Fleiri fréttir

Þjóðverjar eru til fyrirmyndar

Halldór Gylfason fer með hlutverk breska séntilmannsins Adrian Higgins í Hótel Volkswagen, nýju verki eftir Jón Gnarr sem frumsýnt er í Borgarleikhúsinu í kvöld. Hann sagði Kjartani Guðmundssyni frá sjálfsblekkingu, skinkubréfum og sumarfrísplani.

Aska fær góða dóma vestanhafs

"Þetta eru blöðin sem bóksalar byggja á þegar þeir panta sínar bækur. Þetta hjálpar rosalega mikið til við forsöluna á bókinni,“ segir Pétur Már Ólafsson hjá Bjarti og Veröld.

Tónar og tal um Pál á Húsafelli

Tónlistardagskrá verður í Gerðubergi á morgun í tilefni sýningar Páls á Húsafelli sem stendur yfir í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Tónleikarnir hefjast klukkan tvö en fram koma Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson, Páll á Húsafelli, Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir sópran og barnabarn Thors Vilhjálmssonar. Tónleikarnir og sýningin eru tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar rithöfundar.

Samfélagið verður grimmara í kreppu

Fátæka leikhúsið frumsýndi Glerdýrin eftir Tennessee Williams í Þjóðleikhúskjallaranum á þriðjudag. Önnur sýning verður á morgun klukkan 15. Heiðar Sumarliðason, þýðandi verksins og leikstjóri, segir uppsetningu verksins hafa verið nýja áskorun.

Gamansöm draugamynd í bígerð

Leikstjórinn Ágúst Guðmundsson hefur fengið vilyrði um framleiðslustyrk fyrir hátt í sjötíu milljónir króna fyrir kvikmyndina Ófeigur gengur aftur.

Gera heimildarmynd um Örlyg Sturluson

"Við erum rétt byrjaðir í framleiðsluferlinu,“ segir framleiðandinn Erlingur Jack Guðmundsson hjá Ogfilms um væntanlega heimildamynd um körfuboltakappann Örlyg Aron Sturluson. Stöð 2 hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn á myndinni.

Berthelsen leikur Pabbann

"Það er ekkert langt síðan hann varð faðir sjálfur þannig að hann tengdi virkilega við þessa sögu," segir Bjarni Haukur Þórsson, höfundur Pabbans.

Mest sótti bókamarkaðurinn

„Þetta er besti bókamarkaður sögunnar. Það hefur aldrei gengið jafnvel og nú,“ segir Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.

Veðurteppt listaverk

Starfsfólk Listasafns Reykjavíkur bíður nú milli vonar og ótta eftir því hvort listaverk spænska listamannsins Antoni Tàpies komist til landsins. Til stendur að opna stóra yfirlitssýningu með verkum hans í vestursal Kjarvalsstaða 17. mars. Tàpies, sem er í hópi virtustu listamanna Spánar, lést 6. febrúar síðastliðinn, þá 88 ára að aldri. Verkin, sem voru á leið frá Kaupmannahöfn til Seyðisfjarðar með Norrænu, komust ekki lengra en til Færeyja. Um mikinn fjölda málverka er að ræða, sem spanna sjö áratuga feril Tàpies.

Kormákur og Skjöldur fengu Menningarverðlaun DV

Menningarverðlaun DV voru afhent í Iðnó í dag en veitt voru verðlaun í níu flokkum. Veitt voru verðlaun flokkunum bókmenntir, fræði, byggingarlist, danslist, hönnun, kvikmyndir, leiklist, myndlist og tónlist. Þá voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári. Einnig voru veitt verðlaunin í flokknum Val lesenda. Forseti Íslands afhenti árleg heiðursverðlaun sem Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, hlaut. Þetta er í 33. skiptið sem menningarverðlaun DV eru afhent.

Hrikalegasta illmenni íslenskrar kvikmyndasögu

"Þetta er bara vinna. Þetta er ekkert flókið,“ segir leikarinn Damon Younger. Frammistaða Damons í glæpamyndinni Svartur á leik hefur vakið mikla athygli. Brúnó, persóna hans, þykir vera eitt hrikalegasta illmenni sem sést hefur í íslenskri kvikmynd og hann þykir standa sig stórkostlega í hlutverkinu.

Ég er sátt við mitt dagsverk

Allt er á yfirsnúningi í Listasafni Íslands þegar blaðamaður stingur inn nefinu daginn fyrir opnun yfirlitssýningar á verkum Rúríar. Allir sýningarsalir eru undir, iðnaðarmenn og starfsfólk safnsins á þönum á milli þeirra. Þau gætu örugglega þegið nokkra sýningarsali í viðbót, ef það væri í boði. Verk Rúríar taka oftar en ekki plássið sitt og aldrei áður hafa svo mörg þeirra verið sýnd saman á einum stað.

Þakklátasta leikkona landsins

Það stóð nú aldrei til að halda svona langa ræðu. Elma Lísa, vinkona mín sem fékk Edduverðlaunin í fyrra, var búin að vara mig við og sagði að ég yrði að vera búin að ákveða hvað ég ætlaði að segja ef ég færi upp. Mér fannst það mjög óþægilegt, því mér finnst tilhugsunin um að halda ræðu mjög stressandi. Þegar ég svo mætti þarna í Gamla bíó var ég alveg sannfærð um að ég væri ekkert að fara upp, svo ég var alveg róleg. En það var

Dansa Shakespeare

"Við tökum heilu senurnar úr leikritum Shakespeare og dönsum þær,“ segir Ragnheiður Bjarnason einn flytenda dansverksins Úps!, sem ætlað er að fanga gamanleikrit leikritaskáldsins William Shakespeare. Verkið er síðasti hluti þríleiks Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar sem byggður er á verku

Sjá næstu 50 fréttir