Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átta milljónir Englendinga stunda áhættusama drykkju Milljónir Breta neyta nú áfengis í hættulegu magni heima hjá sér. Ástæðuna má að einhverju leyti rekja til þess að fleiri drekka nú heima en á öldurhúsum vegna kórónuveirufaraldursins. 17.1.2022 08:41
Hafa áhyggjur af drykkjarvatni á Tonga vegna öskufalls Miklar áhyggjur eru uppi um að vatn á eyjaklasanum Tonga verði ódrykkjarhæft vegna öskufalls frá neðansjávareldgosi sem hófst í eldfjallinu Hunga Tonga Hunga Ha'apai á laugardag. 17.1.2022 08:36
Unglingar í Manchester handteknir í tengslum við gíslatökuna í Texas Tveir unglingar í Manchester á Englandi voru handteknir af sérsveitarmönnum í gærkvöldi, grunaðir um tengsl við gíslatöku í bænahúsi gyðinga sem átti sér stað í Texas í Bandaríkjunum á laugardag. 17.1.2022 06:54
Ástralir og Nýsjálendingar senda vélar til Tonga til að kanna tjónið Flugvélar hafa verið sendar af stað frá Ástralíu og Nýja Sjálandi til að leggja mat á tjónið á Tonga eyjaklasanum eftir neðansjávareldgosið öfluga sem orsakaði flóðbylgju á eyjunum. 17.1.2022 06:45
Tímamótabreytingar fram undan hjá BBC Fjárframlagakerfi til breska ríkisútvarpsins tekur miklum breytingum á allra næstu árum að sögn Nadine Dorries, menningarmálaráðherra Bretlands, sem kynnti framtíðaráætlanir ríkisstjórnarinnar í dag. Afnotagjöld breska ríkisútvarpsins verða felld niður eftir fimm ár. 16.1.2022 23:38
Tonga-eyjar orðnar eins og tunglið Á Tonga-eyjaklasanum er umhorfs eins og á Tunglinu eftir gríðarlegt öskufall eftir neðanjarðareldgosið sem braust út í gær að sögn íbúa eyjanna. Þykkt öskulag hylur stóran hluta eyjanna alveg og hafa íbúar þeirra verið án rafmagns og símasambands síðan í gær. 16.1.2022 19:23
Höggbylgja frá Tonga mældist í Bolungarvík Eldgosið í neðansjávareldfjallinu Hunga Ha‘apai hefur kæft eyjaklasann í ösku. Fréttir frá eyjunum eru takmarkaðar en ekki hafa borist fregnir af dauðsföllum. 16.1.2022 16:54
Segir ellefu ára dóttur sína ekki mega mæta í skólann nema hún sé bólusett Íslendingur sem búsettur er í New York segir að hún megi ekki mæta til vinnu nema sýna fram á að hún sé bólusett. Þessi takmörkun tekur einnig til barna en ellefu ára dóttir hennar fær ekki að mæta í skólann nema bólusett. 16.1.2022 14:00
Lögmenn Andrésar vilja yfirheyra sálfræðing Giuffre og eiginmann Lögmenn Andrésar Bretaprins vilja fá að yfirheyra sálfræðing Virginiu Giuffre, sem hefur sakað prinsinn um nauðgun, og segja hana þjást af „fölskum minningum“. 16.1.2022 11:36
Jákvæð teikn á lofti í Lundúnum, New York og víðar Svo virðist sem að hægja sé á smitum sums staðar í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hin margumrædda kúrfa er að fletjast út í Lundúnum, suðaustur- og austurhluta Englands og hægt hefur á greiningum í norðurhluta landsins. 16.1.2022 09:46
Kona deyr eftir að hafa verið hrint fyrir lest í New York Fertug kona lést í New York í gær þegar maður gekk upp að henni þar sem hún beið á neðanjarðarlestarstöðinni í Times Square og hrinti henni í veg fyrir lest. 16.1.2022 09:05
Harry freistar þess að fá að greiða fyrir lögregluvernd í Bretlandi Harry Bretaprins hefur farið fram á að dómstólar taki fyrir ákvörðun breska innanríkisráðuneytisins um að neita honum um að greiða fyrir lögregluvernd þegar hann og fjölskylda hans heimsækja Bretland. 16.1.2022 08:35
Gíslarnir lausir og byssumaðurinn látinn Bandaríska alríkislögreglan réðist inn í bænahús gyðinga Colleyville í nótt, tíu tímum eftir að maður tók fjóra einstaklinga þar í gíslingu. Byssumaðurinn er látinn en lögregla hefur ekki viljað gefa upp hvernig dauða hans bar að. 16.1.2022 07:47
Bandaríkin og Japan vara við flóðbylgju Yfirvöld í Bandaríkjunum og Japan hafa varað fólk við því að vera í nálægð við strendur Kyrrahafsins vegna hættu á að flóðbylgja skelli á þær. Flóðbylgja skall á höfuðborg eyríkisins Tonga í morgun vegna neðarsjávareldgoss sem hófst fyrr í morgun. 15.1.2022 22:37
Gíslataka í bænahúsi gyðinga í Dallas Vopnaður maður hefur tekið fólk gíslingu í bænahúsi gyðinga í Texas í Bandaríkjunum. Maðurinn segist vera vopnaður sprengjum og hafa tekið rabbína bænahússins og þrjár aðra gíslingu. 15.1.2022 21:18
Yfirvöld segja 225 hafa fallið í óeirðum í Kasakstan Yfirvöld í Kasakstan segja 225 hafa fallið í óeirðum í landinu í síðustu viku. Þar á meðal hafi verið 19 meðlimir öryggissveita. Líkamsleifar hinna föllnu voru fluttar í líkhús um landið allt í dag þar sem á að búa þau undir greftrun. 15.1.2022 21:08
Lögregla fær loks síma Baldwin Lögreglayfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa nú loks fengið síma leikarans Alec Baldwin afhentan. Lögregla sagði í samtali við fjölmiðla fyrr í vikunni að leikarinn væri tregur til að afhenda símann en heimild lögreglu lá fyrir í desember. 15.1.2022 17:08
Myrti eiginkonuna til að hefja nýtt líf með viðhaldinu Tannlæknir í Bandaríkjunum er sakaður um að hafa myrt eiginkonu sína í því skyni að komast yfir tæpar fimm milljónir dollara, eða rúmar sex hundruð milljónir króna, í tryggingarfé. 15.1.2022 15:06
Ótrúlegt snarræði lestarstjóra: Maður hrinti konu fyrir lest Maður hrinti konu fyrir lest í Belgíu skömmu fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Snarræði lestarstjóra varð til þess að konan slasaðist ekki, en honum tókst að stöðva lestina með naumindum. 15.1.2022 14:07
Fæddi „kraftaverkabarn“ í háloftunum Kona fæddi barn í flugi flugfélagsins Qatar á leið frá höfuðborginni Doha til Úganda í vikunni. Blessunarlega var læknir um borð sem tók á móti barninu. Móður og barni heilsast vel. 15.1.2022 10:35
Flóðbylgja skall á Tonga Flóðbylgja skall á höfuðborg eyríkisins Tonga í Kyrrahafi í morgun. Bylgjan var ekki nema rúmur metri á hæð og ekki er talið að neinn hafi látist í flóðbylgjunni. 15.1.2022 09:54
Segja Rússa undirbúa fölsun tilefnis til árásar Yfirvöld í Bandaríkjunum sökuðu í dag Rússa um að hafa sent sérstaka sveit hermanna til Úkraínu. Þeirra verk sé að skapa tilefni fyrir Rússa til að gera innrás í Úkraínu. Samhliða því eigir yfirvöld Rússlands í áróðursherferð sem ætlað sé að koma sök á mögulegum átökum á Úkraínumenn. 14.1.2022 22:31
Fékk drottninguna til að hlæja í tilefni dagsins: „Skal hundur heita ef ég læt kerlingu stjórna mér“ Fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur Danadrottning tók við krúnunni. Hátíðarhald var takmarkað vegna kórónuveirufaraldursins en þó var athöfn í danska þinghúsinu í tilefni dagsins. Forsætisráðherra Danmerkur minntist þess þegar landsmenn greiddu atkvæði um hvort kona mætti taka við krúnunni á sínum tíma. 14.1.2022 21:00
Fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur grunaður um landráð Claus Hjort Fredriksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur, er grunaður af dönsku lögreglunni um að hafa brotið trúnað með því að greina fjölmiðlum frá upplýsingum sem varða við þjóðaröryggi, á þeim tíma er hann gegndi ráðherraembætti. 14.1.2022 14:58
Umdeild launahækkun Björns Zoëga í kastljósi sænskra fjölmiðla Mánaðarlaun Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, hækkuðu á síðasta ári um nærri 30 þúsund sænskar krónur, jafnvirði um 430 þúsund íslenska króna. Laun hans eftir hækkunina nema rúmlega 270 þúsund sænskum krónum eða 3,9 milljónum íslenskra króna. 14.1.2022 14:29
Forsætisráðherra Svíþjóðar með Covid-19 Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur greinst með Covid-19. 14.1.2022 08:58
Tölvuþrjótar komu ógnandi skilaboðum fyrir í umfangsmikilli netárás Fjölmargar opinberar vefsíður úkraínskra yfirvalda urðu fórnarlömb umfangsmiklar tölvuárásar, sem einnig beindist að vefsíðum sendiráða ríkisins. 14.1.2022 08:47
Margrét nú verið drottning í hálfa öld Danir fagna því í dag að fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning landsins. Fyrirhuguðum hátíðarhöldum vegna valdaafmælisins hafði áður verið frestað til næsta hausts vegna heimsfaraldursins. 14.1.2022 07:52
Enn uppljóstrað um djamm í Downingsstræti Starfsmenn Downingsstrætis 10, skrifstofu forsætisráðherra Breta hafa nú enn og aftur verið sakaðir um veisluhöld á sama tíma og almenningi var gert að fara eftir ströngum sóttvarnareglum sem bönnuðu allt slíkt. 14.1.2022 06:57
Viðræður strand og Rússar skoða hernaðaraðgerðir Zbigniew Rau, utanríkisráðherra Póllands, varaði við því í dag að hætta væri á stríði í Evrópu. Viðræður milli Bandaríkjamanna, Atlantshafsbandalagsins og Rússa um spennuna við landamæri Rússlands og Úkraínu hafa engum árangri skilað og Rússar segjast vera að skoða mögulegar hernaðaraðgerðir. 13.1.2022 23:08
Ákærðir fyrstir fyrir uppreisn vegna árásarinnar á þingið Stofnandi og leiðtogi hægri-öfgasamtakanna Oath Keepers hefur verið handtekinn og ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum í janúar í fyrra. Auk Stewart Rhodes hafa minnst tíu aðrir meðlimir og félagar samtakanna verið handteknir. 13.1.2022 22:01
Leyfir Twitter á ný Forseti Nígeríu hefur nú tekið ákvörðun um að leyfa notkun samfélagsmiðilsins Twitter aftur. Bannið hafði varað í sjö mánuði eða síðan í júní á síðasta ári. 13.1.2022 21:50
Sjötta hlýjasta ár frá upphafi mælinga Árið 2021 var sjötta hlýjasta ár jarðar frá upphafi mælinga. Vísindamenn segja að hitastig fari almennt hækkandi og gera megi ráð fyrir því að komandi ár verði enn hlýrri. Árið fylgir því fast á hæla áranna 2016 og 2020 sem voru með þeim hlýjustu frá upphafi mælinga. 13.1.2022 19:29
Andrés missir titla sína Andrés prins hefur afsalað sér titlum sínum vegna ásakana gegn honum um kynferðisbrot. Um er að ræða titla hans innan hersins og konungsfjölskyldunnar og mun hann ekki koma að opinberum viðburðum en þessi ákvörðun var tekin með samþykki Elísabetar drottningar, móður Andrésar. 13.1.2022 17:38
Vatnið í eyranu reyndist vera kakkalakki Lítill kakkalakki var fjarlægður úr eyra karlmanns á Nýja Sjálandi á mánudag. Þá voru þrír dagar liðnir frá því hann byrjaði að finna fyrir einhverju iða í eyranu á sér. 13.1.2022 17:25
Bretar stytta einangrun úr sjö dögum í fimm Fólk sem greinist með Covid-19 á Englandi þarf einungis að sæta einangrun í fimm daga að lágmarki í stað sjö frá og með næsta mánudegi. Þetta tilkynnti Sajid Javid, heilbrigðisráðherra Breta, í neðri málstofu breska þingsins í dag. 13.1.2022 12:44
Lögmaður Giuffre segir hana ekki munu sætta sig við fjárhagslega sátt Virginia Giuffre mun að öllum líkindum ekki sætt sig við sátt í málinu gegn Andrési Bretaprins ef hún felur aðeins í sér fjárhagslegar skaðabætur. Lögmaður Giuffre segir hana vilja að sannleikurinn verði leiddur í ljós, fyrir sig og aðra þolendur Jeffrey Epstein. 13.1.2022 10:57
Sýrlenskur ofursti dæmdur fyrir glæpi gegn mannkyni Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt sýrlenskan ofursta í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni þar sem hann starfaði í alræmdu fangelsi í sýrlensku höfuðborginni Damaskus við upphaf borgarastyrjaldarinnar. 13.1.2022 10:16
Aldrei meira barnaníðsefni fundist á netinu Bresku samtökin Internet Watch Foundation segja árið 2021 hafa verið það versta frá upphafi þegar kemur að barnaníð á netinu. Magn efnis þar sem börn á aldrinum sjö til tíu ára séu misnotuð hafi þrefaldast. 13.1.2022 08:50
85 prósent íbúa Afríku enn ekki fengið fyrstu sprautuna Rúmlega 85 prósent íbúa Afríku hafa enn ekki fengið fyrstu sprautu bóluefnis gegn kórónuveirunni. 13.1.2022 07:55
Hitinn víða upp undir 50 stig Hitabylgja gengur nú yfir vesturhluta Ástralíu og víða hefur hitinn þar náð hæðum sem aldrei hafa sést áður. Í bænum Roebourne náði hitinn til að mynda 50 gráðum á celsíus kvarðanum en fyrra met féll árið 2011. 13.1.2022 07:21
Ronnie Spector söngkona Ronettes er dáin Söngkonan Ronnie Spector, sem leiddi hljómsveitina The Ronettes og er hvað þekktust fyrir lög eins og Be My Baby og Baby I Love You, er dáin. Hún var 78 ára gömul. Í tilkynningu frá fjölskyldu hennar segir að Spector hafi glímt við krabbamein og hún hafi látist í faðmi fjölskyldu hennar. 12.1.2022 23:50
Boris á hálum ís Staða Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þykir nokkuð óviss og eru þingmenn Íhaldsflokksins byrjaðir að kalla opinberlega eftir því að hann láti af embætti. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að hann sótti garðveislu við Downingstræti tíu í maí 2020, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. 12.1.2022 22:18
Varð ekki við beiðni Andrésar prins um frávísun Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins hefur hafnað því að málinu verði vísað frá dómstólum í Bandaríkjunum. 12.1.2022 15:10
Boris Johnson biðst afsökunar á veisluhöldum í samkomubanni Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, baðst í dag afsökunar á að hafa sótt garðveislu sem fram fór í garði Downingstrætis 10 í maí 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. Stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans vegna málsins. 12.1.2022 13:15