Fleiri fréttir

Knicks verður með elsta lið sögunnar

Það verður væntanlega enginn sandkassaleikur á æfingum hjá NY Knicks í vetur enda stefnir í að liðið muni tefla fram elsta liði í sögu NBA-deildarinnar.

Valsstelpurnar verða bleikar í heilan mánuð

Kvennalið körfuknattleiksdeildar Vals ætlar að spila í bleikum búningum í öllum leikjum sínum í Domino's deildinni í októbermánuði. Í tilefni átaks Krabbameinsfélagsins í október, Bleiku slaufunnar, hafa Valsstelpurnar, ákveðið að leggja þessu þarfa málefni lið, bæði með því að vekja athygli á því sem og að safna fé.

Ertu búinn að velja þér þínar stelpur í Draumaliðsleik KKÍ og Domino's?

KKÍ og Domino's hafa sett af stað Draumaliðsdeild í Domino's deildunum og geta aðdáendur íslensk körfubolta nú valið sér leikmenn úr deildinni og sett í lið, og þar með safnað stigum í vetur og keppt um verðlaun í lok tímabils. Einnig er hægt að stofna einkadeildir og keppa gegn vinum.

Kobe: Ég er enn kóngurinn í Lakers

Hinn 34 ára gamli leikmaður LA Lakers, Kobe Bryant, er að hefja sitt sautjánda tímabil í NBA-deildinni. Hann er þó enn einn af bestu leikmönnum deildarinnar.

Knicks tímdi ekki að halda Lin

Framkvæmdastjóri NY Knicks, Glen Grunwald, segir að félagið hafi leyft Jeremy Lin að fara þar sem Knicks var ekki til í að greiða leikmanninum sömu laun og Houston Rockets.

Thibodeau framlengir við Bulls

Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, er ekkert á förum á næstunni enda er hann búinn að samþykkja nýjan fjögurra ára samning við félagið.

Garnett hættur að tala við Allen

Þeir Ray Allen og Kevin Garnett voru liðsfélagar hjá Boston Celtics frá 2007 til 2012 en nú er Allen farinn til Miami. Vinskap þeirra er þar með lokið og Garnett vill ekkert hafa með sinn gamla félaga.

Annar titill til Snæfells

Snæfell er meistari meistaranna í körfuboltakvenna eftir sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í Meistarakeppni KKÍ í kvöld, 84-60.

Jón Arnór og félagar byrja vel

CAI Zaragoza hafði betur gegn Caja Laboral í fyrstu umferð tímabilsins í spænsku úrvalsdeildinni í kröfubolta. Zaragoza vann, 88-75.

Jordan og Pippen fóru í danskeppni

Scottie Pippen, fyrrum leikmaður Chicago Bulls, er orðinn 47 ára gamall og var honum komið á óvart með óvæntri afmælisveislu í Chicago í gær.

NBA ætlar að sekta fyrir leikaraskap

Leikaraskapur er fyrir löngu síðan orðið stórt vandamál í íþróttum mörgum til mikillar mæðu. Það sem verra er þá hafa stóru íþróttagreinarnar ekki gert neitt í því til að koma í veg fyrir leikaraskapinn. Svindlurum er ekki refsað.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Snæfell 72-78 | Snæfell Lengjubikarmeistari

Snæfellskonur unnu fyrsta titilinn í kvennakörfunni eftir sex stiga sigur á Keflavík, 78-72, í æsispennandi úrslitaleik Lengjubikars kvenna sem fram fór í Toyotahöllinni í Keflavík í kvöld. Þetta er fyrstu titill kvennaliðs Snæfells. Liðin áttu bæði góða spretti og lentu einnig bæði í því að missa miður tíu stiga forskot en Snæfell var sterkari á lokasprettinum.

Keflavík og Snæfell geta orðið Lengjubikarmeistarar í kvöld

Í kvöld verður spilað um fyrsta bikar vetrarins í kvennakörfunni þegar Keflavík tekur á móti Snæfelli í úrslitaleik Lengjubikarsins en spilað er í Toyota-höll þeirra Keflvíkinga. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum. Leikurinn hefst kl. 19:15.

Ólíklegt að Derek Fisher verði áfram hjá Oklahoma City Thunder

Derek Fisher, fimmfaldur meistari með Los Angeles Lakers, fór alla leið í lokaúrslit NBA-deildarinnar með Oklahoma City Thunder liðinu á síðustu leiktíð en það eru ekki miklar líkur á því að hann spili áfram með Thunder-liðinu á komandi tímabili.

Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum

Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna.

Keflavíkurkonur fá að vera á heimavelli í úrslitaleiknum

Körfuknattleiksamband tilkynnti á heimasíðu sinni að úrslitaleikur Lengjubikars kvenna fari fram í Toyota-höllinni í Keflavík á fimmtudaginn í næstu viku, þann 27. september. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum.

Milicic á leið til Boston

Serbinn Darko Milicic er á leið til Boston Celtics og mun væntanlega skrifa undir eins árs samning við félagið að því er ESPN segir.

ÍR-ingar spila hér eftir í Hertz Hellinum

ÍR-ingar hafa gefið heimavelli sínum nýtt nafn fyrir komandi átök í Dominos deild karla í körfubolta. Þeir spila hér eftir í Hertz Hellinum og ætla ennfremur að vígja nýja stúku í fyrsta leik sem verður á móti Þór Þorlákshöfn.

Snæfellingar með fullt hús

Einn leikur fór fram í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell hafði betur gegn Val, 63-57, í Stykkishólmi.

Aðeins minni geðveiki hjá Lakers - Matt Barnes til LA Clippers

Það þótti mörgum fullmikið af því góða að vera með Ron Artest, nú Metta World Peace, og Matt Barnes saman í liði en svo verður ekki lengur hjá Los Angeles Lakers. Matt Barnes hefur nefnilega gert samning við nágrannana í Los Angeles Clippers.

Tárin runnu hjá Derrick Rose þegar hann kynnti nýju skóna sína

NBA-körfuboltamaðurinn Derrick Rose er á fullu í endurhæfingu eftir að hafa slitið krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppninni í vor. Meiðslin hafa reynt mikið á andlegu liðina hjá þessum besta leikmanni NBA-deildarinnar 2010-11 og það kom vel í ljóst þegar hann brotnaði á kynningarfundi á nýju skónum hans.

LeBron ræður vin sinn sem umboðsmann

LeBron James hefur ákveðið að breyta til og fá sér nýjan umboðsmann. Lýkur þar með löngu samstarfi hans og Leon Rose sem hefur verið umboðsmaður hans síðustu ár.

Keflavíkurkonur ekki í miklum vandræðum í Garðabænum

Keflavík vann 27 stiga sigur á Stjörnunni, 77-50, í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík lék án Birnu Valgarðsdóttur í leiknum en það kom ekki að sök. Keflavíkurkonur hafa því byrjað tímabilið á tveimur sannfærandi sigrum því þær unnu 30 stiga sigur á Íslands- og bikarmeisturum Njarðvíkur í fyrsta leik.

Nýjasta NBA-höllin er tilbúin í Brooklyn

NBA-körfuboltaliðið New Jersey Nets er nú orðið að Brooklyn Nets og spilar því ekki lengur heimaleiki sína í New Jersey heldur í Brooklyn í New York. Nýjasta NBA-höllin er Barclays Center í Brooklyn og hún er líka tilbúin.

Snæfellskonur eru til alls líklegar í vetur - myndir

Kvennalið Snæfells vann 30 stiga útisigur á Fjölni í kvöld, 92-62, í fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum en stelpurnar hans Inga Þórs Steinþórssonar eru til alls líklegar í kvennakörfunni í vetur.

Lengjubikar kvenna í körfu: Útisigrar hjá Snæfelli, KR og Val

Snæfell, KR og Valur unnu öll örugga útisigra í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell vann Fjölni með 30 stigum í Grafarvogi, KR vann Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur með 11 stigum í Ljónagryfjunni og Valur vann 34 stiga sigur á Hamar í Hveragerði. Öll þessi þrjú lið voru að leika sína fyrstu leiki í keppninni sem hófst um síðustu helgi.

Jordan hættir að skipta sér af öllu hjá Bobcats

Það hefur lítið gengið hjá Charlotte Bobcats síðan Michael Jordan varð eigandi félagsins árið 2010. Töfrar Jordan hafa ekki smogið inn í liðið sem uppskar lélegasta árangur í sögu NBA á síðasta tímabili.

Leik lokið: Eistland - Ísland 80-58 | 22 stiga tap í lokaleiknum

Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með 22 stiga mun fyrir Eistlandi í kvöld, 58-80, í lokaleik sínum í undankeppni EM í körfubolta. Íslenska liðið tapaði níu af tíu leikjum sínum í riðlinum og endaði í næstneðsta sætinu í riðlinum.

Guðrún Gróa spilar með KR í vetur

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir er búinn að rífa körfuboltaskóna fram úr hillunni á nýjan leik og ætlar að spila með KR í vetur.

Sjá næstu 50 fréttir