Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Annáll Bestu deildar karla: Grænn var litur sumarsins 2022 Besta deild karla var gerð upp í Íþróttasíld Stöðvar 2 á gamlársdag. Segja má að Breiðablik hafi stolið senunni árið 2022 en eftir að missa titilinn úr greipum sér árið 2021 kom ekkert annað til greina en að landa þeim stóra. Sumarið 2022 var grænt svo vægt sé tekið til orða. 2.1.2023 20:00
Brentford stöðvaði sigurgöngu Liverpool Brentford vann magnaðan 3-1 sigur á Liverpool í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leik hafði Liverpool unnið fjóra deildarleiki í röð. Sigurinn er enn merkilegri fyrir þær sakir að Ivan Toney, markahæsti leikmaður Brentford á leiktíðinni, var fjarri góðu gamni. 2.1.2023 19:30
Leikmannahópur Freys hjá Lyngby minnkar Íslendingalið Lyngby, botnlið dönsku úrvalsdeildarinnar, hefur misst tvo leikmenn nú þegar í janúarglugganum. Hvort liðið muni styrkja sig áður en leikar hefjast að nýju í deildinni mun koma í ljós. 2.1.2023 19:00
Lukaku segir alla vita hvað hann vill Belgíski framherjinn Romelu Lukaku segir allan heiminn vita hvað hann vill, að Inter Milan kaupi sig til baka frá Chelsea en leikmaðurinn er sem stendur á láni hjá Inter frá Chelsea. Þá telur Lukaku að framherjinn fyrrverandi Thierry Henry sé rétti maðurinn til að stýra belgíska landsliðinu. 2.1.2023 18:16
Vill Mourinho sem næsta Bond skúrk Verðlaunaleikstjórinn Sam Mendes, sem leikstýrði tveimur kvikmyndum í James Bond-seríunni, segir að José Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, væri frábær sem skúrkur í slíkri mynd. 2.1.2023 17:31
Jón Daði á skotskónum Jón Daði Böðvarsson komst á blað er Bolton Wanderers lagði Barnsley í ensku C-deildinni í fótbolta í dag. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley unnu Swansea í B-deildinni þarlendis. 2.1.2023 17:05
„Þeir klúðruðu Kobe og eru núna að klúðra Lebron“ Leiðindi Los Angeles Lakers á þessu tímabili er á meðal þess sem farið verður yfir í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Þátturinn hefst klukkan 21:50 á Stöð 2 Sport 2. 2.1.2023 16:31
Enginn sérfræðinga Sky Sports trúir því að Arsenal klári titilinn Þrír sérfræðingar Sky Sports spáðu fyrir um ensku meistarana og fjögur efstu sætin í ensku úrvalsdeildinni í vor. 2.1.2023 16:00
Ólympíumeistarinn mætti í of stórum fötum og var dæmdur úr keppni Norski skíðastökkvarinn Marius Lindvik virtist byrja nýtt ár afar vel með lengsta stökkinu í undankeppninni í árlega nýársmótinu í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi. Það breyttist hins vegar stuttu eftir stökkið. 2.1.2023 15:31
Mbappé sló við Haaland og öllum hinum á árinu 2022 Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hefur raðað inn mörkum á þessu tímabili en hann endaði samt langt á eftir Frakkanum Kylian Mbappé þegar tekin voru saman öll mörk leikmanna á árinu. 2.1.2023 15:01
„Við erum ekki að spila Monopoly“ Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, ýjaði að því á blaðamannafundi að frekari viðskipta sé ekki að vænta hjá félaginu í janúar. Liðið festi kaup á Cody Gakpo frá PSV í upphafi gluggans. 2.1.2023 14:30
Tveir erlendir leikmenn til viðbótar yfirgefa KR Bandaríkjamaðurinn EC Matthews og Frakkinn Jordan Semple hafa báðir yfirgefið körfuboltalið KR sem leikur í Subway-deild karla. 2.1.2023 14:16
Spjaldafylleri spænska dómarans heldur áfram Óhætt er að segja að spænski fótboltadómarinn Mateu Lahoz hafi verið duglegur að veifa spjöldum í síðustu tveimur leikjum sínum. 2.1.2023 14:02
Toppliðinu berst mikill liðsstyrkur Emelía Ósk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélags síns Keflavíkur fyrir síðari hlutann í Subway-deild kvenna í körfubolta. 2.1.2023 13:45
Skíðastökkvari fagnaði eins og Haaland Norðmaðurinn Halvor Egner Granerud stökk lengst allra á virtu nýársmóti skíðastökkvara í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi í gær og hann fagnaði með sérstökum hætti. 2.1.2023 13:30
Margir gapandi yfir öllum ástæðunum fyrir því að Kyrie spilar í ellefunni Það þýðir ekkert að bjóða körfuboltamanninum Kyrie Irving að spila í öðru númeri. Ótrúlega margar ástæður eru fyrir því að Kyrie spilar í treyju númer ellefu. 2.1.2023 13:00
21 af 30 leikmönnum sautján ára landsliðsins lugu til um aldur sinn Þjálfari kamerúnska sautján ára landsliðsins í fótbolta þarf nánast að velja nýtt landslið eftir að upp komst um svindl stórs hluta leikmannahóps liðsins. 2.1.2023 12:30
Hótaði að mæta aldrei aftur á HM og eyddi svo Instagramminu Eftir tapið fyrir Gabriel Clemens í átta manna úrslitum á HM í pílukasti hótaði Gerwyn Price að mæta aldrei aftur á mótið. 2.1.2023 12:01
Martínez borgar morðfjár fyrir varðhund Emilano Martínez heldur áfram að koma sér í fréttirnar. Markvörðurinn hefur nú borgað fúlgur fjár fyrir varðhund sem á að verja heimsmeistaramedalíuna hans. 2.1.2023 11:30
Brutust inn hjá Bale vopnaðir haglabyssum Fjölskylda Gareth Bale lenti í heldur leiðinlegri lífsreynslu á meðan kappinn var með Wales á heimsmeistaramótinu í Katar. 2.1.2023 11:02
Tólf ára stelpa fékk Durant til að brosa í miðjum leik NBA stórstjarnan Kevin Durant er frábær körfuboltamaður en hann er þó sjaldan í umræðunni um þá allra bestu í sögunni. 2.1.2023 10:31
Eyddi jólunum með Messi og samdi síðan við brasilískt félag Gamli Liverpool maðurinn Luis Suarez er búinn að finna sér nýtt félag og það í brasilíska boltanum. 2.1.2023 10:00
Faðir Jude Bellingham sagður vilja sjá strákinn sinn í Liverpool Nýjasta slúðrið í kringum enska landsliðsmanninn Jude Bellingham bendir til þess að Liverpool sé að missa af honum. 2.1.2023 09:31
Heyrnartólin dugðu ekki til og efsti maður heimslistans er úr leik Þjóðverjinn Gabriel Clemens tryggði sér óvænt sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í pílu í gær. Efsti maður heimslistans þurfti að sætta sig við tap fyrir honum. 2.1.2023 09:00
Ólétta heimsmeistarans stærsta CrossFit frétt jólahátíðarinnar Nú hefur opnast leið á toppinn á ný í CrossFit keppni kvenna á heimsleikunum eftir að ljóst varð að ástralski heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey muni ekki keppa á heimsleikunum á þessu ári. 2.1.2023 08:31
Móðir Pele veit ekki að hann er dáinn Knattspyrnugoðsögnin Pele tapaði stríðinu við krabbameinið rétt fyrir áramótin og síðan hafa fólk og fjölmiðlar minnst einstaks ferils hans. 2.1.2023 08:00
Handtóku fótboltamenn eftir rassíu í nýárspartýi Lögreglan mætti sem óboðinn gestur í nýárspartý fótboltamanna úr efstu deild í Íran í gær og tók fjölda þeirra með sér upp á stöð. 2.1.2023 07:31
Annáll Olís-deildar karla: Valsmenn öðrum framar Sportsíldin var sýnd á Stöð 2 Sport á gamlársdag þar sem farið var yfir allt það helsta í íþróttalífinu á árinu. Tímabilið í Olís-deild karla var gert upp en Valsmenn unnu alla titla sem í boði voru á síðasta tímabili. 2.1.2023 07:00
Dagskráin í dag: Gametíví gerir upp árið í Kryddpylsunni Strákarnir í Gametíví ætla að gera upp árið í kvöld þegar Kryddpylsan verður í beinni útsendingu. Þá er á dagskrá stórleikur í spænska körfuboltanum. 2.1.2023 06:00
Yfir tuttugu þúsund manns hafa skorað á Julian Alvarez að hætta með kærustu sinni Julian Alvarez stendur í ströngu þessa dagana. Hann skoraði fjögur mörk fyrir heimsmeistara Argentínu á nýliðnu HM í Katar og nú hafa tugþúsundir skrifað undir áskorun þess efnis að hann eigi að slíta sambandinu við kærustu sína til fjögurra ára. 1.1.2023 23:30
Rauk úr útsendingu og beint á fæðingardeildina: „Pabbi er á leiðinni“ Robert Griffin III var í beinni útsendingu hjá ESPN í gærkvöldi þegar hann tók skyndilega upp símann. Hann rauk svo af stað þegar í ljós kom að konan hans væri komin með hríðir. 1.1.2023 22:32
Mbappe í tapliði PSG í toppslag frönsku deildarinnar RC Lens setti spennu í toppbaráttuna í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði PSG í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar í kvöld. Lokatölur 3-1 og forysta PSG á toppnum nú aðeins fjögur stig. 1.1.2023 21:45
Annáll Olís-deildar kvenna: Framkonur komu, sáu og sigruðu Sportsíldin var sýnd á Stöð 2 Sport á gamlársdag þar sem farið var yfir allt það helsta í íþróttalífinu á árinu. Tímabilið í Olís-deild kvenna var gert upp en þar voru það Framkonur sem stóðu uppi sem sigurvegarar. 1.1.2023 20:31
Stuðningsmaður arfleiddi Blika að 200 milljónum króna Stuðningsmaður Breiðabliks arfleiddi knattspyrnudeild félagsins að nærri 200 milljónum króna á árinu. Félagið gerir ekki ráð fyrir að nýta peninginn í beinan rekstur deildarinnar. 1.1.2023 19:31
Nottingham Forest kom til baka gegn Chelsea og nældi í stig Nottingham Forest og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Chelsea komst yfir í fyrri hálfleiknum en Forest jafnaði verðskuldað í þeim síðari. 1.1.2023 18:28
Badiashile við það að ganga til liðs við Chelsea Chelsea hefur náð samkomulagi um kaup á varnarmanninum Benoit Badiashile frá Mónakó fyrir um 37 milljónir evra. Greint var frá því á dögunum að Chelsea væri nálægt því að klófesta Frakkann unga og nú virðast félagaskiptin nánast vera frágengin. 1.1.2023 17:31
Slæm byrjun á árinu hjá lærisveinum Conte Aston Villa gerði frábæra ferð til Lundúna í dag þegar þeir lögðu Tottenham á útivelli í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar á nýju ári. Lokatölur 2-0 og lærisveinar Antonio Conte ná því ekki að lyfta sér upp í fjórða sæti deildarinnar á ný. 1.1.2023 15:55
Subway Körfuboltakvöld um Hött: „Þeir vita bara að þeir verða að halda sér uppi“ Lið Hattar frá Egilsstöðum var til umræðu í Subway Körfuboltakvöldi á föstudaginn en nýliðarnir eru í 9.sæti Subway-deildarinnar með tíu stig eftir ellefu umferðir. Liðið hefur aldrei byrjað jafn vel í efstu deild. 1.1.2023 15:01
Ronaldo fékk ekki ósk sína uppfyllta Cristiano Ronaldo er nýgenginn til liðs við Al Nassr í Sádi Arabíu þar sem hann fær 200 milljónir dollara í árslaun. Ronaldo vildi endurnýja kynni sín við gamla liðsfélaga en varð ekki að ósk sinni. 1.1.2023 14:01
Dani Alves sakaður um kynferðislega áreitni á næturklúbbi í Barcelona Lögreglan í Barcelona hefur hafið rannsókn vegna ásakana þrítugrar konu á hendur Dani Alves. Konan sakar hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á næturklúbbi í Barcelona. 1.1.2023 12:41
Subway Körfuboltakvöld um Loga: „Ætlaði ekki að láta minnast þessa leiks sem hans slakasta El Clasico“ Í Subway Körfuboltakvöldi var farið vel yfir frammistöðu þeirra Loga Gunnarssonar og Elíasar Bjarka Pálssonar í sigri Njarðvíkur gegn Keflavík í Subway-deildinni á fimmtudag. Tuttugu og þremur árum munar á aldri liðsfélaganna. 1.1.2023 12:01
Segist ekki vita hvort Fernandez hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Benfica Roger Schmidt, þjálfari Benfica, viðurkennir að Enzo Fernandez gæti yfirgefið félagið í janúar. Fernandez hefur verið sterklega orðaður við Chelsea en Argentínumaðurinn var valinn besti ungi leikmaðurinn á heimsmeistaramótinu í Katar. 1.1.2023 11:30
Luka endaði árið með þriðja fimmtíu stiga leiknum í síðustu fimm leikjum Luka Doncic endaði árið 2022 heldur betur vel því hann skoraði 51 stig fyrir Dallas Mavericks þegar liðið lagði San Antonio Spurs í nótt. Þá var Joel Embiid með þrefalda tvennu í sigri Philadelphia 76´ers gegn Oklahoma City Thunder. 1.1.2023 10:30
Mætir Messi og Mbappé sem þjálfari í lok janúar en hóf ferilinn í Football Manager Hinn þrítugi Will Still þjálfar í dag lið Stade de Reims í Ligue 1, frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þjálfaraferill hans hófst þó ólíkt flestum öðrum. Hann fékk áhuga á þjálfun þegar hann var táningur eftir að hafa spilað tölvuleikinn vinsæla Football Manager. 1.1.2023 09:01
Hugleiðingar Grétars Rafns í heild sinni: „Áhyggjuefni hve fáir leikmenn skila sér í efstu deildir Evrópu“ Grétar Rafn Steinsson starfar í dag fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur en starfaði hluta árs 2022 fyrir Knattspyrnusamband Íslands. Þegar starfi hans þar lauk ritaði hann niður hugleiðingar sínar og birti í kjölfarið. Mikið hefur verið rætt og ritað um þær að undanförnu en þó Grétar Rafn segir KSÍ vinna gott starf þá má betur ef duga skal. 1.1.2023 08:01