Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. 22.9.2022 18:01
Á þriðja ár í fangelsi fyrir fíkniefna-, valdstjórnar- og sóttvarnalagabrot Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi Reyni Örn Guðrúnarson í tveggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir ýmis fíkniefna- og umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Hann var einnig sakfelldur fyrir að brjóta sóttvarnalög með því að hunsa fyrirmæli um einangrun þegar hann var smitaður af Covid-19. 22.9.2022 17:30
Mögulegt að árásin hefði beinst gegn Alþingi eða lögreglu Mennirnir fjórir sem grunaðir eru um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi voru allir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri en refsing fyrir hryðjuverk er allt að lífstíðarfangelsi. Að sögn lögreglu má ætla að möguleg árás hefði beinst gegn Alþingi eða jafnvel lögreglu. Tengsl við erlend öfgasamtök eru til skoðunar. 22.9.2022 16:51
Halla hættir sem framkvæmdastjóri ASÍ: „Síðustu ár hafa einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi“ Halla Gunnarsdóttir hefur tilkynnt að hún muni ekki snúa til baka til starfa sem framkvæmdastjóri ASÍ eftir afsögn Drífu Snædal. Hún segir að um skemmtilegt og lærdómsríkt ferli hafi verið að ræða en síðustu ár hafi einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi og vinnuskilyrðin hafi oft verið óbærileg. Vonandi takist að leysa einhverja hnúta og komast að samkomulagi fyrir veturinn. 22.9.2022 15:34
Grunaðir um að undirbúa hryðjuverk Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglu grunar að mennirnir hafi haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi sem áttu að beinast gegn borgurum og stofnunum ríkisins. 22.9.2022 15:15
„Þessi umræða er miklu stærri og mikilvægari en einstaka leiksýning“ Leikstjóri verksins Sem á himni segir umræðuna sem hefur skapast um túlkun á fatlaðri persónu í verkinu vera særandi en gagnrýnendur segja persónuna barngerða og niðurlægða. Hún hafi viljað varpa ljósi á stöðu fatlaðra og ekki milda það eða fara með mjúkum höndum en fatlaðir eigi tilverurétt í leikhúsinu. Samfélagið þurfi að taka umræðuna þrátt fyrir að það sé sárt eða erfitt að horfa upp á. 22.9.2022 14:51
Ekki á dagskrá að sjá hjól- og fellihýsaeigendum fyrir geymsluplássi á sumrin Ekki er á dagskrá Reykjavíkurborgar að útvega eigendum hjól- og fellihýsa sérstakt geymslupláss fyrir farartækin yfir sumartímann. 22.9.2022 14:25
Skammaði þingmenn en ruglaðist sjálfur Birgir Ármansson, forseti Alþingis, var með örlítið málfarshorn á Alþingi í morgun. Þar skammaði hann þingmenn fyrir að ávarpa ekki aðra þingmenn í þriðju persónu. Honum urðu þó reyndar sjálfum á mistök sem hann þurfti síðar að leiðrétta. 22.9.2022 14:19
Eiríkur Björn og Rannveig nýir sviðsstjórar hjá borginni Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyrar, hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra nýs sameinaðs sviðs menningar, íþrótta- og tómstunda. 22.9.2022 13:41
Rúmlega 90 prósent þolenda vændis hafi orðið fyrir öðru kynferðisofbeldi Rúmlega 60 prósent þolenda vændis sem hafa leitað til Stígamóta frá árinu 2013 hafa reynt að fremja sjálfsvíg og um 92 prósent þeirra höfðu orðið fyrir öðru kynferðisofbeldi á lífsleiðinni, 80 prósent fyrir átján ára aldur. Þetta er meðal niðurstaða rannsóknar sem kynnt verða á málþingi um vændi í dag. Talskona Stígamóta segir mikilvægt að fólk átti sig á skaðlegum áhrifum vændis og varpi ljósi á gerendur. 22.9.2022 13:31
Aðventistar takast á um námugröft innan sinna vébanda Í kvöld hefst kjörfundur kirkju Sjöundadags aðventista en þar má búast við því að tekist verði á um óbeina aðkomu Aðventkirkjunnar að risavöxnu verkefni HeidelbergCement í Þorlákshöfn. Vel gæti komið til hallarbyltingar innan safnaðarins. 22.9.2022 13:31
Fornleifafræðingar funda með ráðherra vegna skipunar þjóðminjavarðar Stjórn Félags fornleifafræðinga fundar með safnamálaráðherra næstkomandi mánudag um ráðningu þjóðminjavarðar. Formaður félagsins segir réttast að draga ráðninguna til baka og byrja upp á nýtt. Staða Þjóðminjavarðar sé ein sú bitastæðasta innan safnastarfs á Íslandi. 22.9.2022 13:23
Slayer-dómur til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni K2 Agency Limited, umboðsfyrirtækis bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer, um að taka fyrir dóm Landsréttar þar sem aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice voru sýknaðir af hluta af kröfu um greiðslu skuldar við sveitina. 22.9.2022 13:18
Lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinist að fjölmiðlum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinast að frjálsum fjölmiðlum sem fjalla um viðkvæm samfélagsmál. Hún minnir á að hún hafi látið verkin tala þegar kemur að lagasetningu um vernd heimildarmanna fjölmiðla. 22.9.2022 13:16
Mikilvægt að skoða hvort konur treysti heilbrigðiskerfinu fyrir krabbameinsskimunum Yfirlæknir brjóstamiðstöðvar segir mikilvægt að skoða hvort konur treysti heilbrigðiskerfinu þegar kemur að krabbameinsskimunum í ljósi fyrri mistaka við greiningu leghálskrabbameina. Ný brjóstamiðstöð opnaði í morgun með það að markmiði að gera þjónustu við konur aðgengilegri. Heilbrigðisráðherra segir framtakið framfaraskref í heilsusögu kvenna. 22.9.2022 13:00
Fara fram á hámarksfangelsisdóm í saltdreifaramálinu Ákæruvaldið fer fram á hámarksfangelsisdóm yfir þeim sem ákærðir eru fyrir innflutning á fíkniefnum í saltdreifara og umfangsmikla kannabisræktum. Farið er fram á tveggja ára fangelsi á einn mann sem sá um fræðilega hlið ræktunarinnar. 22.9.2022 12:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Baráttan við glæpahópa, skipun þjóðminjavarðar, persónunjósnir og traust kvenna til heilbrigðiskerfisins verða meðað umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 22.9.2022 11:36
„Þurfum að fara að stíga fast til jarðar“ Fjórir voru handteknir í gær vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og viðamikil vopnalagabrot. Sérsveit tók þátt í aðgerðum, sem eru taldar hafa orðið til þess að afstýra hættuástandi á staðnum. Dómsmálaráðherra segir komið að því að stíga fast til jarðar í baráttunni við glæpahópa. Lögregla reiknar með að boða til blaðamannafundar í dag vegna aðgerðanna í gær. 22.9.2022 11:32
Opnað á umfjöllun um tjón Eyvindartungubænda Landsréttur hefur úrskurðað að mál bænda að Eyvindartungi í Bláskógabyggð gegn Vegagerðinni, sem höfðað var vegna aurskriðu sem féll á lóð þeirra við veginn um Lyngdalsheiði, skuli tekið til efnislegrar meðferðar í héraði. Héraðsdómur Suðurlands hafði áður vísað málinu frá dómi. 22.9.2022 11:30
Spurði hvort hann ætti að lána ríkisstjórninni hækjurnar eftir að þær duttu með látum Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, nýtti tækifærið er hækjur hans duttu í gólfið með látum í miðri ræðu hans á Alþingi, hvort hann ætti ekki að lána ríkisstjórninni hækjurnar til að halda uppi almannatryggingakerfinu. 22.9.2022 11:11
Sigríður Th. Erlendsdóttir er látin Sigríður Theodóra Erlendsdóttir sagnfræðingur er látin, 92 ára að aldri. Sigríður var brautryðjandi í rannsóknum á sögu kvenna og lagði með kennslu sinni og rannsóknum grunn að kvennasögu sem fræðigrein hér á landi. 22.9.2022 10:41
Erla hafi logið upp á þá án aðstoðar lögreglu Magnús Leópoldsson, einn þeirra sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga eftir að hafa verið bendlaður við hvarf Geirfinns Einarssonar árið 1976, segir niðurstöðu Endurupptökudóms vera hárrétta. Hann segir Erlu hafa logið um aðild hans að málinu án þess að vera undir pressu frá lögreglunni. 22.9.2022 10:31
Loka pósthúsunum í Grindavík, á Skagaströnd og Kópaskeri Pósturinn hyggst loka pósthúsum sínum í Grindavík, á Skagaströnd og á Kópaskeri um miðjan janúar á næsta ári. Í svörum frá Póstinum segir að engar uppsagnir séu þó fyrirhugaðar í tengslum við lokanirnar. 22.9.2022 10:23
Bein útsending: Útvarpsþing 2022 Stefna Ríkisútvarpsins til ársins 2026 verður kynnt á Útvarpsþingi sem fram fer í dag milli klukkan 9 og 12. Yfirskrift þingsins er „RÚV okkar allra – fyrir þig“. 22.9.2022 09:11
Fólk getur varla hreyft sig án þess að vera tekið upp Sérfræðingur í netöryggismálum segir notendaskilmála öryggismyndavéla oft fela í sér að söluaðili búnaðarins geti notað myndefnið á nánast hvaða hátt sem er. Þá séu myndavélar komnar það víða að fólk geti varla hreyft sig lengur án þess að eiga von á að vera tekið upp. 22.9.2022 08:01
Hafa ekkert heyrt frá Lilju Félag fornleifafræðinga hefur hvorki heyrt frá Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra né umboðsmanni Alþingis vegna kvörtun þeirra á skipun Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar. 22.9.2022 07:54
Beinir því til dómsmálaráðherra að taka lögræðislög til athugunar Umboðsmaður Alþingis hefur beint því til dómsmálaráðherra að taka til athugunar hvort rétt kunni að vera að skýra betur persónulegan rétt lögræðissviptra til kæru og aðkomu náinna aðstandenda að málefnum lögræðissviptra. 22.9.2022 07:53
Spéhræddir ferðamenn reyna að komast undan því að baða sig Starfsmenn sundlauga segja spéhræðslu valda því að fjöldi ferðamanna reynir að koma sér undan því að baða sig áður en farið er ofan í laugarnar. Frá þessu greinir Fréttablaðið og vísar til starfsmanna lauga í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. 22.9.2022 07:11
Samþykki í nauðgunarmáli undir smásjá Hæstaréttar Karlmaður sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni í Landsrétti fær áheyrn Hæstaréttar. Rétturinn telur að málið kunni að vera fordæmisgefandi eftir lagabreytingar um veitt samþykki. 22.9.2022 07:01
Skora á Persónuvernd að banna Google Analytics Persónuverndaryfirvöld í Danmörku hafa gefið út að notkun danskra vefsíðna á vefvöktunarforritinu Google Analytics brýtur í bága við persónuverndarlög landsins. Neytendasamtökin vilja banna notkun forritsins hér á landi. 22.9.2022 06:51
Starfsfólk elti mann sem hafði stolið úr verslun Starfsfólk verslunar í Kópavogi hringdi í lögreglu klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi eftir að maður hafði stolið úr búðinni. Starfsfólkið hafði elt manninn en lögreglan hafði síðar afskipti af honum og vettvangsskýrsla rituð. 22.9.2022 06:31
„Ég vona að þetta klárist fyrir minn dag“ Erla Bolladóttir skoðar að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að beiðni hennar um endurupptöku var hafnað. Hún glímir við ólæknandi krabbamein og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki á sig rögg og ljúki Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í eitt skipti fyrir öll. 21.9.2022 23:39
„Einhverskonar holdgerving staðalmynda um fatlað fólk“ Í Víðsjá í gær birtist gagnrýni sem fjallaði um verkið „Sem á himni“ sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Gagnrýnin hefur fengið mikla athygli síðan hún var birt og þá sérstaklega fyrir það að benda á meðferð og túlkun á fötluðum karakter innan verksins. Embla Guðrúnar- Ágústsdóttir, talskona hjá Tabú segir karakterinn birtast sem holdgerving staðalmynda um fatlað fólk. 21.9.2022 22:16
Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk. 21.9.2022 22:11
Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli. 21.9.2022 21:01
Nancy Pelosi og Katrín Jakobsdóttir funduðu á Capitol Hill Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings funduðu í dag í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna. 21.9.2022 21:00
Aukin tíðni krabbameina ekki vegna mengaðra vatnsbóla líkt og íbúar óttuðust Aukin tíðni krabbameina á Suðurnesjum má rekja til lifnaðarhátta frekar en mengunar í vatnsbólum en þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tíðni og orsökum krabbameina í Reykjanesbæ. Forstöðumaður Rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélagsins segir að ýmislegt sé hægt að gera til þess að draga úr krabbameinstilfellum, ekki aðeins á Suðurnesjum heldur landinu öllu. 21.9.2022 20:26
Starfsfólk Stúdentakjallarans þreytt á slæmri hegðun fótboltaáhugamanna Stúdentakjallarinn, skemmti-, lærdóms og griðastaður fyrir háskólasamfélagið sendi frá sér tilkynningu fyrr í kvöld. Þar kemur fram að starfsfólk hafi lent í hrottalegum dónaskap og ógnandi hegðun frá fótboltaáhugamönnum sem heimsæki staðinn. Haldi þessi hegðun áfram sé hætta á því að kjallarinn hætti að sýna fótboltaleiki. 21.9.2022 20:24
Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar í fjörunni í Vesturbæ Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar eru á meðal þess sem finna má í fjörunni í Vesturbæ nú þegar óhreinsað skólp hefur flætt þar um. Sérfræðingur hjá Veitum segir að draga þurfi úr blautþurrkunotkun með reglugerð. Fréttastofa kannaði hvað ratar úr klósettinu í fjöruna. 21.9.2022 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rússnesk stjórnvöld hóta notkun kjarnavopna og segja að öllum tiltækum ráðum verði beitt til þess að verja landið. Bandaríkjaforseti sakar Rússa um gróf brot gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og vestrænir leiðtogar segja herkvaðningu til marks um örvæntingu. 21.9.2022 18:01
„Mildi að engan sakaði“ Ríkislögreglustjóri segir hættuástandi hafa verið afstýrt í dag. Fjórir voru handteknir af sérsveit ríkislögreglustjóra en í yfirlýsingu segir að tveir þeirra hafi verið taldir vopnaðir og hættulegir og að handtökurnar snúi að skipulagðri glæpastarfsemi og vopnalagabrotum. 21.9.2022 17:51
Kristín Linda nýr formaður samninganefndar ríkisins Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, verður nýr formaður samninganefndar ríkisins. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þessa dagana er unnið að því að ljúka skipan samninganefndarinnar fyrir komandi kjaraviðræður. 21.9.2022 17:17
Bein útsending: Tryggjum leiðina.... 21. september er alþjóðlegur dagur heilabilunar. Efnt er til málþings Alzheimer-samtakanna í Háskólabíó sem hefst klukkan 16:30 og stendur í tvær klukkustundir. 21.9.2022 16:30
Fundu tvö kíló af fíkniefnum í töskum móður og sextán ára sonar Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 21.9.2022 16:13
Húsvíkingar ósáttir við himinhátt kattagjald og slæma þjónustu: „Það er mikið dýrahatur sem fólk finnur fyrir“ Nokkrir kattaeigendur á Húsavík hafa óskað eftir að afskrá ketti sína eftir að leyfisgjaldið hækkaði um rúmlega tíu þúsund krónur milli ára og er nú það hæsta á landinu öllu. Einn kattareigandi segir að um óskiljanlega hækkun sé að ræða, þar sem ekkert sé í raun innifalið í gjaldinu og kettirnir fái ekki einu sinni að fara út. Það sé sjálfsagt að kattaeigendur sýni ábyrgð en eitthvað þurfi að koma á móti. 21.9.2022 15:44