Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR-ingar þurfi að láta Helga fara: „Þetta er bara komið gott“ Strákarnir í Körfuboltakvöldi fóru eins og svo oft áður um víðan völl í Framlengingunni og ræddu þar meðal annars um slæma stöðu KR-inga í Subway-deildinni. 29.11.2022 23:31
Sjáðu Óðin tryggja Kadetten sigurinn með seinasta kasti leiksins Óðinn Þór Ríkharðsson reyndist hetja svissneska liðsins Kadetten Schaffhausen er liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn Benfica í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 26-25, en Óðinn tryggði liðinu sigurinn þegar leiktíminn var runninn út. 29.11.2022 23:00
„Mér fannst við eiga inni“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir tap liðsins gegn franska liðinu PAUC í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Valsmenn voru með leikinn í höndum sér framan af í síðari hálfleik, en Frakkarnir sigldu fram úr á lokakaflanum. 29.11.2022 22:31
Segir að loftræstingin á leikvöngunum sé að gera leikmenn veika Brasilíski knattspyrnumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United og brasilíska landsliðsins, segir að loftræstingin á leikvöngunum á HM í Katar hafi valdið því að hann, og aðrir leikmenn brasilíska liðsins, hafi orðið veikir á síðustu dögum. 29.11.2022 22:00
Umfjöllun: PAUC - Valur 32-29 | Stöngin út hjá Val í Frakklandi Eftir frábæra frammistöðu lengst af varð Valur að játa sig sigraðan gegn PAUC, 32-29, í B-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta karla í kvöld. Þetta var annað tap Valsmanna í Evrópudeildinni í röð en þriðji sigur Frakkanna í röð. Kristján Örn Kristjánsson lék ekki með PAUC í kvöld vegna meiðsla. 29.11.2022 21:30
Pulisic skaut Bandaríkjamönnum í 16-liða úrslit Christian Pulisic skoraði eina mark leiksins er Bandaríkjamenn unnu 1-0 sigur gegn Íran í lokaumferð B-riðils á heimsmeistaramótinu í Katar í kvöld. Sigurinn þýðir að Bandaríkjamenn eru á leið í 16-liða úrslit á kostnað Írana. 29.11.2022 21:02
England tryggði sér efsta sætið með öruggum sigri í grannaslagnum England tryggði sér efsta sæti B-riðils á heimsmeistaramótinu í Katar er liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn nágrönnum sínum í Wales í kvöld. Ekki nóg með það að hafa gulltryggt sæti sitt í 16-liða úrslitum tókst Englendingum einnig að slá Walesverja úr leik. 29.11.2022 20:55
„Að fá alvöru lið heim til Íslands er að gera ótrúlega mikið“ Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, er þessa stundina staddur á leik PAUC og Vals úti í Frakklandi í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta. Hann segir það gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskan handbolta að sjá Valsmenn máta sig við nokkur af stærri liðum Evrópu. 29.11.2022 20:23
Framarar sækja liðsstyrk til Grindavíkur Framarar hafa samið við knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson um að leika með liðinu í Bestu-deild karla næstu tvö árin. 29.11.2022 20:01
Ystads fyrsta liðið til að vinna Flensburg | Óðinn tryggði Kadetten dramatískan sigur Sænska liðið Ystads varð í kvöld fyrsta liðið til að hafa betur gegn þýska stórliðinu Flensburg í B-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta, 29-26. Þá var Óðinn Þór Ríkharðsson hetja Kadetten er liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn Benfica, 26-25 29.11.2022 19:20
Ljósleiðaradeildin í beinni: Snúa aftur eftir langa pásu Tíunda umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hefst í kvöld með tveimru leikjum í veinni útsendingu á Stöð 2 eSport og Vísi. Deildin hefur verið í pásu í tæpar þrjár vikur þar sem liðin tóku þátt í forkeppni Blast mótaraðarinnar. 29.11.2022 19:17
Tæknin sannar að Ronaldo snerti aldrei boltann Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo fagnaði ógurlega er liðið tók 1-0 forystu gegn Úrúgvæ í leik liðanna á HM í gær. Ronaldo fullyrti að hann hafi snert boltann á leið sinni í netið eftir fyrirgjöf frá Bruno Fernandes, en tæknin hefur nú sannað að svo var ekki og það var því Bruno sem skoraði markið. 29.11.2022 17:45
Senegal heiðraði minningu Diop á besta mögulega hátt Senegal er komið áfram í 16-liða úrslit á HM í Katar eftir 2-1 sigur á Ekvador í A-riðli keppninnar í dag. Kalidou Koulibaly var hetja liðsins. 29.11.2022 17:00
Gakpo sjóðheitur og Holland tók efsta sætið Holland tryggði sér sigur í A-riðli HM karla í fótbolta með auðveldum og öruggum 2-0 sigri gegn gestgjöfum Katar í lokaumferð riðilsins í dag. 29.11.2022 16:52
KR skiptir út manni fyrir botnslaginn mikilvæga KR-ingar stefna á að tefla fram nýjum leikmanni á fimmtudaginn í leiknum mikilvæga gegn ÍR í Subway-deild karla í körfubolta. Þeir sendu annan leikmann heim í staðinn. 29.11.2022 16:30
Fjórir dagar í Stjörnupíluna: Meistari í bolluáti og kappsamur kylfingur Það verður sannkölluð pílukastveisla á Bullseye og Stöð 2 Sport á laugardagskvöld þar sem þjóðþekktir Íslendingar og bestu pílukastarar landsins verða á svæðinu. 29.11.2022 15:46
„Auðvitað er þetta ótrúlega erfitt andlega“ Körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir úr Haukum vonast til að komast aftur á völlinn fyrir áramót en hún jafnar sig eftir liðþófaaðgerð. Hún segir taka á að vera utan vallar en hlakkar mikið til að komast aftur á parketið. 29.11.2022 15:00
Gunnar foxillur: „Það er labbað í gegnum ykkur“ „Gunni Magg reif nýtt rassgat á sína leikmenn í þessu leikhléi,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, um sannkallaðan reiðilestur frá foxillum Gunnari Magnússyni, þjálfara Aftureldingar, í gærkvöld. 29.11.2022 14:01
Brá í brún þegar félagið tilkynnti að hann væri látinn Portúgalska stórliðið Porto tilkynnti í gær um andlát Domingos Gomes, sem var yfirlæknir fótboltaliðs félagsins um árabil. Gomes er aftur á móti sprelllifandi. 29.11.2022 13:30
Hættir eftir skrautlegan vetur og röð mistaka Mattia Binotto hefur sagt upp starfi sínu sem yfirmaður Ferrari-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum. Ferrari átti strembið tímabil sem endaði sérstaklega illa. 29.11.2022 13:00
HM í Katar „gullgæs“ fyrir Talibana sem græddu milljarða Hreyfing Talibana í Afganistan græddi andvirði milljarða króna á uppbyggingu Katara fyrir heimsmeistaramót karla í fótbolta sem nú stendur yfir í síðarnefnda ríkinu. Það gerðu þeir fyrir tilstuðlan greiðslna frá katarska ríkinu undir yfirskini friðaviðræðna. 29.11.2022 12:31
Sammála en rifust samt um Þorstein Gauta: „Þú breytir ekkert minni skoðun“ Fram var án Þorsteins Gauta Hjálmarssonar þegar liðið tapaði gegn Stjörnunni í Olís-deildinni í handbolta á sunnudag. Þorsteinn hefur ekki getað beitt sér í sókn Fram í síðustu þremur leikjum sem allir hafa tapast. 29.11.2022 12:00
Neville gapandi hissa á Thiago Silva Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi landsliðsmaður Englands, botnar ekkert í því hvernig brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva fer að því að spila jafn vel og hann gerir, 38 ára að aldri. 29.11.2022 11:31
Geir heiðraður með pompi og prakt | Myndir og myndbönd FH-inga heiðruðu einn sinn dáðasta son, Geir Hallsteinsson, fyrir áratuga langt starf fyrir félagið fyrir leik gegn Mosfellingum í Olís-deild karla í handbolta í gær. 29.11.2022 11:01
De Bruyne, Hazard og Vertonghen slógust næstum því eftir tapið fyrir Marokkó Litlu munaði að slagsmál brytust út í búningsklefa belgíska landsliðsins eftir tapið fyrir Marokkó á HM í Katar. 29.11.2022 10:30
Fernandes hélt að Ronaldo hefði skorað markið sem var skráð á hann Bruno Fernandes hélt að Cristiano Ronaldo hefði skorað fyrra mark Portúgals gegn Úrúgvæ en ekki hann sjálfur. 29.11.2022 10:01
„Ekki með eins lið og Valsarar upp á hraðann að gera“ Kristján Örn Kristjánsson, skytta í liði PAUC frá Frakklandi sem tekur á móti Val í Evrópudeild karla í handbolta í kvöld, segir að hans menn búist fastlega við sigri. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. 29.11.2022 09:31
Íhugaði sjálfsmorð eftir brottreksturinn frá Sky Sports Andy Gray segir að hann hafi verið í sjálfsmorðshugleiðingum eftir að hann var rekinn frá Sky Sports fyrir ellefu árum fyrir niðrandi ummæli um konur. 29.11.2022 09:00
Blaðamaður sagði að Hazard væri feitur og bað svo um mynd af sér með honum Egypskur blaðamaður tjáði Eden Hazard, einni af stærstu stjörnu belgíska landsliðsins, að hann væri orðinn feitur. Hann bað síðan um mynd af sér með Hazard. 29.11.2022 08:31
Southgate sýnir Englendingum myndband af því hvernig Walesverjar fögnuðu sigri Íslendinga 2016 Til að kveikja í sínu liði fyrir leikinn mikilvæga gegn Wales á HM í Katar í kvöld ætlar Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, að sýna sínum mönnum myndbönd af því þegar Walesverjar glöddust yfir sigri Íslendinga á Englendingum á EM 2016. 29.11.2022 08:02
Íranskar konur telja næsta öruggt að ríkisstjórn Írans fylgist með þeim á HM Kvenkyns stuðningsmenn íranska landsliðsins í fótbolta telja að menn á vegum ríkisstjórnar landsins fylgist með þeim á leikjum liðsins á heimsmeistaramótinu sem nú fer fram í Katar. 29.11.2022 07:30
Gunnhildur Yrsa ekki sátt með ákvarðanir FIFA: „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigða“ „Heimurinn er ekki öruggur fyrir samkynhneigðra, það er bara þannig, og því miður ýtir framkoma FIFA undir ástandið. Ég hef verið stolt af því að spila fótbolta, að allir væru velkomnir, en í dag líður mér ekki þannig,“ segir landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á Twitter-síðu sinni. 29.11.2022 07:01
Dagskráin í dag: Valsmenn í Frakklandi Valur mætir PAUC í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Um er að ræða þriðja leik liðsins í keppninni en til þessa hafa Valsmenn unnið tvo leiki og tapað aðeins einum. 29.11.2022 07:01
Einn úr starfsliði Gana smellti af sjálfu með súrum Son eftir sigur Gana á Suður-Kóreu Gana vann frábæran 3-2 sigur á Suður-Kóreu í H-riðli heimsmeistarakeppninnar í fótbolta. Eftir leik ákvað einn úr starfsliði Gana að smella af sjálfu með tárvotum Son Heung-min, leikmanni Tottenham Hotspur og fyrirliða Suður-Kóreu. 28.11.2022 23:30
Lögmál leiksins: „Þetta eru fjórir af fimm eða sex bestu leikmönnum deildarinnar“ Hinn klassíski liður „Nei eða Já“ er fastur liður hjá strákunum í Lögmál leiksins. Þar er farið yfir það helst sem hefur gerst í NBA deildinni á undanförnum dögum. Farið var yfir hvaða lið myndi vinna ef Bandaríkin myndu mæta heiminum í Ryder Cup körfuboltans. Þá var velt fyrir sér hvort Sacramento Kings myndi enda fyrir ofan Los Angeles Lakers. 28.11.2022 23:01
„Ég sem þjálfari er svekktur yfir því að hafa ekki tekist að undirbúa þetta betur“ Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var ósáttur með hvernig sínir menn mættu til leiks gegn FH í kvöld. Eftir átta leiki án taps í deild og bikar lutu Mosfellingar loks í gras í Kaplakrika í kvöld, 38-33. 28.11.2022 22:45
„Ef einhver á þetta skilið er það meistari Geir“ Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var kátur eftir sigurinn á Aftureldingu, 38-33, í kvöld. Fyrir leikinn var mikil athöfn þegar Geir Hallsteinsson var heiðraður fyrir áratuga framlag til FH og leikmenn liðsins heiðruðu hann líka á sinn hátt, með frábærum leik og góðum sigri. 28.11.2022 22:30
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Afturelding 38-33 | Heiðruðu Geir með frábærum leik FH vann sinn sjöunda leik í Olís-deild karla í röð þegar liðið lagði Aftureldingu að velli í Kaplakrika í kvöld, 38-33. Þetta var aftur á móti fyrsta tap Mosfellinga í átta deildarleikjum. 28.11.2022 22:20
Agnelli, Nedvěd og öll stjórn Juventus segir af sér Þau stórtíðindi bárust í kvöld að öll stjórn ítalska knattspyrnuliðsins Juventus hafi sagt af sér. Þar á meðal er forsetinn Andrea Agnelli og varaforsetinn Pavel Nedvěd en sá síðarnefndi lék á sínum tíma með liðinu. 28.11.2022 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍR 30-26 | Haukar unnu leikinn sem þeir urðu að vinna Haukar komust aftur á sigurbraut eftir fjögurra marka sigur á ÍR 30-26. Þetta var langt frá því að vera skemmtilegur handboltaleikur en einstaklings gæði Hauka áttu síðasta orðið að lokum. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 28.11.2022 22:00
„Erum á þeim stað að við verðum að ná í úrslit sama hvað“ Haukar komust aftur á sigurbraut eftir fjögurra marka sigur á ÍR 30-26. Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var jákvæður eftir leik. 28.11.2022 21:30
Bruno Fernandes skaut Portúgal í sextán liða úrslit Portúgal er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Úrúgvæ. Bruno Fernandes með bæði mörkin þó svo að Cristiano Ronaldo hafi reynt að sannfæra alla og ömmu þeirra um að hann hefði skorað fyrra mark leiksins. 28.11.2022 21:00
Nkunku fer til Chelsea næsta sumar Það virðist ekkert geta komið í veg fyrir að franski sóknarmaðurinn Christopher Nkunku fari til enska fótboltafélagsins Chelsea sumarið 2023. Nkunku á að baki 8 A-landsleiki fyrir Frakkland og var einn þeirra sem átti að fara til Katar þar sem HM fer nú fram. Hann þurfti hins vegar að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. 28.11.2022 20:30
Dregið í þriðju umferð FA bikarsins: Manchester City mætir Chelsea Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins á Englandi nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Englandsmeistara Manchester City og Chelsea. 28.11.2022 20:01
Ingunn úr Vesturbænum í Laugardalinn Ingunn Haraldsdóttir, fyrrverandi fyrirliði KR, er gengin í raðir Þróttar og mun leika með liðinu í Bestu deild kvenna á næstu leiktíð. Ingunn var samningslaus og því þarf Þróttur ekki að greiða fyrir miðvörðinn öfluga. 28.11.2022 19:30