Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hellisbúi nýjasti talsmaður bólusetninga Rúmlega sjötugur Serbi sem búið hefur í helli undanfarin ár ratar nú í heimsfréttirnar fyrir eindregna hvatningu sína til samlanda sinna að láta bólusetja sig. Hann átti erindi til byggða fyrir skemmstu, heyrði þar af Covid-19 og lét slag standa og fékk bóluefni. 15.8.2021 09:46
Viðræður um valdaskipti í Kabúl - talíbanar taka völdin Talíbanar eru komnir til Kabúl, höfuðborgar Afganistan. BBC segir að talíbanar séu að mæta lítilli mótstöðu þar en ekki á að koma til blóðugra átaka. 15.8.2021 07:56
Sæjum árangur róttækra aðgerða fljótt en sumt væri breytt um ókomnar aldir Árangur af því að draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda yrði strax merkjanlegur í meðalhita jarðar innan tuttugu ára. Sumar loftslagsbreytingar héldu þó áfram í áratugi og jafnvel árþúsundir jafnvel þó að menn byrjuðu að fjarlægja gróðurhúsalofttegundir úr lofthjúpnum. 15.8.2021 07:00
Talíbanar ná síðasta vígi stjórnarinnar í norðurhluta Afganistan Talíbanar náðu í dag borginni Mazar-e-Sharif í norðurhluta Afganistan á sitt vald. Borgin er sú fjórða stærsta í landinu. Talíbanar ráða nú ríkjum í stórum hluta landsins og nálgast höfuðborgina Kabúl óðfluga. 14.8.2021 23:54
Tala látinna á Haítí er komin í 304 Minnst 304 hafa látist eftir að öflugur jarðskjálfi varð á Haítí fyrr í dag. Hundruðir eru særðir og mikils fjölda er enn saknað. 14.8.2021 23:02
Minnst 44 eru látin í flóðum í Tyrklandi Gríðarleg flóð hafa verið í Tyrklandi síðustu daga. Tala látinna er komin í 44. 14.8.2021 19:52
Ekki sé hægt að segja Afgönum að sjá um sig sjálfir Árni Arnþórsson, aðstoðarrektor American University of Afghanistan, segir gífurlega erfitt að geta ekkert gert fyrir samstarfsfólk sitt sem grátbiður hann um að bjarga sér því það veit að líf þess gæti endað á næstu dögum vegna uppgangs Talíbana í Afganistan. Umheimurinn geti ekki lokað augunum fyrir því sem er að henda í landinu. 14.8.2021 19:27
Mannfall talið verulegt eftir meiri háttar skjálfta á Haítí Jarðskjálfti af stærðinni 7,2 reið yfir Haítí í morgun, með þeim afleiðingum að verulegur fjöldi fólks lést, að því er bandarísk yfirvöld telja. 14.8.2021 14:45
Nálgast Kabúl óðfluga Alþjóðasamfélagið er uggandi vegna stórsóknar Talíbana í Afganistan. Þeir hafa umkringt höfuðborgina en þjóðir heimsins reyna hvað þær geta að koma fólki í burtu. 14.8.2021 14:03
Delta er ekki jafn smitandi og hlaupabóla en mun skæðari en fyrsta afbrigðið Delta-afbrigði kórónuveirunnar SARS-CoV-2 er ekki jafn smitandi og hlaupabóla en mun meira smitandi en það afbrigði kórónuveirunnar sem fyrst kom fram í Wuhan í desember árið 2019. 14.8.2021 07:01
Yfirráð Talíbana verði aldrei viðurkennd Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir framsókn Talíbana í Afganistan grafalvarlegt mál sem alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. Neyðarstjórn Nató fundaði um stöðuna í dag en yfirráð Talíbana verða aldrei viðurkennd af bandalaginu. 13.8.2021 18:36
Skaut fyrst móður sína Árásarmaðurinn í Plymouth skaut móður sína til bana í gær, áður en hann fór út og skaut á fólk af handahófi. Hinn 22 ára gamli Jake Davison skaut í heild fimm manns og þar á meðal þriggja ára gamla stúlku til bana, áður en hann beindi byssu sinni að sjálfum sér í gær. 13.8.2021 17:03
Júlí hlýjasti mánuður á jörðinni frá upphafi mælinga Meðalhiti jarðar í júlí var sá hæsti sem mælst hefur á jörðinni frá upphafi veðurathugana fyrir hátt í einni og hálfri öld. Norðurhvelið var meira en 1,5°C hlýrra en meðaltal 20. aldarinnar. 13.8.2021 15:55
Hermenn gefast upp í hrönnum Hundruð afganskra hermanna og yfirmenn þeirra gáfust upp fyrir vígamönnum Talibana í morgun. Það gerðu þeir í vestur- og suðurhluta landsins eftir að Talibanar tóku margar mikilvægar borgir. 13.8.2021 15:31
Varaformaður Þjóðarflokksins dæmdur fyrir misferli Morten Messerschmidt, varaformaður danska Þjóðarflokksins, hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skjalafals og misferli með fjármuni Evrópusambandsins í dag. Hann segist ætla að sitja sem fastast á þingi þrátt fyrir dóminn. 13.8.2021 14:52
Þekkti fyrsta fórnarlambið en skaut aðra af handahófi Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið fimm til bana í Plymouth í Bretlandi hefur verið nafngreindur. Hann hét Jake Davison og var 22 ára gamall. Meðal fórnarlamba hans í skotárásinni var þriggja ára stúlka. 13.8.2021 12:00
Einn helsti sérfræðingur Rússlands í þróun hljóðfrárra loftfara handtekinn fyrir landráð Yfirvöld í Rússlandi handtóku í gær einn helsta sérfræðing landsins í þróun hljóðfrárra loftfara. Hann var úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hafi framið landráð. 13.8.2021 10:31
Heimild veitt fyrir örvunarskömmtum fyrir fólk með skert ónæmiskerfi Lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur lagt blessun sína yfir af örvunarskammtar af bóluefni Pfizer og Moderna verði gefnir fólki með skerta ónæmiskerfisstarfsemi. Yfirvöld í nokkrum ríkjum, þar á meðal Íslandi, hafa gripið til þess ráðs að endurbólusetja fólk til að verjast delta-afbrigði kórónuveirunnar. 13.8.2021 08:43
Hvítum ungmennum fækkar í fyrsta sinn Enginn einn kynþáttur yfirgnæfir annan hjá Bandaríkjamönnum undir átján ára aldri og hvítum fækkar í fyrsta skipti frá því talning hófst, samkvæmt nýjasta manntalinu sem gert hefur verið í Bandaríkjunum. 13.8.2021 08:34
Miðgarður flyst frá Nýja-Sjálandi til Bretlands Stjórnendur Amazon-kvikmyndastúdíósins hafa tilkynnt að tökur á annarri seríunni af nýjum sjónvarpsþáttum um ævintýraheim J.R. Tolkien muni fara fram á Bretlandseyjum. 13.8.2021 08:08
Samsung-erfinginn á reynslulausn Samsung-erfingjanum Lee Jae-yong var sleppt úr fangelsi í Suður-Kóreu í morgun eftir að hafa fengið reynslulausn. 13.8.2021 08:01
Trudeau sagður hyggjast boða til kosninga Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada er sagður ætla að boða til skyndikosninga til kanadíska þingsins næstkomandi sunnudag. Þá er stefnt á að kosningarnar fari fram hinn 20. september. 13.8.2021 06:51
Tíu ára barn meðal látnu í Plymouth Byssumaður myrti fimm manns og var síðan sjálfur felldur af lögreglu í Plymouth í Bretlandi í gærkvöldi. Þrjár konur létust og tveir karlar auk byssumannsins. Lögregla skoðar árásina ekki sem hryðjuverk. 13.8.2021 06:36
Náðu tveimur lykilborgum í kvöld Talibanar hertóku í kvöld tvær stórar borgir í Afganistan, þær næststærstu á eftir höfuðborginni Kabul. Herlið talibana þrengir stöðugt að höfuðborginni og hefur nú náð yfirráðum í 12 af 34 héraðshöfuðborgum landsins á innan við viku. 13.8.2021 00:02
Nokkrir látnir eftir skotárás í Plymouth Nokkrir eru látnir í Plymouth eftir alvarlega skotárás. Lögregluyfirvöld segjast ekki gera ráð fyrir að um hryðjuverk hafi verið að ræða og segjast komin með stjórn á aðstæðum á svæðinu. 12.8.2021 21:10
Samsæringur myrti börn sín til að bjarga heiminum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákært fertugan mann fyrir að myrða tvö börn sín með spjótbyssu. Maðurinn sagðist hafa gert það til að bjarga heiminum eftir að hann fékk hugljómun byggða á samsæriskenningum. 12.8.2021 16:19
Telja hundruð til viðbótar hafa látist í hitabylgju Þrefalt fleiri dauðsföll urðu þegar öflug hitabylgja gekk yfir norðvesturríki Bandaríkjanna í júní en yfirvöld hafa hafa rakið til hitans. Líklegt er að mannfallið í hitabylgjunni hafi því verið enn meira en greint hefur verið frá. 12.8.2021 15:39
Heimila veiði meira en tvöfalt fleiri úlfa en lagt var til Ráðamenn í Wisconsin í Bandaríkjunum hafa ákveðið að gefa út 300 veiðileyfi á úlfa í ríkinu í haust. Það er meira en tvöfalt það sem sérfræðingar lögðu til. 12.8.2021 14:57
Ekki hægt að lenda á tunglinu 2024 vegna tafa við þróun geimbúninga Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) mun líklegast ekki geta lent geimförum á tunglinu aftur árið 2024 eins og til hefur staðið í tengslum við Artemis-áætlunina svokölluðu. Það má meðal annars rekja til væntanlegra tafa við þróun og framleiðslu nýrra geimbúninga stofnunarinnar. 12.8.2021 13:15
Engin alvarleg blóðsegavandamál síðustu fjórar vikur Engar tilkynningar um alvarleg blóðsegavandamál hafa verið tilkynnt á Bretlandseyjum í kjölfar bólusetninga síðustu fjórar vikur. Vísindamenn segja þetta mega rekja til þess að tilmælum var breytt þannig að yngri en 40 ára fá ekki bóluefnið frá AstraZeneca. 12.8.2021 12:51
Valta yfir stjórnarherinn: Ríkisstjórnin býðst til að deila völdum með Talibönum Vígamenn Talibana náðu í morgun tökum á þeirra tíundu héraðshöfuðborg í Afganistan. Á undanfarinni viku virðast Talibanar hafa valtað yfir stjórnarher landsins og sveitir stríðsherra sem styðja ríkisstjórnina. 12.8.2021 12:45
Shell greiðir milljarða vegna olíuleka í Nígeríu fyrir hálfri öld Olíurisinn Shell hefur loks fallist á að greiða nígerískum þjóðflokki meira en fjórtán milljarða króna í bætur vegna meiriháttar olíuleka í Biafra-stríðinu á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar með lýkur áralöngum málaferlum vegna lekans. 12.8.2021 10:04
Átta taldir af í þyrluslysi á Kamtjatkaskaga Óttast er að átta manns hafi farist þegar þyrla með ferðamenn um borð hrapaði í stöðuvatn á náttúruverndarsvæði á Kamtjatkaskaga austast í Rússlandi í dag. Átta aðrir sem voru um borð náðu að bjarga sér út úr flakinu. 12.8.2021 09:00
Skraut af brúðartertu Karls og Díönu selst á 325 þúsund krónur Kökuskraut ofan af brúðkaupstertu Karls Bretaprins og Díönu prinsessu seldist nýverið á uppoði fyrir 1.850 pund, jafnvirði 325 þúsund íslenskra króna. Karl og Díana gengu í hjónaband fyrir rúmum fjörtíu árum, 29. júlí 1981. 12.8.2021 08:10
Umdeilt fjölmiðlafrumvarp samþykkt og stjórnin missir meirihlutann Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær umdeilt fjölmiðlafrumvarp sem stjórnarandstæðingar segja miða að því að múlbinda sjónvarpsstöð sem hefur verið gagnrýnin á störf stjórnar landsins. 12.8.2021 08:03
Rússneskur auðjöfur og pólitíkus játar að hafa orðið manni að bana Rússneskur stjórnmálamaður hefur játað að hafa orðið manni að bana en segist hafa haldið að um væri að ræða björn. Stjórnmálamaðurinn, Igor Redkin, er sagður einn auðugasti embættismaður Rússlands. 12.8.2021 07:09
Þúsundir leita skjóls í Kabúl en enda á götunni Þúsundir manna hafa flúið heimili sín víðs vegar um Afganistan undan stórsókn Talibana til höfuðborgarinnar Kabúl. 12.8.2021 06:47
Lok og læs á Nýja-Sjálandi út árið Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands tilkynnti í gær að landamæri ríkisins verði lokuð út þetta ár vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar. Það væri besta leiðin til að halda veirunni í skefjum og efnahagslífinu gangandi. 12.8.2021 06:38
Segja evrópskt hitamet hafa fallið í dag Mögulegt er að mesti hiti í Evrópu frá upphafi mælinga hafi mælst í dag, en stjórnvöld á Sikiley segja að 48,8 gráðu hiti hafi mælst skammt frá borginni Siracusa. 11.8.2021 21:43
Saka Navalní um að brjóta á réttindum fólks Rússnesk yfirvöld hafa lagt fram nýjar ákærur á hendur Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem allt að þriggja ára fangelsisdómur liggur við. Félagasamtök sem Navalní stofnuðu eiga að hafa „brotið á réttindum“ fólks, að sögn yfirvalda. 11.8.2021 15:53
Stærstu gróðureldar á jörðinni loga í Síberíu Gróðureldar sem nú loga á þúsundum ferkílómetra lands í Síberíu eru stærri en allir aðrir gróðureldar sem loga á jörðinni. Rússnesk yfirvöld berjast nú við fleiri en 190 skógarelda en tugir annarra elda fá að loga óáreittir fjarri mannabyggð. 11.8.2021 14:53
Breti handtekinn í Þýskalandi fyrir að njósna fyrir Rússa Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið breskan mann sem vann í sendiráði Breta í Berlín. Maðurinn er sakaður um að hafa njósnað fyrir Rússa. 11.8.2021 13:11
Minnst 65 fórust í umfangsmiklum eldum í Alsír Minnst 65 dóu vegna umfangsmikilla skógarelda í Alsír í gær. Þar á meðal voru 28 hermenn sem voru að hjálpa við slökkvistarf og brottflutning íbúa í Kabylie-héraði. Smærri eldar loga í minnst sextán öðrum héruðum landsins. 11.8.2021 10:59
Þúsundir fengu saltvatnslausn í stað bóluefnis Yfirvöld í norðurhluta Þýskalands hafa biðlað til fjölda einstaklinga um að þiggja viðbótarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eftir að grunur vaknaði um að hjúkrunarfræðingur hefði sprautað þúsundir með saltvatnslausn í stað bóluefnis. 11.8.2021 08:58
Getur ekki falið sig á bakvið „auð og vald og hallarveggi“ Hertoginn af York getur ekki falið sig á bakvið „auð og hallarveggi“ og verður að svara þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar fyrir bandarískum dómstólum. Þetta segir lögmaður Virginiu Giuffre, sem hefur sakað Andrés Bretaprins um nauðgun. 11.8.2021 08:04
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent