Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Button: Áttum sigurinn skilinn Jenson Button fagnaði tímamótum í dag í Ungverjalandi þegar hann ók í sínu 200 Formúlu 1 móti og vann sinn ellefta sigur. Button hóf ferlinn með Williams árið 2000, en fagnaði sigri með McLaren í dag. 31.7.2011 17:04
Button vann í Ungverjalandi - Vettel jók forskotið Bretinn Jenson Button á McLaren-bíl vann ungverska kappaksturinn í formúlu eitt sem fram fór á Hungaroring-brautinni í dag. Þjóðverjinn Sebastian Vettel, sem er langefstur í baráttunni um heimsbikarinn, varð annar og jók því forskot sitt á Mark Webber sem endaði í 5. sæti í dag. 31.7.2011 13:56
Hamilton og Button á McLaren stefna á sigur Lewis Hamilton er annar á ráslínu í ungverska Formúlu 1 kappakstrinum í dag og Jenson Button þriðji, en báðir aka á McLaren. Þeir eru staðráðnir í að skáka Sebastian Vettel á Red Bull sem er fremstur á ráslinu, en mótið Ungverjalandi verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.40 í dag. 31.7.2011 10:03
Vettel fullur sjálfstrausts á ný Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er fremstur á ráslínu fyrir ungverska kappaksturinn á sunnudag, eftir góða frammistöðu í tímatökunni í dag. Hann var á undan Lewis Hamilton og Jenson Button á McLaren. 30.7.2011 16:27
Vettel sló Hamilton við í tímatökunni Sebastian Vettel náði besta tíma í tímatökum fyrir ungverska Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram á morgun. Hann var 0.162 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Hungaroring brautinni, en Jenson Button var þriðji fljótastur. 30.7.2011 13:45
Næturvinna skilaði Vettel besta tíma Tæknimenn Red Bull unnu næturlangt í bíl Sebastian Vettel eftir að hann var ósáttur með gang mála á æfingum í gær. Sú vinna virðist hafa skilað sér á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi dag því Vettel náði besta tíma á lokaæfingunni fyrir tímatökuna. 30.7.2011 10:19
Fimm ökumenn í þéttum hóp, en Hamilton enn sneggstur Hamilton endurtók leikinn frá fyrri æfingunni á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Ungverjalandi í dag. Hann náði besta tíma á McLaren rétt eins og á fyrri æfingunni í morgun. Fernando Alonso varð í öðru sæti á Ferrari og var 0.241 úr sekúndu á eftir Hamilton. 29.7.2011 13:45
Vettel: Afsaknir eru tilgangslausar Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að lið sitt verði að svara velgengni McLaren og Ferrari í síðustu mótum með góðum árangri um helgina. Fernando Alonso vann á dögunum á Silverstone brautinni í Bretlandi og Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstur í mark á Nürburgring brautinni í Þýskalandi á sunnudaginn. 29.7.2011 12:31
Hamilton fljótastur í Ungverjalandi Sigurvegari síðustu Formúlu 1 keppni, Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi í morgun. Hann var 0.204 úr sekúndu sneggri um brautina en meistarinn Sebastian Vettel á Red Bull, en Fernando Alsono á Ferrari varð þriðji. 29.7.2011 10:27
Kobayshi og Perez áfram hjá Sauber 2012 Sauber Formúlu 1 liðið tilkynnti í morgun að Kamui Kobayahsi og Sergio Perez verða áfram hjá liðinu á næsta ári. Þá verður varaökumaður liðsins, Esteban Gutigraverrez áfram hjá liðinu, en hann og Perez eru frá Mexíkó, en Kobayahsi er japanskur. 28.7.2011 13:02
Button ekur í 200 Formúlu 1 mótinu á sunnudaginn Það verða tímamót hjá Jenson Button hjá McLaren á sunnudaginn. Þá keppir hann í sínu 200 Formúlu 1 móti. Á sunnudaginn verður keppt á Hungaroring brautinni skammt frá miðborg Búdapest. Button vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 á brautinni árið 2006. 27.7.2011 08:11
Hamilton vill halda slagkraftinum eftir sigur Lewis Hamilton getur vart beðið eftir því að keppa í Ungverjalandi um næstu helgi, eftir frækinn sigur í Þýskalandi á sunnudaginn í spennandi keppni á milli hans, Fernando Alonso og Mark Webber. 26.7.2011 17:43
Ferrari í sóknarhug í næstu mótum Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari Formúlu 1 liðsins þarf að finna leið til að Fernando Alonso geti sótt á stigaforskot Sebastian Vettel í stigakeppni ökumanna. Alonso hefur í þremur síðustu mótum náði í annað sætið í tvígang og unnið eitt mót. Alonso er 86 stigum á eftri Vettel, þegar 9 mótum er ólikið á keppnistímabilinu. 26.7.2011 17:09
Alonso vonar að velgengni McLaren hjálpi Ferrari Fernando Alonso hjá Ferrari varð í öðru sæti í þýska kappakstrinum í gær á eftir Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann vonast til þess að McLaren ökumennirnir taki stig af Sebastian Vettel hjá Red Bull í komandi mótum og það hjálpi honum að sækja á Vettel í stigamótinu. 25.7.2011 13:08
McLaren lætur ekki deigan síga eftir sigur Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins segir að lið sitt muni halda áfram að setja pressu á Sebastian Vettel, sem hefur gott forskot í stigamóti ökumanna. Lewis Hamilton á McLaren vann mót í Þýskalandi í gær, en Vettel varð fjórði á Red Bull bíl sínum. 25.7.2011 11:25
Hamilton: Ók með heilanum og hjartanu Lewis Hamilton var kampakátur eftir að hafa unnið Formúlu 1 mótið á Nürburgring í dag með McLaren. 24.7.2011 16:43
Hamilton vann háspennumót og sótti á Vettel í stigakeppni ökumanna Sigur Lewis Hamilton í dag á Nurburgring brautinni í Þýskalandi í dag var McLaren liðinu mikilvægur og sýndi líka að Red Bull liðið ræður ekki lögum og lofum í meistaramótinu í Formúlu 1. Fernando Alonso á Ferrari vann síðustu keppni og forystumaður stigamótsins, Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að liðið verði að taka sig á eftir daginn í dag. 24.7.2011 16:26
Hamilton vann í Þýskalandi Breski ökuþórinn Lewis Hamilton á McLaren var rétt í þessu að tryggja sér sigur í þýska kappakstrinum í Formúla 1 á Nurburgring. Er þetta annar sigur Hamilton í röð. 24.7.2011 13:23
Alonso býst við mistökum toppökumanna í dag Tíunda umferð Formúlu 1 meistaramótsins verður á Nurburgring brautinni í Þýskalandi í dag og hefst útsending frá mótinu kl. 11.30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. 24.7.2011 10:02
Webber stefnir á sigur á Nürburgring Mark Webber á Red Bull verður fremstur á ráslínu í þýska kappakstrinum sem fram á morgun. Hann varð hlutskarpastur í tímatökum í dag, en aðeins 0.055 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren. 23.7.2011 15:07
Webber rétt marði að vera fljótari en Hamilton í tímatökum Mark Webber á Red Bull varð 0.055 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren í tímatökum fyrir þýska kappaksturinn á Nurburgring, sem verður á morgun. Tímatakan fór fram í dag og Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji og Fernando Alonso fjórði. 23.7.2011 14:08
Vettel sneggstur á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull reyndist sneggstur á lokaæfingu keppnisliða á Nurburgring brautinni í dag. Mark Webber á samskonar bíl varð annar og Fernando Alonso á Ferrari þriðji. Vettel varð 0.133 úr sekúndu á undan Webber á æfingunni og 0.222 á undan Alonso. 23.7.2011 10:12
Webber sneggstur á seinni æfingunni Mark Webber á Red Bull var fljótastur á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Nürburgring brautinni í Þýskalandi í dag. Hann varð 0.168 á undan Fernando Alonso á Ferrari, en Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji. Alonso var fljótastur á fyrri æfingu dagsins. 22.7.2011 14:09
Alonso á Ferrari á undan Red Bull ökumönnunum á Nürburgring brautinni Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Nürburgring brautinni í Þýskalandi í dag. Um helgina fer fram tíunda umferð meistaramótsins og heimamaðurinn Sebastian Vettel stefnir á sigur, en hann er með 80 stiga forskot í stigamóti ökumanna. Sex þýskir ökumenn verða á heimavelli í keppninni á sunnudaginn og Vettel þeirra á meðal. 22.7.2011 10:08
Meistarinn Vettel vill vinna á heimavelli Formúlu 1 meistarinn Sebastain Vettel hjá Red Bull er með forystu í stigamóti ökumanna og keppir á í þýska kappakstrinum Nürburgring brautinni í Þýskalandi um helgina, en tvær æfingar fara fram í dag á brautinni. Vettel er með 80 stiga forskot á liðsfélaga sinn Mark Webber. 22.7.2011 08:40
Ferrari stjórinn vill berjast án þess að skoða stigastöðuna Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari segir að frammistaða liðs síns hafi verið ótrúleg í breska kappakstrinum í gær, en Fernando Alonso vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 á árinu og Ferrari að sama skapi. 11.7.2011 16:34
Button óheppinn á heimavelli Bretinn Jenson Button hjá McLaren var frekar óheppinn í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Hann féll úr leik eftir að þjónustuliðinu hans mistókst að festa ró sem festir hægra framdekkið við framhjólabúnað bílsins í þjónustuhléi. Button ók af stað, en varð að stöðva þar sem dekkið var við það að detta undan. 11.7.2011 11:57
Hamilton: Einn besti breski kappakstur allra tíma Lewis Hamilton hjá McLaren var í hörkubaráttu um verðlaunasæti um tíma í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Undir lokin barðist hann við Felipe Massa á Ferrari um fjórða sætið allt til loka og munaði aðeins 0.024 úr sekúndu á þeim í endamarkinu. Var harður slagur á milli þeirra í síðustu beygjunni í síðasta hringnum og Hamilton hafði betur. 11.7.2011 11:14
Yfirmaður Red Bull hissa á að Webber hunsaði liðsskipanir Mark Webber sinnti ekki liðsskipunum Red Bull liðsins í Silverstone kappakstrinum í dag, þegar hann fékk nokkrum sinnum fyrirmæli um að sækja ekki að Sebastian Vettel. Þeir voru í slag um annað sætið á eftir Fernando Alonso og Webber lét ekki segjast. 10.7.2011 19:19
Alonso vann á sextíu ára afmæli fyrsta sigurs Ferrari Sigur Fernando Alonso á Silverstone brautinni í dag var kærkominn fyrir Ferrari liðið sem hafði ekki unnið mót á árinu, en fyrir 60 árum vann Ferrari fyrsta sigurinn í Formúlu 1 á Silverstone. Þá vann Jose Froilan Gonzalez á Ferrari, en Alonso keyrði einmitt keppnisbíl hans í sýningarakstri í morgun nokkru áður en kappaksturinn hófst. 10.7.2011 18:51
Fernando Alonso sigraði Silverstone-kappaksturinn Fernando Alonso, ökuþór hjá Ferrari, vann í dag frábæran sigur í breska kappakstrinum í Silverstone eftir spennandi keppni. Sebastian Vettel varð í öðru sæti og Mark Webber í því þriðja en þeir tveir aka báðir fyrir Red Bull liðið. 10.7.2011 14:19
Nýliði í góðri stöðu á ráslínu á heimavelli Skoski ökumaðurinn Paul di Resta á Force India keppnisbíl verður sjötti á ráslínu í breska kappakstrinum á Silverstone í dag. Nýliðinn hjá Force India náði sínum besta árangri í tímatökum í gær, en Force India liðið er eitt átta Formúlu 1 liða sem eru á heimavelli í dag. 10.7.2011 10:11
Webber mun sækja til sigurs og segir karp um reglur leiðinlegt Mark Webber er fremstur á ráslínu í breska Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram á morgun. Hann telur að ruglingur með túlkun á reglum um útbúnað bílanna þessa mótshelgina á Silverstone ekki vera gott mál gagnvart áhorfendum. 9.7.2011 18:16
Webber fljótastur í tímatökunni á Silverstone Mark Webber á Red Bull verður fremstur á ráslínu í breska kappakstrinum á Silverstone brautinni í Bretlandi á sunnudag. Hann náði besta tíma í tímatökum í dag og varð á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Fernando Alonso náði þriðja sæti á Ferrari og Felipe Massa á samskonar bíl því fjórða. 9.7.2011 13:32
Vettel rétt á undan Alonso á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull varð 0.063 úr sekúndu á undan Fernando Alonso á Ferrari á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Silverstone brautinni í morgun. Brautin var þurr, en keppendur æfðu í tvígang á blautri braut í gær og þá náði Mark Webber á Red Bull besta tíma á fyrri æfingunni, en Felipe Massa á Ferrari á þeirri síðari um daginn. 9.7.2011 10:24
Massa stal senunni á Silverstone Felipe Massa á Ferrari náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Silverstone brautinni í Bretlandi á blautri braut. Rigndi mikið á æfingunni. Massa náði besta tíma í blálokin, eftir að nokkrir ökumenn höfðu skipst á efsta sætinu á lokasprettinum á æfingunni. 8.7.2011 13:44
Webber á undan Schumacher á Silverstone Mark Webber hjá Red Bull var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Silverstone brautinni í Bretlandi í dag, en keppt verður á brautinni á sunnudaginn. Michael Schumacher á Mercedes var næst fljótastur og Rubens Barrichello á Williams þriðji. Sergio Perez á Sauber var með fjórða besta tíma, en hann er nýliði í Formúlu 1 á þessu ári. Bleyta var á Silverstone brautinni og Webber náði besta tímanum undir lok æfingarinnar, þegar hlutar brautarinnar höfðu þornað. 8.7.2011 09:51
Alonso: Erfitt að brúa bilið í Vettel Formúlu 1 ökumaðurinn Fernando Alonso hjá Ferrari stefnir á sigur í einstökum mótum á árinu, en telur að vandasamt fyrir ökumenn að skáka Sebastian Vettel ökumanni Red Bull í stigamótinu, nema Vettel geri mistök. Vettel er með 77 stiga forskot á Jenson Button hjá McLaren í stigamóti ökumanna, en Alonso er í fimmta sæti í stigamótinu, 99 stigum á eftir Vettel. Formúlu 1 mót er á Silverstone um helgina og fyrstu tvær æfingarnar á föstudag. 8.7.2011 09:01
Silverstone breytt fyrir tæpa 5.2 miljarða Silverstone brautarstæðinu í Bretlandi hefur verið breytt fyrir 28 miljónir sterlingspunda á milli ára, eða fyrir 5.196 milljarða íslenskra króna. Búið er að reisa ný mannvirki fyrir aðstöðu keppnisliða, sem verður notuð í fyrsta skipti af Formúlu 1 liðum í breska kappakstrinum um helgina. 6.7.2011 15:52
Nýliðinn Ricciardo þakklátur fyrir ökumannssæti hjá Hispania Nýliði í keppni í Formúlu 1 stýrir bíl hjá Formúlu 1 liðið Hispania á Silverstone brautinni í Bretlandi um helgina. Þetta er Ástralinn Daniel Ricciardo, sem hefur verið varaökumaður Torro Rosso. 6.7.2011 14:23
Mansell hrifinn af frammistöðu Vettel og lét ekki beinbrot stöðva sig Fyrrum Formúlu 1 ökumaðurinn og Bretinn Nigel Mansell er hrifinn af frammistöðu Sebastian Vettel og hvernig hann hefur náð tökum á nýjum dekkjum í Formúlu 1. Sjálfur varð Mansell meistari 1992 og lét ekki brotin bein í fæti stöðva sig frá takmarki sínu í titilslagnum á sínum tima. Mansell verður meðal dómara á breska kappakstrinum um næstu helgi. 5.7.2011 15:10
Williams vann fyrsta og 100 sigurinn á Silverstone Williams liðið er á heimavelli á Silverstone brautinni eins og önnur Formúlu 1 lið, sem eru staðsett í Bretlandi. Níunda umferðin í Formúlu 1 verður á brautinni um helgina. Williams liðið vann sinn fyrsta sigur á brautinni árið 1979 og þann 100 í röðinni árið 1997. 5.7.2011 13:59
Williams liðið samdi við Renault um samstarf 2012 og 2013 Formúlu 1 lið Williams hefur samið við Renault um að útvega liðinu vélar frá og með næsta keppnistímabili, en meistaralið Red Bull notar Renault vélar, rétt eins og Renault liðið sjálft og Lotus. Williams vann marga titla með Renault á árum áður og keppir í breska kappakstrinum um næstu helgi á Silverstone. 4.7.2011 17:27
Button dreymir um að sigra á Silverstone brautinni Jenson Button hjá McLaren er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Sebastian Vettel á Red Bull. Button, sem er breskur verður á heimavelli á Silverstone brautinni um næstu helgi, rétt eins og liðsfélagi hans Lewis Hamilton. 4.7.2011 16:38
Vettel stefnir á toppárangur á Silverstone Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel varð 24 ára í gær, en hann er með forystu í stigamóti ökumanna og keppir á Silverstone brautinni i Englandi um næstu helgi með Red Bull liðinu ásamt Mark Webber. 4.7.2011 15:36