Fleiri fréttir Meintur njósnari fyrir CIA og Mossad dæmdur til dauða í Íran Írani sem sagður er hafa útvegað leyniþjónustum Bandaríkjanna og Ísrael upplýsingar um ferðir hershöfðingjans Qassem Soleimani, sem felldur var í loftárás í byrjun janúar, verður tekinn af lífi. 9.6.2020 09:05 Lögreglumaðurinn þarf að reiða fram meira en 165 milljónir til að losna Dómari í Minnesota hefur ákveðið að Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis á dögunum og olli í kjölfarið einhverjum mestu mótmælum í Bandaríkjunum í áratugi, geti losnað úr varðhaldi, reiði hann fram 1,25 milljónir Bandaríkjadala. 9.6.2020 07:33 Hætta öllum samskiptum við suðrið Norðurkóresk stjórnvöld hafa lokað öllum samskiptaleiðum milli Norður- og Suður-Kóreu. Þar á meðal er bein samskiptalína milli leiðtoga ríkjanna tveggja, Kim Jong-un í norðri og Moon Jae-in í suðri. 9.6.2020 06:38 Telja morðvopnið í máli Palme fundið Talið er að skotvopnið sem notað var til þess að myrða Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi 28. febrúar 1986 sé fundið og greinir SVT frá því að ríkissaksóknari Svíþjóðar muni tilkynna það á blaðamannafundi höldnum næsta miðvikudag. 8.6.2020 21:59 Þúsundir minnast George Floyd Búist er við að þúsundir sæki minningarathöfn um George Floyd, Bandaríkjamann sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis í síðasta mánuði. Lögregluþjónninn mætti fyrir dóm í dag. 8.6.2020 20:50 Slóvenar opna landamærin fyrir Íslendingum Yfirvöld í Slóveníu hafa tekið ákvörðun um að opna landamæri ríkisins fyrir ferðafólki frá fjórtán ríkjum, þar á meðal Íslandi. 8.6.2020 20:36 Mál Madeleine McCann: Rannsaka hvort hinn grunaði tengist hvarfi sex ára drengs Lögreglan í Þýskalandi hefur tekið hvarf drengsins René Hasee, sem hvarf sporlaust í Portúgal árið 1996, aftur til rannsóknar. Lögreglan kannar nú hvort maður sem grunaður er um að tengjast hvarfi hinnar bresku Madeleine McCann árið 2007, kunni að bera ábyrgð á hvarfi René. 8.6.2020 19:08 Telja ný sönnunargögn renna stoðum undir að Anne-Elisabeth hafi verið myrt Norska lögreglan segist hafa uppgötvað ný sönnunargögn í máli Tom Hagen síðan hann var handtekinn 28. apríl síðastliðinn sem renni stoðum undir þá kenningu að Anne-Elisabeth Hagen, eiginkona hans, hafi verið myrt. 8.6.2020 17:40 Framboð Trump í miklum vandræðum Líkur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á að ná endurkjöri virðast hafa versnað til muna undanfarnar vikur. 8.6.2020 16:09 Umdeildur falinn fjársjóður fundinn í Bandaríkjunum Eftir áratugslanga leit hefur umdeildur falinn fjársjóður auðjöfursins Forrest Fenn verið fundinn í Klettafjöllum Bandaríkjanna. 8.6.2020 14:58 Starship nú í forgangi hjá SpaceX Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX munu ekki sitja auðum höndum, þó þeir hafi náð þeim merka árangri fyrir rúmri viku síðan að vera fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta mönnum út í geim. Nú verður þróun Starship-geimfarsins sett í forgang hjá fyrirtækinu. 8.6.2020 13:35 Lögðu fram opinbera beiðni um að ræða við Andrés vegna Epstein Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum hafa lagt fram formlega beiðni til yfirvalda Bretlands um að fá að ræða við Andrés Bretaprins. Það vilja þeir gera vegna rannsóknar þeirra á kynferðisbrotum Jeffrey Epstein. 8.6.2020 11:16 Líkamsræktarstöðvar, Tívolí og Lególand opna á ný í Danmörku Tímamót urðu í baráttu Dana við kórónuveiruna í dag þegar tilslakanir voru gerðar á samkomubanni í landinu. 8.6.2020 11:15 Vilja auka eftirlit og breyta verkferlum lögreglu Demókratar á bæði fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem þeir eru í meirihluta, og öldungadeildinni ætla að leggja fram frumvarp sem snýr að umfangsmiklum breytingum á eftirliti með störfum lögreglu og verkferlum. 8.6.2020 09:15 Keyrði inn í þvögu mótmælenda og skaut einn Maður í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hefur verið handtekinn eftir að hann ók inn í þvögu mótmælenda og skaut minnst einn. Myndband náðist af atvikinu. 8.6.2020 08:06 Allir sem koma til Bretlands í tveggja vikna sóttkví Forstjóri Ryanair lággjaldaflugfélagsins er afar ósáttur við reglurnar og segir þær munu valda ómældu tjóni á ferðamannaiðnaðinum í landinu. 8.6.2020 07:57 Fyrrverandi forsætisráðherra verður næsti fjármálaráðherra Katri Kulmuni tilkynnti um afsögn sína í kjölfar fjölmiðlaumræðu í tengslum við greiðslu ráðuneytis hennar á háum reikningum til ráðgjafastofu sem veitti ráðherranum þjálfun í framkomu og ræðuflutningi. 8.6.2020 07:36 Bjargað eftir sex daga í brunni á Balí Breskum manni var um helgina bjargað upp úr brunni sem hann féll ofan í á eyjunni Balí, en þar hafði hann þurft að dúsa í heila sex daga. 8.6.2020 07:18 Nýsjálendingar telja sig hafa útrýmt kórónuveirunni Svo virðist sem heilbrigðisyfirvöldum á Nýja-Sjálandi hafi svo gott sem tekist að vinna bug á kórónuveirufaraldrinum í landinu, en engin virk smit eru í landinu, svo vitað sé. 8.6.2020 06:25 Borgarfulltrúar í Minneapolis vilja leggja lögregluna niður 7.6.2020 23:39 Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum. 7.6.2020 23:30 Ein náma í Póllandi tengd við mikið hópsmit Meira en tvo þriðju af þeim 1,151 nýju kórónuveirusmitum sem greint var frá í dag í Póllandi má rekja til einnar námu í Suður-Póllandi. 7.6.2020 22:49 Rifu niður umdeilda styttu af þrælasala og hentu henni í höfnina Mótmælendur í Bristol í Bretlandi rifu niður styttu af Edward Colston, þrælasala sem uppi var á átjándu öldinni, og hentu henni í höfnina í borginni. 7.6.2020 20:45 „I can't breathe“ Mótmælin sem nú standa yfir í Bandaríkjunum eiga sér langan aðdraganda og eru nýjasti þátturinn í langri sögu réttindabaráttu svartra Bandaríkjamanna. 7.6.2020 19:00 Bindur enda á útgöngubann í New York Borgarstjóri New York-borgar, Bill de Blasio, hefur ákveðið að afnema útgöngubann í borginni, einum degi á undan áætlun. 7.6.2020 17:07 Dómsmálaráðherrann segir Trump aldrei hafa beðið um að hermenn yrðu sendir til að kveða niður mótmæli Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, segir Bandaríkjaforseta ekki hafa gengið það langt að óska eftir því að tíu þúsund hermenn verði kallaðir út til þess að aðstoða lögreglu við að kveða niður óeirðir og mótmæli í bandarískum borgum. 7.6.2020 16:25 Rifu niður styttu af hershöfðingja Suðurríkjanna Lítill hópur mótmælanda reif niður styttu af suðurríkjaleiðtoganum Williams Carter Wickham hershöfðingja sem stóð í borginni Richmond í Virginíu. 7.6.2020 15:18 Seinagangur á Bretlandi talinn hafa kostað mannslíf Vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segist óska þess að gripið hefði verið til aðgerða gegn kórónuveirufaraldrinum fyrr vegna þess að tafirnar hafi kostað mannslíf. Hann kennir lélegum gögnum við upphaf faraldursins um þær ákvarðanir sem voru teknar. 7.6.2020 14:27 Vantreysta lögreglunni og óttast hana Doktor í afbrotafræði segir að svart fólk í Bandaríkjunum verði ekki eingöngu fyrir óhóflegri valdbeitingu af hendi lögreglunnar heldur teygi misréttið anga sína til réttarkerfisins. Rannsóknir sýni að svart fólk treystir ekki lögreglunni í Bandaríkjunum og óttast hana. 7.6.2020 13:38 Bush á meðal repúblikana sem ætla ekki að kjósa Trump Nokkrir áhrifamenn í Repúblikanaflokknum ætla annað hvort ekki að kjósa Donald Trump í forsetakosningunum í haust eða jafnvel greiða Joe Biden, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt. George W. Bush, fyrrverandi forseti, er á meðal þeirra sem ætlar ekki að styðja Trump til endurkjörs. 7.6.2020 12:13 Vara við smithættu eftir fjölmenn samstöðmótmæli á Bretlandi Heilbrigðisráðherra Bretlands segir að fjölmenn mótmæli gegn kynþáttahyggju í gær hafi „vafalaust“ aukið hættu á kórónuveirusmitum. Tugir þúsunda manna tóku þátt í samstöðumótmælum eftir dráp lögreglu í Bandaríkjunum á blökkumanni. Til einhverra átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í London. 7.6.2020 10:19 Hætta að birta heildartölur um látna og smitaða í Brasilíu Brasilísk stjórnvöld eru nú sökuð um að reyna að fela raunverulegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins eftir að þau ákváðu að hætta að birta heildartölur yfir fjölda látinna og smitaðra. Opinber vefsíða með upplýsingunum var tekin niður á föstudag. 7.6.2020 09:43 Brimbrettamaður lést eftir árás hvítháfs Þriggja metra langur hvítháfur réðst á brimbrettamann á sextugsaldri undan ströndum Ástralíu og lést maðurinn af sárum sínum í morgun. Þetta er þriðja mannskæða hákarlsárásin við Ástralíu á þessu ári. 7.6.2020 08:50 Fjölmennustu mótmælin í Washington-borg til þessa Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju héldu áfram í mörgum borgum Bandaríkjanna í gær. Þau eru sögð hafa farið að mestu friðsamlega fram. Í Washington-borg mótmælu um tíu þúsund manns í stærstu mótmælunum í borginni til þessa. 7.6.2020 08:08 Lýsa sig saklausa af því að hafa hrint eldri borgara Lögreglumennirnir tveir sem ákærðir hafa verið líkamsárás gegn 75 ára gömlum vegfarenda í mótmælum í Buffalo i New York ríki Bandaríkjanna á dögunum lýstu sig saklausa af ákærum í málinu. 6.6.2020 23:20 Þúsundir mótmæla í Washington Þúsundir mótmælenda marsera nú um götur Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, til þess að mótmæla lögregluofbeldi og kynþáttafordómum. 6.6.2020 21:56 Því velt upp hvort yfirvöld hafi hunsað ábendingar um manninn sem grunaður er í máli Madeleine Þýskir fjölmiðlar fjalla nú um hvort að rannsakendur á vegum þýsku sambandslögreglunnar hafi hunsað viðvaranir frá rannsakendum í Braunschweig árið 2013 varðandi Christian Brückner 6.6.2020 20:24 Notkun táragass sætir gagnrýni Ekki síður í ljósi þess að táragas er flokkað sem efnavopn sem bannað er að nota í stríði. 6.6.2020 19:30 Óttast um framtíð dýragarða Stjórnendur breskra dýragarða hafa áhyggjur af því að garðarnir fari á hausinn vegna kórónuveirunnar. 6.6.2020 19:24 Kallar þúsundir hermanna heim frá Þýskalandi Forseti Bandaríkjanna hefur fyrirskipað hernaðaryfirvöldum í Pentagon að kalla heim þúsundir bandarískra hermanna sem staðsettir hafa verið í herstöðvum í Þýskalandi. 6.6.2020 16:26 Búast við fjölmennum mótmælum í Washington Yfirvöld í Washington-borg búa sig undir fjölmenn mótmæli þar í dag á sama tíma og ákveðið hefur verið að afvopna þjóðvarðliða og senda hermenn heim frá borginni. Samstöðumótmæli vegna dauða óvopnaðs blökkumanns í haldi lögreglu fóru fram í Ástralíu og Asíu í dag. 6.6.2020 11:33 Goodell viðurkennir að NFL hafi gert mistök Einn óvinsælasti maður bandarískra íþrótta, Roger Goodell, framkvæmdastjóri NFL, hefur viðurkennt að deildin hafi gert mistök í meðhöndlun sinni á mótmælum leikmanna deildarinnar gegn kynþáttahatri og lögregluofbeldi síðustu ár. 6.6.2020 11:15 Styrkur koltvísýrings í nýjum hæðum þrátt fyrir samdrátt vegna faraldursins Aldrei hefur styrkur koltvísýrings í andrúmslofti mælst hærri í sögu mannkynsins en í síðasta mánuði þrátt fyrir að dregið hafi umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Líklegt er talið að styrkur koltvísýrings hafi ekki verið meiri í um þrjár milljónir ára. 6.6.2020 10:38 Frakkar segjast hafa fellt hryðjuverkaleiðtoga í Malí Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Norður-Afríku féll í aðgerðum franska hersins í Malí fyrr í vikunni, að sögn franska varnarmálaráðherrans. Þá segjast Frakkar hafa tekið einn leiðtoga Ríkis íslams í landinu höndum í síðasta mánuði. 6.6.2020 08:57 Öll sérsveitin hætti til að styðja félaga sem var refsað fyrir ofbeldi Á sjötta tug sérsveitarmanna lögreglunnar í Buffalo í Bandaríkjunum hætti í henni til að sýna samstöðu með tveimur félögum sínum sem voru settir í leyfi eftir að myndband birtist af þeim hrinda manni á áttræðisaldri í götuna. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en hann tók þátt í mótmælum gegn lögregluofbeldi. 6.6.2020 08:21 Sjá næstu 50 fréttir
Meintur njósnari fyrir CIA og Mossad dæmdur til dauða í Íran Írani sem sagður er hafa útvegað leyniþjónustum Bandaríkjanna og Ísrael upplýsingar um ferðir hershöfðingjans Qassem Soleimani, sem felldur var í loftárás í byrjun janúar, verður tekinn af lífi. 9.6.2020 09:05
Lögreglumaðurinn þarf að reiða fram meira en 165 milljónir til að losna Dómari í Minnesota hefur ákveðið að Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis á dögunum og olli í kjölfarið einhverjum mestu mótmælum í Bandaríkjunum í áratugi, geti losnað úr varðhaldi, reiði hann fram 1,25 milljónir Bandaríkjadala. 9.6.2020 07:33
Hætta öllum samskiptum við suðrið Norðurkóresk stjórnvöld hafa lokað öllum samskiptaleiðum milli Norður- og Suður-Kóreu. Þar á meðal er bein samskiptalína milli leiðtoga ríkjanna tveggja, Kim Jong-un í norðri og Moon Jae-in í suðri. 9.6.2020 06:38
Telja morðvopnið í máli Palme fundið Talið er að skotvopnið sem notað var til þess að myrða Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi 28. febrúar 1986 sé fundið og greinir SVT frá því að ríkissaksóknari Svíþjóðar muni tilkynna það á blaðamannafundi höldnum næsta miðvikudag. 8.6.2020 21:59
Þúsundir minnast George Floyd Búist er við að þúsundir sæki minningarathöfn um George Floyd, Bandaríkjamann sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis í síðasta mánuði. Lögregluþjónninn mætti fyrir dóm í dag. 8.6.2020 20:50
Slóvenar opna landamærin fyrir Íslendingum Yfirvöld í Slóveníu hafa tekið ákvörðun um að opna landamæri ríkisins fyrir ferðafólki frá fjórtán ríkjum, þar á meðal Íslandi. 8.6.2020 20:36
Mál Madeleine McCann: Rannsaka hvort hinn grunaði tengist hvarfi sex ára drengs Lögreglan í Þýskalandi hefur tekið hvarf drengsins René Hasee, sem hvarf sporlaust í Portúgal árið 1996, aftur til rannsóknar. Lögreglan kannar nú hvort maður sem grunaður er um að tengjast hvarfi hinnar bresku Madeleine McCann árið 2007, kunni að bera ábyrgð á hvarfi René. 8.6.2020 19:08
Telja ný sönnunargögn renna stoðum undir að Anne-Elisabeth hafi verið myrt Norska lögreglan segist hafa uppgötvað ný sönnunargögn í máli Tom Hagen síðan hann var handtekinn 28. apríl síðastliðinn sem renni stoðum undir þá kenningu að Anne-Elisabeth Hagen, eiginkona hans, hafi verið myrt. 8.6.2020 17:40
Framboð Trump í miklum vandræðum Líkur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á að ná endurkjöri virðast hafa versnað til muna undanfarnar vikur. 8.6.2020 16:09
Umdeildur falinn fjársjóður fundinn í Bandaríkjunum Eftir áratugslanga leit hefur umdeildur falinn fjársjóður auðjöfursins Forrest Fenn verið fundinn í Klettafjöllum Bandaríkjanna. 8.6.2020 14:58
Starship nú í forgangi hjá SpaceX Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX munu ekki sitja auðum höndum, þó þeir hafi náð þeim merka árangri fyrir rúmri viku síðan að vera fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta mönnum út í geim. Nú verður þróun Starship-geimfarsins sett í forgang hjá fyrirtækinu. 8.6.2020 13:35
Lögðu fram opinbera beiðni um að ræða við Andrés vegna Epstein Alríkissaksóknarar í Bandaríkjunum hafa lagt fram formlega beiðni til yfirvalda Bretlands um að fá að ræða við Andrés Bretaprins. Það vilja þeir gera vegna rannsóknar þeirra á kynferðisbrotum Jeffrey Epstein. 8.6.2020 11:16
Líkamsræktarstöðvar, Tívolí og Lególand opna á ný í Danmörku Tímamót urðu í baráttu Dana við kórónuveiruna í dag þegar tilslakanir voru gerðar á samkomubanni í landinu. 8.6.2020 11:15
Vilja auka eftirlit og breyta verkferlum lögreglu Demókratar á bæði fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem þeir eru í meirihluta, og öldungadeildinni ætla að leggja fram frumvarp sem snýr að umfangsmiklum breytingum á eftirliti með störfum lögreglu og verkferlum. 8.6.2020 09:15
Keyrði inn í þvögu mótmælenda og skaut einn Maður í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hefur verið handtekinn eftir að hann ók inn í þvögu mótmælenda og skaut minnst einn. Myndband náðist af atvikinu. 8.6.2020 08:06
Allir sem koma til Bretlands í tveggja vikna sóttkví Forstjóri Ryanair lággjaldaflugfélagsins er afar ósáttur við reglurnar og segir þær munu valda ómældu tjóni á ferðamannaiðnaðinum í landinu. 8.6.2020 07:57
Fyrrverandi forsætisráðherra verður næsti fjármálaráðherra Katri Kulmuni tilkynnti um afsögn sína í kjölfar fjölmiðlaumræðu í tengslum við greiðslu ráðuneytis hennar á háum reikningum til ráðgjafastofu sem veitti ráðherranum þjálfun í framkomu og ræðuflutningi. 8.6.2020 07:36
Bjargað eftir sex daga í brunni á Balí Breskum manni var um helgina bjargað upp úr brunni sem hann féll ofan í á eyjunni Balí, en þar hafði hann þurft að dúsa í heila sex daga. 8.6.2020 07:18
Nýsjálendingar telja sig hafa útrýmt kórónuveirunni Svo virðist sem heilbrigðisyfirvöldum á Nýja-Sjálandi hafi svo gott sem tekist að vinna bug á kórónuveirufaraldrinum í landinu, en engin virk smit eru í landinu, svo vitað sé. 8.6.2020 06:25
Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum. 7.6.2020 23:30
Ein náma í Póllandi tengd við mikið hópsmit Meira en tvo þriðju af þeim 1,151 nýju kórónuveirusmitum sem greint var frá í dag í Póllandi má rekja til einnar námu í Suður-Póllandi. 7.6.2020 22:49
Rifu niður umdeilda styttu af þrælasala og hentu henni í höfnina Mótmælendur í Bristol í Bretlandi rifu niður styttu af Edward Colston, þrælasala sem uppi var á átjándu öldinni, og hentu henni í höfnina í borginni. 7.6.2020 20:45
„I can't breathe“ Mótmælin sem nú standa yfir í Bandaríkjunum eiga sér langan aðdraganda og eru nýjasti þátturinn í langri sögu réttindabaráttu svartra Bandaríkjamanna. 7.6.2020 19:00
Bindur enda á útgöngubann í New York Borgarstjóri New York-borgar, Bill de Blasio, hefur ákveðið að afnema útgöngubann í borginni, einum degi á undan áætlun. 7.6.2020 17:07
Dómsmálaráðherrann segir Trump aldrei hafa beðið um að hermenn yrðu sendir til að kveða niður mótmæli Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, segir Bandaríkjaforseta ekki hafa gengið það langt að óska eftir því að tíu þúsund hermenn verði kallaðir út til þess að aðstoða lögreglu við að kveða niður óeirðir og mótmæli í bandarískum borgum. 7.6.2020 16:25
Rifu niður styttu af hershöfðingja Suðurríkjanna Lítill hópur mótmælanda reif niður styttu af suðurríkjaleiðtoganum Williams Carter Wickham hershöfðingja sem stóð í borginni Richmond í Virginíu. 7.6.2020 15:18
Seinagangur á Bretlandi talinn hafa kostað mannslíf Vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segist óska þess að gripið hefði verið til aðgerða gegn kórónuveirufaraldrinum fyrr vegna þess að tafirnar hafi kostað mannslíf. Hann kennir lélegum gögnum við upphaf faraldursins um þær ákvarðanir sem voru teknar. 7.6.2020 14:27
Vantreysta lögreglunni og óttast hana Doktor í afbrotafræði segir að svart fólk í Bandaríkjunum verði ekki eingöngu fyrir óhóflegri valdbeitingu af hendi lögreglunnar heldur teygi misréttið anga sína til réttarkerfisins. Rannsóknir sýni að svart fólk treystir ekki lögreglunni í Bandaríkjunum og óttast hana. 7.6.2020 13:38
Bush á meðal repúblikana sem ætla ekki að kjósa Trump Nokkrir áhrifamenn í Repúblikanaflokknum ætla annað hvort ekki að kjósa Donald Trump í forsetakosningunum í haust eða jafnvel greiða Joe Biden, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt. George W. Bush, fyrrverandi forseti, er á meðal þeirra sem ætlar ekki að styðja Trump til endurkjörs. 7.6.2020 12:13
Vara við smithættu eftir fjölmenn samstöðmótmæli á Bretlandi Heilbrigðisráðherra Bretlands segir að fjölmenn mótmæli gegn kynþáttahyggju í gær hafi „vafalaust“ aukið hættu á kórónuveirusmitum. Tugir þúsunda manna tóku þátt í samstöðumótmælum eftir dráp lögreglu í Bandaríkjunum á blökkumanni. Til einhverra átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í London. 7.6.2020 10:19
Hætta að birta heildartölur um látna og smitaða í Brasilíu Brasilísk stjórnvöld eru nú sökuð um að reyna að fela raunverulegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins eftir að þau ákváðu að hætta að birta heildartölur yfir fjölda látinna og smitaðra. Opinber vefsíða með upplýsingunum var tekin niður á föstudag. 7.6.2020 09:43
Brimbrettamaður lést eftir árás hvítháfs Þriggja metra langur hvítháfur réðst á brimbrettamann á sextugsaldri undan ströndum Ástralíu og lést maðurinn af sárum sínum í morgun. Þetta er þriðja mannskæða hákarlsárásin við Ástralíu á þessu ári. 7.6.2020 08:50
Fjölmennustu mótmælin í Washington-borg til þessa Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju héldu áfram í mörgum borgum Bandaríkjanna í gær. Þau eru sögð hafa farið að mestu friðsamlega fram. Í Washington-borg mótmælu um tíu þúsund manns í stærstu mótmælunum í borginni til þessa. 7.6.2020 08:08
Lýsa sig saklausa af því að hafa hrint eldri borgara Lögreglumennirnir tveir sem ákærðir hafa verið líkamsárás gegn 75 ára gömlum vegfarenda í mótmælum í Buffalo i New York ríki Bandaríkjanna á dögunum lýstu sig saklausa af ákærum í málinu. 6.6.2020 23:20
Þúsundir mótmæla í Washington Þúsundir mótmælenda marsera nú um götur Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, til þess að mótmæla lögregluofbeldi og kynþáttafordómum. 6.6.2020 21:56
Því velt upp hvort yfirvöld hafi hunsað ábendingar um manninn sem grunaður er í máli Madeleine Þýskir fjölmiðlar fjalla nú um hvort að rannsakendur á vegum þýsku sambandslögreglunnar hafi hunsað viðvaranir frá rannsakendum í Braunschweig árið 2013 varðandi Christian Brückner 6.6.2020 20:24
Notkun táragass sætir gagnrýni Ekki síður í ljósi þess að táragas er flokkað sem efnavopn sem bannað er að nota í stríði. 6.6.2020 19:30
Óttast um framtíð dýragarða Stjórnendur breskra dýragarða hafa áhyggjur af því að garðarnir fari á hausinn vegna kórónuveirunnar. 6.6.2020 19:24
Kallar þúsundir hermanna heim frá Þýskalandi Forseti Bandaríkjanna hefur fyrirskipað hernaðaryfirvöldum í Pentagon að kalla heim þúsundir bandarískra hermanna sem staðsettir hafa verið í herstöðvum í Þýskalandi. 6.6.2020 16:26
Búast við fjölmennum mótmælum í Washington Yfirvöld í Washington-borg búa sig undir fjölmenn mótmæli þar í dag á sama tíma og ákveðið hefur verið að afvopna þjóðvarðliða og senda hermenn heim frá borginni. Samstöðumótmæli vegna dauða óvopnaðs blökkumanns í haldi lögreglu fóru fram í Ástralíu og Asíu í dag. 6.6.2020 11:33
Goodell viðurkennir að NFL hafi gert mistök Einn óvinsælasti maður bandarískra íþrótta, Roger Goodell, framkvæmdastjóri NFL, hefur viðurkennt að deildin hafi gert mistök í meðhöndlun sinni á mótmælum leikmanna deildarinnar gegn kynþáttahatri og lögregluofbeldi síðustu ár. 6.6.2020 11:15
Styrkur koltvísýrings í nýjum hæðum þrátt fyrir samdrátt vegna faraldursins Aldrei hefur styrkur koltvísýrings í andrúmslofti mælst hærri í sögu mannkynsins en í síðasta mánuði þrátt fyrir að dregið hafi umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Líklegt er talið að styrkur koltvísýrings hafi ekki verið meiri í um þrjár milljónir ára. 6.6.2020 10:38
Frakkar segjast hafa fellt hryðjuverkaleiðtoga í Malí Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Norður-Afríku féll í aðgerðum franska hersins í Malí fyrr í vikunni, að sögn franska varnarmálaráðherrans. Þá segjast Frakkar hafa tekið einn leiðtoga Ríkis íslams í landinu höndum í síðasta mánuði. 6.6.2020 08:57
Öll sérsveitin hætti til að styðja félaga sem var refsað fyrir ofbeldi Á sjötta tug sérsveitarmanna lögreglunnar í Buffalo í Bandaríkjunum hætti í henni til að sýna samstöðu með tveimur félögum sínum sem voru settir í leyfi eftir að myndband birtist af þeim hrinda manni á áttræðisaldri í götuna. Maðurinn er sagður alvarlega slasaður en hann tók þátt í mótmælum gegn lögregluofbeldi. 6.6.2020 08:21