Fleiri fréttir Mikil ölvun í nótt og grunur um tvær byrlanir Mikið hefur verið um að vera í borginni í gærkvöld í nótt en lögregla hafði í nógu að snúast, meðal annars vegna hávaðatilkynninga og ölvunar í miðbænum. Grunur er um að tveimur hafi verið byrlað í nótt. 11.9.2022 07:26 Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. 10.9.2022 23:19 „Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. 10.9.2022 21:28 Sjálfstæðismenn gagnrýna biðraðir í mötuneytinu Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði til að ráðist verði í stafræna umbreytingu við skráningu á máltíðum starfsmanna Reykjavíkurborgar í ráðhúsinu og á Höfðatorgi á fundi borgarráðs á fimmtudag. Starfsmenn borgarinnar þurfa að handskrá kennitölur sínar, eða jafnvel skrifa þær niður, til þess að fá hádegismat. 10.9.2022 20:54 Bjóða fólki heim til sín að tína hamp Hjónin á bænum Hrúti í Ásahreppi hafa tekið upp á þeirri nýjung að bjóða fólki að koma heim til sín og tína sinn eigin hamp, sem hægt er að nýta í te, olíur og margt fleira. 10.9.2022 20:09 Börn grýttu hús í Breiðholti Töluverður erill hefur verið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um klukkan fjögur var tilkynnt um hóp tíu til fimmtán ára barna að grýta hús í Seljahverfi í Breiðholti. 10.9.2022 19:39 „Það er ótrúlega mikil skömm og niðurlæging sem fylgir þessu“ Mikil skömm og niðurlæging felst í því að vera byrlað að sögn stjórnarkonu Öfga sem upplifði sjálf að verið væri að eitra fyrir henni. Ekki sé um neitt annað að ræða en frelsissviptingu en þolendur fái sjaldnast aðstoð. Lögregla, heilbrigðisyfirvöld og samfélagið allt þurfi að vinna saman til að útrýma fordómafullu viðhorfi í garð fórnarlamba byrlana. 10.9.2022 19:26 Þór verður Grímseyingum innan handar Varðskipið Þór er á leið til Grímseyjar þar sem áhöfn hans verður til aðstoðar íbúum ef þess þarf. Óvissustig Almannavarna hefur verið sett á vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. 10.9.2022 18:09 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikil skömm og niðurlæging felst í því að vera byrlað. Þetta segir kona sem byrlað hefur verið ólyfjan. Hún segir þolendur sjaldnast fá aðstoð þrátt fyrir að um algjöra frelsissviptingu sé að ræða. 10.9.2022 18:00 Magnús Norðdahl er látinn Magnús Norðdahl, flugstjóri og fimmfaldur Íslandsmeistari í listflugi lést á heimili sínu á fimmtudaginn, 94 ára að aldri. 10.9.2022 17:17 Veiddi lax nokkur sumur á Íslandi Karl þriðji Bretakonungur lagði leið sína til Íslands nokkur sumur á áttunda og níunda áratugi síðustu aldar til þess að veiða hér lax. Konungurinn er mikill laxveiðimaður og í grunninn Íslandsvinur. 10.9.2022 14:58 Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. 10.9.2022 13:55 Risastór áfangi í íslenska bakarabransanum Ríflega sjötíu bakarar eru staddir hér á landi til að taka þátt á heimsþingi bakara og kökugerðamanna. Í kvöld fer fram gala-kvöldverður á Grand Hótel þar sem heiðraðir verða bakari ársins og kökugerðamaður ársins, en sá síðarnefndi er Íslendingur. Nöfn sigurvegara verða tilkynnt í kvöld. 10.9.2022 13:09 Lögregla skoðar verkferla þegar kemur að byrlunum: „Við verðum einfaldlega að taka þessu mjög alvarlega“ Lögregla vinnur að bættum verkferlum í málum þar sem grunur er um byrlun. Verkefnastjóri aðgerða gegn ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra segir að taka þurfi fjölda frásagna af byrlun alvarlega og telur samfélagið og yfirvöld geta gert betur í málaflokknum. Á endanum liggi ábyrgðin þó alltaf hjá þeim sem byrla en ekki þolendum. 10.9.2022 12:38 Hádegisfréttir Bylgjunnar Karl þriðji var lýstur konungur Bretlands við hátíðlega athöfn í Sankti Jakobs-höll fyrr í dag. Hann hét því þar að helga lífi sínu þjónustu við bresku þjóðina og sagði mikla huggun í allri þeirri samúð sem fjölskyldunni hefur verið sýnd eftir andlát drottningarinnar. Karl, sem nú er formlega tekinn við, er Íslandsvinur eins og rifjað er upp í fjölmiðlum í dag. 10.9.2022 11:43 Hundruð jarðskjálfta mælst síðan á miðnætti Ríflega 730 jarðskjálftar hafa mælst í námunda við Grímsey síðan á miðnætti. Stærsti skjálftinn var 4,0 að stærð og mældist klukkan korter í þrjú í nótt. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir. 10.9.2022 10:47 Ferðamennirnir kjósa íslenskuna en Íslendingar frekar skoðanalausir Erlendir ferðamenn virðast upp til hópa kjósa að íslenskir veitingastaðir, skemmtistaðir og verslanir heiti íslenskum nöfnum. Landsmenn virðast ekki hafa jafnsterkar skoðanir á málunum. 10.9.2022 09:01 „Ansi þéttum sólarhring lokið“ „Þá er ansi þéttum sólarhring lokið,“ segir í færslu frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en slökkviliðið fór í samtals 135 sjúkraflutninga síðasta sólarhringinn, þar af 43 forgangsflutninga. 10.9.2022 07:48 Hljóp upp á borð, sparkaði í hluti og gekk berserksgang Lögregla handtók karlmann á tólfta tímanum í gærkvöldi en sá gekk berserksgang og var í mjög annarlegu ástandi fyrir utan veitingastað í miðborg Reykjavíkur. 10.9.2022 07:24 Á götunni eftir altjón í bruna 9.9.2022 20:30 Öflug eftirlit með umferð flugvéla, skipa og kafbáta við Ísland Mikið eftirlit er með umferð flugvéla, skipa og kafbáta yfir og í kringum Ísland á vegum NATO og Bandaríkjahers í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Um sextíu manna flugsveit frá danska hernum er að ljúka loftrýmisgæslu á Íslandi eftir mánaðardvöl. 9.9.2022 20:06 Matvælaráðherra borðar mikið af lambakjöti Það eru stórir réttardagar á Suðurlandi þessa dagana því réttað var í Hrunaréttum og Skafholtsréttum í dag og í Skeiðaréttum og Tungnaréttum á morgun. Matvælaráðherra, sem segist borða mikið af lambakjöti dró í dilka í Skaftholtsréttum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 9.9.2022 20:05 Leita upplýsinga vegna meints innbrots í Tunguskógi Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar innbrot sem á að hafa átt sér stað í Tunguskógi í Skutulsfirði einhvern tímann frá klukkan níu í gærkvöldi þar til klukkan ellefu í morgun. 9.9.2022 19:14 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fyrsta ávarpi sínu til þjóðarinnar í dag þakkaði Karl þriðji nýr konungur Bretlands Elísabetu annarri móður sinni fyrir þá ást og umhyggju sem hún sýndi fjölskyldu sinni og óbilandi trúnað hennar og skyldurækni í störfum og samskiptum við þegna hennar. 9.9.2022 18:05 Styttan af Jóni Sigurðssyni glansar eftir gott bað Styttan af Jóni Sigurðssyni við Austurvöll hefur verið snyrt, böðuð og vöxuð ásamt öðru af sérfræðingum hjá Listasafni Reykjavíkur. Það mætti með sanni segja að styttan glansi í dagsljósinu eftir handtök sérfræðinganna. 9.9.2022 17:24 Lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftanna Lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna yfirstandandi kraftmikillar jarðskjálftahrinu í námunda við Grímsey. Ríkislögreglustjóri tekur þessa ákvörðun í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra. 9.9.2022 16:24 Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. 9.9.2022 15:00 Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. 9.9.2022 14:11 Telur að spurningar um tilgang krúnunnar verði áleitnari eftir fráfall Elísabetar Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að spurningin um tilgang krúnunnar muni leita ákaft á breskan almenning og á þjóðir Breska samveldisins í kjölfar fráfalls Elísabetar Bretlandsdrottningar. Hann segir sjálfsmynd bresku þjóðarinnar vera á hreyfingu nú á miklu umbreytingaskeiði en að fráfall þjóðarleiðtoga sem naut virðingar og hylli muni, til skamms tíma, hafa sameinandi áhrif á bresku þjóðina. 9.9.2022 14:00 Skjálfti rúmlega fjórir að stærð austur af Grímsey Klukkan tuttugu mínútur yfir eitt í dag varð skjálfti 4,1 að stærð sextán kílómetra austur af Grímsey. Tilkynningar hafa borist frá fólki á Akureyri og Siglufirði sem fann fyrir skjálftanum. 9.9.2022 13:52 Hæsta tré ársins hlýtur titilinn „Tré ársins“ Skógræktarfélag Íslands hefur tilnefnt hæsta tré landsins til heiðurstitilsins „Tré ársins“ hjá félaginu þetta árið. Um er að ræða Sitkagreni í Skógarlundi við Systrafoss á Kirkjubæjarklaustri, sem er um þrjátíu metrar að hæð. 9.9.2022 13:30 Óvænt stödd í miðri þjóðarsorg „Það er svakalega löng röð af fólki með blóm: Sólblóm og hvítar rósir. Það stendur í marga klukkutíma í röð til að fá að leggja blómin sín upp að hallarveggnum,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir sem er stödd fyrir utan Buckingham höll í Lundúnum þegar blaðamaður nær af henni tali. 9.9.2022 13:09 Eðlilegra að hafa embættið þar sem mannfjöldinn er mestur Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það koma á óvart að ákveðið hafi verið að sameinað embætti sýslumanns Íslands verði á Húsvík. Eðlilegra sé að hafa embættið þar sem mesti mannfjöldinn er. 9.9.2022 13:07 Hádegisfréttir Bylgjunnar Andlát Elísabetar Bretadrottningar, aðsetur sýslumanns Íslands og umspil um sæti á HM verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 9.9.2022 11:56 Ættingjar fordæma útgáfu bókarinnar Elspa – saga konu Ættingjar Elspu Sigríðar Salberg Olsen fordæma útgáfu nýrrar ævisögu hennar sem Guðrún Frímannsdóttir félagsráðgjafi skráði. 9.9.2022 10:56 „Þau völdu ekki að vera á flótta en þau þurfa að gera það“ Kona sem flúði Bosníustríðið ásamt fjölskyldu sinni til Íslands fyrir tuttugu og sex árum sér nú um að taka á móti mesta straumi flóttafólks til Reykjavíkur frá upphafi. Hún segir flóttafólk afar ánægt með að geta hitt Íslendinga á félagsmiðstöðvum borgarinnar. 9.9.2022 09:00 Grípa til mjög sérstakrar aðgerðar vegna fækkunar í íþróttafélaginu Vogar á Vatnsleysuströnd voru heimsóttir í Íslandi í dag, þar sem menn hafa hleypt af stokk átaki sem hefur vakið nokkra athygli. Í „ástarmánuði“ Þróttar í Vogum eru íbúar hvattir til að leggja sitt af mörkum svo börnum fjölgi á ný í bæjarfélaginu. Allt um málið í innslaginu hér að ofan. 9.9.2022 08:01 Heilu hraukarnir af ólesnum dagblöðum fara beint í ruslið Reglulega má sjá kvartanir í hinum ýmsu hverfishópum á Facebook, þess efnis að dagblöðin hafi ekki borist. Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að sumir blaðberar liggja á því lúalaginu að demba blöðum dagsins beint í ruslið. 9.9.2022 08:01 Reyndi að komast um borð í skemmtiferðaskip Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út þegar tilkynnt var um ölvaðan mann sem var til vandræða við Skarfabakka í Reykjavík, en maðurinn hafði reynt að komast um borð við skemmtiferðaskip sem þar lá við bryggju. 9.9.2022 07:42 Sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík, þegar öll sýslumannasembætti landsins hafa verið sameinuð undir eina stjórn. 9.9.2022 07:10 Stofnar ný samtök og vill fara að rótum fíknivandans Ný notendasamtök hafa verið stofnuð hér á landi til að bæta lífsgæði fíkla og berjast fyrir umbótum. Formaður samtakanna segir að nú sé þeirra tími kominn en allir beri skaða af þegar jaðarsettir hópar fá ekki mannsæmandi meðferð. 9.9.2022 07:00 Píeta hafi bjargað fjölskyldunni eftir andlát Gísla Rúnars: „Það þarf einhver að raða saman brotunum“ Leikkonan Edda Björgvinsdóttir segir Píeta samtökin hafa bjargað fjölskyldu sinni eftir að leikarinn Gísli Rúnar Jónsson féll fyrir eigin hendi fyrir rúmum tveimur árum. Hún segir lífsnauðsynlegt að fólk viti af þeim úrræðum sem standa til boða. Formaður stjórnar Píeta samtakanna segir það markmiðið að vekja aftur von hjá fólki sem er ef til vill búið að missa hana. 8.9.2022 21:52 Katrín minnist Elísabetar: „Ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar marki endalok merkilegs tímabils í sögðu Vesturlanda. Hún minnist Elísabetar, sem hún hitti árið 2019, af mikilli hlýju og segist skilja hvers vegna drottningin var jafn dáð af þjóð sinni og raun ber vitni. 8.9.2022 19:53 Var í golfi þegar hann komst að því að hann hefði unnið 20 milljónir Dregið var í dag í Happdrætti DAS og var aðalvinningur 40 milljónir, sextugur maður úr Kópavogi vann 20 af þeim milljónum á einfaldan miða. Hann valdi miðanúmerið sérstaklega út frá fæðingarári föður síns, 1912. 8.9.2022 19:11 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Elísabet önnur Bretlandsdrottning er látin, 96 ára að aldri. Heilsu drottninarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún var stödd í kastala sínum í Skotlandi þegar hún lést. Enginn hefur setið lengur á konungsstóli í Bretlandi en hún. 8.9.2022 18:01 Sjá næstu 50 fréttir
Mikil ölvun í nótt og grunur um tvær byrlanir Mikið hefur verið um að vera í borginni í gærkvöld í nótt en lögregla hafði í nógu að snúast, meðal annars vegna hávaðatilkynninga og ölvunar í miðbænum. Grunur er um að tveimur hafi verið byrlað í nótt. 11.9.2022 07:26
Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. 10.9.2022 23:19
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. 10.9.2022 21:28
Sjálfstæðismenn gagnrýna biðraðir í mötuneytinu Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði til að ráðist verði í stafræna umbreytingu við skráningu á máltíðum starfsmanna Reykjavíkurborgar í ráðhúsinu og á Höfðatorgi á fundi borgarráðs á fimmtudag. Starfsmenn borgarinnar þurfa að handskrá kennitölur sínar, eða jafnvel skrifa þær niður, til þess að fá hádegismat. 10.9.2022 20:54
Bjóða fólki heim til sín að tína hamp Hjónin á bænum Hrúti í Ásahreppi hafa tekið upp á þeirri nýjung að bjóða fólki að koma heim til sín og tína sinn eigin hamp, sem hægt er að nýta í te, olíur og margt fleira. 10.9.2022 20:09
Börn grýttu hús í Breiðholti Töluverður erill hefur verið hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um klukkan fjögur var tilkynnt um hóp tíu til fimmtán ára barna að grýta hús í Seljahverfi í Breiðholti. 10.9.2022 19:39
„Það er ótrúlega mikil skömm og niðurlæging sem fylgir þessu“ Mikil skömm og niðurlæging felst í því að vera byrlað að sögn stjórnarkonu Öfga sem upplifði sjálf að verið væri að eitra fyrir henni. Ekki sé um neitt annað að ræða en frelsissviptingu en þolendur fái sjaldnast aðstoð. Lögregla, heilbrigðisyfirvöld og samfélagið allt þurfi að vinna saman til að útrýma fordómafullu viðhorfi í garð fórnarlamba byrlana. 10.9.2022 19:26
Þór verður Grímseyingum innan handar Varðskipið Þór er á leið til Grímseyjar þar sem áhöfn hans verður til aðstoðar íbúum ef þess þarf. Óvissustig Almannavarna hefur verið sett á vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. 10.9.2022 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikil skömm og niðurlæging felst í því að vera byrlað. Þetta segir kona sem byrlað hefur verið ólyfjan. Hún segir þolendur sjaldnast fá aðstoð þrátt fyrir að um algjöra frelsissviptingu sé að ræða. 10.9.2022 18:00
Magnús Norðdahl er látinn Magnús Norðdahl, flugstjóri og fimmfaldur Íslandsmeistari í listflugi lést á heimili sínu á fimmtudaginn, 94 ára að aldri. 10.9.2022 17:17
Veiddi lax nokkur sumur á Íslandi Karl þriðji Bretakonungur lagði leið sína til Íslands nokkur sumur á áttunda og níunda áratugi síðustu aldar til þess að veiða hér lax. Konungurinn er mikill laxveiðimaður og í grunninn Íslandsvinur. 10.9.2022 14:58
Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. 10.9.2022 13:55
Risastór áfangi í íslenska bakarabransanum Ríflega sjötíu bakarar eru staddir hér á landi til að taka þátt á heimsþingi bakara og kökugerðamanna. Í kvöld fer fram gala-kvöldverður á Grand Hótel þar sem heiðraðir verða bakari ársins og kökugerðamaður ársins, en sá síðarnefndi er Íslendingur. Nöfn sigurvegara verða tilkynnt í kvöld. 10.9.2022 13:09
Lögregla skoðar verkferla þegar kemur að byrlunum: „Við verðum einfaldlega að taka þessu mjög alvarlega“ Lögregla vinnur að bættum verkferlum í málum þar sem grunur er um byrlun. Verkefnastjóri aðgerða gegn ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra segir að taka þurfi fjölda frásagna af byrlun alvarlega og telur samfélagið og yfirvöld geta gert betur í málaflokknum. Á endanum liggi ábyrgðin þó alltaf hjá þeim sem byrla en ekki þolendum. 10.9.2022 12:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Karl þriðji var lýstur konungur Bretlands við hátíðlega athöfn í Sankti Jakobs-höll fyrr í dag. Hann hét því þar að helga lífi sínu þjónustu við bresku þjóðina og sagði mikla huggun í allri þeirri samúð sem fjölskyldunni hefur verið sýnd eftir andlát drottningarinnar. Karl, sem nú er formlega tekinn við, er Íslandsvinur eins og rifjað er upp í fjölmiðlum í dag. 10.9.2022 11:43
Hundruð jarðskjálfta mælst síðan á miðnætti Ríflega 730 jarðskjálftar hafa mælst í námunda við Grímsey síðan á miðnætti. Stærsti skjálftinn var 4,0 að stærð og mældist klukkan korter í þrjú í nótt. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir. 10.9.2022 10:47
Ferðamennirnir kjósa íslenskuna en Íslendingar frekar skoðanalausir Erlendir ferðamenn virðast upp til hópa kjósa að íslenskir veitingastaðir, skemmtistaðir og verslanir heiti íslenskum nöfnum. Landsmenn virðast ekki hafa jafnsterkar skoðanir á málunum. 10.9.2022 09:01
„Ansi þéttum sólarhring lokið“ „Þá er ansi þéttum sólarhring lokið,“ segir í færslu frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en slökkviliðið fór í samtals 135 sjúkraflutninga síðasta sólarhringinn, þar af 43 forgangsflutninga. 10.9.2022 07:48
Hljóp upp á borð, sparkaði í hluti og gekk berserksgang Lögregla handtók karlmann á tólfta tímanum í gærkvöldi en sá gekk berserksgang og var í mjög annarlegu ástandi fyrir utan veitingastað í miðborg Reykjavíkur. 10.9.2022 07:24
Öflug eftirlit með umferð flugvéla, skipa og kafbáta við Ísland Mikið eftirlit er með umferð flugvéla, skipa og kafbáta yfir og í kringum Ísland á vegum NATO og Bandaríkjahers í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Um sextíu manna flugsveit frá danska hernum er að ljúka loftrýmisgæslu á Íslandi eftir mánaðardvöl. 9.9.2022 20:06
Matvælaráðherra borðar mikið af lambakjöti Það eru stórir réttardagar á Suðurlandi þessa dagana því réttað var í Hrunaréttum og Skafholtsréttum í dag og í Skeiðaréttum og Tungnaréttum á morgun. Matvælaráðherra, sem segist borða mikið af lambakjöti dró í dilka í Skaftholtsréttum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 9.9.2022 20:05
Leita upplýsinga vegna meints innbrots í Tunguskógi Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar innbrot sem á að hafa átt sér stað í Tunguskógi í Skutulsfirði einhvern tímann frá klukkan níu í gærkvöldi þar til klukkan ellefu í morgun. 9.9.2022 19:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fyrsta ávarpi sínu til þjóðarinnar í dag þakkaði Karl þriðji nýr konungur Bretlands Elísabetu annarri móður sinni fyrir þá ást og umhyggju sem hún sýndi fjölskyldu sinni og óbilandi trúnað hennar og skyldurækni í störfum og samskiptum við þegna hennar. 9.9.2022 18:05
Styttan af Jóni Sigurðssyni glansar eftir gott bað Styttan af Jóni Sigurðssyni við Austurvöll hefur verið snyrt, böðuð og vöxuð ásamt öðru af sérfræðingum hjá Listasafni Reykjavíkur. Það mætti með sanni segja að styttan glansi í dagsljósinu eftir handtök sérfræðinganna. 9.9.2022 17:24
Lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftanna Lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna yfirstandandi kraftmikillar jarðskjálftahrinu í námunda við Grímsey. Ríkislögreglustjóri tekur þessa ákvörðun í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra. 9.9.2022 16:24
Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. 9.9.2022 15:00
Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. 9.9.2022 14:11
Telur að spurningar um tilgang krúnunnar verði áleitnari eftir fráfall Elísabetar Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að spurningin um tilgang krúnunnar muni leita ákaft á breskan almenning og á þjóðir Breska samveldisins í kjölfar fráfalls Elísabetar Bretlandsdrottningar. Hann segir sjálfsmynd bresku þjóðarinnar vera á hreyfingu nú á miklu umbreytingaskeiði en að fráfall þjóðarleiðtoga sem naut virðingar og hylli muni, til skamms tíma, hafa sameinandi áhrif á bresku þjóðina. 9.9.2022 14:00
Skjálfti rúmlega fjórir að stærð austur af Grímsey Klukkan tuttugu mínútur yfir eitt í dag varð skjálfti 4,1 að stærð sextán kílómetra austur af Grímsey. Tilkynningar hafa borist frá fólki á Akureyri og Siglufirði sem fann fyrir skjálftanum. 9.9.2022 13:52
Hæsta tré ársins hlýtur titilinn „Tré ársins“ Skógræktarfélag Íslands hefur tilnefnt hæsta tré landsins til heiðurstitilsins „Tré ársins“ hjá félaginu þetta árið. Um er að ræða Sitkagreni í Skógarlundi við Systrafoss á Kirkjubæjarklaustri, sem er um þrjátíu metrar að hæð. 9.9.2022 13:30
Óvænt stödd í miðri þjóðarsorg „Það er svakalega löng röð af fólki með blóm: Sólblóm og hvítar rósir. Það stendur í marga klukkutíma í röð til að fá að leggja blómin sín upp að hallarveggnum,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir sem er stödd fyrir utan Buckingham höll í Lundúnum þegar blaðamaður nær af henni tali. 9.9.2022 13:09
Eðlilegra að hafa embættið þar sem mannfjöldinn er mestur Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það koma á óvart að ákveðið hafi verið að sameinað embætti sýslumanns Íslands verði á Húsvík. Eðlilegra sé að hafa embættið þar sem mesti mannfjöldinn er. 9.9.2022 13:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Andlát Elísabetar Bretadrottningar, aðsetur sýslumanns Íslands og umspil um sæti á HM verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 9.9.2022 11:56
Ættingjar fordæma útgáfu bókarinnar Elspa – saga konu Ættingjar Elspu Sigríðar Salberg Olsen fordæma útgáfu nýrrar ævisögu hennar sem Guðrún Frímannsdóttir félagsráðgjafi skráði. 9.9.2022 10:56
„Þau völdu ekki að vera á flótta en þau þurfa að gera það“ Kona sem flúði Bosníustríðið ásamt fjölskyldu sinni til Íslands fyrir tuttugu og sex árum sér nú um að taka á móti mesta straumi flóttafólks til Reykjavíkur frá upphafi. Hún segir flóttafólk afar ánægt með að geta hitt Íslendinga á félagsmiðstöðvum borgarinnar. 9.9.2022 09:00
Grípa til mjög sérstakrar aðgerðar vegna fækkunar í íþróttafélaginu Vogar á Vatnsleysuströnd voru heimsóttir í Íslandi í dag, þar sem menn hafa hleypt af stokk átaki sem hefur vakið nokkra athygli. Í „ástarmánuði“ Þróttar í Vogum eru íbúar hvattir til að leggja sitt af mörkum svo börnum fjölgi á ný í bæjarfélaginu. Allt um málið í innslaginu hér að ofan. 9.9.2022 08:01
Heilu hraukarnir af ólesnum dagblöðum fara beint í ruslið Reglulega má sjá kvartanir í hinum ýmsu hverfishópum á Facebook, þess efnis að dagblöðin hafi ekki borist. Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að sumir blaðberar liggja á því lúalaginu að demba blöðum dagsins beint í ruslið. 9.9.2022 08:01
Reyndi að komast um borð í skemmtiferðaskip Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út þegar tilkynnt var um ölvaðan mann sem var til vandræða við Skarfabakka í Reykjavík, en maðurinn hafði reynt að komast um borð við skemmtiferðaskip sem þar lá við bryggju. 9.9.2022 07:42
Sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík, þegar öll sýslumannasembætti landsins hafa verið sameinuð undir eina stjórn. 9.9.2022 07:10
Stofnar ný samtök og vill fara að rótum fíknivandans Ný notendasamtök hafa verið stofnuð hér á landi til að bæta lífsgæði fíkla og berjast fyrir umbótum. Formaður samtakanna segir að nú sé þeirra tími kominn en allir beri skaða af þegar jaðarsettir hópar fá ekki mannsæmandi meðferð. 9.9.2022 07:00
Píeta hafi bjargað fjölskyldunni eftir andlát Gísla Rúnars: „Það þarf einhver að raða saman brotunum“ Leikkonan Edda Björgvinsdóttir segir Píeta samtökin hafa bjargað fjölskyldu sinni eftir að leikarinn Gísli Rúnar Jónsson féll fyrir eigin hendi fyrir rúmum tveimur árum. Hún segir lífsnauðsynlegt að fólk viti af þeim úrræðum sem standa til boða. Formaður stjórnar Píeta samtakanna segir það markmiðið að vekja aftur von hjá fólki sem er ef til vill búið að missa hana. 8.9.2022 21:52
Katrín minnist Elísabetar: „Ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar marki endalok merkilegs tímabils í sögðu Vesturlanda. Hún minnist Elísabetar, sem hún hitti árið 2019, af mikilli hlýju og segist skilja hvers vegna drottningin var jafn dáð af þjóð sinni og raun ber vitni. 8.9.2022 19:53
Var í golfi þegar hann komst að því að hann hefði unnið 20 milljónir Dregið var í dag í Happdrætti DAS og var aðalvinningur 40 milljónir, sextugur maður úr Kópavogi vann 20 af þeim milljónum á einfaldan miða. Hann valdi miðanúmerið sérstaklega út frá fæðingarári föður síns, 1912. 8.9.2022 19:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Elísabet önnur Bretlandsdrottning er látin, 96 ára að aldri. Heilsu drottninarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún var stödd í kastala sínum í Skotlandi þegar hún lést. Enginn hefur setið lengur á konungsstóli í Bretlandi en hún. 8.9.2022 18:01