Menning

Tónar og tal um Pál á Húsafelli

Páll á Húsafelli verður í aðalhlutverki í Gerðubergi á morgun.
Páll á Húsafelli verður í aðalhlutverki í Gerðubergi á morgun.
Tónlistardagskrá verður í Gerðubergi á morgun í tilefni sýningar Páls á Húsafelli sem stendur yfir í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Tónleikarnir hefjast klukkan tvö en fram koma Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson, Páll á Húsafelli, Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir sópran og barnabarn Thors Vilhjálmssonar. Tónleikarnir og sýningin eru tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar rithöfundar.

Klukkan 16.20 verður svo heimildarmyndin Bréfmiði til Páls frumsýnd en hún er eftir Kristin Örn Guðmundsson.

Hugmyndin að þessari heimildarmynd kviknaði þegar samsýning Páls og Thors Vilhjálmssonar sem bar heitið „Heilög Cecilía" var haldin í Hallgrímskirkju árið 2008. Thor og Páll höfðu í gegnum árin unnið mikið saman í listinni og bundust miklum vinaböndum. Framleiðsla og gerð þessarar myndar hefur verið í höndum Kristins Arnar Guðmundssonar. Þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.