Ég er sátt við mitt dagsverk 3. mars 2012 10:00 "Hugsanlega munu fornleifafræðingar framtíðarinnar finna þessa kassa og það sem í þeim er verða einu sönnunargögnin um tilvist manna á jörðinni,,” segir Rúrí. Í kössunum eru mannvistarleifar úr nútímanum.réttablaðið/Valli
Allt er á yfirsnúningi í Listasafni Íslands þegar blaðamaður stingur inn nefinu daginn fyrir opnun yfirlitssýningar á verkum Rúríar. Allir sýningarsalir eru undir, iðnaðarmenn og starfsfólk safnsins á þönum á milli þeirra. Þau gætu örugglega þegið nokkra sýningarsali í viðbót, ef það væri í boði. Verk Rúríar taka oftar en ekki plássið sitt og aldrei áður hafa svo mörg þeirra verið sýnd saman á einum stað. Það er varla að Rúrí hafi tíma fyrir viðtal, en einhvern tímann verða allir að setjast niður. Þá gefst færi á stuttu spjalli. Spurð um hvaða tilfinningar vakni, þegar hún lítur yfir sinn fjörutíu ára feril, hugsar hún sig stuttlega um. „Ég er sátt við mitt dagsverk," segir hún svo og bætir við. „Mér finnst ég hafa varið tíma mínum ágætlega í listina. Ég gæti ekki hugsað mér betri vinnu. Ég held það skipti máli fyrir hvern og einn að reyna að finna hvaða atvinna hentar honum best. Ég held það hafi heilmikið að gera með hamingju. En listin er líka krefjandi og eins og ég meðtek hana þarf að leggja sig allan fram við hana. Maður vill skila góðu verki frá sér, sem maður getur sjálfur verið sáttur við og vonandi hefur gildi fyrir aðra." Margslungin og flókin verkÞað hefur líka tekið sinn tíma að undirbúa sýninguna, hvorki meira né minna en tvö ár. Þegar sextugsafmæli Rúríar nálgaðist þótti tími til kominn að draga saman listrænan feril hennar, sem spannar nær fjörutíu ár. Í fyrra leit fyrri afrakstur þeirra vinnu dagsins ljós, þegar yfirlitsbók um verk hennar kom út. „Elstu verkin hér á sýningunni eru alveg að verða fertug," segir Rúrí, bendir á mynd af einu elsta verki sýningarinnar og fer með ljóðrænan texta sem fylgir honum eftir minni. Það er greinilegt að henni þykir vænt um verk sín og gætir þeirra vel. Það er gott, því öðruvísi hefði vart verið mögulegt að safna saman verkum hennar á eins skipulegan hátt og nú hefur verið gert. Mörg þeirra þurftu þó lagfæringa við áður en hægt var að setja þau upp, þar sem tíminn og önnur eyðileggjandi öfl hafa sett sitt mark á þau. Sýningarstjórinn og meðhöfundur Rúríar að bókinni hennar, Christian Schoen, kemur nú upp í lyftunni með gínu upp á arminn. Hún klæðist þjóðbúningi Rúríar, frá árinu 1974. Búningnum muna margir eftir, í það minnsta þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur. Christian staldrar við og lýsir því hvernig leiðir hans og Rúríar lágu saman. Hann kynntist verkum hennar fyrst þegar hún sýndi á Feneyjatvíæringnum fyrir Íslands hönd árið 2003. Hann segir hana í hópi mikilvægasta listamanna Evrópu. „Eftir því sem ég kynnist verkum Rúríar betur sé ég hversu margslunginn og djúpur listamaður hún er. Það er engin leið að setja hana í einn ákveðinn flokk," segir hann og bætir við að hann vonist til þess að sýningin veki upp margar tilfinningar hjá gestum. Andrúmsloft sýningarrýmanna sé ólíkt, í takti við margbreytileika verka Rúríar. Ofbeldi á aldrei rétt á sérÍ verkum sínum tekst Rúrí jafnan á við samtímann og þau málefni sem brenna á þjóðinni hverju sinni. Hún notar dæmi úr fortíðinni, eða hugsanlegri framtíð, til að skoða samtímann. Samband manns og náttúru er henni hugleikið og þar finnst henni ofbeldi of áberandi kraftur. „Ofbeldi finnst mér ekki eiga nokkurn rétt á sér, í hvaða mynd sem er. Hvorki ofbeldi gagnvart einstaklingum, þjóðfélagshópum né þjóðum, eða gagnvart náttúrunni. Ég legg það að vissu leyti að jöfnu. Vitur bóndi gætir þess að rækta og yrkja jörðina á þann hátt að hún nái að viðhalda sér. Í iðnaðarsamfélögum höfum við sagt skilið við þetta viðhorf og menn hafa tekið að rányrkja jörðina. Það er gríðarlega alvarlegt mál sem snertir ekki bara nútímann heldur alla framtíð mannsins á jörðinni. Við eigum enga framtíð nema á jörðinni, það er eins gott að við förum að átta okkur á því."
Menning Mest lesið Kveður samfélagsmiðla fyrir fullt og allt Lífið Óvæntur glaðningur í veggjunum Lífið Dóttir Hólmfríðar og Jóhanns Bergs komin með nafn Lífið Fréttatía vikunnar: Fuglaflensa, Facebook og fjöldi Lífið Skilnaður eftir tuttugu ára samband Lífið Með þvottaklemmu á sér í beinni frá eldunum Lífið Frumsýning á Vísi: Hafa aldrei gengið eins langt og í Alheimsdraumnum Lífið Láttu draumana rætast með Úrval Útsýn Lífið samstarf Bönnuð innan 12 af ástæðu Lífið Glæsihús í Kópavogi með stórbrotnu útsýni Lífið Fleiri fréttir Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Arnaldur tók sér frí frá glæpum en ekki toppnum Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Sjá meira