Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Hollywood-morðinginn“ dæmdur til dauða Maður sem myrti tvær konur, og fékk viðurnefnið Hollywood Ripper, í byrjun aldarinnar hefur verið dæmdur til dauða. Hann var sakfelldur fyrir morðin, og tilraun til morðs, árið 2019 en vegna faraldursins var uppkvaðningu refsingar frestað þar til nú. 17.7.2021 07:53
Dæmdur fyrir morðið á þrettán ára syni sínum Mark Redwine var í dag dæmdur fyrir morðið Dylan Redwine, þrettán ára gömlum syni sínum. Dylan hvarf sporlaust árið 2012, skömmu eftir að hann hafði fundið myndir af föður sínum í kvenmannsnærfötum að borða saur upp úr bleyju. 16.7.2021 23:57
Alvarlegt ástand í Afríku: „Sökin er alfarið ríku landanna“ Ástandið vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar versnar sífellt í Afríku en í síðustu viku fjölgaði dauðsföllum um 43 prósent í heimsálfunni. Heilbrigðiskerfi margra ríkja eru að þrotum komin en ekkert útlit er fyrir að lát verði þar á. 16.7.2021 21:44
Eiffel-turninn opnaður á ný Einn allra vinsælasti ferðamannastaður Frakklands, Eiffel turninn í París, var opnaður að nýju í dag eftir níu mánaða lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Turninn var opnaður þrátt fyrir að sóttvarnaraðgerðir hafi verið hertar nokkuð í vikunni vegna Delta-afbrigðisins. 16.7.2021 21:32
„Kraftaverk“ að allir lifðu flugslysið af í Rússlandi Allir sem voru um borð í flugvél sem hvarf af ratsjám yfir Rússlandi í morgun lifðu af. Neyðarsendir flugvélarinnar fór í gang þegar henni var brotlent á akri í Síberíu. Það að þau átján sem voru um borð hafi öll lifað af og bara meitt sig lítillega hefur verið lýst sem kraftaverki. 16.7.2021 16:17
Drónamyndband sýnir eyðilegginguna í Þýskalandi Myndband sem tekið er á dróna í bænum Erfstadt-Blessem í vesturhluta Þýskalands sýnir glögglega hversu mikil eyðilegging hefur orðið að völdum mikilla flóða eftir úrhellisrigningu á svæðinu. 16.7.2021 13:38
Grænlendingar stöðva gas- og olíuleit Ríkisstjórn Grænlands hefur ákveðið að hætta allir olíu- og jarðgasleit vegna umhverfisverndarsjónarmiða. Ríkisstjórnin segir þetta náttúrulegt skref þar sem hún taki veðurfarsbreytingar af mannavöldum alvarlega. 16.7.2021 12:46
Kjallarinn hjá Sjöfn fullur af vatni og ástandið á svæðinu hræðilegt Fleiri en hundrað eru látin í miklum flóðum í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg og vesturhluta Þýskalands. Sjöfn Mueller Thor býr vestast í Þýskalandi og hefur staðið í ströngu við að dæla vatni úr kjallaranum hjá sér. 16.7.2021 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Rætt verður við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um þróun kórónuveirufaraldursins í hádegisfréttum en sjö greindust með veiruna innanlands í gær. 16.7.2021 11:33
Önnur flugvél brotlent í Rússlandi Farþegaflugvél hvarf af ratsjám yfir Rússlandi í morgun. Nánar tiltekið hvarf flugvél af gerðinni Antonov AN-28 yfir Tomsk-héraði. Alls eru sautján manns um borð í flugvélinni, þar af þrír áhafnarmeðlimir og fjögur börn. 16.7.2021 11:25
Blaðamaður Reuters felldur í átökum við Talibana Danish Siddiqui, blaðamaður og ljósmyndari Reuters fréttaveitunnar, féll í bardögum stjórnarhers Afganistans og Talibana við landamæri Afganistans og Pakistans í morgun. Siddiqui var á ferð með afgönskum hermönnum þar sem þeir reyndu að ná aftur tökum á bænum Spin Boldak. 16.7.2021 10:29
Hollenskur táningur verður yngsti geimfari sögunnar Hollenskur táningur að nafni Oliver Daemen verður yngsti geimfari sögunnar þegar hann fer út í geim ásamt Jeff Bezos þann tuttugasta júlí. 16.7.2021 07:30
Áttatíu látnir í flóðunum í Þýskalandi Tala látinna í Þýskalandi af völdum flóðanna þar í landi er nú komin í áttatíu manns og er ljóst að um mestu flóð í áratugi er að ræða. 16.7.2021 06:47
Tugir hafa látist í flóðum í Þýskalandi og Belgíu Minnst 58 hafa látist af völdum flóða í norðurhluta Þýskalands. Tala látinna í Belgíu er komin í sex. Fjölmargra er saknað í Vestur-Evrópu. 15.7.2021 21:34
Nýjar aðgerðir kynntar á Kanaríeyjum Nýjar aðgerðir voru kynntar á Kanaríeyjum rétt í þessu og má ætla að hópur Íslendinga hafi fylgst stressaður með, þar sem margir hafa bókað sér ferð í sólina í sumar. 15.7.2021 18:56
Metfjöldi látinna af völdum ofneyslu fíkniefna í Bandaríkjunum Alls létust 92 þúsund manns í Bandaríkjunum vegna of stórs skammts fíkniefna á Covid-árinu 2020. Það er mesti fjöldi sem látist hefur í Bandaríkjunum á einu ári af völdum fíkniefna. 15.7.2021 18:08
Hinir grunuðu tengdir við fundi um framtíð Haítí Ráðamenn á Haítí segja hina grunuðu í morði Jovenel Moise, forseta, hafa hist í aðdraganda morðsins og rætt næstu skref eftir dauða forsetans. Hinir grunuðu segjast hafa verið að tala um næstu skref ef Moise stigi úr embætti. 15.7.2021 16:36
Þekktasti blaðamaður Hollands dáinn eftir skotárás í síðustu viku Peter R. de Vries, þekktur hollenskur rannsóknarblaðamaður er látinn. Hann dó í dag eftir að hafa verið skotinn á götu út í Amsterdam í síðustu viku, þann 6. júlí. De Vries dó af sárum sínum í dag en hann var 64 ára gamall. 15.7.2021 14:49
Í skurðaðgerð vegna fylgikvilla hnífstungu árið 2018 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, þarf mögulega í neyðarskurðaðgerð vegna stíflu í þörmum. Hann var lagður inn á hersjúkrahús til aðhlynningar í fyrradag eftir að hafa fundið til í maganum og vera með hiksta í meira en tíu daga. 15.7.2021 13:49
Drakk óhóflega, neytti kókaíns og stakk blysi í rassinn á sér en sér ekki eftir neinu Gífurleg drykkja fór fram í London síðasta sunnudag þegar úrslitaleikur Evrópumótsins í fótbolta fór þar fram. Myndir og myndbönd af drykkjulátum og skemmdarverkum breskra fótboltabullna hafa vakið mikla athygli og fara sem eldur í sinu um internetið. Einn maður vakti sérstaka athygli þegar myndir af honum með neyðarblys í rassi fóru í dreifingu. 15.7.2021 11:41
Viðurkennir mistök í fyrsta sinn og opnað á netið á Kúbu Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, viðurkenndi að ríkisstjórn sín hefði ekki haldið rétt á spöðunum varðandi skort á eyjunni og önnur vandamál sem hafa leitt til stærstu mótmæla Kúbu í mörg ár. Mótmælendur komu fyrst saman á sunnudaginn en öryggissveitir Kúbu hafa tekið á mótmælendum með hörku. 15.7.2021 09:46
Yfirmaður öryggismála í haítísku forsetahöllinni í haldi lögreglu Dimitri Herard, yfirmaður öryggismála í haítísku forsetahöllinni, er nú í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á morðinu á forsetanum. 15.7.2021 08:44
21 látinn og tuga saknað eftir gríðarlegar rigningar í Þýskalandi Minnst nítján eru látnir eftir gríðarlegar rigningar í þýska sambandsríkinu Rínarlandi-Pfalz síðustu daga. Í nótt flæddi á í bænum Schuld yfir bakka sína með þeim afleiðingum að sex hús hrundu. Tveir hafa látið lífið í Belgíu. 15.7.2021 07:29
Evrópusambandið boðar aðgerðir gegn loftlagsvánni Evrópusambandið tilkynnti í dag fjöldan allan af lagabreytingartillögum sem ætlað er að gera sambandinu kleift að verða kolefnisjafnað fyrir 2050. 14.7.2021 19:25
Íbúar sagðir vopnast vegna ofbeldis í Suður-Afríku Minnst sjötíu manns eru dáin vegna öldu ofbeldis sem gengur nú yfir Suðu-Afríku eftir að Jacob Zuma, fyrrverandi forseti, var fangelsaður í síðustu viku. Óeirðir hafa átt sér stað og fólk hefur farið ránshendi um verslanir og heimili. 14.7.2021 16:45
Með hiksta í rúma tíu daga og kominn á sjúkrahús Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur verið lagður inn á sjúkrahús. Hann er sagður finna til í maganum eftir að hafa verið með hiksta í meira en í tíu dag. Hann var lagður inn á hersjúkrahús í Brasilíu, höfuðborg Brasilíu, og á að vera undir eftirliti lækna í minnst tvo sólarhringa. 14.7.2021 15:10
Ákæra Írana fyrir að ætla að ræna konu frá New York Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa ákært fjóra Írana fyrir að hafa ætlað að ræna bandarískri blaðakonu og aðgerðasinna. Konan, sem heitir Masih Alinejad, hefur verið gagnrýnin á klerkastjórn Írans en mennirnir fjórir eru taldir vera útsendarar hennar. 14.7.2021 14:48
Lego-byssa veldur mikilli reiði vestanhafs Bandarískt fyrirtæki sem framleiðir byssur hefur valdið mikilli reiði vestanhafs og víðar með því að framleiða byssu sem lítur út fyrir að vera gerð úr Lego-kubbum. 14.7.2021 11:14
Hafa náð tökum á þremur af 67 gróðureldum í Bandaríkjunum Rúmlega fjórtán þúsund slökkviliðsmenn og aðrir berjast um þessar mundir við fjölmarga skógar- og gróðurelda í vesturhluta Bandaríkjanna. Eldarnir spanna um fjögur þúsund ferkílómetra en heilt yfir loga 67 stórir eldar sem hafa brennt meira en 900 þúsund ekrur. 14.7.2021 10:23
Einn látinn í óeirðunum á Kúbu Fyrsta dauðsfallið í óeirðunum sem verið hafa á Kúbu síðan um helgina hefur nú verið staðfest. 14.7.2021 09:43
Fimmfalt fleiri smitast eftir afnám takmarkana Tæplega 52 þúsund manns greindust með Covid-19 í Hollandi í síðustu viku. Það er aukning um 500 prósent frá því sem var í vikunni þar á undan, samkvæmt frétt Sky News. 14.7.2021 08:43
Hópsmit um borð í flugmóðurskipi drottningar Um hundrað hermenn á breska flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth, sem er nefnt í höfuðið á Elísabetu Englandsdrottningu, hafa greinst með Covid-19. Hermennirnir eru allir fullbólusettir og mun skipið halda áfram leiðangri sínum. 14.7.2021 08:09
Minnst sautján látin eftir að hótel hrundi í Kína Sautján eru látnir hið minnsta eftir að hótel hrundi til grunna í kínversku borginni Suzhou í austurhluta landsins. Hótelið hrundi í fyrradag og eftir þrjátíu og sex tíma starf hefur björgunarsveitum tekist að finna tuttugu og þrjár manneskjur í rústunum og voru sex þeirra á lífi. 14.7.2021 07:55
Kínverskir feðgar sameinaðir 24 árum eftir að syninum var rænt Guo Gangtang hefur fundið son sinn Guo Xinzhen eftir 24 ára leit. Syninum var rænt fyrir utan fjölskylduheimilið árið 1997 þegar hann var aðeins tveggja ára gamall. 13.7.2021 23:45
Á fimmta tug látinna í óeirðum í Suður-Afríku Minnst 45 hafa látist í óeirðum í Suður-Afríku. Óeirðirnar hófust eftir að fyrrum forseti landsins, Jakob Zuma, var fangelsaður. 13.7.2021 22:44
„Ótrúlega gaman“ að heyra íslenskuna niðri í bæ Íbúi á Amerísku ströndinni á Tenerife kveðst finna lítið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Íslendingum hafi fjölgað mjög á svæðinu undanfarið. 13.7.2021 19:30
Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. 13.7.2021 16:49
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. 13.7.2021 15:41
Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu. 13.7.2021 13:34
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. 13.7.2021 11:38
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. 13.7.2021 08:53
Herða takmarkanir í Frakklandi en bara fyrir óbólusetta Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kynnt hertar aðgerðir í landinu til að koma í veg fyrir aðra bylgju faraldursins. Þær munu einungis ná til þeirra sem ekki eru bólusettir. Hann ætlar einnig að skylda alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu til að fara í bólusetningu. 13.7.2021 08:30
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. 13.7.2021 07:43
Banna hraða tónlist til að draga úr útbreiðslu veirunnar Líkamsræktarstöðvum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og nágrenni hefur verið bannað að spila hraða tónlist í húsakynnum sínum, til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 13.7.2021 07:38