Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Þetta tíðkast víðar en við höldum“ Nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps mun taka til skoðunar kvörtun frá sumarbúastaðareiganda sem segir ákvörðun sveitarfélagsins um að láta aðkomufólk borga hærra gjald en heimamenn fyrir íþróttir og sund brjóta í bága við jafnræðisákvæði stjórnarskrár. Sveitarstjórinn segir fyrirkomulagið ekki ólíkt Loftbrúnni svokölluðu og frístundastyrkjum. 29.9.2022 12:36
Sprengjuhótunin barst til UPS í Bandaríkjunum Keflavíkurflugvelli var lokað í nótt eftir að flugvél var lent vegna sprengjuhótunar sem barst bandaríska flutningafyrirtækinu UPS og beindist að pakka um borð. Í honum reyndust vera eftirlíkingar af skotvopnum, flugeldar og vökvi sem lögregla er með til rannsóknar. 29.9.2022 12:08
Nemendur Laugarnesskóla hafa veikst vegna myglu Lekaskemmda hefur orðið vart í húsnæði Laugarnesskóla með tilheyrandi myglu. Ráðist var í heildarúttekt á skólanum eftir að nemendur og starfsfólk kenndu sér meins vegna myglunnar. 29.9.2022 12:07
Hádegisfréttir Bylgjunnar Sprengjuhótun, varnarmál, mismunun eftir lögheimili og nýtt björgunarskip verða á meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 29.9.2022 11:33
Margrét fær ekki endurgreitt og ætlar í hart við Icelandair Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsins Frettin.is, fær ekki endurgreitt frá Icelandair eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í lögreglufylgd í síðustu viku. Hún segist munu fara með málið fyrir dómstóla en Icelandair segir starfsfólk ekki átt annarra kost á völ en að fylgja henni frá borði. 29.9.2022 10:33
Guðlaugur Þór snarstækkaði á plakati á síðustu stundu Í Íslandi í dag var fjallað um auglýsingu fyrir opinn fund Sjálfstæðismanna um framtíð Reykjavíkurflugvallar í vikunni. Ekkert athugavert við fundinn; á honum tóku til máls ráðherra, borgarfulltrúar og vísindamenn. En skömmu fyrir fundinn var send út ný gerð af auglýsingunni í tölvupósti til flokksmanna. 29.9.2022 10:30
Segir FÍ hafa leyft fararstjórum að starfa þrátt fyrir ásakanir um áreitni Fyrrverandi forseti Ferðafélags Íslands segir að stjórn þess hafi leyft fararstjórum að starfa áfram þrátt fyrir ásakanir um áreitni. Ekki hafi verið tekið á öllum málum sem tengdust kynferðislegri áreitni eða ofbeldi innan félagsins í samræmi við reglur, þvert á yfirlýsingar nýs forseta. 29.9.2022 10:29
Fundu flugelda og eftirlíkingar af skotvopnum í pakka um borð Lögreglan á Suðurnesjum fann pakka um borð flugvélar UPS sem lenti á Keflavíkurflugvelli í gær en pakkinn innihélt flugelda og eftirlíkingar af skotvopnum. Málið er nú til rannsóknar en enginn var í hættu á meðan aðgerðum stóð að sögn lögreglu. Keflavíkurflugvelli var lokað í um fjóra klukkutíma í nótt vegna málsins. 29.9.2022 08:52
Gjaldskrá sundlaugarinnar í Grímsnesi standist ekki ákvæði stjórnarskrár Innviðaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps vegna þess fyrirkomulags sveitarfélagsins að láta þá sem ekki eru með lögheimili í sveitarfélaginu greiða margfalt hærra verð fyrir árskort í sund og líkamsrækt á Borg í Grímsnesi, samanborið við þá sem eru skráðir með lögheimili í sveitarfélaginu. 29.9.2022 08:00
„Við erum að tala um ekki bara hundruð milljarða heldur þúsundir milljarða“ Bergi Ebba Benediktssyni rithöfundi og fyrirlesara er margt til lista lagt; hið nýjasta er að vera sérlegur áhugamaður um lífeyrissjóði. Bergur segir í viðtali við Ísland í dag að hann hafi áhyggjur af „ídentítet“-leysi lífeyrissjóða, enda séu þeir á meðal mikilvægari stofnana í okkar samfélagi. 29.9.2022 08:00
Vilja fá séra Gunnar aftur þrátt fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni Sóknarnefnd Digraneskirkju vill fá séra Gunnar Sigurjónsson, fyrrverandi sóknarprest, aftur til starfa að sögn formanns sóknarnefndarinnar en biskup vék séra Gunnari úr embætti eftir að hann gerðist uppvís að kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi. Kirkjuvörður sakar formann sóknarnefndar um andlegt og líkamlegt obeldi og segir mikið uppnám í kirkjunni. 29.9.2022 07:22
Framsókn missir fjögur prósent milli mánaða Framsóknarflokkurinn mælist með 15,6 prósent fylgi í nýjustu könnun Maskínu sem framkvæmd var dagana 16. til 27. september. Flokkurinn var með 19,6 prósent í ágúst en tapaða fylgið virðist dreifast á Samfylkinguna, Viðreisn og Vinstri græna. 29.9.2022 07:01
Hvassviðri á suðurströndinni næstu daga Gera má ráð fyrir að vindhraði nái allt að átján metrum á sekúndum með suðurströndinni eftir hádegi í dag og rigningu víða um land. 29.9.2022 06:52
Mannekla veldur 77 prósent lengri afgreiðslutíma nauðgunarmála Meðalafgreiðslutími nauðgunarmála hjá lögreglu hefur lengst um 77 prósent frá árinu 2016; var þá 232 en var 413 dagar árið 2021. Þá hefur meðalafgreiðslutími kynferðisbrotamála almennt fjölgað um 33 prósent; úr 253 dögum í 343 daga. 29.9.2022 06:40
Engin sprengja fundist enn sem komið er Lögregla er enn að störfum á Keflavíkurflugvelli eftir að sprengjuhótun um borð í flugvél barst í gærkvöldi. Flugvellinum var lokað um tíma en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var opnað aftur fyrir umferð í nótt. Engin sprengja hefur enn fundist. 29.9.2022 06:23
Flugvélum beint frá Keflavík vegna sprengjuhótunar Flutningaflugvél UPS lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan ellefu í kvöld vegna sprengjuhótunar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var flugvélin á leið frá Köln í Þýskalandi til Kentucky í Bandaríkjunum þegar flugstjóri óskaði eftir leyfi til lendingar á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar. Ekki er vitað nánar hvernig sú hótun barst áhöfn flugvélarinnar. 29.9.2022 00:21
„Sé hina vélina skuggalega nálægt“ „Þetta var alveg mikill skellur,“ segir Evalilja Bjarnadóttir, ein þeirra farþega sem sátu í flugvél Icelandair sem lenti í árekstri á Heathrow fyrr í kvöld. 28.9.2022 22:35
Frumvarp og fyrirspurnahrina vegna stöðuveitinga án auglýsingar „Ég hef áhyggjur af þeim stjórnarháttum sem ríkisstjórnin er að festa í sessi þegar kemur að opinberum stöðuveitingum, þar sem ítrekað er skipað í æðstu embætti án auglýsingar og jafnvel á mjög hæpnum lagagrundvelli,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar sem hefur lagt fram skriflegar fyrirspurnir til fjögurra ráðherra um stöðuveitingar án auglýsingar. 28.9.2022 21:32
Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri við vél frá Koreanair á flugvellinum Heathrow í London í í kringum klukkan átta í kvöld. Enginn slasaðist og engar tafir eru á flugum til og frá flugvellinum. 28.9.2022 21:11
Íbúar sofi með lokaða glugga Lögreglan á Austurlandi biður fólk á Egilsstöðum um að hafa glugga lokaða bæði í kvöld í nótt til að tryggja að reykur berist ekki inn í hús eftir stórfelldan bruna í bænum. Búið er að ná tökum á brunanum. 28.9.2022 20:45
Gríðarlegt eignatjón, einhverjir virtu lokanir að vettugi Bílaleigur sitja uppi með gríðarlegt tjón eftir óveðrið á sunnudag. Hjá einni þeirra skemmdust hátt í þrjátíu bílar. Vegagerðin hefði mátt loka vegum fyrr og manna lokanir að sögn upplýsingafulltrúa. Verið er að skoða að setja upp fleiri lokunarhlið. 28.9.2022 20:01
Staðan í Evrópu helsta ógnin við íslenskan efnahag Íslensku efnahagslífi stafar helst ógn af mikilli óvissu í alþjóðamálum. Seðlabankastjóri telur að vaxtahækkanir og aðrar aðgerðir Seðlabankans séu farnar að skila árangri. Horft verði til þess við ákvörðun vaxta í næstu viku. 28.9.2022 19:22
Fleiri telja líkur á hryðjuverkaárás á Íslandi en áður Margfalt fleiri landsmenn telja líklegra en áður að mannskæð hryðjuverk verði framin á Íslandi. Þetta sýnir ný könnun en afbrotafræðingur segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart og vera viðbrögð við nýlegum fréttum. 28.9.2022 19:13
Rekstur Strætó virðist í blóma við fyrstu sýn Þeir fáu sem rýndu í ársreikning Strætó fyrir rekstrarárið 2021 hafa líklega rekið upp stór augu þegar kom að því að lesa graf um skuldir og eigið fé Strætó. Við fyrstu sýn virðist nefnilega eins og að reksturinn sé í miklum blóma en eins og kunnugt er hefur rekstur byggðasamlagsins Strætó verið heldur strembinn síðustu ár. Doktorsnemi í tölfræði vakti athygli á grafinu í dag en segir ekki víst að línuritin séu misvísandi af ásettu ráði. 28.9.2022 18:34
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds Lögreglan krefst áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir einum þeirra sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í tengslum við mögulega hryðjuverkaógn. Búið er að boða til blaðamannafundar á morgun klukkan þrjú. 28.9.2022 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Margfalt fleiri landsmenn telja líklegra en áður að mannskæð hryðjuverk verði framin á Íslandi. Þetta sýnir ný könnun en afbrotafræðingur segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart og vera viðbrögð við nýlegum fréttum. 28.9.2022 18:00
Þorsteinn og Þórhallur skipaðir héraðsdómarar Dómsmálaráðherra hefur skipað Þorstein Magnússon og Þórhall Hauk Þorvaldsson í embætti héraðsdómara. Þorsteinn mun hafa starfsstöð við héraðsdóm Reykjavíkur og Þórhallur við héraðsdóm Reykjaness. Þeir hefja störf 1. október næstkomandi. 28.9.2022 17:31
Opna þakið á þeim hluta sem brennur ekki Mikill eldur logar í húsnæði Vasks á Egilsstöðum. Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun með hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni, búsáhöld, leikföng og hannyrðavörur. Þvottahús er í húsinu þar sem talið er líklegt að eldurinn hafi komið upp. 28.9.2022 16:53
Dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn barnungri frænku en gengur laus á Íslandi Karlmaður sem var dæmdur í sex ára fangelsi í heimalandi sínu í Evrópu fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri frænku sinni hefur verið úrskurðaður í farbann. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum en dómstólar hér á landi höfnuðu kröfunni. 28.9.2022 15:06
Hálsaskógur óþekkjanlegur eftir storminn Skógræktarfélag Djúpavogs varð fyrir miklu tjóni vegna óveðursins sem geisaði nú fyrir skömmu. Lágmark þrjú hundruð tré eyðilögðust í Hálsaskógi vegna veðursins. Stuðningsmaður skógræktarfélagsins telur ekki mögulegt fyrir félagið að taka til og laga svæðið nema með utanaðkomandi aðstoð. 28.9.2022 14:14
Sýndu tveggja tíma þögult myndband í Rauðagerðismálinu Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hófst í Landsrétti í dag. Málsmeðferðin hófst á sýningu tveggja klukkustunda langs myndbands, þar sem fylgst er með aðilum máls á ferð þeirra kvöldið sem Armando Beqirai var ráðinn bani. 28.9.2022 13:45
Sigrún segir ástandið innan FÍ í tíð Önnu Dóru hafa verið orðið óbærilegt Sigrún Valbergsdóttir, nýr forseti Ferðafélags Íslands, hefur sent frá sér tilkynningu sem hún stílar á félaga í FÍ. Þar kemur meðal annars fram að vegna ólýðræðislegra vinnubragða Önnu Dóru Sæþórsdóttur hafi öll stjórnun verið komin í óefni. 28.9.2022 13:45
Öfugmæli að aðgerðir Seðlabankans komi heimilunum illa Seðlabankastjóri segir að þeir sem gagnrýnt hafi aðgerðir Seðlabankans til að ná niður verðbólgu fari með öfugmælavísur. Verðbólga sé mesti óvinur þeirra verst settu í þjóðfélaginu og nú bendi margt til að aðgerðir til á ná henni niður séu farnar að virka. 28.9.2022 12:23
Viðskiptavinir geti setið uppi með hundruð þúsunda króna reikning Bílaleigur landsins standa uppi með gríðarlegt tjón eftir fárviðri helgarinnar en margir bílar eru óökufærir. Bæði bílaleigurnar og viðskiptavinir bera kostnaðinn að sögn forstjóra Bílaleigu Akureyrar en hann getur numið nokkrum milljónum króna. Þar af gætu óheppnir ferðamenn þurft að greiða hundruð þúsunda. 28.9.2022 12:03
Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. 28.9.2022 11:55
Dularfullt lambsdráp í Skorradal Refaskytta í Borgarnesi birti myndskeið af sundurskotinni kind á Facebooksíðu sinni. Fyrir liggur að einhver hefur beint riffli sínum að kindinni og skotið hana. 28.9.2022 11:46
Krefjast þyngri refsingar fyrir morðið í Rauðagerði Ríkissaksóknari fer fram á að dómurinn yfir Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu verði þyngdur. Angjelin var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar 2021. 28.9.2022 11:25
Enginn blaðamannafundur í dag vegna meintrar hryðjuverkaógnar Ekkert verður af blaðamannafundi ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna rannsóknar þar sem grunur leikur á um skipulagningu hryðjuverka. Stefnt var að því að halda fundinn í dag en nú sé unnið út frá því að fundurinn verði á morgun samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. 28.9.2022 10:57
Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. 28.9.2022 08:01
Skoða flutning Hagskælinga í Korpuskóla Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. 28.9.2022 06:40
Beitti seljanda loftriffils rafvopni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo vegna brota á vopnalögum þar sem maður hafði ætlað að selja öðrum loftriffil. Kaupandinn hafði þar reynt að hafa af riffillinn af seljandanum án þess að greiða fyrir og beitt viðkomandi rafvopni (tazer). 28.9.2022 06:00
Gjaldskrárhækkun Strætó skárri kostur af tveimur slæmum Í dag var tilkynnt að gjaldskrá Strætó muni hækka um 12,5 prósent. Þetta er mesta hækkun sem fyrirtækið hefur farið í í langan tíma en fjárhagsstaða þess hefur verið afar slæm upp á síðkastið. Stjórnarmaður í Strætó segir nauðsynlegt að skoða hvernig eigi að reka almenningssamgöngur hér á landi. 27.9.2022 23:37
Munu leggja til að þjóðminjavörður verði færður í fyrra starf Félag fornleifafræðinga mun leggja til að nýskipaður þjóðminjavörður verði færður í fyrra starf sitt sem safnsstjóri Listasafns Íslands á fyrsta fundi nýstofnaðs samráðshóps um málefni höfuðsafnanna þriggja. 27.9.2022 22:47
Segir hundinn ekki hafa ráðist á neinn Eigandi hundsins á Akureyri sem fjallað var um á Vísi í gær segir hann ekki hafa bitið neinn heldur einungis hlaupið í átt að stúlku með annan hund í bandi. Hundurinn sé aldrei skilinn einn eftir úti. 27.9.2022 21:31
Aukið álag vegna barna á flótta Málum vegna barna af erlendum uppruna hefur fjölgað nokkuð hjá Barnavernd Reykjavíkur. Framkvæmdastjórinn segir aukið álag vegna barna á flótta eftir að covid takmörkunum var aflétt. 27.9.2022 21:01