Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óþolandi ástand vegna loftmengunar Stjórn Landverndar telur að íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi ítrekað upplifað óþolandi ástand vegna loftmengunar. Mengunin sé algjörlega óviðunandi og kallað er eftir aðgerðum. 11.1.2023 13:25
Ákærður fyrir að brjóta á konu sem lá sofandi í rúmi sínu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun með því að hafa farið í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem kona nokkur lá sofandi og brotið kynferðislega á henni. Krafist er fimm milljóna króna í miskabætur fyrir hönd konunnar. 11.1.2023 13:15
Móttaka flóttamanna sé ekki skammtímaverkefni Félagsmálaráðherra stefnir á að koma með frumvarp á haustmánuðum sem snýr að móttöku flóttamanna en engin slík löggjöf er til staðar. Áætlanir gera ráð fyrir að svipaður fjöldi flóttamanna komi til landsins í ár og í fyrra, eða allt að fimm þúsund manns. Fjögur sveitarfélög hafa skrifað undir samning við ríkið um móttöku flóttamanna en stærsta áskorunin er húsnæði. 11.1.2023 13:01
Reyndi að smygla kílói af kókaíni innvortis Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt ganverskan karlmann í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmu kílói af kókaíni til landsins. 11.1.2023 12:22
Tæplega 90 prósent uppruna íslenskrar orku seld úr landi Þótt nánast öll orka sem framleidd er á Íslandi teljist græn endurnýjanleg orka er hún það ekki á pappírunum. Aðeins 13 prósent raforku eru rakin til endurnýjanlegra orkugjafa en 63 prósent til kola og olíu og 24 prósent til kjarnorku. Íslensk fyrirtæki og heimili þurfa nú að greiða sérstaklega fyrir að geta sagt að raforkan sem þau nota sé græn orka. 11.1.2023 12:16
Telur enga ástæðu til að kalla SA og Eflingu til fundar Ríkissáttasemjari segist ekki ætla að boða samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og Eflingar á fund eins og staðan er núna. Ekkert bendi til að samtalið geti þokast áfram með því að nefndirnar hittist. 11.1.2023 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Guðmund Inga Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra sem stefnir að því að koma með frumvarp á haustmánuðum sem snýr að móttöku flóttamanna en engin slík löggjöf er til staðar. 11.1.2023 11:33
„Það skortir alla skynsemi í þetta“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að beðið verði með milljarðaframkvæmdir á Grófarhúsi í miðborg Reykjavíkur í ljósi afleitrar fjárhagsstöðu borgarinnar. Alla skynsemi skorti í fyrirætlanir meirihlutans. Grófarhús gjörbreytist á næstu árum samkvæmt vinningstillögu. 11.1.2023 11:20
Ekki enn reynst unnt að ræða við þann sem var sparkað niður 23 steintröppur Ekki hefur reynst unnt að taka skýrslu af karlmanni sem slasaðist alvarlega þegar honum var sparkað niður 23 steintröppur við veitinga- og skemmtistað í október. Rannsókn héraðssaksóknara miðar vel og verður tekin ákvörðun um saksókn í næstu viku. 11.1.2023 11:16
Staða Eflingar „afskaplega erfið“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að sú staða sem Efling standi frammi fyrir núna sé afskaplega erfið. „Ég bara óska þeim velfarnaðar í sinni baráttu en ég held að þetta verði mjög erfið staða við að eiga. Sérstaklega í ljósi þess að það er búið að samþykkja þessa samninga með yfirgnæfandi meirihluta.“ 11.1.2023 10:43
Vefnaður kenndur á Hallormsstað Vefnaður er eitt af því, sem nemendur Hallormsstaðaskóla á Hallormsstað læra til að koma í veg fyrir að þetta gamla handverk glatist ekki. Skólameistarinn segir nauðsynlegt að viðhalda þessum gamla menningararfi, sem vefnaður er. 11.1.2023 07:33
Maðurinn sem skrifaði afdrifaríkustu frétt fjölmiðlasögunnar „Ég heiti Andri Ólafsson og árið 2006 var ég blaðamaður á DV,“ segir viðmælandi þeirra Nadine Guðrúnar Yaghi og Þórhildar Þorkelsdóttur í nýjum þætti í hlaðvarpinu Eftirmál. 11.1.2023 07:00
Atvinnuleysi í desember 3,4 prósent Skráð atvinnuleysi í desember var 3,4 prósent en var 3,3 prósent í nóvember. 6.448 voru atvinnulausir í desember að meðaltali; 3.616 karlar og 2.832 konur. 11.1.2023 06:54
Lögregla kölluð til vegna hótana, líkamsárása og veikinda Tveir menn voru handteknir í miðborginni í gærkvöldi í tveimur aðskildum málum. Annar var handtekinn fyrir hótanir en hinn vegna líkamsárásar. Báðir voru vistaðir í fangageymslu. 11.1.2023 06:38
Orð Svanhildar sýni skilningsleysi og sendi erfið skilaboð Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs endurspegla það gildismat samfélagsins að störf kvenna megi verðleggja hvernig sem er. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar því að hennar flokkur sé í aðför gegn stéttinni og telur að einkarekstur innan heilbrigðiskerfisins geti bætt kjör starfsfólks. 10.1.2023 22:37
Dæmi um að börn hafi verið hætt komin vegna streptókokkasýkingar Dæmi er um að börn hafi verið hætt komin og verið lögð inn á gjörgæslu vegna hættulegrar streptókokkasýkingar sem nú gengur yfir. Sérfræðingur í barnasmitsjúkdómum segir alla á tánum vegna ástandsins. 10.1.2023 21:01
Skagamenn bjóða víðtækt samstarf eftir höfnun Hvalfjarðarsveitar Akraneskaupstaður hefur boðið Hvalfjarðarsveit „víðtækt samstarf“ í kjölfar þess að síðarnefnda sveitarfélagið hafnaði færslu sveitarfélagamarka og beiðni um kaup á landi í lok síðasta árs. 10.1.2023 20:36
Vill meira gagnsæi Stjórnarandstaðan kallar eftir meira gagnsæi þegar sala á ríkiseignum er til rannsóknar. Fjármálaeftirlitið telur lög hafa verið brotin við söluna á Íslandsbanka samkvæmt tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í gær. 10.1.2023 19:27
Stefnir í hörðustu vinnudeilu í áratugi Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ef gengið yrði að kröfum Eflingar yrði að taka upp alla aðra nýgerða kjarasamninga í landinu. Stjórn Eflingar fer yfir næstu skref eftir að hafa slitið viðræðum við atvinnurekendur í dag en stefnir í hörðustu vinnudeilur á Íslandi í áratugi. 10.1.2023 19:21
Edda segir skessumálið ekki snúast um persónur Edda Falak, fjölmiðlakona og áhrifavaldur, segir að ekki dugi til að hún ein fái afsökunarbeiðni frá forsvarsmönnum ÍBV vegna skessu á þrettándagleði íþróttafélagsins í Vestmannaeyjum. Málið hafi valdið fullt af fólki vanlíðan og það eigi bæði við fólk sem er ekki hvítt og baráttufólk sem óttast árásir sem þessar. 10.1.2023 19:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ef gengið yrði að kröfum Eflingar yrði að taka upp alla aðra nýgerða kjarasamninga í landinu. Stjórn Eflingar fer yfir næstu skref eftir að hafa slitið viðræðum við atvinnurekendur í dag. 10.1.2023 17:59
Meirihluti Eflingarfólks var hlynntur verkfalli í haust Tveir af hverjum þremur félagsmönnum Eflingar voru síðastliðið haust hlynntir því að fara í verkfallsaðgerðir til að ná fram betri kjörum. Fjórir af hverjum fimm sem tóku afstöðu reyndust hlynntir. Fram undan er könnun meðal félagsfólks hvort fara eigi í verkfall eftir að Efling sleit samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins í dag. 10.1.2023 17:08
Jónas Elíasson prófessor er látinn Dr. Jónas Elíasson, prófessor emeritus, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 8. janúar 84 ára gamall. 10.1.2023 16:54
Á annað kíló af kókaíni falin í höfuðpúða og úlpu Svissneskur karlmaður á miðjum þrítugsaldri sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var gripinn með á annað kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli en efnin voru falin með sérstökum hætti. 10.1.2023 16:26
Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í gær og kveður á um að Reykjanesbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum. 10.1.2023 16:03
Ólafur Hrafn Ásgeirsson er látinn Ólafur Hrafn Ásgeirsson, kerfisstjóri og fyrrum hnefaleikakappi, lést 2. janúar síðastliðinn á líknardeild Landspítala. Hann lést í faðmi fjölskyldu sinnar. Útförin fer fram í kyrrþey. 10.1.2023 16:00
Tilboð Eflingar óaðgengilegt Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að tilboð Eflingar til samtakanna um gerð kjarasamnings sé óaðgengilegt og að því hafi verið lýst yfir á fundi í kjaradeilunni í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Himinn og haf sé á milli tilboðsins og þeirra kjarasamninga sem þegar hafi verið gerðir. Hann er hugsi yfir því að starfsmenn á opinberum vinnumarkaði séu í samninganefnd Eflingar. 10.1.2023 14:12
Stefnir í verkfall eftir að Efling sleit viðræðum Efling hefur ákveðið að slíta viðræðum. Þetta staðfestir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður félagsins sem gekk út af fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara rétt í þessu. 10.1.2023 13:14
Skólastjóri vísar ásökunum um innrætingu kennara í Verzló á bug Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands segir það klaufalegt að þingmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi verið settur í hóp með Hitler og Mussolini á glæru í kennslustund en að málið hafi verið tekið úr samhengi. Sigmundur segir atvikið skýrt dæmi um innrætingu og áróður af hálfu kennara. Skólastjóri vísar því á bug og segist munu ræða við Sigmund. 10.1.2023 13:05
Frekar tilkynning en sáttameðferð Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið lög þegar ríkið seldi 22,5% hlut sinn í bankanum, en bankinn sendi frá sér tilkynningu þess efnis að sáttaferli væri hafið milli bankans og FME. Stjórnarandstæðingur segir frekar um að ræða tilkynningu um væntanleg viðurlög heldur en sáttameðferð. 10.1.2023 13:04
Engin fagleg rök fyrir aðgerðum á landamærum vegna Covid í Kína Sóttvarnalæknir telur engin fagleg rök fyrir því að taka upp aðgerðir á landamærum hér á landi til að vernda lýðheilsu vegna útbreiðslu Covid-19 í Kína. Þetta kemur fram í nýju minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. 10.1.2023 11:46
„Þetta veldur auðvitað áhyggjum“ Ríkissaksóknari telur mögulegt að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Verjandi eins sakborninga í málinu segir það áhyggjuefni, hafi áfrýjunardómstóllinn Landsréttur farið út fyrir refsirammann með þessum hætti. 10.1.2023 11:45
Rúta rann út af vegi á Hellisheiði Rúta fyrirtækisins Bus4U rann út af veginum á Hellisheiði nú í morgun. Tuttugu manns eru í rútunni en engin slys urðu á fólki eða farartækjum. 10.1.2023 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verðum við með puttann á púlsinum í Karphúsinu og greinum frá niðurstöðum fundar Eflingar og Samtaka Atvinnulífsins en svo gæti farið að boðað verði til verkfalls að loknum þeim fundi. 10.1.2023 11:35
Fyrstur til að veita rafrænan aðgang í gegnum talsmann sinn Fyrsti einstaklingurinn hefur nú veitt rafrænan aðgang í gegnum talsmann sinn. Þessu greinir réttindagæslumaður fatlaðs fólks frá. 10.1.2023 11:33
Lögreglan lýsir eftir Modestas Antanavicius Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni. 10.1.2023 11:16
Bein útsending: Ögurstund upp runnin í Karphúsinu Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins sitja nú á fundi hjá ríkissáttasemjara í Borgartúni. Fulltrúar beggja fylkinga mættu á svæðið um og upp úr klukkan ellefu og hófst fundur rétt fyrir klukkan hálf tólf. 10.1.2023 11:16
Vafi leikur á um hvort Landsréttur hafi mátt þyngja refsingu Angjelin Ríkissaksóknari telur möguleika á því að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Mikilvægt sé að Hæstiréttur taki málið til skoðunar. 10.1.2023 09:59
Vefnaður kenndur á Hallormsstað Vefnaður er eitt af því, sem nemendur Hússtjórnarskólans á Hallormsstað læra til að koma í veg fyrir að þetta gamla handverk glatist ekki. Skólameistarinn segir nauðsynlegt að viðhalda þessum gamla menningararfi, sem vefnaður er. 10.1.2023 09:30
Áfengisneysla stigmagnast: „Á meðan þeir eru fúnkerandi er best að grípa inn í“ Áfengisneysla Íslendinga hefur stigmagnast og tilfellum skorpulifrar fjölgað, að sögn forstjóra Vogs. Hún segir sjúklinga illa á sig komna vegna drykkju og hvetur fólk til að takast á við vandamálin áður en í óefni er komið. 10.1.2023 09:13
Vera nýr framkvæmdastjóri Lífs styrktarfélags Vera Víðisdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Lífs styrktarfélags frá og með 1. janúar 2023. Áður starfaði Vera hjá hönnunarfyrirtækinu iglo+indi, en þar á undan rak hún eigin barnafataverslun. Undanfarin þrjú ár hefur Vera verið búsett í New York, ásamt fjölskyldu sinni. 10.1.2023 09:10
Telur að fasta rútan hafi greitt götu björgunarsveita Bóndi í Vestur-Skaftafellssýslu sem aðstoðaði rútu sem festi sig í tvígang í ófærð á jóladag segir að björgunarsveitir hafi átt greiðari leið með fólk í skjól vegna þess að eigendur rútunnar fengu hann til hjálpar. Lögreglurannsókn á málinu stendur yfir. 10.1.2023 09:01
Hrasaði á hlaupahjóli og hrækti á lögreglu Karlmaður búsettur á Akureyri þarf að dúsa í níutíu daga fangelsi eftir að hann hrækti á og kleip lögreglumenn í júní 2021. Lögreglumennirnir höfðu afskipti af honum eftir að hann hafði hrasað ölvaður á rafhlaupahjóli. 10.1.2023 08:46
Borgin ekki enn greitt skaðabætur vegna mistaka barnaverndar árið 2013 Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Þá neitar borgin að afhenda konunni greinagerð dómkvaddra matsmanna um miska konunnar, sem borgin óskaði eftir. 10.1.2023 07:35
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir lokun Vinjar á morgun Velferðarráð Reykjavíkurborgar mun á morgun fjalla um tillögu borgarstjórnar frá 6. desember síðastliðnum um að leggja niður Vin, dagsetur fyrir fólk með geðraskanir. 10.1.2023 06:52