Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Erfitt að skrúfa fyrir Atlantshafið Sjór gengur yfir götur á Eyrinni á Akureyri og flætt hefur inn í hús. Varðstjóri hjá slökkviliði segir að sjórinn nái upp að hnjám, og erfitt sé að eiga við Atlantshafið. 25.9.2022 13:49
Rafmagnslaust frá Blöndu alla leið að Höfn í Hornafirði Rafmagnslaust er frá Blöndu á Norðurlandi alveg að Höfn í Hornafirði á Suðausturlandi. Unnið er að viðgerð og upplýsingafulltrúi Landsnets segir að röð atvika hafi valdið biluninni. 25.9.2022 13:15
Vilhjálmur sá þriðji sem ætlar í ritaraembættið Vilhjálmur Árnason, varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, hefur gefið kost á sér til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins. Hann er sá þriðji sem tilkynnir um framboð. Hann segist vilja efla Sjálfstæðisflokkinn um allt land og gefa rödd grasrótarinnar aukið vægi meðal forystu flokksins. 25.9.2022 13:06
Fyrstu íbúarnir eru að fara að flytja inn í nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi Mikil ánægja og tilhlökkun er á Selfossi með opnun nýs hjúkrunarheimilis á staðnum en þar verða sextíu íbúar, 40 af höfuðborgarsvæðinu og tuttugu af Suðurlandi. Fyrstu íbúarnir flytja inn í heimilið 10. október. 25.9.2022 13:06
Munu halda annan blaðamannafund vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks Annar blaðamannafundur verður haldinn í vikunni vegna rannsóknar lögreglu á skipulagningu hryðjuverks og vopnaframleiðslu. Blaðamannafundur var haldinn vegna málsins á fimmtudag en rannsókn málsins er í fullum gangi. 25.9.2022 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá fyrsta illviðri haustsins. Rauð viðvörun vegna veðurs hefur nú tekið gildi á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir ofsaveðri með vindhviðum allt að 45 metrum á sekúndu. Hættustig almannavarna hefur verið virkjað og björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu. 25.9.2022 11:36
Maður sleginn í höfuðið með bjórglasi fyrir utan skemmtistað Alvarleg líkamsárás átti sér stað í miðbæ Akureyrar í nótt. Maður var sleginn í höfuð með bjórglasi og skarst illa. Sá var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri en ekki er talið að mennirnir hafi þekkst fyrir. 25.9.2022 10:50
Sprengisandur: Handtakan, herskyldan og Alþýðusamband Íslands Handtaka nokkurra manna í vikunni og meint áform þeirra um hryðjuverk gagnvart stofnunun ríkisins verður til umræðu á Sprengisandi klukkan 10 í dag. Alþingismennirnir Vilhjálmur Árnason, Helga Vala Helgadóttir og Arndís Kristínardóttir ræða málið. 25.9.2022 10:00
Veðurvaktin: Rauða viðvörunin dottin úr gildi Búast má við ofsaveðri á Austfjörðum í dag. Veður er víða farið að versna en líklegt er að ekkert ferðaveður verði á stórum hluta landsins vegna lægðar sem mun draga heimskautaloft yfir landið. Viðbragðsaðilar eru á tánum og var hættustig almannavarna virkjað í gær. 25.9.2022 09:28
Dyravörður grunaður um að hafa kýlt mann ítrekað í höfuðið Tilkynnt var um líkamsárás við veitingastað í miðbænum í nótt. Þar er dyravörður grunaður um að hafa kýlt mann ítrekað í höfuðið. 25.9.2022 09:14
Mikið hvassviðri og alls konar foktjón Mikið hvassviðri var á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn lögreglu fuku hlutir í öllum hverfum, þar á meðal þakplötur, girðingar og fellihýsi. Veður versnar með deginum á austfjörðum þar sem rauð viðvörun er í gildi. 25.9.2022 08:25
„Mannkynsins vegna, þarf Úkraína að sigra“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra gagnrýndi innrás Rússa í Úkraínu harðlega í ræðu hennar á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir. Hún minnti á hið fornkveðna; að með lögum skal land byggja, en eigi með ólögum eyða. 24.9.2022 23:38
Létu eins og flugvél með 29 innanborðs hefði farist Um 200 manns tóku þátt í flugslysaæfingu Almannavarna og Isavia á Ísafjarðarflugvelli laugardaginn 24. september. Þar voru æfð viðbrögð við flugslysi á eða við flugvöllinn. 24.9.2022 22:09
Búist við mikilli ölduhæð Veðurviðvaranir eru í gildi um allt land næsta sólarhringinn. Varað er við því að samhliða veðrinu geti ölduhæð orðið mikil norðan og austan af landinu. 24.9.2022 20:50
Trampólínin á leiðinni inn og vetrardekkin á leið undir björgunarsveitarjeppana Björgunarsveitir á Austurlandi eru byrjaðir á að undirbúa sig undir ofsaveður sem von er á á morgun. Trampólínum í görðum hefur snarfækkað í dag, að minnsta kosti í Neskaupstað. 24.9.2022 19:59
Landlækni berast kvartanir vegna sálfræðings sem sagður er starfa án starfsleyfis Embætti landlæknis hefur fengið ábendingar um að karlmaður sinni störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa ekki til þess starfsleyfi. Fjölmargir kvarta undan því að hafa greitt honum fyrir ADHD greiningar sem hvergi séu teknar gildar. 24.9.2022 18:35
„Með því ljótara sem maður sér“ Búast má við ofsaveðri á Austfjörðum á morgun. Líklegt er að ekkert ferðaveður verði á stórum hluta landsins vegna lægðar sem mun draga heimskautaloft yfir landið. Viðbragsaðilar víða um land eru á tánum vegna veðurspárinnar. Íslendingar eru beðnir um að koma skilaboðum um veðrið á morgun til erlendra ferðamanna hér á landi. 24.9.2022 18:12
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Vísis klukkan hálf sjö segjum við frá því að Landlæknir hefur fengið ábendingar um að karlmaður sinni störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa ekki starfsleyfi. 24.9.2022 18:00
Óskuðu eftir tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir báðum mönnunum Lögregla fór fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverks. Héraðsdómur féllst aðeins á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir öðrum þeirra en úrskurðaði hinn í einnar viku gæsluvarðhald. 24.9.2022 16:10
Mikið þurfi að koma til svo farþegum sé vísað úr vélinni Ríka ástæðu þarf til að farþega sé vísað úr vélum Icelandair. Þetta segir talsmaður félagsins um atvik þar sem farþega var vísað úr vél í gær eftir að hafa lent í ágreiningi við áhöfn um grímuskyldu og handfarangur. 24.9.2022 13:35
„Við eigum ekki að haga okkur svona“ Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK hefur ýtt úr vör nýju átaki sem snýr að því að koma í veg fyrir og varpa ljósi á kynferðislegt áreiti á vinnustöðum. Átakið hófst með myndbandi þar sem málefninu er skellt upp með húmor, það mætti segja að orðatiltækið „öllu gríni fylgir einhver alvara“ eigi við hér. 24.9.2022 12:56
Um 300 hross í Laufskálarétt í dag Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld. 24.9.2022 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá því að einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. Við ræðum við verjanda annars þeirra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi. 24.9.2022 11:33
Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. 24.9.2022 10:33
Kúabændur eru brattir með sig og kýrnar sínar Kúabændur landsins hafa náð að auka meðalframleiðslu á hverja kú um 50% á síðustu 30 árum. Á sama tíma hefur mjólkurkúm fækkað um 20% á meðan framleiðslan hefur aukist um 43%. Færri kýr þarf því til að framleiða meiri mjólk og þannig hefur bæði orðið gríðarleg hagræðing og minni losun kolefnis í greininni. 24.9.2022 09:07
Stefnir í slag um ritaraembættið: „Að óbreyttu heldur fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“ Helgi Áss Grétarsson hefur gefið kost á sér til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins. Að óbreyttu telur hann að fylgi Sjálfstæðisflokksins muni halda áfram að hnigna. Það stefnir í slag um ritaraembættið en Bryndís Haraldsdóttir sækist einnig eftir kjöri. 24.9.2022 09:02
Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. 24.9.2022 07:38
Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum. 23.9.2022 22:31
Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi. 23.9.2022 22:25
Málið óvenjulegt miðað við hryðjuverkamál á Vesturlöndum Prófessor í stjórnmálafræði segir koma sér verulega á óvart að mál hafi komið upp hér á landi þar sem grunur er um að menn hafi verið að undirbúa hryðjuverk. Þá séu allar upplýsingar sem hafi komið fram mjög óvenjulegar og ekki í takt við sambærileg mál á Vesturlöndum. 23.9.2022 21:20
Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. 23.9.2022 21:06
Finnst fáránleg kenning að maðurinn tengist öfgahópum Aðstandendur eins þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að undirbúa hryðjuverk kannast alls ekki við að hann hafi aðhyllst öfgakennda hugmyndafræði eða átt í nokkrum samskiptum við erlenda pólitíska öfgahópa. Mennirnir tveir eru grunaðir um stórfellda framleiðslu á skotvopnum, meðal annars með þrívíddarprentara, og sölu á þeim. 23.9.2022 20:00
Áfram gríðarlegt álag á heilsugæslunni þó sumrinu sé að ljúka Gríðarlegt álag er á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins um þessar mundir. Mönnun er að komast í eðlilegt horf eftir sumarið en nú tekur við uppsöfnuð þörf eftir síðustu tvö ár. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir nokkra bið eftir tímum og býst við að róðurinn verði áfram þungur. 23.9.2022 19:31
Ótrúlegar tilviljanir lituðu sigur Þorláks Það var kraftaverki líkast þegar knattspyrnuliðið Þorlákur vann Boladeildina í knattspyrnu fyrr í vikunni, á afmælisdegi vinar liðsmanna sem féll fyrir eigin hendi - og liðið heitir eftir. Liðið fékk síðar að vita að sigurmarkið í hinum æsispennandi leik hefði verið skorað á nánast sömu mínútu og Þorlákur heitinn kom í heiminn á sínum tíma. 23.9.2022 19:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að lögregla hafði um langt skeið rannsakað mennina sem eru grunaðir um að undirbúa hryðjuverk vegna gruns um framleiðslu og sölu á skotvopnum. Við förum yfir atburðarás málsins en í skilaboðum milli mannanna sem eru í haldi komU fyrir orð eins og fjöldamorð samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 23.9.2022 18:00
Réðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgaði Landsréttur hefur staðfest átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgað henni þar sem hún lá sofandi í sofa íbúðarinnar. 23.9.2022 17:01
Óþolandi refhvörf í laxeldinu Fyrirtækjunum Norðanfiski og Fisherman hefur, samkvæmt úrskurði Neytendastofu, verið bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu á vöru sinni þess efnis að um sé að ræða vistvæna framleiðslu. Þau geti ekki sýnt fram á neitt slíkt. 23.9.2022 16:24
Stóralvarlegt ef mikið vopnabúr fylgi öfgafullum skoðunum Það er eitt að hafa skoðanir en það er stóralvarlegt og getur leitt af sér mikinn skaða ef því fylgir að búið sé að safna miklu vopnabúri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, aðspurð um hvort að hún hafi áhyggjur af því að öfgafullar skoðanir og viðhorf hafi hreiðrað um sig hér á landi. 23.9.2022 16:09
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. 23.9.2022 15:33
Þorsteinn metinn hæfastur umsækjenda um stöður héraðsdómara Dómnefnd hefur metið Þorstein Magnússon, lögmann og framkvæmdastjóra óbyggðanefndar, hæfastan umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness annars vegar og Héraðsdóm Reykjavíkur hins vegar. 23.9.2022 14:58
Misvægi atkvæða eftir búsetu gangi ekki árið 2022 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, vill gera vægi atkvæða milli kjördæma eins jafnt og stjórnarskrá heimilar. Það gangi ekki árið 2022 að vægi atkvæðis fari eftir því hvar viðkomandi búi á landinu. 23.9.2022 14:34
Dæmdur fyrir að valda höfuðkúpubroti við skemmtistað Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa veist að og hrint manni fyrir utan skemmtistað í nóvember 2018 með þeim afleiðingum að maðurinn skall með hnakka í götuna og höfuðkúpubrotnaði. 23.9.2022 13:45
Sigurður Ingi braut engar siðareglur að sögn forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi engar siðareglur brotið þegar hann lét umdeild ummæli falla um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. 23.9.2022 13:44
Allt að tveggja ára fangelsi fyrir ölvunarakstur á rafmagnshlaupahjóli Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á umferðarlögum er varða reiðhjól. Samkvæmt frumvarpinu bætast rafmagnshlaupahjól við lögin. Allt að tveggja ára fangelsi mun liggja við akstri hjólanna undir áhrifum áfengis. 23.9.2022 12:51
Frumvarp Jóns ekki tengt meintri hryðjuverkatilraun Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að til skoðunar sé að auka viðbúnað hjá lögreglu. Bregðast þurfi við aukinni skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. 23.9.2022 12:24