Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja eftirlitsmenn Trump hindra endurtalningu í Wisconsin Yfirmenn kjörstjórnar í Wisconsin sökuðu eftirlitsmenn á vegum framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, um að reyna að hindra endurtalningu atkvæða úr forsetakosningunum þar í gær. Framboðið fór sjálft fram á endurtalninguna. 22.11.2020 14:50
Ferjan losuð af strandstað og dregin í höfn Farþegaferjan sem strandaði rétt utan við höfnina í Maríuhöfn á Álandseyjum í gær var losuð og dregin í höfn í dag. Hún hélt för sinni áfram til Turku í Finnlandi þar sem hún fer í slipp til skoðunar og viðgerða. 22.11.2020 14:30
Kínverjar ætla sér að sækja mánasteina Könnunargeimfar sem Kínverjar ætla að skjóta á loft í vikunni á að safna grjóti á tunglinu og koma með aftur til jarðar. 22.11.2020 12:35
Boðar lok sóttvarnaaðgerða á landvísu í byrjun desember Sóttvarnaaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins þar sem fólk hefur verið hvatt til halda sig heima á öllu Englandi verður aflétt samkvæmt áætlun 2. desember. 22.11.2020 12:08
Bóluefnaskammtur á allt að 5.000 krónur Lyfjafyrirtækið Moderna mun selja ríkjum heims hvern skammt af bóluefni sínu við kórónuveirunni á 25 til 37 Bandaríkjadali. 22.11.2020 10:48
Leita hákarls eftir banvæna árás Karlmaður lést eftir að hákarl réðst á hann undan Calbe-strönd í vesturhluta Ástralíu. Þetta er áttunda banvæna hákarlaárásin í landinu á þessu ári. 22.11.2020 10:17
Loftárásir Ísraela eftir eldflaugarárás Palestínumanna Ísraelski herinn gerði loftárásir á Gasaströndinni eftir að herskáir Palestínumenn skutu eldflaug inn í Ísrael í gærkvöldi. 22.11.2020 10:16
Dvöldu í strandaðri ferju við Álandseyjar í nótt Rúmlega þrjú hundruð farþegar og tæplega hundrað manna áhöfn ferjunnar Viking Grace dvöldu um borð í ferjunni í nótt eftir að hún strandaði í illviðri við strendur Álandseyja í gær. Byrjað var að flytja farþegana frá borði í morgun. 22.11.2020 09:23
Mótmælendur kveiktu í þinghúsinu í Gvatemala Hundruð mótmælenda brutust inn í þinghús Gvatemala og lögðu eld að því. Reiði mótmælenda beinist að Alejando Giammattei forseta og þingmönnum sem samþykktu umdeild fjárlög sem skáru framlög til mennta- og heilbrigðismála við nögl. 22.11.2020 08:43
Dómsmáli vísað frá í Pennsylvaníu en Trump vill aðra endurtalningu í Georgíu Alríkisdómari í Pennsylvaníu vísaði frá málsókn framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, vegna forsetakosninganna þar í gær. 22.11.2020 08:11
Ferðalög innanlands bönnuð í Portúgal fyrir jólin Portúgölsk yfirvöld hafa ákveðið að banna ferðalög innanlands og loka öllum skólum í kring um tvo hádegisdaga í von um að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar fyrir jólin. 21.11.2020 22:38
Myrti konuna sína og brenndi líkið Frakkinn Jonathann Daval hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og brennt lík hennar. 21.11.2020 22:00
Sjónarsviptir að fyrrum stærsta útvarpssjónauka heims Uppgötvun tifstjarna sem leiddi til Nóbelsverðlauna og leit að lífi utan sólkerfisins eru á meðal þess sem Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufrægi í Púertó Ríkó færði heiminum. Ritstjóri Stjörnufræðivefsins segir að sjónarsviptir verði að sjónaukanum. 21.11.2020 21:31
Mætti óboðinn á leynilegan fjarfund varnarmálaráðherra ESB Hollenskum blaðamanni tókst að komast inn á leynilegan fjarfund þar sem varnarmálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna ræddu saman. 21.11.2020 16:30
Um fimm hundruð dráttarvélum ekið inn í miðborg Kaupmannahafnar Um fimm hundruð dráttarvélum var keyrt inn í miðborg Kaupmannahafnar í morgun þar sem aðgerðum dönsku ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirusmita á minkabúum var mótmælt. 21.11.2020 16:06
Vara við fullyrðingum um að grímur virki ekki Lýðheilsusérfræðingar hafa gert athugasemdir við fullyrðingar um að grímur gagnist ekki til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á grundvelli nýrrar danskrar rannsóknar. 21.11.2020 15:07
Johnson sagður hafa reynt að útvatna skýrslu um framferði ráðherra Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er sagður hafa reynt að útvatna niðurstöður skýrslu ráðgjafa ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra um að innanríkisráðherrann hafi lagt starfsmenn ráðuneytis síns í einelti. 21.11.2020 12:04
Talíbanar firra sig ábyrgð á mannskæðri árás Minnst átta létust og 30 særðust eftir eldflaugaárás á íbúðahverfi í Kabúl. Stutt er í að fulltrúar Bandaríkjastjórnar og Talíbana haldi friðarviðræður, en Talíbanar hafna því að bara ábyrgð á árásinni. 21.11.2020 10:28
Tilraunir Trump til að breyta úrslitum stranda á Georgíu og Michigan Langsóttar tilraunir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, til að snúa við úrslitum forsetakosninganna sem hann tapaði urðu fyrir enn einum áföllunum í gær. 21.11.2020 09:38
Sonur Bandaríkjaforseta smitaður af veirunni Donald Trump yngri, sonur og nafni Bandaríkjaforseta, greindist smitaður af kórónuveirunni í byrjun síðustu viku. Talsmaður hans segir að hann sé einkennalaus en að hann sé nú í einangrun í veiðikofa sínum. 21.11.2020 07:38
Biðla til stjórnvalda að semja um vopnahlé Hjálparstofnanir hafa kallað eftir því að vopnahlé taki gildi þegar í stað svo að þær geti fært almennum borgurum í Tigray-héraði í norðurhluta Eþíópíu vistir, þar sem eþíópíski herinn og stjórn Tigray-héraðs hafa tekist á undanfarnar tvær vikur. 20.11.2020 23:31
Lara Trump sögð vilja verða öldungadeildarþingmaður New York Times hefur eftir heimildarmönnum að Lara Trump, tengdadóttir Donald Trump, sé að velta því fyrir sér að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar í Norður-Karólínu. 20.11.2020 22:01
Pfizer og BioNTech sækja um neyðarleyfi í dag Lyfjarisinn Pfizer og samstarfsfyrirtækið BioNTech munu sækja um svokallað neyðarmarkaðsleyfi í Bandaríkjunum í dag fyrir bóluefnið BNT162b2 gegn SARS-CoV-2. Það verður undir bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) komið að ákveða hvort bóluefnið þykir nægjanleg öruggt til dreifingar meðal almennings. 20.11.2020 17:15
Mega gefa heilabiluðum sljóvgandi án samþykkis fyrir dánaraðstoð Reglum hefur verið breytt í Hollandi þannig að læknir má nú, án samþykkis, gefa sjúklingi sljóvgandi lyf áður en hann gefur honum lyf sem binda enda á líf sjúklingsins. Þetta ákvað nefnd sem fjallar um dánaraðstoð í kjölfar dóms þar sem læknir var sýknaður einmitt af þessum gjörningi. 20.11.2020 15:34
Fordæma aðfarir Trump sem „ólýðræðislegar“ Tveir öldungadeildarþingmenn úr Repúblikanaflokki Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, gagnrýna harðlega „ólýðræðislegar“ tilraunir hans til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna sem hann tapaði. 20.11.2020 14:33
Maður í Berlín í haldi grunaður um morð og mannát Lögregla í Berlín í Þýskalandi hefur handtekið mann sem grunaður er um morð og mannát eftir að bein úr fórnarlambinu fundust í almenningsgarði í norðurhluta borgarinnar. 20.11.2020 14:26
Patríarki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar látinn af völdum Covid-19 Æðsti biskup serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, patríarkinn Irinej, er látinn af völdum Covid-19, níræður að aldri. Alls eru um 12 milljónir manna í kirkjunni. 20.11.2020 13:40
Varnarmálaráðherrann fer frá eftir umdeilt samkomulag Greint var frá því í morgun að aserski herinn hafi haldið inn í svæðið Aghdam í samræmi við ákvæði samningsins. 20.11.2020 13:04
Yfirmaður siðanefndar segir af sér eftir að Johnson lýsti stuðningi við ráðherra Ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar um siðareglur ráðherra sagði af sér í dag eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra, lýsti yfir stuðningi við ráðherra sem er talinn hafa sýnt af sér kúgunartilburði gagnvart starfsmönnum ráðuneytis síns. 20.11.2020 12:25
Enn deilt um fjárlög og aðgerðapakka Evrópusambandsins Ungverjar og Pólverjar standa enn í vegi fyrir að fjárlagaáætlun og margmilljarða evra aðgerðapakki Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins verði samþykktur. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segðst búast við sátt á endanum. 20.11.2020 11:35
Rannsaka hvernig það gerðist að páfinn „like-aði“ fáklædda fyrirsætu Vatíkanið hefur hafið rannsókn á því hvernig það kom til að opinber Instagram-aðgangur páfa „like-aði“ mynd af fáklæddri brasilískri fyrirsætu. Ekki liggur fyrir hvenær atvikið átti sér stað en á myndinn var fyrirsætan, Natalia Garibotto, klædd í skólabúning. 20.11.2020 11:13
Greiðslur til Ivönku Trump til rannsóknar í New York Skattaafskriftir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, eru nú viðfangsefni tveggja rannsókna í New York. Rannsóknirnar beinast meðal annars að ráðgjafargreiðslum sem virðast hafa runnið til Ivönku Trump, dóttur forsetans. 20.11.2020 10:17
Endurtalning atkvæða í Georgíu staðfesti sigur Bidens Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, fór með sigur af hólmi í Georgíu í forsetakosningunum sem fram fóru fyrr í mánuðinum. 20.11.2020 06:32
Óreiðan, vafinn og reiðin er markmiðið Rudy Giuliani, einkalögmaður Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, og aðrir lögmenn framboðs Trumps, vörpuðu á blaðamannafundi í kvöld fram ýmsum samsæriskenningum varðandi forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. 19.11.2020 22:46
Sex erfiðir mánuðir bíða Evrópu vegna faraldursins Næstu sex mánuðir verða Evrópu erfiðir að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO. Kórónuveirufaraldurinn hefur herjað á álfuna undanfarnar vikur og mánuði. 19.11.2020 21:09
Ætla að loka Arecibo vegna hættu Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufrægi í Púertó Ríkó verður ekki starfræktur lengur. Um mikið högg fyrir geimvísindamenn er að ræða en margir reiða sig á sjónaukann til að finna plánetur, smástirni og jafnvel vísbendingar um vitsmunalíf í geimnum. 19.11.2020 20:55
Norsku konungshjónin í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning eru komin í sóttkví eftir að starfsmaður hirðarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni. 19.11.2020 18:14
„Ótrúlegur hraði“ í þróun bóluefna Jákvæðar niðurstöður berast nú í röðum frá framleiðendum bóluefna gegn kórónuveirunni. Aldrei áður hefur tekið jafnskamman tíma að þróa bóluefni. 19.11.2020 16:18
Írar fylgja í fótspor Dana Landbúnaðarráðherra Írlands hefur tilkynnt eigendum minkabúa í landinu að öllum minkum verði lógað til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 19.11.2020 14:58
BBC ritskoðar vinsælt en óheflað jólalag Yfirmenn bresku útvarpstöðvarinnar BBC Radio 1 hafa tekið ákvörðun um að ritskoðuð útgáfa eins vinsælasta jólalags Bretlands fari í loftið þessi jólin á útvarpsstöðinni. 19.11.2020 14:55
Utanríkisráðherra í fordæmalausri heimsókn í landtökubyggðum Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varð í dag fyrsti hátt setti bandaríski embættismaðurinn til þess að heimsækja landtökubyggðir gyðinga á Vesturbakkanum. Meirihluti alþjóðasamfélagsins telur landtökubyggðirnar stríða gegn alþjóðalögum. 19.11.2020 14:35
Hrókeringar í dönsku ríkisstjórninni Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur kynnt breytingar á ríkisstjórn sinni eftir afsögn ráðherrans Mogens Jensen vegna minkamálsins svokallaða. 19.11.2020 13:56
Höfðar mál vegna dauða Glee-stjörnunnar Naya Rivera Fyrrverandi eiginmaður Glee-stjörnunnar Naya Rivera hefur fyrir hönd dánarbús hennar stefnt yfirvöldum og stjórnendum Piruvatns, norðvestur af Los Angeles í Kaliforníu, vegna dauða Rivera í júlí síðastliðinn. 19.11.2020 13:35
Sjö látnir eftir að forsetaframbjóðandi var handtekinn í Úganda Að minnsta kosti sjö eru látnir og á annan tug slasaðir eftir að óeirðir brutust út á götum í Úganda í kjölfar þess að poppstjarnan og forsetaframbjóðandinn Bobi Wine var handtekinn. 19.11.2020 12:44
Embættismönnum hótað á meðan repúblikanar reyna að fá úrslitum kosninganna breytt Kjörnir fulltrúar sem annast kosningar og starfsmenn kjörstjórna í nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum hafa fengið hótanir um ofbeldi á meðan Donald Trump, fráfarandi forseti, og margir repúblikanar halda uppi órökstuddum ásökunum um stórfelld kosningasvik. 19.11.2020 11:57