Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fordæma aðfarir Trump sem „ólýðræðislegar“ Tveir öldungadeildarþingmenn úr Repúblikanaflokki Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, gagnrýna harðlega „ólýðræðislegar“ tilraunir hans til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna sem hann tapaði. 20.11.2020 14:33
Maður í Berlín í haldi grunaður um morð og mannát Lögregla í Berlín í Þýskalandi hefur handtekið mann sem grunaður er um morð og mannát eftir að bein úr fórnarlambinu fundust í almenningsgarði í norðurhluta borgarinnar. 20.11.2020 14:26
Patríarki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar látinn af völdum Covid-19 Æðsti biskup serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, patríarkinn Irinej, er látinn af völdum Covid-19, níræður að aldri. Alls eru um 12 milljónir manna í kirkjunni. 20.11.2020 13:40
Varnarmálaráðherrann fer frá eftir umdeilt samkomulag Greint var frá því í morgun að aserski herinn hafi haldið inn í svæðið Aghdam í samræmi við ákvæði samningsins. 20.11.2020 13:04
Yfirmaður siðanefndar segir af sér eftir að Johnson lýsti stuðningi við ráðherra Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra sagði af sér í dag eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við ráðherra sem er talinn hafa sýnt af sér kúgunartilburði gagnvart starfsmönnum ráðuneytis síns. 20.11.2020 12:25
Enn deilt um fjárlög og aðgerðapakka Evrópusambandsins Ungverjar og Pólverjar standa enn í vegi fyrir að fjárlagaáætlun og margmilljarða evra aðgerðapakki Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins verði samþykktur. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segðst búast við sátt á endanum. 20.11.2020 11:35
Rannsaka hvernig það gerðist að páfinn „like-aði“ fáklædda fyrirsætu Vatíkanið hefur hafið rannsókn á því hvernig það kom til að opinber Instagram-aðgangur páfa „like-aði“ mynd af fáklæddri brasilískri fyrirsætu. Ekki liggur fyrir hvenær atvikið átti sér stað en á myndinn var fyrirsætan, Natalia Garibotto, klædd í skólabúning. 20.11.2020 11:13
Greiðslur til Ivönku Trump til rannsóknar í New York Skattaafskriftir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, eru nú viðfangsefni tveggja rannsókna í New York. Rannsóknirnar beinast meðal annars að ráðgjafargreiðslum sem virðast hafa runnið til Ivönku Trump, dóttur forsetans. 20.11.2020 10:17
Endurtalning atkvæða í Georgíu staðfesti sigur Bidens Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, fór með sigur af hólmi í Georgíu í forsetakosningunum sem fram fóru fyrr í mánuðinum. 20.11.2020 06:32
Óreiðan, vafinn og reiðin er markmiðið Rudy Giuliani, einkalögmaður Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, og aðrir lögmenn framboðs Trumps, vörpuðu á blaðamannafundi í kvöld fram ýmsum samsæriskenningum varðandi forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. 19.11.2020 22:46
Sex erfiðir mánuðir bíða Evrópu vegna faraldursins Næstu sex mánuðir verða Evrópu erfiðir að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO. Kórónuveirufaraldurinn hefur herjað á álfuna undanfarnar vikur og mánuði. 19.11.2020 21:09
Ætla að loka Arecibo vegna hættu Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufrægi í Púertó Ríkó verður ekki starfræktur lengur. Um mikið högg fyrir geimvísindamenn er að ræða en margir reiða sig á sjónaukann til að finna plánetur, smástirni og jafnvel vísbendingar um vitsmunalíf í geimnum. 19.11.2020 20:55
Norsku konungshjónin í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning eru komin í sóttkví eftir að starfsmaður hirðarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni. 19.11.2020 18:14
„Ótrúlegur hraði“ í þróun bóluefna Jákvæðar niðurstöður berast nú í röðum frá framleiðendum bóluefna gegn kórónuveirunni. Aldrei áður hefur tekið jafnskamman tíma að þróa bóluefni. 19.11.2020 16:18
Írar fylgja í fótspor Dana Landbúnaðarráðherra Írlands hefur tilkynnt eigendum minkabúa í landinu að öllum minkum verði lógað til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 19.11.2020 14:58
BBC ritskoðar vinsælt en óheflað jólalag Yfirmenn bresku útvarpstöðvarinnar BBC Radio 1 hafa tekið ákvörðun um að ritskoðuð útgáfa eins vinsælasta jólalags Bretlands fari í loftið þessi jólin á útvarpsstöðinni. 19.11.2020 14:55
Utanríkisráðherra í fordæmalausri heimsókn í landtökubyggðum Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varð í dag fyrsti hátt setti bandaríski embættismaðurinn til þess að heimsækja landtökubyggðir gyðinga á Vesturbakkanum. Meirihluti alþjóðasamfélagsins telur landtökubyggðirnar stríða gegn alþjóðalögum. 19.11.2020 14:35
Hrókeringar í dönsku ríkisstjórninni Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur kynnt breytingar á ríkisstjórn sinni eftir afsögn ráðherrans Mogens Jensen vegna minkamálsins svokallaða. 19.11.2020 13:56
Höfðar mál vegna dauða Glee-stjörnunnar Naya Rivera Fyrrverandi eiginmaður Glee-stjörnunnar Naya Rivera hefur fyrir hönd dánarbús hennar stefnt yfirvöldum og stjórnendum Piruvatns, norðvestur af Los Angeles í Kaliforníu, vegna dauða Rivera í júlí síðastliðinn. 19.11.2020 13:35
Sjö látnir eftir að forsetaframbjóðandi var handtekinn í Úganda Að minnsta kosti sjö eru látnir og á annan tug slasaðir eftir að óeirðir brutust út á götum í Úganda í kjölfar þess að poppstjarnan og forsetaframbjóðandinn Bobi Wine var handtekinn. 19.11.2020 12:44
Embættismönnum hótað á meðan repúblikanar reyna að fá úrslitum kosninganna breytt Kjörnir fulltrúar sem annast kosningar og starfsmenn kjörstjórna í nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum hafa fengið hótanir um ofbeldi á meðan Donald Trump, fráfarandi forseti, og margir repúblikanar halda uppi órökstuddum ásökunum um stórfelld kosningasvik. 19.11.2020 11:57
Varð að fresta fundi með drottningu á síðustu stundu vegna smits Forsætisráðherra Danmerkur varð að fresta fyrirhuguðum fundi sínum með Margréti Þórhildi Danadrottningu í Amalíuborg í morgun þar sem einn í fjölskyldu forsætisráðherrans hafði þá greinst með kórónuveiruna. 19.11.2020 11:34
Himinlifandi með niðurstöður tilrauna Bóluefni Oxford og AstraZeneca við kórónuveirunni myndar sterk ónæmisviðbrögð hjá fólki á sjötugs- og áttræðisaldri. Þetta kom fram í grein sem rannsakendur birtu í læknaritinu Lancet í morgun. 19.11.2020 11:32
Rússar vilja geta lokað á bandaríska samfélagsmiðla Frumvarp var lagt fyrir rússneska þingið í dag sem gerði þarlendum stjórnvöldum kleift að takmarka aðgang að bandarískum samfélagsmiðlum væru þeir taldir mismuna rússneskum fjölmiðlum. 19.11.2020 10:35
Ástralskir hermenn drápu almenna borgara í Afganistan Ástralskir sérsveitahermenn eru sagðir bera ábyrgð á að minnsta kosti þrjátíu og níu morðum sem framin voru í stríðinu í Afganistan á árunum 2009 til 2013. 19.11.2020 09:32
Sátu um höfuðstöðvar lögreglunnar í Bangkok Mótmæli gegn stjórnvöldum halda áfram í Taílandi og í gærkvöldi hópuðust þúsundir mótmælenda fyrir framan höfuðstöðvar lögreglunnar í höfuðborginni Bangkok. 19.11.2020 09:04
BBC lofar að komast að sannleikanum um víðfrægt viðtal við Díönu prinsessu Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur heitið því að komast að sannleikanum um víðfrægt viðtal sem fréttamaður BBC, Martin Bashir, tók við Díönu prinsessu fyrir þáttinn Panorama árið 1995. 19.11.2020 08:33
250 þúsund manns látist vegna Covid-19 í Bandaríkjunum Rúmlega ellefu og hálf milljón Bandaríkjamanna hefur smitast af kórónuveirunni og eru Bandaríkin það ríki heims þar sem flestir hafa smitast og flestir látið lífið. 19.11.2020 06:52
900 starfsmenn Mayo Clinic smitast á tveimur vikum Fleiri en 900 starfsmenn Mayo Clinic, eins virtasta rannsóknarsjúkrahús Bandaríkjanna, hafa smitast af Covid-19 á aðeins tveimur vikum. Næstum allir smituðust utan vinnu en tölurnar þykja sýna hvaða áhrif mikið samfélagssmit getur haft á starfsemi heilbrigðisstofnana. 18.11.2020 23:29
Sögufrægur útvarpssjónauki sagður að hruni kominn Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufræði er mögulega að hruni kominn. Einn af vírunum sem heldur sjónaukanum upp losnaði í sumar. Þegar hefja átti viðgerð á honum gaf annar og mikilvægari vír sig. 18.11.2020 23:00
Áunnið ónæmi gæti varað ár eða áratugi Rannsóknarniðurstöður vísindamanna við La Jolla Institute of Immunology í Bandaríkjunum vekja vonir um að áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 geti varað í mörg ár eða jafnvel áratugi. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókn stofnunarinnar bjuggu enn að nógu góðu ónæmissvari átta mánuðum eftir smit til að vinna á veirunni og koma í veg fyrir veikindi. 18.11.2020 19:29
Áhyggjufullur vegna stöðu Covid-19 í Rússlandi Vladímír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir áhyggjum sínum vegna hækkandi dánartíðni þeirra sem smitast hafa af Covid-19 í Rússlandi. S 18.11.2020 17:58
Leystu upp mótmæli gegn sóttvarnaaðgerðum í Berlín Lögreglumenn í óeirðarbúningum beittu háþrýstisdælum til þess að dreifa mótmælendum gegn sóttvarnaaðgerðum í Berlín í dag. Mótmælendurnir hunsuðu fyrirmæli um að þeir notuðu grímur og pössuðu upp á fjarlægðarmörk sín á milli. 18.11.2020 16:26
Fyrsta andlát barns af völdum Covid í Noregi Barn sem smitað var af kórónuveirunni lést í dag á Haukeland-háskólasjúkrahúsinu í Bergen í Noregi. 18.11.2020 16:13
Fella niður mál gegn mexíkóskum ráðherra í Bandaríkjunum Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur fellt niður ákærur á hendur fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um stórfellt fíkniefnasmygl og peningaþvætti og ætlar að framselja hann til heimalandsins. Framsalið er með skilyrði um að mexíkósk yfirvöld rannsaki hann og sæki til saka eftir atvikum. 18.11.2020 15:47
Vörnin 95 prósent hjá Pfizer sem sækir um neyðarleyfi á næstu dögum Bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech veitir 95 prósent vörn gegn kórónuveirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pfizer, sem nú hefur lokið þriðja stigi prófana á efninu. 18.11.2020 14:25
Óttast áhrif fækkunar í herliði Bandaríkjamanna Tilkynnt hefur verið að Bandaríkjamenn muni fækka í herliði sínu í Írak og Afganistan um 2.500 á næstu vikum. 18.11.2020 13:53
Segir af sér vegna minkamálsins Mogens Jensen, ráðherra matvæla-, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála Danmerkur, hefur sagt af sér embætti vegna minkamálsins. 18.11.2020 11:47
Flýta banni við bensín- og dísilbílum um fimm ár Breska ríkisstjórnin kynnti áform um að flýta banni við nýjum bensín- og dísilbílum um fimm ár í dag. Bannið á nú að taka gildi árið 2030 og vera liður í gera Bretland kolefnishlutlaust fyrir árið 2050. 18.11.2020 10:52
Samþykktu að staðfesta úrslit á sama tíma og Trump hrósaði sigri Repúblikanar og demókratar í fjölmennustu sýslu Michigan-ríkis náðu samkomulagi um að staðfesta úrslit forsetakosninganna þar nánast í sömu andrá og Donald Trump, fráfarandi forseti, fagnaði því að úrslitin yrðu ekki staðfest. 18.11.2020 10:13
„Mig langaði bara að gera góðverk“ Tónlistarkonan Dolly Parton segir að hún hafi einfaldlega viljað láta gott af sér leiða með fjárframlagi sínu til rannsóknarmiðstöðvar Vanderbilt-háskólans. 18.11.2020 09:23
Dregur úr styrk Jóta Dregið hefur úr krafti fellibylsins Jóta sem nú mælist sem hitabeltisstormur þar sem hann gengur yfir Mið-Ameríku. Mikil flóð hafa fylgt óveðrinu og að minnsta kosti níu hafa látið lífið í hamförunum. 18.11.2020 09:10
Stjórnarherinn sækir að höfuðborg Tigray héraðs Stjórnvöld í Eþíópíu segja að stjórnarherinn hafi nú hafið sókn sína að höfuðborg Tigray héraðs þar sem átök hafa geisað milli uppreisnarmanna og hersins. Tigray menn segjast ætla að verjast og hafa þeir komið sér fyrir í bænum Alamata í nágrenni höfuðborgarinnar Mekelle. 18.11.2020 08:47
Rak yfirmann deildarinnar sem hefur eftirlit með kosningum Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú rekið Chris Krebs, manninn sem fór fyrir CISA, sem er undirstofnun innan heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og fylgist með því að kosningar fari fram með réttum hætti. 18.11.2020 06:47
Freista þess að vernda síðasta hvíta gíraffann Dýraverndunarsamtök hafa sett staðsetningarbúnað á síðasta hvíta gíraffann í heiminum en markmiðið er að vernda dýrið fyrir veiðiþjófum. Veiðiverðir munu fylgjast með ferðum gíraffans í rauntíma. 17.11.2020 23:27