Fleiri fréttir

Það eru engar flóttaleiðir færar

Mannslíkaminn er Kristínu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu yrkisefni bæði í teikningum og bláum gvassmyndum sem hún birtir í nýjum listasal Skúmaskots að Skólavörðustíg 21. Sýninguna opnar hún í dag klukkan 16.

Syngja um sálufélagana Hallgrím og Ragnheiði biskupsdóttur

Á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í dag flytur Alexandra Chernyshova sópransöngkona brot úr óperunni Skáldið og biskupsdóttirin, ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur sögumanni, Ásgeiri Páli Ágústssyni barítonsöngvara og Magnúsi Ragnarssyni orgelleikara

Fann hvernig slaknaði á mér

Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari býr og starfar í Banda­ríkjunum en í kvöld heldur hún einleikstónleika í Mengi.

Þú trúir á listagyðjuna og ég er rammkaþólskur

Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit verður haldin í nítjánda sinn um páskana og það verður fjölmennasta hátíðin til þessa segir Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari og forsprakki hátíðarinnar.

Taugaveikis-Mæja

Skilningur fólks fyrr á öldum á smitleiðum sjúkdóma var takmarkaður, en á sama hátt þarf ekki að koma á óvart þótt almenningur vildi finna blóraböggul. Eftir stendur að varla er hægt að hugsa sér ömurlegri örlög en að verða holdgervingur hræðilegs sjúkdóms og rata þannig í sögubækur löngu eftir sinn dag. Það varð einmitt hlutskipti Mary Mellon, matselju sem enn í dag er dregin fram í hvert sinn sem fjallað er um sögu taugaveiki.

Ég dreg ekkert undan

Ung ákvað hún að skrifa ævisöguna þegar hún yrði sextug en það dróst í fimmtán ár. Guðrún L. Ásgeirsdóttir kennari rifjar upp 32 fyrstu árin sín í bókinni Á meðan ég man.

Ísland eins og risastór háskólaheimavist

Egill Sæbjörnsson vill þjóðgarð á Íslandi. Hann segir mikilvægt að horfa á stóru myndina. Heimamenn verði oft samdauna fegurð landsins og það megi ekki gerast.

Litagleði, teikningar, vídeó og ljósaskúlptúrar

Myndlistartvíeykið Hugsteypan opnar sýninguna Umgerð í kvöld í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar leggur þrívíð innsetning undir sig sýningarrýmið og teygir anga sína um veggi og gólf aðalsalar safnsins.

Algjör rokkstjarna í litabókabransanum

Hanna Karlzon, sænskur hönnuður og menntaður myndlistakennari, er konan á bak við litabækurnar sem allir elska. Heimurinn bíður í ofvæni eftir nýju litabókinni hennar, Sommarnatt, sem kemur út í apríl á heimsvísu.

Danir fá fyrstu óperu Daníels Bjarnasonar

Daníel Bjarnason tónskáld hefur samið sína fyrstu óperu og hún er engin smásmíði. Óperan er gerð eftir dönsku bíómyndinni Brødre frá 2004 og verður frumflutt af dönsku þjóðaróperunni í Árósum á næsta ári.

Dalakofinn og lagið um hana Unu

3Klassískar og 2Prúbúnir koma fram á hádegistónleikum sem hefjast klukkan 12 í dag í Fríkirkjunni og standa í hálftíma.

Hið íslenska bókmenntafélag í samstarf með GAMMA

Fjármálafyrirtækið GAMMA og Hið íslenska bókmenntafélag skrifuðu undir samstarfssamning í dag í Gallery GAMMA þess efnis að GAMMA gerist bakhjarl félagsins til næstu fjögurra ára og styrki félagið um 20 milljónir króna á því tímabili.

Stigaþrep forsmánarinnar

Fáir stjórnmálamenn ef nokkrir létu sig útlit og bæjarbrag Reykjavíkur jafn miklu varða og Jónas frá Hriflu.

Þessi gulnuðu nótnablöð

Tvö nýfundin verk frá 1943 eftir hinn níræða Jón Nordal tónskáld eru á efnisskrá strengjasveitarinnar TónaList, undir stjórn Guðnýjar Guðmundsdóttur, í Seltjarnarneskirkju í dag.

Þegar Ibsen tók Hallgerði í gíslingu

Jón Karl Helgason prófessor í íslensku- og menningardeild HÍ leiðir líkur að því að Hedda Gabler eftir Ibsen eigi andlega ætt sína að rekja til Hallgerðar langbrókar enda var norska stórskáldið mikill unnandi Íslendingasagna og sótti sitthvað í þann sagnabrunn.

„Framar okkar björtustu vonum”

Rúmlega tíu prósent þjóðarinnar eru þegar búin að tryggja sér miða á söngleikinn Mamma mía sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þar hljómar tónlist Abba í fyrsta sinn á íslensku en þýðandinn sver af sér aðdáun á hljómsveitinni.

Útilistaverk Sigga Odds frumsýnt

Norr11 frumsýndi í tilefni af Hönnunarmars útilistaverk hannað af Sigga Odds á Hverfisgötu í portinu beint á móti Þjóðleikhúsinu síðdegis í dag.

Með bókverk á klósettinu

Hönnunarmars hefst í dag. Ein af opnunum dagsins er opnun Dulkápunnar á gömlum og nýjum bókverkum í gömlu salernunum við Bankastræti 0.

Ungæðislegt fjör

Úkraínski píanóleikarinn Alexander Romanovsky flytur Píanókonsert númer 1 eftir Sergej Rakhmaninoff á sinfóníutónleikunum í kvöld.

Ballett alþýðunnar

Fótbolti sleit barnsskónum á Íslandi á öðrum áratug síðustu aldar. Melavöllurinn var tekinn í notkun sumarið 1911 og árið eftir var Íslandsmótið í knattspyrnu haldið í fyrsta sinn. Í fásinninu í Reykjavík tók fólk allri afþreyingu fegins hendi og bæjarbúar mættu í stórum hópum á völlinn í hvert sinn sem færi gafst.

Syngja um huldar verur við kertaljós

Söngysturnar Erla Björg og Rannveig Káradætur, ásamt Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara verða með myndskreytta baðstofutónleika í safnaðarheimili Vídalínskirkju, Garðabæ á morgun.

Verkalýðsbarátta vinnandi fólks

Um sjötíu ljósmyndir, skjöl og tilkynningar er uppistaða sýningar Vinnandi fólk sem opnuð er í dag í Þjóðminjasafninu í tilefni 100 ára afmælis Alþýðusambands Íslands.

Ég er hluti af heildstæðu verki ólíkra listgreina

Í kvöld frumsýnir tékkneska leikkonan Tera Hof nýja leikgerð af skáldsögunni Skugga-Baldur eftir Sjón. Sýningin fer fram í Hafnarhúsinu og er samvinnuverkefni tékkneskra og íslenskra liistamanna.

Leiklistin skrifuð í stjörnurnar

Atli Óskar Fjalarsson er ungur og efnilegur leiklistarnemi sem stundar nám við New York Film Academy í Los Angeles. Atli hefur þegar leikið í nokkrum íslenskum kvikmyndum og í síðasta mánuði var hann var hann útnefndur rísandi stjarna eða Shooting Star á kvikmyndahátíðinni í Berlín.

Litagleðin ræður ríkjum

Fyrsta myndlistarsýning Ingibergs Finnboga Gunnlaugssonar stendur yfir í Gallerý O í Ármúla 4 -6. Hann gerir abstraktverk útskorin í tré og þar ræður litagleðin ríkjum.

Sjá næstu 50 fréttir