Vil bara að þau séu sett til hliðar“ Arndís Hrund Guðmarsdóttir notar hjólastól og hefur upp á síðkastið lent í því í að komast ekki ferðar sinnar vegna rafhlaupahjóla sem búið er að leggja þvert yfir gangstéttina. Hún hefur ekkert á móti hjólunum sjálfum en telur menningarbreytingar þörf svo fólk leggi hjólunum betur. 1.8.2022 19:28
Tiltölulega róleg helgi hjá lögreglunni og betri en margir þorðu að vona Landsmenn skemmtu sér nokkuð vel um verslunarmannahelgina en að sögn lögreglu var helgin betri en menn þorðu að vona eftir faraldurinn. Á Akureyri og í Vestmannaeyjum var lítið um alvarleg brot en þó á eftir að gera helgina frekar upp. 1.8.2022 18:55
Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Snarpur jarðskjálfti að stærð 3,1 reið yfir klukkan 18:03 og fannst vel á Suðurlandsbraut, þaðan sem þessi frétt er skrifuð. Samkvæmt sjálfvirkum mælingum á vef Veðurstofunnar átti hann upptök sín 1,2 kílómetra suðvestan af Keili. 1.8.2022 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Almannavarnir funduðu í dag vegna skjálftahrinu. Íbúar í Grindavík undirbúa sig undir eldgos á sama tíma og það hrinur úr hillum. Við ræðum við bæjarstjóra Grindavíkurbæjar og skoðum tjón á munum. 1.8.2022 18:01
„Það brotnaði allt sem brotnað gat“ Grindvíkingar hafa margir hverjir orðið fyrir miklu tjóni vegna skjálftahrinunnar sem stendur nú yfir. „Þetta venst aldrei,“ segir eigandi blómaverslunar sem kom að verslunin sinni líkt og sprengju hefði verið varpað á verslunina. 1.8.2022 16:41
Trufluðu tökur, skvettu á tökumann og kýldu hann í andlitið Grímur Jón Sigurðsson, tökumaður Ríkisútvarpsins, lenti í heldur leiðinlegu atviki við tökur fyrir fréttatíma RÚV á aðfaranótt sunnudags á Þjóðhátíð. Ungir menn sem höfðu verið að trufla tökur hans og Hólmfríðar Dagnýjar Friðjónsdóttur fréttamanns, skvettu drykk yfir Grím og myndavél hans og slógu svo til hans skömmu síðar. Málið er nú í höndum lögreglu. 1.8.2022 15:40
Upplifun íbúa að skjálftinn í gær hafi verið sá kröftugasti á síðustu árum Skjálftinn sem reið yfir rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi var einn sá kröftugasti á þeim rúmum tveimur árum sem skjálftavirkni hefur verið viðvarandi á Reykjanesi, að mati margra Grindvíkinga. Innanstokksmunir féllu úr hillum og eitthvað var um smávægilegar skemmdir. Almannavarnanefnd fundar í hádeginu um skjálftana og bæjarstjóri segir vel fylgst með stöðunni. 1.8.2022 14:01
„Stund sem ég mun aldrei gleyma“ Þjóðhátíðargestir pakka nú saman eftir fjölmenna og langþráða hátíð. Magnús Kjartan Eyjólfsson, sem stýrði brekkusöngnum í Herjólfsdal í gær segir að stemningin hafi verið ótrúleg og greinilegt að biðin eftir brekkusöng án takmarkana var langþráð. 1.8.2022 12:57
Lögreglan beitti piparúða Lögreglan á Norðurlandi eystra beitti piparúða til að stöðva slagsmál í miðbæ Akureyrar um fimmleytið í nótt. Enginn var handtekinn en lögregla hlúði að þeim sem urðu fyrir piparúðanum. 1.8.2022 12:20
„Það virðist vera ný innskotavirkni hafin aftur á Reykjanesskaganum“ Ríflega 1.400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum síðan á miðnætti - þar af fimm yfir 4,0 að stærð. Landsmenn mega gera ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni næstu daga en jarðeðlisfræðingur telur að ný innskotavirkni sé hafin í kringum ganginn sem myndaðist við eldgosið í Geldingadölum. 1.8.2022 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Jörð heldur áfram að skjálfa en snarpur skjálfti fannst víða um klukkan ellefu. Ríflega 1.400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum síðan á miðnætti, þar af fimm yfir 4,0 að stærð. Landsmenn mega gera ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni næstu daga en jarðeðlisfræðingur telur að ný innskotavirkni sé hafin í kringum ganginn sem myndaðist við eldgosið í Geldingadölum. 1.8.2022 11:45
Snarpur skjálfti fannst víðsvegar Snarpur skjálfti 4,0 að stærð mældist rétt eftir klukkan 11 í dag. Skjálftinn mældist um 4,3 kílómetra austur af Keili, á fimm kílómetra dýpi. 1.8.2022 11:08
Glampandi sól í Eyjum Gert er ráð fyrir glampandi sól í Vestmannaeyjum í dag en nokkuð stífri norðanátt. Heilt yfir er gert ráð fyrir norðvestlægri átt, víð 5-13 metrum á sekúndu, rigning öðru hvoru á norðanverðu landinu og skýjað með köflum. Aðeins bætir í vind með norðlægri átt eftir hádegi 8-15 metrum á sekúndu vestantil en annars hægari vindur. 1.8.2022 09:41
Dekkið þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl Fjögurra bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í Kollafirði klukkan hálf þrjú í gær. Hjólbarði losnaði af kerru sem bíll var með í eftirdragi, þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt, með þeim afleiðingum að fjórar bifreiðar skullu saman. 1.8.2022 08:00
Skammbyssan reyndist leikfangabyssa Maður var handtekinn klukkan hálf sex í morgun eftir að lögreglu barst tilkynning um að hann væri vopnaður skammbyssu við Smáralind í Kópavogi. Í ljós kom að um leikfangabyssu væri að ræða. Maðurinn reyndist aðeins sautján ára gamall og var foreldrum og barnaverndarnefnd gert viðvart. 1.8.2022 07:43
Öflugur skjálfti fannst víða Snarpur jarðskjálfti 4,7 að stærð varð um hálfan kílómetra vestur af Litla-Hrút rétt fyrir klukkan hálf sjö í morgun. Skjálftinn mældist á 3,8 kílómetra dýpi og er sá næstkröftugasti sem mælst hefur síðan jarðskjálftahrinan hófst um hádegisbil á laugardag. 1.8.2022 07:15
Stór skjálfti korter yfir þrjú í nótt Skjálfti að stærð 4,3 átti sér stað fjóra kílómetra suðsuðvestan af Fagradalsfjalli klukkan fjórtán mínútur yfir þrjú í nótt og fannst skjálftinn á höfuðborgarsvæðinu. Jarðskjálftahrina við Fagradalsfjall hefur staðið yfir frá hádegi á laugardag og telja sérfræðingar kvikuhlaup valda virkninni. 1.8.2022 03:32
Fjölmargir skjálftar yfir 3,0 að stærð fylgt eftir stóra skjálftanum Jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir skammt frá Grindavík klukkan 17:48 í dag. Skjálftinn er sá langstærsti í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Jörðin á Reykjanesskaga hefur haldið áfram að skjálfa allverulega síðan þá og hafa sextán skjálftar stærri en 3,0 riðið yfir. 31.7.2022 23:43
Grindvíkingar séu tilbúnir Frá miðnætti hafa meira en fjörutíu skjálftar af stærðinni þrír eða meira mælst á Reykjanesskaga. Stór hluti þeirra hefur mælst við Fagradalsfjall, þar sem gaus í mars á síðasta ári. Í aðdraganda gossins var jarðskjálftavirkni á svæðinu mikil, og Grindvíkingar ekki farið varhluta af því. 31.7.2022 22:56
Kaldavatnslaust í Grindavík eftir stóra skjálftann Aðveitulögn fyrir kalt vatn inn í Grindavík fór í sundur við Svartsengi eftir stóra skjálftann sem reið yfir rétt fyrir sex á Reykjanesskaga. Það er því kaldavatnslaust hjá íbúum bæjarins en unnið er að því að gera við lögnina. 31.7.2022 22:41
Stríðsárasafn nýtur starfskrafta eldri borgara og unglingspilts Eldri borgarar í Fjarðabyggð annast gæslu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði, samkvæmt sérstökum samningi við sveitarfélagið. Fjórtán ára piltur, klæddur ógnvekjandi hermannabúningi, fékk þó sumarstarf með gamla fólkinu. 31.7.2022 22:02
Kökuskreytingar slógu í gegn á Selfossi Á þriðja hundrað unglingar tóku þátt í kökuskreytingasamkeppni síðdegis á Unglingalandsmótinu á Selfossi þar sem þemað var eldgos og flugeldasýning. 31.7.2022 21:30
Tilkynningar um tjón í Grindavík Almannavarnir segja tilkynningar um tjón hafa borist frá Grindavík eftir að skjálfti að stærð 5,4 reið yfir um þrjá kílómetra austnorðaustur af bænum rétt fyrir sex í kvöld. Engar tilkynningar um slys af fólki hafi hins vegar borist. 31.7.2022 20:04
Stærsti skjálftinn í hrinunni til þessa Stærsti skjálftinn til þessa í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir tólf mínútur í sex í kvöld og var 5,4 að stærð. Skjálftarnir í dag hafa mælst á grynnra dýpi en í gær sem sérfræðingur segir benda til kvikuhlaups. 31.7.2022 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skjálfti af stærðinni 4,7 varð á Reykjanesskaga nú skömmu fyrir fréttir. Allar viðbragðsáætlanir eru tilbúnar hjá Grindavíkurbæ, ef eldgos hefst skammt frá bænum. Jarðskjálftahrina hefur verið á svæðinu, en skjálftar dagsins í dag mælast á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Grindvíkingar eru sumir orðnir þreyttir á hristingnum. 31.7.2022 18:28
Stór skjálfti að stærð 5,4 við Fagradalsfjall Stærsti skjálftinn í yfirstandandi jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall reið yfir klukkan 17:48. Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var skjálftinn 5,4 að stærð. 31.7.2022 17:49
Jarðskjálftarnir færast nær yfirborðinu Jarðskjálftarnir sem riðið hafa yfir á Reykjanesi í dag mælast nú á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Sérfræðingur segir það merki um að kvika gæti verið að færast nær yfirborðinu. 31.7.2022 14:22
Unglingalandsmótinu lýkur í kvöld með flugeldasýningu Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra segir að Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hafi sannað sig, sem ein umfangsmesta og best sótta hátíðin um verslunarmannahelgina. 31.7.2022 14:03
Suðurlandið markaðssett á kostnað annarra landshluta Vörumerkið Ísland á ekki við um aðra hluta landsins en Suðurströndina og suð-vesturhornið. Þetta segja aðilar í ferðaþjónustu sem telja markaðssetningu opinberra aðila hafa farið illa með aðra hluta landsins. 31.7.2022 14:01
Nokkurra bíla árekstur við Esjurætur Nokkurra bíla árekstur varð í Kollafirði nærri Esjurótum skömmu fyrir klukkan hálf tvö í dag. Slökkvilið er með töluverðan viðbúnað á svæðinu og lokað var fyrir umferð. Þrír voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar með minniháttar meiðsl. 31.7.2022 13:56
Slagsmál og ofdrykkja slökkviliðinu til ama Mikill erill var hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í nótt, en rekja má hluta álagsins til mikillar ölvunar í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og nótt. Lögreglan hafði þá í nógu að snúast víða um land. 31.7.2022 12:19
Fjórir skrifstofumenn fyrir hvern klínískan starfsmann Formaður nýrrar stjórnar Landspítalans, segir að fjórir til fimm skrifstofumenn hafi verið ráðnir á síðustu árum á móti einum klínískum starfsmanni. Hagræðingar á borð við fækkun starfsfólks á spítalanum komi mögulega til greina til að mæta erfiðri fjárhagsstöðu spítalans. 31.7.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Jarðskjálftarnir sem riðið hafa yfir á Reykjanesi í dag mælast nú á minna dýpi en skjálftar gærdagsins. Sérfræðingur segir það merki um að kvika gæti verið að færast nær yfirborðinu. Við ræðum við náttúruvársérfræðing í fréttatímanum. 31.7.2022 11:45
Sprengisandur: Efnahagsmál, Bandaríkin, Landspítalinn og ferðamannaiðnaðurinn Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, verður fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar í þjóðmálaþættinum Sprengisandi sem hefst klukkan 10 á Bylgjunni. Ásgeir mun fara yfir efnahagshorfur í heiminum, meðal annars með tilliti til innrásarinnar í Úkraínu og kórónuveirufaraldursins. 31.7.2022 09:31
Sérsveitin á Akureyri kölluð út vegna vopnaðs manns Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá embættinu. 31.7.2022 09:21
Leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega Slökkviliðið segir leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega en farið var í fjölmarga sjúkraflutninga í nótt. Flest útköllin voru tengd skemmtanalífi í miðborginni. 31.7.2022 08:32
Vopnað rán í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn. 31.7.2022 07:43
Stór skjálfti í nótt Jarðskjálfti 4,2 að stærð mældist laust eftir klukkan fjögur í nótt austnorður af Fagradalsfjalli. Um 2.500 skjálftar hafa mælst síðan í gær og þar af 700 síðan um miðnætti. 31.7.2022 07:18
Harmoníkkuhátíð á Borg í Grímsnesi alla helgina Mikið stuð og stemming er á Borg í Grímsnesi um helgina þar sem harmonikkusnillingar landsins eru komnir saman til að skemmta sér og öðrum. Harmonikkuböll eru haldin á kvöldin í félagsheimilinu og þess á milli er spilað saman á tjaldsvæðinu. Einnig er spilað á sög á svæðinu og á saxófóna. 30.7.2022 23:02