Fleiri
Ósáttur við að hafa verið slitinn úr samhengi í auglýsingu Trumps 11.10.2020 23:00 Trump segist ónæmur og hvergi banginn Donald Trump segir að staðfesting lækna hans á því að hann sé ónæmur gagnvart Covid-19 eftir kórónuveirusmit geri það að verkum að hann geti aftur farið á fullt í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í næsta mánuði. 11.10.2020 21:44 Ítalir og Bretar reyna að komast hjá því að setja á útgöngubann Búist er við því að leiðtogar í Bretland og Ítalíu munu á morgun kynna til leiks aðgerðir til þess að stemma í stigu við aukningu á kórónuveirusmitum í löndunum tveimur. 11.10.2020 20:55 Sjá næstu 50 fréttir
Barron Trump greindist einnig með veiruna Barron Trump, sonur forsetahjónanna Donald og Melaniu Trump, greindist einnig með kórónuveiruna. 14.10.2020 20:43
Koma á útgöngubanni í Frakklandi Útgöngubann til að hefta hraða útbreiðslu kórónuveirunnar tekur gildi í París og átta öðrum borgum í Frakklandi á laugardag. Emmanuel Macron, forseti, segir bannið verða í gildi í að minnsta kosti fjórar vikur. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna uppgangs veirunnar. 14.10.2020 19:28
Borgarstjóri segir af sér í skugga óviðeigandi sambands og morðhótana Ethan Berkowitz, borgarstjóri Anchorage í Alaska í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér vegna undarlegrar flækju sem hefur undið upp á sig. 14.10.2020 14:31
Grískir nýnasistar dæmdir í fangelsi Nikos Michaloliakos, leiðtogi og stofnandi Gullinnar dögunar, grísks öfgaflokks sem var nýverið skilgreindur sem glæpasamtök, hefur verið dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar. Auk hans voru aðrir leiðtogar Gullinnar dögunar einnig dæmdir í fangelsi. 14.10.2020 12:51
Ætla sér að leysa ráðgátuna um „ólæsilega hraðskrift“ Astridar Lindgren Hópur bókmenntafræðinga, tölvunarfræðinga og hraðritara í Svíþjóð hefur nú verið falið að ráða í og lesa úr frumhandritum barnabókahöfundarins Astridar Lindgren. Hún notaðist við sérstaka hraðskrift sem enginn annar gat lesið. Hún kallaði táknin „krumelunser“. 14.10.2020 12:40
Kóralrifið mikla hefur minnkað um helming frá 1995 Kóralrifið mikla hefur tapað um helmingi alls kórals síns frá árinu 1995. Skaðann má að mestu rekja til hækkandi hitastigs sjávar og veðurfarsbreytinga af mannavöldum. 14.10.2020 12:00
Ósáttir við væntanlegar þvinganir vegna eitrunar Navalní Verði Rússar beittir viðskiptaþvingunum vegna eitrunar stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalní, munu þeir svara fyrir sig. 14.10.2020 10:49
Þrír geimfarar sendir til geimstöðvarinnar á mettíma Þremur geimförum var í morgun skotið á loft og sendir af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Soyuz-geimfarið sem flutti þá er nú tengt geimstöðinni, einungis þremur klukkustundum eftir geimskotið sjálft. 14.10.2020 09:30
Trump ósáttur vegna skorts á ákærum gegn pólitískum andstæðingum hans John Bash, saksóknarinn sem William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka hvort að embættismenn í forsetatíð Barack Obama hefðu brotið af sér í starfi varðandi mál Michael Flynn, hefur lokið rannsókn sinni. 14.10.2020 08:55
Tugir söfnuðust saman í Liverpool eftir að barir lokuðu: „Hjarðónæmi, hér komum við“ Tugir söfnuðust saman á torgi í miðborg Liverpool í gærkvöldi nokkrum klukkustundum áður en hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar tóku gildi. 14.10.2020 07:07
Hert á takmörkunum víða um Evrópu Tékkar ætla að loka stórum hluta samfélagsins næstu þrjár vikurnar til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Fleiri þjóðir boða hertar reglur. 14.10.2020 07:05
Biden sagði Trump fórna eldri borgurum í baráttunni við kórónuveiruna Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, fór hörðum orðum um Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og viðbrögð hans við kórónuveirufaraldrinum á kosningafundi sem hann hélt með eldri borgurum í Flórída í gær. 14.10.2020 06:51
Rússar segja ásakanir Norðmanna „alvarlega ögrun“ Sendiráð Rússlands í Noregi sagði ásakanir norskra stjórnvalda um að Rússar hafi staðið að tölvuárás á norska þingið í sumar „alvarlega og vísvitandi ögrun“ sem muni skaða samskipti ríkjanna. Norski utanríkisráðherrann segir vísbendingar um aðild rússneskra stjórnvalda að innbrotinu. 13.10.2020 23:36
Öfgamenn ræddu um að myrða ríkisstjórann og ræna öðrum Nokkrir þeirra hægriöfgamanna sem voru handteknir vegna ráðabruggs um að ræna ríkisstjóra Michigan í Bandaríkjunum í síðustu viku ræddu um að skjóta hann í höfuðið og ræna ríkisstjóra Virginíu. Mennirnir voru ósáttir við sóttvarnaaðgerðir ríkisstjóranna sem eru báðir demókratar. 13.10.2020 21:00
Morðingi bandarískrar vísindakonu í lífstíðarfangelsi Grískur dómstóll dæmdi karlmann á þrítugsaldri í lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga og myrða bandaríska vísindakonu á eyjunni Krít í fyrra. 13.10.2020 20:30
Segja Rússa hafa gert tölvuárás á norska þingið Yfirvöld í Noregi hafa komist að þeirri niðurstöðu að Rússar hafi gert árás á tölvukerfi norska þingsins í sumar. 13.10.2020 15:56
Vildi ekki svara spurningu um þungunarrof Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt til Hæstaréttar landsins, neitaði í dag að svara spurningu um hvað henni þætti um dómafordæmi sem veitir bandarískum konum rétt til þungunarrofs og hvort fella ætti það fordæmi úr gildi. 13.10.2020 14:58
Ráðuneyti samþykkir að selja vopn til Taívan Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur samþykkt að selja ýmiss háþróuð vopn til Taívan. Málið hefur þó ekki enn verið formlega sent til þingsins til staðfestingar en það hefur þegar reitt ráðmenn í Peking til reiði. 13.10.2020 13:46
Bólusetningin verður Norðmönnum að kostnaðarlausu Heilbrigðisráðherra Noregs segir að það verði Norðmönnum að kostnaðarlausu að bólusetja sig gegn kórónuveirunni þegar þar að kemur. Reikningurinn falli á norska ríkið, ehn hann vonast til að hægt verði að hefja bólusetningar snemma á næsta ári. 13.10.2020 13:02
Grikkir segja Tyrki ógna friði í Eyjahafi Yfirvöld í Grikklandi segjast ekki ætla að eiga í viðræðum við Tyrki á meðan þeir eru með rannsóknarskip á hafsvæði sem ríkin deila nú um. 13.10.2020 10:46
Milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar greitt atkvæði Kjósendur í Bandaríkjunum hafa nú þegar greitt rúmlega tíu milljónir atkvæða í komandi kosningum sem fram fara í nóvember. 13.10.2020 09:02
Metfjöldi nýsmitaðra og látinna í Rússlandi Alls greindust 13.868 smitaðir af Covid-19 í Rússlandi í gær og hafa þeir aldrei verið fleiri á einum degi. Þá dóu 244 og hafa þeir sömuleiðis aldrei verið fleiri frá því heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar hófst 13.10.2020 08:35
Eldar í hlíðum Kilimanjaro Fólk í grennd við fjallið Kilimanjaro vinnur nú að því að ráða niðurlögum gróðurelda sem geisa í hlíðum þessa hæsta fjalls Afríku. 13.10.2020 07:43
Trump sneri aftur eftir Covid-19 og hélt fjölmennan kosningafund í Flórída Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mætti á kosningafund í Flórída í gær, tæpum tveimur vikum eftir að hann greindist með kórónuveiruna sem veldur sjúkdómnum Covid-19. 13.10.2020 07:18
Greindist tvisvar með Covid-19 Bandarískur karlmaður hefur greinst tvisvar með Covid-19 og voru einkennin mun verri í síðara skiptið sem hann veiktist. Læknar vestanhafs greindu frá þessu í gær. 13.10.2020 06:46
Þurftu að stöðva bóluefnisrannsókn sökum óútskýrðra veikinda Lyfjarisinn Johnson & Johnson hefur ákveðið að gera hlé á þróun á bóluefni gegn Covid – 19 eftir að sjúklingur sem tók þátt í rannsókninni veiktist. 13.10.2020 06:41
Segja próf gefa jákvæða niðurstöðu þó einstaklingur sé ekki smitandi Heilbrigðissérfræðingar í Bandaríkjunum hafa lýst yfir áhyggjum af því að stöðluð kórónuveirupróf séu of næm og sýni þess vegna of oft jákvæða niðurstöðu fyrir veirunni. 12.10.2020 23:31
Lögreglunni í Hvíta-Rússlandi heimilt að nota banvæn vopn Lögreglunni í Hvíta-Rússlandi hefur verið heimilað að beita banvænum vopnum gegn mótmælendum sem krefjast afsagnar forseta landsins. 12.10.2020 20:44
Facebook bannar efni sem afneitar helförinni Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur ákveðið að banna hjá sér deilingar á efni sem inniheldur þá söguskoðun að helförin hafi ekki átt sér stað eða breytir viðteknum söguskoðunum um hana. 12.10.2020 19:20
Evrópusambandið hyggst beita Rússland þvingunum Utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins eru sagðir styðja tillögu Frakklands og Þýskalands um að beita Rússland viðskiptaþvingunum vegna eitrunar Alexeis Navalny, helsta stjórnarandstæðings rússneskra yfirvalda. 12.10.2020 17:47
Hægt að ná tökum á faraldrinum með réttum tólum Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sagði o í dag að hægt væri að ná tökum á heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar tiltölulega fljótt. 12.10.2020 15:47
Hundruð mótmælenda handtekin í Minsk Lögreglan beitti kylfum, háþrýstidælum og öðrum leiðum til að brjóta upp mótmæli fólks sem krefst nýrra forsetakosninga. Myndefni frá þarlendum fjölmiðlum sýndi grímuklædda lögregluþjóna draga mótmælendur í ómerkta sendibíla og berja þá með kylfum á götum Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands. 12.10.2020 15:02
Kim grét, baðst afsökunar og sýndi ný vopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, táraðist og baðst hann afsökunar á þeim harðindum sem þegnar hans hafa þurft að ganga í gegnum að undanförnu. 12.10.2020 12:03
Evrópuríki hyggja á hertari aðgerðir Hertar samkomutakmarkanir verða kynntar víða um Evrópu á næstu dögum en kórónuveirufaraldurinn er í miklum uppgangi víðast hvar í álfunni. 12.10.2020 11:10
Saka hvor annan um brot á vopnahléi Ráðamenn í bæði Armeníu og Aserbaídsjan saka hina um að hafa brotið gegn vopnahléi í Nagorno-Karabakh. 12.10.2020 10:46
Milgrom og Wilson fá Nóbelinn í hagfræði Bandarísku hagfræðingarnir Paul R. Milgrom og Robert B. Wilson deila með sér Nóbelsverðlaununum í Hagfræði árið 2020 en frá þessu var greint í morgun í Stokkhólmi. 12.10.2020 10:03
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Konunglega sænska vísindaakademían tilkynnir klukkan 9:45 hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár. 12.10.2020 09:25
Trump endurræsir vélarnar á faraldsfæti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, stefnir að því að endurræsa framboð sitt til endurkjörs á komandi dögum. Frestur forsetans til að ná tökum á kosningabaráttunni við Joe Biden, sem hefur vaxið ásmegin í könnunum, er að renna út. 12.10.2020 08:44
Þjóðverjar vilja beita Lukashenko þvingunum Utanríkisráðherra Þjóðverja vill að Alexander Lukashenko forseti Hvíta Rússlands verði settur á lista yfir áhrifamenn þar í landi sem beittir eru viðskiptaþvingunum. 12.10.2020 08:43
Amy Coney Barrett situr fyrir svörum í öldungadeildinni Amy Coney Barrett, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna mun síðar í dag mæta fyrir þingnefnd í öldungadeildinni og svara þar spurningum þingmanna sem eiga síðan að ákveð hvort hún sé hæf til starfans. 12.10.2020 07:58
Allir íbúar níu milljóna manna borgar fara í skimun Yfirvöld í kínversku borginni Qingdao ætla að prófa hvern einasta borgarbúa fyrir kórónuveirunni á næstu fimm dögum, en í Qingdao búa níu milljónir manna. 12.10.2020 06:54
Búist við hörðustu aðgerðunum í Liverpool og nágrenni Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands mun í dag kynna hertar aðgerðir sem eiga að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. 12.10.2020 06:34
Trump segist ónæmur og hvergi banginn Donald Trump segir að staðfesting lækna hans á því að hann sé ónæmur gagnvart Covid-19 eftir kórónuveirusmit geri það að verkum að hann geti aftur farið á fullt í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í næsta mánuði. 11.10.2020 21:44
Ítalir og Bretar reyna að komast hjá því að setja á útgöngubann Búist er við því að leiðtogar í Bretland og Ítalíu munu á morgun kynna til leiks aðgerðir til þess að stemma í stigu við aukningu á kórónuveirusmitum í löndunum tveimur. 11.10.2020 20:55