Fleiri fréttir

Mercedes á enn möguleika á meistaratitlum

Ross Brawn framkvæmdarstjóri Mercedes liðsins, með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg innanborðs telur að enn sé möguleiki á meistaratitlum. Hann vann tvöfalt í fyrra með Jenson Button og Brawn liðinu, áður en hann seldi Mercedes lið sitt.

Alonso: Erum með í titilbaráttunni

Spánverjinn Fernando Alonso telur að Ferrari sé enn inn í myndinni varðandi meistaraslaginn í Formúlu 1, jafnvel þó hann hafi aðeins unnið einn sigur á keppnistímabilinu. Hann vann fyrsta mót ársins.

Hamilton: Verð að halda haus

Lewis Hamilton hjá McLaren er vafalaust ánægður með þá stöðu að vera kominn í efsta sæti stigamóts ökmanna í Formúlu 1. Hann hefur ekki áhyggjur af sóknartilburðum Red Bull í framtíðinni, þar sem hann telur McLaren vera komið í toppmál hvað bíl og búnað varðar.

Vettel: Ekki ástæða til að örvænta

Þjóðverjinn Sebastian Vettel segir að ekki sé ástæða til að örvænta, þó McLaren hafi unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót. Sjálfur hefur honum ekki gengið sem best upp á síðkastið, miðað við eigin markmið, sem er meistaratitilinn.

Framþróun bílanna lykill að meistaratitlunum tveimur

Martin Whitmarsh yfirmaður McLaren sem vann tvöfaldan sigur um helgina segir að stöðug framþróun keppnisbílanna sé lykillinn að því að halda forystunni í stigamóti ökumanna og bílasmiða út árið.

Baráttuglaður Webber féll af toppnum

Ástralinn Mark Webber hjá Red Bull tapaði stigaforystunni í Formúlu 1 til Lewis Hamilton eftir mótið í Kanada í gær. Hann náði aðeins fimmta sæti á meðan Hamilton vann í tvöföldum sigri McLaren, en Jenson Button fylgdi í kjölfar hans.

Hamilton: Hamingjusamur og stoltur

Bretinn Lewis Hamilton á McLaren vann sinn annan mótssigur í röð í Montreal í Kanada í dag og Jenson Button fylgdi í kjölfar hans rétt eins og í Tyrklandi á dögunum.

Tvöfaldur McLaren sigur í Montreal

Bretarnir Lewis Hamilton og Jenson Button tryggðu McLaren liðinu tvöfakdan sigur í Formúlu 1 mótinu í Montreal í Kanada í dag. Hamilton varð á undan, en Fernando Alonso tryggði Ferrari þriðja sætið eftir viðburðaríka keppni.

Hamilton vann í Kanada

McLaren fagnaði góðum sigri í dag en ökuþórar liðsins, þeir Lewis Hamilton og Jenson Button, urðu í tveimur efstu sætunum í kanadíska kappakstrinum í dag.

Hamilton bensínlaus og sektaður um 1.3 miljónir

Lewis Hamilton náði besta tíma í tímatökum í dag. Eftir tímatökuna fékk hann 1.3 miljónir í sekt fyrir að stöðva ekki bílinn, heldur láta hann rúlla eftir brautinni, eftir að McLaren liðið bað hann að drepa á vélinni. Hann fékk sekt og var áminntur fyrir tiltækið. Autosport.com greinir frá þessu.

Hamilton fyrstur í æsispennandi tímatöku

Bretinn Lewis Hamilton náði besta tíma í síðustu tilraun sinni í tímatökum í Montreal í Kanada í dag. McLaren rauf þannig velgengni Red Bull, sem hafði náð besta tíma í öllum tímatökum ársins. Mark Webber og Sebastian Vettel voru næstir Hamilton.

Vettel 0.089 sekúndum á undan Alonso

Sebastian Vettel hja Red Bull náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Montreal í Kanada í dag. Hann varð aðeins 0.089 sekúndum á undan Fernando Alonso hjá Ferrari.

Button á undan Schumacher í Montreal

Bretinn Jenson Button á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða í Montreal í Kanada í dag. Hann varð á undan Þjóðverjanum Michael Schumacher á Mercedes og munaði aðeins 0.158 sekúndum á köppunum tveimur.

Kubica þakklátur öryggiskröfum eftir óhapp

Formúlu 1 ökumenn keppa í Montreal í Kanada um helgina og Robert Kubica vann þegar keppt var síðast á brautinni. Það var árið 2008 og hann vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1. Árið áður þótti hann heppinn að sleppa með skrámur eftir að hann kútveltist á brautinni.

Meistarinn býst við jöfnum slag

Jenson Button hjá McLarenl, sem er núverandi Formúlu 1 meistari býst við að McLaren, Red Bull og jafnvel Mercedes verði í toppbaráttunni í Montreal í Kanada um helgina. Þá telur hann að Ferrari gæti átt möguleika, eftir fremur slaka frammistöðu í Tyrklandi á dögunum.

Scumacher: Get ekki keppt um titilinn

Michael Schumacher hefur sett stefnuna á titilsók árið 2011, þar sem hann telur titilvonir þessa árs frekar dræmar. Hann segir þó mörg mót eftir, en hann líti samt meira á tímabilið sem undirbúning fyrir næsta tímabi

Hamilton: Montreal hentar McLaren

Bretinn Lewis Hamilton vann síðustu keppni, sem fram fór í Tyrklandi og telur að McLaren bíll sinn henti vel á götubrautina í Montreal í Kanada þar sem keppt er um helgina. Hann vann mótið í Kanada árið 2007, en Robert Kubica vann 2008, en ekki var keppt 2009.

Alonso vill í toppslaginn með Ferrari

Spánverjinn Fernando Alonso telur að allir séu að gera sitt hjá Ferrari til að bæta árangur liðsins, en Ferrari hefur aðeins eitt mót af sjö á árinu.

Ferrari framlengir samning Massa til 2012

Felipe Massa hefur fengið framlengingu á samningi sínum við Ferrrari liðið. en síðustu vikur hefur verið umræða um að Robert Kubica kæmi í hans stað eða jafnvel Mark Webber.

Ekki hyglað að Vettel hjá Red Bull

Sebastian Vettel segir að hann fái ekkert umfram Mark Webber, hvorki varðandi búnað né leikplan í mótum hjá Red Bull liðinu. Báðir fái jafna möguleika á því að vinna mót.

McLaren ekkert að svindla í Tyrklandi

McLaren beitti ekki neinskonar liðsskipunum í tyrkneska kappakstrinum á dögunum til að breyta því hvort Lewis Hamilton eða Jenson Button ynni mótið. Hamilton kom fyrstur í mark á undan Button.

Webber áfram hjá Red Bull 2011

Ástralinn Mark Webber hefur fengið árs framlengingu á samningi sínum við Red Bull liðið, en það hentar honum ágætlega þar sem hann segist ekki ætla að vera í Formúlu 1 til eilífðarnóns, bara til að vera í Formúlu 1.

Hamilton ætlar sér fleiri sigra

Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren vann sinn fyrsta sigur um síðustu helgi og um aðra helgi keppir hann í Montreal í Kanada. Ekki hefur verið keppt þar síðan 2007, en þá vann einmitt Hamilton.

Red Bull vill Vettel til ársins 2015

Red Bull liðið hefur áhuga á því að framlengja samning sinn við Sebastian Vettel til ársins 2015, en núverandi samningur rennur út 2012.

Red Bull, Vettel og Webber sættast

Red Bull liðið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem segir að sátt sé á milli Mark Webber og Sebastian Vettel og atvikið í tyrkneska kappakstrinum sé nú að baki.

Webber vildi láta hægja á Vettel

Christian Horner hjá Red Bull segir í samtali við autosport.com í dag að Mark Webber hafi beðið lið sitt að hægja Vettel áður en áreksturinn milli þeirra varð staðreynd í Tyrklandi á sunnudaginn.

Force India lögsækir Lotus

Force India tilkynnti í dag að liðið hefur lögsótt Lotus keppnisliðið,. Mike Gascoyne og fyrirtæki sem heitir Aerilab SRL fyrir að nota upplýsingar sem tilheyra Force India við smíði 2010 keppnisbíls Lotus.

Óhapp sem átti ekki að gerast

Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull hefur farið yfir öll gögn varðandi áreksturinn á milli Mark Webber og Sebastian Vettel í Tyrkklandi á sunnudag og hefur fríað Webber af sök og segir að óhappið vera atvik sem geti hent í kappakstri.

Webber vill ræða áreksturinn við Vettel

Mark Webber og Sebastian Vettel lentu í árekstri þegar þeir voru í forystuhlutverki í tyrkneska kappakstrinum á sunnudaginn. Vettel reyndi að fara framúr Webber, en þeir skullu saman með þeim afleiðingum að Vettel féll úr leik, en Webber náði þriðja sæti á eftir Lewis Hamilton og Jenson Button.

Sjá næstu 50 fréttir