Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir handteknir vegna morðs á norðurírskri blaðakonu Lögreglan á Norður-Írlandi handtók fjóra karlmenn í tengslum við morðið á blaðakonunni Lyru McKee í morgun. McKee var skotin til bana þegar hún fylgdist með óeirðum í Londonderry árið 2019. 15.9.2021 09:04
Metfjöldi umsagna um frumvarp sem bannar bælingarmeðferð Metfjöldi umsagna hefur borist um frumvarp stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem bannar svokallaðar bælingarmeðferðir (e. conversion therapy) gegn samkynhneigð. Stuðningsmenn eru vongóðir um að meirihluti umsagnaraðila séu fylgjandi frumvarpinu. 15.9.2021 08:48
Gaf sig fram eftir 29 ár á flótta Maður sem flúði úr áströlsku fangelsi fyrir nærri þrjátíu árum hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hann missti heimili sitt í kjölfar faraldurs kórónuveirunnar. 15.9.2021 08:43
Fremur leiðinleg kosningabarátta og litlausir frambjóðendur Innan við tvær vikur eru nú til kosninga til sambandsþings Þýskalands sem munu leiða í ljós hver verður arftaki Angelu Merkel sem mun senn láta af embætti kanslara eftir um sextán ár í starfi. Stjórnmálafræðiprófessor segir að mörgum þyki kosningabaráttan hafa verið fremur leiðinleg og marga helstu frambjóðendur vera litlausa. 15.9.2021 08:20
Bandarískir háskólar hyggjast rannsaka tengslin milli bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna Rannsakendur við fimm bandarískir háskólar hyggjast nú gera langtíma rannsókn á mögulegum tengslum bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna. Margar konur hafa greint frá breytingum í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19 en enn sem komið er hefur ekki verið sýnt fram á að um orsakasamband sé að ræða. 15.9.2021 08:02
Vetrarbrautin verr blönduð en talið var Samsetning Vetrarbrautarinnar okkar er ekki eins einsleit og vísindamenn hafa talið til þessa. Niðurstöður rannsóknar stjarneðlisfræðings sem nam við Háskóla Íslands benda til þess að endurskoða þurfi líkön um myndun og þróun vetrarbrauta. 15.9.2021 08:00
Norðurkóreumenn sagðir hafa gert tilraun með sprengjuflaug Norðurkóreumenn virðast enn og aftur hafa skotið flugskeytum í tilraunaskyni og nú virðist sem um sprengjuflaug hafi verið að ræða, að sögn yfirvalda í Suður-Kóreu. Undir þetta taka stjórnvöld í Japan. 15.9.2021 07:11
Newsom stendur af sér áhlaupið í Kaliforníu Repúblikönum í Kalíforníu hefur mistekist að hrekja ríkisstjórann Gavin Newsom úr embætti. Kosið var í ríkinu um hvort Newsom ætti að víkja en mikill meirihluti þáttakenda í kjörinu var á því að Newsom ætti að sitja áfram. 15.9.2021 06:51
Hitti móður sína aftur eftir 14 ára aðskilnað Ung kona frá Flórída í Bandaríkjunum hitti móður sína í gær, í fyrsta sinn í 14 ár. Faðir hennar er sagður hafa rænt henni og farið með hana til Mexíkó árið 2007. Hún hafði samband við móður sína í gegnum Facebook á dögunum. 14.9.2021 22:12
Leiðtogar Talibana sagðir hafa hnakkrifist í forsetahöllinni Leiðtogar Talibana eru sagðir hafa hnakkrifist yfir því hvernig ný bráðabirgðaríkisstjórn þeirra í Afganistan er skipuð. Hávaðarifrildi er sagt hafa brotist út í forsetahöllinni í Kabúl. 14.9.2021 21:01
Grínistinn Norm MacDonald látinn Kanadíski grínistinn Norm MacDonald er látinn eftir níu ára glímu við krabbamein. McDonald var 61 árs gamall. Hann er helst þekktur fyrir árin sem hann var hluti af leikaraliði Saturday Night Live, auk þess sem hann var mikilsvirtur uppistandari. 14.9.2021 18:58
Urðu undir hundruð kílóa trjátoppi á meðan þær skoðuðu matseðilinn Ein íslensku kvennanna sem varð undir hluta af pálmatré á spænsku eyjunni Tenerife segir að toppur trésins hafi hrunið fyrirvaralaust á þær á meðan þær skoðuðu matseðilinn. Tvær þeirra liggja nú á gjörgæslu. 14.9.2021 15:21
Kínverskir námsmenn reiðir yfir því að vera bendlaðir við njósnir Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa meinað hundruðum kínverskra nemenda um vegabréfsáritun eða rift þeim að undanförnu. Það hefur verið gert á grundvelli stefnu frá stjórnartíð Donalds Trump, fyrrverandi forseta, sem ætlað var að gera Kínverjum erfiðara að stunda njósnir í Bandaríkjunum. 14.9.2021 14:41
Pútín einangrar sig vegna smitaðra í hans innsta hring Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur ákveðið að einangra sig eftir að fólk í hans innsta hring greindist með Covid-19. Forsetinn ku vera við góða heilsu en hann hefur fengið tvo skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V. 14.9.2021 10:04
Verulega slasaðar eftir að pálmatré féll á þær á Tenerife Tvær íslenskar konur eru verulega slasaðar á gjörgæsludeild eftir að pálmatré féll á þær og þrjár aðrar fyrir utan veitingastað á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Símum kvennanna var stolið þar sem þær lágu í sárum sínum, að sögn eiginmanns einnar þeirra. 14.9.2021 09:14
Lögmaður Andrésar segir samkomulag Giuffre og Epstein fría prinsinn ábyrgð Lögmaður Andrésar, hertogans af York, segir kæru Virginiu Giuffre á hendur prinsinum rakalausa og óframfylgjanlega. Hann segir sátt Giuffre við Jeffrey Epstein leysa Andrés undan allri ábyrgð og þá hafi honum ekki verið birt stefna með réttum hætti. 14.9.2021 09:13
Móðir breska forsætisráðherrans látin Charlotte Johnson Wahl, móðir breska forsætisráðherrans Boris Johnson, er látin, 79 ára að aldri. 14.9.2021 08:51
Fjöldi daga þar sem hitinn nær 50 gráðum hefur tvöfaldast Fjöldi þeirra daga þar sem hitastigið nær 50 gráðum eða meira einhversstaðar á jörðinni hefur tvöfaldast frá 9. áratugi síðustu aldar. Þetta sýnir ný rannsókn sem breska ríkisútvarpið lét vinna á heimsvísu. 14.9.2021 06:41
Tíu ára fangelsi fyrir að sprauta ókunnuga konu með sæði Thomas Stemen var í síðustu viku dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að ráðast á konu í matvöruverslun í fyrra og sprauta sæði í hana. Stemen stakk Katie Peters í rassinn með sprautu sem innihélt sæði úr honum og sprautaði í hana. 13.9.2021 23:30
Handtekinn með sveðju og byssusting nálægt þinghúsinu Lögreglan í þinghúsi Bandaríkjanna handtók í dag mann sem var með fjölda hnífa í bíl sínum. Hann var með ýmis pólitísk tákn máluð á bíl sinn, sem sum teljast til haturstákna. 13.9.2021 23:11
Sigurreifur Gahr Støre: „Við getum loksins sagt að okkur tókst það“ Jonas Gahr Støre, formaður norska Verkamannaflokksins, var sigurreifur er hann ávarpaði flokksmenn sína eftir að ljóst var að vinstri blokkin í norskum stjórnmálum hafði unnið sigur í norsku þingkosningunum í kvöld. Erna Solberg forsætisráðherra og formaður Íhaldsflokksins hefur viðurkennt ósigur. 13.9.2021 22:40
Breska leikkonan fannst heil á húfi Breska leikkonan Tanya Fear er fundin, heil á húfi. Lögreglan í Los Angeles mun ekki aðhafast meira vegna málsins. 13.9.2021 21:02
Þrjár íslenskar konur slösuðust þegar pálmatré féll á þær Þrjár íslenskar konur eru slasaðar eftir að hafa orðið fyrir pálmatré í bænum San Miguel de Abona á spænsku eyjunni Tenerife í gær. 13.9.2021 20:09
Fyrstu tölur benda til þess að átta ára valdatíð Solberg sé á enda Fyrstu tölur í þingkosningunum í Noregi benda til þess að Verkamannaflokkur Jonasar Gahr Støre verði stærsti flokkurinn á þingi. Útlit er fyrir að ríkisstjórn Ernu Solbergs forsætisráðherra muni falla. 13.9.2021 19:33
Breskrar leikkonu leitað í Los Angeles Bresku leikkonunnar Tönyu Fear er leitað í Los Angeles í Kaliforníu en síðast sást til hennar á fimmtudag að sögn vina hennar og fjölskyldu. Hún var skráð sem týnd manneskja hjá lögreglunni í Los Angeles á fimmtudag, 9. september. 13.9.2021 15:49
Sólin gæti sest á forsætisráðherratíð Solberg Skoðanakannanir benda til þess að dagar Ernu Solberg sem forsætisráðherra Noregs gætu verið taldir. Norðmenn gengu að kjörborðinu í dag en loftslagsbreytingar og ójöfnuður í samfélaginu hafa verið efst á baugi í kosningabaráttunni. 13.9.2021 15:25
Stefna á tímamótageimskot á miðvikudagskvöldið SpaceX stefnir að því að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu á miðvikudagskvöld. Búið er að koma Falcon 9 eldflaug og Crew Dragon geimfari fyrir á skotpalli og virðist allt tilbúið fyrir geimskotið, sem er það fyrsta sinnar tegundar. 13.9.2021 14:46
Örlög ríkisstjóra Kaliforníu ráðast á morgun Kosningu um hvort að Gavin Newsom verði settur af sem ríkisstjóri Kaliforníu lýkur á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að Newsom haldi embættinu en 46 manns sem vilja taka við af honum eru á kjörseðlinum. 13.9.2021 09:49
Rannsaka mannrán á eina eftirlifanda kláfslyssins í maí Yfirvöld á Ítalíu rannsaka nú meint mannrán á dreng sem var sá eini sem komst lífs af þegar kláfur hrapaði til jarðar í Mottarone Stresa í norðurhluta landsins í maí síðastliðnum. 13.9.2021 08:44
Gerðu tilraunir með nýja gerð langdrægrar stýriflaugar Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðust í morgun hafa prófað nýja gerð nokkuð landrægrar stýriflaugar sem ógnar stærstum hluta Japans. 13.9.2021 07:20
Heilu þorpin rýmd vegna skógarelda í Andalúsíu Um tvö þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Andalúsíu á Spáni eftir að skógareldar kviknuðu þar í síðustu viku. 13.9.2021 07:12
Falla frá áformum um „bólusetningarvegabréf“ Stjórnvöld í Bretlandi eru hætt við að taka í notkun svokölluð bólusetningarvegabréf, líkt og til stóð að gera í lok þessa mánaðar. Vegabréfinu var ætlað að gera bólusettum kleift að sýna fram á bólusetningu, til þess að fá að fara á skemmtistaði og mannmarga viðburði. 12.9.2021 20:44
Talibanar aðskilja háskólanema eftir kyni Afganskir stúdentar verða aðskildir eftir kyni og nýjar reglur um klæðaburð í háskólum verða settar í landinu. Þetta tilkynntu Talibanar í dag og sögðu að konum í landinu verði leyft að mennta sig, en ekki á sama stað og karlar. 12.9.2021 17:52
Íranar leyfa aftur eftirlit með kjarnorkuframleiðslu Stjórnvöld í Íran samþykktu í dag að heimila eftirlitsfólki Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) að hefja eftirlitsupptökur að nýju í kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins. 12.9.2021 16:00
Leiðtogi Al Qaeda: Birti ávarp 11. september Hryðjuverkasamtökin Al Qaeda birtu í gær myndbandsávarp frá leiðtoga sínum Ayman al-Zawahri. Ávarpið er birt á sama degi og 20 ár voru liðin frá árásum samtakanna á Tvíburaturnana í New York og Pentagon, þar sem um 3.000 manns létust. 12.9.2021 15:19
Borgarstjóri Parísar blandar sér í forsetaslaginn Borgarstjórinn í París, Anne Hidalgo, lýsti yfir framboði til frönsku forsetakosninganna í dag. Hidalgo, sem er fyrsta konan til að gegna embætti borgarstjóra í París, bíður ærið verkefni þar sem flokkur hennar, sósíalistaflokkurinn, hefur staðið höllum fæti á landsvísu síðustu ár. 12.9.2021 14:31
Þinghúsið í Washington: Herða öryggi fyrir samkomu til stuðnings rósturseggja Áformað er að herða á öryggisráðstöfunum í kringum þinghúsið í Washingtonborg fyrir næstu helgi þegar hinir ýmsu öfgahópar hliðhollir Donald Trumps fyrrverandi forseta hyggjast koma saman. 12.9.2021 10:35
FBI opinberar fyrsta skjalið um árásirnar 2001 Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) svipti í gær leyndarhulunni af fyrsta skjalinu í tengslum við árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í september 2001. Skjalið snýr að aðstoð sem tveir hryðjuverkamenn frá Sádi-Arabíu fengu í aðdraganda árásanna. 12.9.2021 10:05
Líkti bandarískum öfgamönnum við hryðjuverkamennina frá 2001 George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti ofbeldisfullum bandarískum öfgaöflum við hryðjuverkamennina sem gerðu árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 11. september 2001. Hann sagði að heimaræktaðir hryðjuverkamenn gætu ógnað Bandaríkjunum eins og erlendir hryðjuverkamenn. 12.9.2021 07:58
Haldlögðu kókaín að andvirði tæplega þrjátíu milljarða króna Sex menn voru handteknir um borð í snekkju við strendur Englands á fimmtudag. Um borð í snekkjunni voru ríflega tvö tonn af kókaíni. 11.9.2021 19:33
Upplifun íbúa New York 11. september 2001: „Ógnarástand og fólk var lengi að jafna sig“ „Þetta var eins fallegur haustdagur og gerist í New York. Blár himinn og haust í lofti,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson aðspurður um morguninn örlagaríka, 11. september 2001. Hann var þá, sem nú, búsettur í New York með fjölskyldu sinni. 11.9.2021 15:27
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. 11.9.2021 11:11
Síðasta drónaárásin í Kabúl: Sjö börn úr sömu fjölskyldunni dóu Síðasta eldflaugin sem vitað er að Bandaríkjamenn skutu í Afganistan grandaði ekki ISIS-liða eins og ráðamenn hafa haldið fram. Þess í stað lenti hún á bíl manns sem hefur starfað fyrir bandarísk hjálparsamtök sem var að skutla vinnufélögum sínum til og frá vinnu. 11.9.2021 10:52
Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll. 11.9.2021 08:12
20 ár frá 11. september 2001: Dagurinn sem allt breyttist Sum andartök eru þess eðlis að tilvera þess sem upplifir þau verður aldrei söm á eftir. Fá hafa þó skekið heimsbyggðina jafn skyndilega og jafn afgerandi og þegar tvær farþegaþotur skullu á Tvíburaturnunum við World Trade Center á Manhattan á heiðskírum þriðjudagsmorgni fyrir réttum 20 árum, hinn 11. september árið 2001. 11.9.2021 06:01