Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvítrússneskir stjórnarandstæðingar fangelsaðir í áratug Tveir áberandi stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi, sem mótmæltu umdeildum forsetakosningum harðlega, hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi og reynt að ræna völdum. 6.9.2021 13:15
Öldruðum hrúgað í vöruskemmu þegar Ída gekk yfir Þegar fellibylurinn Ída var farinn hjá og storminn lægði, áttu margir í Louisiana erfitt með að hafa uppi á öldruðum ástvinum. Í ljós kom að um 800 íbúar sjö hjúkrunarheimila höfðu verið fluttir í vöruhús og sjö áttu ekki afturkvæmt. 6.9.2021 10:31
Björguðu týndum þriggja ára dreng eftir fjóra daga í skóginum Þriggja ára drengur sem týndist í skógi í Ástralíu fyrir fjórum dögum fannst heill á húfi í morgun eftir umfangsmikla leit. 6.9.2021 08:24
Hyggjast heimila varðveislu eggja, sæðis og fósturvísa í 55 ár Til stendur að heimila varðveislu frosinna eggja, sæðis og fósturvísa í allt að 55 ár í Bretlandi. Hingað til hefur hámarks varðveislutíminn verið tíu ár en ráðamenn segja breytinguna munu veita einstaklingum meira val um það hvenær þeir stofna fjölskyldu. 6.9.2021 07:56
Taívanar kvarta yfir umferð kínverskra herþota Yfirvöld í Taívan segja að nítján kínverskar herþotur hafi flogið inn fyrir skilgreint varnarsvæði Taívans í gær. Varnamálaráðuneyti landsins segir að þeirra á meðal hafi verið orrustuþotur og sprengjuflugvélar sem borið geti kjarnorkusprengjur. 6.9.2021 06:55
Talíbanar segjast hafa náð yfirráðum yfir Panjshir Talíbanar segjast nú hafa náð yfirráðum yfir Panjshir-dal, sem er síðasta vígi andstæðinga þeirra í Afganistan. Miklir bardagar hafa geisað á svæðinu síðustu daga en dalurinn er norður af höfuðborginni Kabúl. 6.9.2021 06:49
Keppast við að finna uppruna olíuleka í Mexíkó-flóa Hreinsunarteymi á vegum fyrirtækis sem á og rekur olíuleiðslur keppast nú við að komast að uppruna olíuleka sem sést hefur á gervihnattamyndum af Mexíkó-flóa. 5.9.2021 23:31
Segja R.Kelly hafa skipað sér að skrifa neyðarleg bréf honum til verndar Vitni og meint fórnarlömb í máli ákæruvaldsins gegn bandaríska tónlistarmanninum R. Kelly segja hann hafa skipað sér að skrifa bréf sem innihéldu lýsingar sem komu bréfritara illa. Bréfin voru hugsuð sem eins konar trygging sem hann gæti nýtt sér til að vernda sig fyrir lögsóknum. 5.9.2021 22:47
Hefur ekki hitt eina konu sem styður lögin Íslensk kona búsett í Texas hefur þungar áhyggjur af umdeildum lögum sem banna nær alfarið þungunarrof í ríkinu. Hún telur meirihluta Texasbúa andsnúna lögunum. 5.9.2021 21:28
Talibanar sakaðir um að myrða ólétta lögreglukonu Vígamenn Talibana í Afganistan hafa verið sakaðir um að hafa skotið ólétta lögreglukonu til bana. Konan er sögð hafa verið komin átta mánuði á leið. 5.9.2021 18:26
Reyndu lengi að vísa árásarmanninum úr landi Yfirvöld á Nýja-Sjálandi reyndu um árabil að vísa manninum sem stakk sjö í verslunarmiðstöð í Auckland í vikunni úr landi. Það var eftir að Ahamed Aathil Mohamed Samsudeen, sem er nú á fertugsaldri, kom frá Sri Lanka sem flóttamaður. 5.9.2021 10:44
Óttast að hryðjuverkahópar skjóti aftur rótum í Afganistan Mark Milley, yfirmaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, telur líklegt að borgarastyrjöld muni skella á í Afganistan og að hryðjuverkahópar geti notið þá óreiðu til að skjóta þar niður rótum. Talibanar berjast nú við andófsmenn í Panjshir-dal en virðast vera að bera sigur úr býtum. 5.9.2021 07:45
Leynd verður aflétt af rannsóknargögnum FBI vegna hryðjuverkanna 11. september 2001 Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að leynd skuli aflétt af nær öllum rannsóknargögnum sem urðu til við upprunalega rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI á hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. 4.9.2021 23:21
Finnskir táningar í fangelsi fyrir hrottafengið morð Þrír finnskir drengir á táningsaldri hafa verið dæmdir til langrar fangelsisvistar eftir að þeir voru fundnir sekir um hrottafengið morð á kunningja þeirra. 4.9.2021 22:34
Kröfugöngu kvenna í Kabúl mætt með táragasi Hópur kvenna sem mótmælti Talibönum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í dag segir að þeim hafi verið mætt af hörku. Táragasi og piparúða hafi verið spreyjað yfir hópinn og þær hindraðar í að komast að forsetahöllinni. 4.9.2021 21:40
Vilja koma böndum á notkun ormalyfs gegn Covid-19 Heilbrigðissérfræðingar og hópar heilbrigðisstarfsmanna í Bandaríkjunum verja þessa dagana miklu púðri í að reyna að koma í veg fyrir notkun gamals ormalyfs gegn Covid-19. Varað er við því að notkun lyfsins geti valdið skaðlegum hliðarverkunum og lítið sé um sönnunargögn um að lyfið hjálpi raunverulega gegn veirunni. 4.9.2021 13:30
Flugvöllum seinkar og sá þriðji líklega styttur Bakslag er komið í flugvallaframkvæmdirnar á Grænlandi, stærstu innviðauppbyggingu í sögu landsins. Tilkynnt hefur verið um ársseinkun á völlunum í Nuuk og Ilulissat á sama tíma og horfur eru á að þriðji flugvöllurinn, í Qaqortoq, verði minnkaður í sparnaðarskyni. 4.9.2021 08:24
Án matar frá ferðamönnum fara apar ránshendi um heimili Apar á Balí í Indónesíu herja nú á þorpsbúa og fara ránshendi um heimili í leit að mat. Faraldur Nýju kórónuveirunnar hefur valdið því að engir ferðamenn er á svæðinu sem gefa öpum reglulega mat eins og banana og hnetur og því hafa aparnir þurft að leita á önnur mið. 4.9.2021 08:23
Tengja hlýnun á norðurskautinu við fjölgun kuldakasta Hlýnun norðurskautsins sem eru hluti af loftslagsbreytingum af völdum manna hefur tvöfaldað tíðni svonefndra heimskautalægða sem ganga yfir Norður-Ameríku undanfarin fjörutíu ár. 3.9.2021 16:00
Loftgæði bötnuðu tímabundið í kórónuveirufaraldrinum Svifryksmengun minnkaði umtalsvert, sérstaklega í borgum, þegar kórónuveiruheimsfaraldurinn hægði á hagkerf heimsins. Þrátt fyrir samdráttinn var loftmengun víða enn yfir heilsuverndarmörkum. 3.9.2021 13:26
Ný eldflaug sprakk í loft upp í fyrsta geimskotinu Alpha, ný eldflaug bandaríska fyrirtækisins Firefly Aerospace, sprakk í loft upp skömmu eftir flugtak frá Kaliforníu í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem eldflaug af þessari gerð er skotið á loft en fyrirtækið hefur unnið að þróun þeirra í nokkur ár. 3.9.2021 13:01
Fleiri ríki vilja nýta sér smuguna sem Texas fann Að minnsta kosti sex ríki Bandaríkjanna þar sem repúblikanar fara með völdin íhuga nú að leggja fram frumvörp um bann við þungunarrofi sem eru sambærileg við umdeild lög í Texas sem Hæstiréttur Bandaríkjanna leyfði að taka gildi. 3.9.2021 11:45
Grunaður um morðið á hinni sautján ára Birgitte Tengs árið 1995 Karlmaður á sextugsaldri liggur nú undir skjalfestum grun fyrir morðið á hinni sautján ára Birgitte Tengs í Karmøy í Noregi árið 1995. Maðurinn er einnig grunaður um morð á annarri konu, hinni tvítugu Tinu Jørgensen, í Stafangri fimm árum síðar. 3.9.2021 11:14
Níu þúsund einkamál höfðuð á meðan fyrningarfrestinum var aflétt Um 9.000 einkamál hafa verið höfðuð vegna kynferðisofbeldis eftir að löggjafinn í New York ákvað að opna tveggja ára glugga þar sem þolendur gætu sótt rétt sinn jafnvel þótt fyrningarfrestur mála þeirra væri liðinn. 3.9.2021 11:05
Ákæra saksóknara fyrir að hylma yfir með morðingjum Fyrrverandi saksóknari í Georgíu í Bandaríkjunum hefur nú verið ákærður fyrir meðferð sína á drápi á óvopnuðum svörtum skokkara í fyrra. Konan er sökuð um að hafa haldið hlífiskildi yfir karlmönnunum sem eru ákærðir fyrir morðið á skokkaranum. 3.9.2021 09:17
Telja ekki brýna þörf á að heilbrigðir fái örvunarskammt Sóttvarnastofnun Evrópu, ECDC, og Lyfjastofnun Evrópu, EMA, telja að í flestum tilvikum sé ekki talin brýn þörf á á örvunarskammti hjá fullbólusettu fólki. 3.9.2021 08:41
Ráðherra sker upp herör gegn neyslu glaðlofts Innanríkisráðherra Breta, Priti Patel, hefur greint frá því að hún hyggist láta rannsaka áhrif notkunar ungmenna á nituroxíði, sem einnig er kallað glaðloft eða hláturgas. Til greina kemur að gera notkunina ólöglega. 3.9.2021 07:56
Suga hyggst hætta sem forsætisráðherra Yoshihide Suga, forsætisráðherra Japans, hefur tilkynnt að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri sem flokksformaður Frjálslynda flokksins á landsfundi síðar í mánuðinum. Hann mun því hætta sem forsætisráðherra eftir um ár í embættinu. 3.9.2021 07:38
Telja rétt kvenna til þungunarrofs afnuminn í skjóli nætur Ákvörðun íhaldssamra dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna um að fella ekki úr gildi lög í Texas sem banna þungunarrof nær undantekningarlaust þrátt fyrir að þau virðist stangast á við dómafordæmi sætir harðri gagnrýni. Dómararnir eru sakaðir um að afnema grundvallarrétt kvenna í skjóli nætur. 3.9.2021 07:01
„Ofbeldisfullur öfgamaður“ skotinn til bana eftir hnífaárás í stórmarkaði Lögregla á Nýja Sjálandi skaut mann til bana sem gerði hnífaárás í stórmarkaði í borginni Auckland í dag. Jacinda Ardern forsætisráðherra lýsti manninum sem „ofbeldisfullum öfgamanni“ og sagði árásina hryðjuverk. 3.9.2021 06:52
Fólk festist og drukknar í bifreiðum og kjöllurum Að minnsta kosti 45 hafa látist í úrhellisrigningu og flóðum í Bandaríkjunum. Joe Biden Bandaríkjaforseti segir þörf á sögulega umfangsmiklum fjárfestingum til að takast á við loftslagsvandann sem steðjar að heimsbyggðinni. 3.9.2021 06:39
Fjögur ný ABBA lög og plata í nóvember Superbandið ABBA tilkynnti útkomu nýrrar plötu í dag eftir fjörtíu ára hlé og tónleika í leikvangi sem byggður verður sérstaklega fyrir ABBA í Lundúnum. Fyrsta lagið var frumflutt um allan heim á YouTube í dag. 2.9.2021 18:59
Herða tökin á sjónvarpsstöðvum og banna „kvenlega“ leikara Yfirvöld í Kína hafa skipað sjónvarpsstöðvum þar í landi að ráða ekki listamenn sem þykja of kvenlegir og hafi rangar pólitískar skoðanir. Þau beri forsvarsmönnum sjónvarpsstöðvanna að byggja upp andrúmsloft sem ýti undir ættjarðarást. 2.9.2021 15:39
Minnst tuttugu og tveir látnir í New York og New Jersey Minnst 22 eru látnir vegna gífurlegrar rigningar sem gengið hefur yfir New York og New Jersey á austurströnd Bandaríkjanna. Meðal hinna látnu er tveggja ára drengur. 2.9.2021 14:39
Innflutningur á ivermectin tífaldast í Ástralíu og fleiri neita að svara um notkun þess Sífellt fleiri viðskiptavinir neita að upplýsa lyfjafræðinga um það við hverju þeir fengu ávísað lyfjum sem innihalda ivermectin. Þetta segja samtök ástralskra lyfjafræðinga, sem hafa ráðlagt félögum sínum að fylgjast grannt með sölu ivermectin. 2.9.2021 11:04
Réttarhöld yfir fyrrverandi ráðherra innflytjendamála hefjast í Danmörku Ríkisréttur Danmerkur kemur saman í dag til að rétta yfir Inger Støjberg, fyrrverandi innflytjendamálaráðherra en hún er sökuð um að hafa látið stía í sundur ungum hælisleitendum í ráðherratíð sinni. Þetta er aðeins í annað skipti á heilli öld sem rétturinn er kallaður saman. 2.9.2021 08:51
Þýskir Jafnaðarmenn á mikilli siglingu Eftir erfið og mögur síðustu ár virðist sem að byr sé aftur kominn í segl þýskra Jafnaðarmanna, nú þegar rétt rúmar þrjár vikur eru til þingkosninga þar í landi. 2.9.2021 08:43
Hæstiréttur neitar að fella „hjartsláttarlöggjöfina“ úr gildi Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að fella úr gildi ný lög í Texas sem banna þungunarrof í nær öllum tilfellum. Lögin tóku gildi í gær og kröfðust þá fjöldi samtaka sem berjast fyrir rétti kvenna til þungunarrofs þess að Hæstiréttur landsins myndi fella þau úr gildi. 2.9.2021 07:59
Langvarandi Covid helmingi fátíðara hjá fullbólusettum Rannsakendur við King's College London hafa komist að þeirri niðurstöðu að bólusetningar gegn Covid-19 dragi ekki bara úr líkunum á því að smitast og veikjast alvarlega, heldur séu fullbólusettir síður líklegir til að þjást af langvarandi einkennum. 2.9.2021 07:44
NASA leitar hugmynda um tungljeppa Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur biðlað til bandarískra fyrirtækja um hugmyndir varðandi þróun og framleiðslu nýs tungljeppa sem nota eigi til að flytja geimfara um yfirborð tunglsins. Sérstaklega hvað varðar leiðir til að lengja líftíma jeppans við mjög svo öfgafullar aðstæður. 2.9.2021 07:01
Neyðarástand í New York vegna úrhellis og flóða Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í New York-borg vegna gríðarlegs úrhellis og flóða vegna hitabeltisstormsins Ídu, sem hefur fikrað sig norður austurströnd Bandaríkjanna síðustu daga. 2.9.2021 06:33
Gætu lamað varnir Taívans í skyndi Kínverjar vita nákvæmlega hvar varnir Taívans eru og gætu lamað þær á skömmum tíma. Með umfangsmiklum netárásum, í sambland við eldflaugaárásir og laumuárásir sérsveitarmanna á mikilvæga innviði, væri hægt að draga verulega úr varnargetu Taívans. 1.9.2021 23:01
Norður-Kórea afþakkar kínverskt bóluefni Norður-Kórea hefur afþakkað þrjár milljónir bóluefnaskammta gegn Covid-19 frá kínverska lyfjarisanum Sinovac. Norðurkóresk stjórnvöld segja að frekar eigi að senda bóluefnaskammtanna til landa þar sem staðan vegna veirunnar er alvarleg.N 1.9.2021 15:45
Telja tæpan þriðjung trjátegunda á jörðinni í útrýmingarhættu Nærri því þriðja hver trjátegund á jörðinni er nú í hættu á að þurrkast út, fyrst og fremst vegna atgangs manna. Hundruð tegunda eru sögð í bráðri útrýmingarhættu í nýrri skýrslu breskra gróðurverndarsamtaka. 1.9.2021 15:09
Sackler fjölskyldan gæti misst Purdue Pharma í dag Alríkisdómari mun í dag dæma hvort sáttasamningar milli lyfjaframleiðandans Purdue Pharma, nokkurra fylkja Bandaríkjanna og fjölda sveitarfélaga verði samþykktir af ríkinu. Fylkja- og sveitarstjórnirnar stefndu lyfjarisanum vegna ópíóðafaraldursins, sem hefur dregið hálfa milljón Bandaríkjamanna til dauða undanfarna tvo áratugi. 1.9.2021 14:51