Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Boston og NBA í bobba í Kína Stjórnvöld Bandaríkjanna gagnrýndu í dag hvernig ráðamenn í Kína hafa beitt sér gegn NBA-deildinni. Það er í kjölfar þess að áhorfendum í Kína var meinað að horfa á leiki Boston Celtics í kjölfar gagnrýnna ummæla eins leikmanns í garð kínverskra stjórnvalda. 22.10.2021 22:13
Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins Leikarinn Alec Baldwin segist niðurbrotinn vegna dauða Halyna Hutchins sem dó eftir að hann hleypti af byssu við tökur á kvikmynd í Nýju Mexíkó í gær. Hutchins var kvikmyndatökustjóri en auk hennar særðist Joel Souza leikstjóri. 22.10.2021 17:29
Svindlbrigslari ákærður fyrir að skila atkvæði látinnar eiginkonu Bandaríkjamaður á miðjum aldri, búsettur í Nevada, hefur verið ákærður fyrir kosningasvindl í síðustu forsetakosningum. Hann er talinn hafa sent inn utankjörstaðaratkvæði í nafni konu sinnar, sem lést árið 2017. 22.10.2021 16:22
Leikstjórinn fékk skot í öxlina en hefur verið útskrifaður Leikstjórinn Joel Souza hefur verið útskrifaður af spítala í Santa Fe, eftir að hafa fengið skot í sig úr leikbyssu við tökur á myndinni Rust. Kvikmyndatökustjórinn Halyna Hutchins varð einnig fyrir skoti og var úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahús en það var leikarinn Alec Baldwin sem hleypti af vopninu. 22.10.2021 12:16
Lúxemborg fyrst í Evrópu til að leyfa ræktun og neyslu kannabisefna Íbúar í Lúxemborg mega eiga allt að fjórum kannabisplöntum til eigin nota samkvæmt nýjum lögum sem tilkynnt var um í dag og Guardian segir frá. 22.10.2021 11:37
Var rænt á síðasta ári og hafði fé verið sett til höfuðs honum Sænski rapparinn Einár, sem skotinn var til bana í gærkvöldi, átti þrátt fyrir ungan aldur fortíð innan heims sænskra glæpagengja. Honum hafði áður verið rænt af hópi manna. Fé hafði verið sett til höfuðs honum nokkrum vikum áður en honum var ráðinn bani. 22.10.2021 10:45
Sextán látin eftir sprengingu í púðurverksmiðju Sextán eru látin eftir sprengingu í verksmiðju í Ryazan héraði, sunnan við Moskvu, höfuðborg Rússlands, í morgun. 22.10.2021 10:23
Drottningin varði nótt á sjúkrahúsi Elísabet II Bretadrottning varði aðfaranótt gærdagsins á sjúkrahúsi í London en hún er komin aftur til Windsor-kastala. 22.10.2021 07:52
Einn vinsælasti rappari Svíþjóðar skotinn til bana Sænski rapparinn Einár var skotinn til bana í Hammarby sjöstad í Stokkhólmi í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar greina frá því að heimildarmenn segi Einár hafa ítrekað verið hótað. Morðið er talið tengjast átökum glæpagengja í sænsku höfuðborginni. 22.10.2021 07:07
Biden segir Bandaríkin munu verja Taívan fyrir innrás Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ljóst að Bandaríkjamenn muni verja eyjuna Taívan, ef Kínverjar gera innrás. Þetta kom fram í svörum hans á borgarafundi sem CNN sjónvarpsstöðin stóð fyrir. 22.10.2021 06:38
Alec Baldwin varð konu að bana við tökur á nýrri mynd Leikarinn Alec Baldwin er sagður hafa orðið konu að bana við tökur á kvikmynd í Nýju-Mexíkó. Samkvæmt erlendum miðlum hleypti Baldwin af skotvopni sem var einn af leikmunum myndarinnar, með þeim afleiðingum að kona dó og maður særðist. 22.10.2021 06:27
Þingmenn vilja ákæra Bannon Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddi í kvöld atkvæði með því að ákæra Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmann Donalds Trump, fyrrverandi forseta, fyrir að sýna þinginu vanvirðingu. Bannon hefur neitað að mæta á fund þingnefndar sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar og svara spurningum þingmanna. 21.10.2021 23:48
Jarðskjálfti 5,9 að stærð á Nýja-Sjálandi Jarðskjálfti sem mældist 5,9 að stærð reið yfir á Norðureyju Nýja-Sjálands nú fyrir stuttu. Upptök skjálftans voru á miðri eyjunni en hann er sagður hafa fundist víðast hvar í landinu, þar á meðal á Suðureyjunni. 21.10.2021 23:03
Brian Laundrie sá sem fannst látinn í gær Líkamsleifar sem fundust á náttúruverndarsvæðinu Myakkahatchee Creek í Flórída í gær eru sagðar tilheyra Brian Laundrie, sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur leitað í rúman mánuð í tengslum við morðið á kærustu hans, Gabrielle Petito. 21.10.2021 22:09
Hótaði að myrða trúboðana Leiðtogi glæpagengis sem rændi sautján trúboðum og fjölskyldumeðlimum þeirra á Haítí fyrr í mánuðinum, birti í dag myndband þar sem hann hótaði að myrða fólkið. Það myndi hann gera ef ekki yrði gengið að kröfum hans. 21.10.2021 21:51
Telja að veiran hafi banað á annað hundrað þúsund heilbrigðisstarfsmönnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, telur að kórónuveiran gæti hafa dregið allt frá 80 þúsund til 180 þúsund heilbrigðisstarfsmenn til bana frá upphafi faraldursins. 21.10.2021 18:23
Berlusconi sýknaður af mútuákæru í víðfrægu kynlífsmáli Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa mútað vitni í dómsmáli árið 2013 þar sem hann var ákærður fyrir að hafa haft samræði við ólögráða stúlku. 21.10.2021 17:23
Ákærður fyrir morðið á þingmanninum Ali Harbi Ali, 25 ára gamall breti af sómölskum uppruna, hefur nú verið ákærður fyrir morðið á breska þingmanninum Sir David Amess í síðustu viku. Saksóknarar hafa gefið það út að þeir muni sækja málið á þeim grundvelli að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 21.10.2021 15:15
Þunglyndislyf gæti nýst gegn sjúkdómi sem leiðir til blindu Ný rannsókn vísindamanna við læknadeild Háskólans í Virginíu bendir til að þunglyndislyfið fluoxetine geti reynst áhrifaríkt til að koma í veg fyrir aldursbundna augnbotnahrörnun. Lyfið er þekkt í Bandaríkjunum undir heitinu Prozac. 21.10.2021 14:25
Hjúkrunarfræðingur fundinn sekur um að hafa myrt fjóra sjúklinga Bandarískur hjúkrunarfræðingur hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt fjóra sjúklinga með því að sprauta súrefni í æðar þeirra. Sjúklingarnir höfðu allir gengist undir hjartaaðgerð. 21.10.2021 12:05
Trump ætlar að opna eigin samfélagsmiðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann hyggist opna nýjan samfélagsmiðil, sem eigi að standa gegn „ofríki stórra tæknifyrirtækja“. 21.10.2021 08:23
Gagnaleki varpar ljósi á tvöfeldni ríkja í loftslagsmálum Mikill fjöldi skjala sem lekið var til breska ríkisútvarpsins varpar ljósi á það hvernig ríkari þjóðir heimsins hafa reynt að setja þrýsting á Sameinuðu Þjóðirnar í loftslagsmálum. 21.10.2021 06:54
Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. 20.10.2021 23:25
Vinnustöðum í Rússlandi verði lokað í viku vegna veirunnar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur samþykkt tillögu rússnesku ríkisstjórnarinnar um að loka öllum vinnustöðum landsins fyrstu vikuna í nóvember til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu. 20.10.2021 23:05
Fundu líkamsleifar og bakpoka Laundrie á sama stað Líkamsleifar hafa fundist á sama stað og bakpoki Brians Laundrie, unnusta Gabrielle Petito, sem hefur verið leitað í meira en mánuð. Lögreglan hefur leitað Laundrie svo vikum skipti í tengslum við morðið á Petito. 20.10.2021 20:02
Staðfestu að víkingar voru í Ameríku fyrir sléttum þúsund árum Alþjóðlegt teymi vísindamanna hefur staðfest að víkingar frá Grænlandi numu land á Nýfundnalandi fyrir nákvæmlega þúsund árum síðan. Lengi hefur verið vitað að víkingar fundu Norður-Ameríku en ekki nákvæmlega hvenær. 20.10.2021 18:11
Minnst 150 hafa farist í aurskriðum á Indlandi og Nepal Meira en 150 hafa farist undanfarna daga vegna mikilla flóða og aurskriða sem hafa fallið víða í norðurhluta Indlands og Nepal. Hamfarirnar hafa valdið því að vegir og hús hafa horfið undir vatni og aur. 20.10.2021 17:31
Parkland-fjöldamorðinginn játar sekt Nikolas Cruz játaði í dag fyrir dómi að hafa myrt sautján manns og sært jafnmarga í miðskóla í Parkland í Flórída árið 2018. Hann baðst um leið afsökunar á gjörðum sínum. 20.10.2021 16:02
Navalní hlýtur Sakharov-verðlaunin Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum. 20.10.2021 15:21
Rússar íhuga að loka öllu í viku vegna Covid-bylgju Aldrei hafa fleiri Rússar látist af völdum Covid-19 á einum degi heldur en í gær, en samkvæmt opinberum tölum létust 1.028 manns. Alls hafa 226.353 látist af völdum Covid-19 í Rússlandi frá upphafi faraldursins, sem er það langmesta meðal Evrópuríkja og í fimmta sæti á heimsvísu, á eftir Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Mexíkó. 20.10.2021 13:19
Elísabet fer að ráðum lækna og hættir við heimsókn til Norður-Írlands Elísabet Englandsdrottning hefur ákveðið að fara að ráðum lækna og hætta við fyrirhugaða heimsókn til Norður-Írlands. Mun hún nota næstu daga til að hvílast, samkvæmt yfirlýsingu frá Buckingham-höll. 20.10.2021 12:51
Eldgos hafið í Japan Eldgos hófst í Aso-fjalli á japönsku eyjunni Kyushu í morgun. Öskusúla stígur nú upp frá fjallinu og gjall hefur boristhátt í kílómeter frá gígnum. 20.10.2021 11:36
Tilkynnti um fjögurra vikna útgöngubann og bað bólusetta afsökunar Forsætisráðherra Lettlands tilkynnti á mánudag um fjögurra vikna útgöngubann vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu síðustu daga. Á sama tíma bað hann bólusetta landsmenn afsökunar á að þurfa að grípa til þessara aðgerða, en bólusetningarhlutfall í Lettlandi er eitt það lægsta í ríkjum ESB. 20.10.2021 10:53
Fyrirhuguð framleiðsluaukning jarðefnaeldsneytis ósamrýmanleg loftslagsmarkmiðum Áætlanir ríkisstjórna heimsins gera ráð fyrir aukningu á framleiðslu jarðefnaeldsneytis næsta áratuginn. Þessi staðreynd er algerlega ósamræmanleg því samkomulagi flestra ríkja að reynt verði að sporna við hlýnun jarðarkringlunnnar. 20.10.2021 10:23
Svínsnýra grætt á fótlegg sjúklings starfar eðlilega og framleiðir þvag Skurðlæknum í New York hefur tekist að græða nýra úr erfðabreyttu svíni á mann. Fylgst var með sjúklingnum í 54 klukkustundir og virtist nýrað starfa eðlilega og framleiddi meðal annars þvag og úrgangsefnið kreatínín. 20.10.2021 08:57
Fyrsti íbúi eyjanna til að greinast með Covid-19 Maður greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu í Longyearbyen á Svalbarða í gær og er um að ræða fyrsta smitaða íbúa eyjanna frá upphafi faraldursins. 20.10.2021 08:47
Leggur til að „Reykingar drepa“ verði prentað á hverja einustu sígarettu Þingmenn í báðum deildum breska þingsins hafa lagt fram tillögur um að sígarettuframleiðendur verði skikkaðir til að prenta „Reykingar drepa“ eða „Reykingar valda krabbameini“ á hverja einustu sígarettu. 20.10.2021 07:32
Þverpólitísk sátt um ávítur á hendur Bannon Nefnd þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings sem rannsakar uppþotið og árásina á þinghúsið í Washington í janúar hefur úrskurðað samhljóða að Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður Dondalds Trump fyrrverandi forseta, hafi gerst sekur um að sýna þinginu óvirðingu. 20.10.2021 06:47
Vilja að Bolsonaro verði ákærður fyrir morð Brasilískir öldungadeildarþingmenn segja að ákæra ætti Jair Bolsonaro, forseta landsins, vegna fjölda dauðsfalla sökum Covid-19. Meðal annars ætti að ákæra hann fyrir morð fyrir að ákvarðanir sem leiddu til aukinnar útbreiðslu Covid í Brasilíu. 19.10.2021 23:24
Greindi frá því í beinni að hann væri með MS John King, einn af helstu fréttaþulum bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN, greindi frá því í dag í miðjum umræðuþætti hans á sjónvarpstöðinni að hann væri með taugasjúkdóminn MS. Hann segist vera þakklátur fyrir það að samstarfsfélagar hans séu bólusettir gegn Covid-19. 19.10.2021 23:19
Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. 19.10.2021 22:36
Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. 19.10.2021 19:12
Reyna að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um björgunaraðgerðir Líbanska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga 27. mars næstkomandi, sem gefur ríkisstjórn Najib Mikati forsætisráðherra aðeins nokkra mánuði til að koma á samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um fjárhagsaðstoð vegna kreppunnar sem skekur nú landið. 19.10.2021 15:53
Trump sparkar í látinn mann Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fer ófögrum orðum um Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér sólarhring eftir andlát Powell. Sakar hann Powell um fjölda mistaka og að hafa ekki verið raunverulegur repúblikani. 19.10.2021 14:02
Krefjast milljarða í lausnargjald fyrir bandarísku trúboðana Glæpagengi sem rændi sautján bandarískum trúboðum á Haítí um helgina krefst milljónar dollara í lausnargjald fyrir hvern og einn þeirra, samtals jafnvirði tæplega 2,2 milljarða íslenskra króna. 19.10.2021 13:37